Góðir gestir Snærósar Sindradóttir ætla að rýna í hvern einasta þátt af þriðju þáttaröð Ófærðar, spá í það hver sé morðinginn, hvað Andri Ólafsson lögreglumaður fær sér mörg mjólkurglös áður en hann leysir málið og hvort sérsveitin verði nógu snögg á staðinn til að stöðva ófremdarástandið sem skapast hefur í ískalda og torfæra smábænum sem skapar sögusvið þáttanna. Ekki missa af Með Ófærð á heilanum, í hlaðvarpi og Spilaranum, strax að loknum hverjum þætti af Ófærð 3.
05.12.2021
12/5/2021 • 0
12/5/2021 • 26 minutes
Mjólkurglas hjá mömmu og kinkað til engla alheimsins
Stefán Pálsson sagnfræðingur og Diljá Ámundardóttir varaborgarfulltrúi komu sér fyrir í betri stofunni ásamt Snærós til að fara yfir æsispennandi Ófærðarþátt, sem svo vill til að er sá næstsíðasti í þáttaröðinni. Uppgjöf við karlmennskuhugmyndir var óvenju fyrirferðamikið í þættinum og síendurtekið verið að stinga á einhverjar hörkutólahugmyndir og æskuáföll.
11/28/2021 • 0

11/28/2021 • 30 minutes, 7 seconds
Pervertískur tengdafaðir og ástarævintýri með yfirmanni
Gestir þáttarins eru tveir fyrrverandi lögreglustjórar - enda ekki vanþörf á að fá augu fagmanna á vinnulag Andra, Hinriku, Trausta og nú Sonju. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, settust niður og greindu öll smáatriði þáttarins og fóru jafnframt yfir misvafasamar aðferðir lögreglunnar sem beitt hefur verið í þáttaröðinni hingað til. Ferskar kenningar um ábyrgð á morðinu á Ívari fengu að fljóta í þættinum og alveg ljóst að næstu tveir þættir, lokahnykkur seríunnar, verða einhver spennusprengja þar sem áhorfendum verður komið á óvart.
11/21/2021 • 0
Pervertískur tengdafaðir og ástarævintýri með yfirmanni
Gestir þáttarins eru tveir fyrrverandi lögreglustjórar - enda ekki vanþörf á að fá augu fagmanna á vinnulag Andra, Hinriku, Trausta og nú Sonju. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, settust niður og greindu öll smáatriði þáttarins og fóru jafnframt yfir misvafasamar aðferðir lögreglunnar sem beitt hefur verið í þáttaröðinni hingað til.
Ferskar kenningar um ábyrgð á morðinu á Ívari fengu að fljóta í þættinum og alveg ljóst að næstu tveir þættir, lokahnykkur seríunnar, verða einhver spennusprengja þar sem áhorfendum verður komið á óvart.
11/21/2021 • 29 minutes, 24 seconds
Færeyski töffarinn úlfur í sauðagæru og full afslappaður blaðamaður
Grínistinn Vilhelm Neto og rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir eru gestir í fimmta þætti Með Ófærð á heilanum. Þeim þykir Baby Lars, færeyski mótorhjólakappinn, líklegur morðingi en Gunnar leiðtogi íslensku deildar klíkunnar full mikil kveif til að geta borið ábyrgð á morðinu. Sonja, fíkniefnalöggan sem hefur tekið yfir rannsóknina, er eitursvöl gella með flottan fataskáp og líkleg til að slá öll vopn úr höndunum á Trausta og Andra þó ekkert fái hnikað Hinriku lögreglustjóra.
11/14/2021 • 0

11/14/2021 • 32 minutes, 19 seconds
Drekkingartilraun í innilaug og mótorhjólagengi í boltaleik
Atli Fannar Bjarkason og Lóa Hjálmtýsdóttir eru gestir í fjórða þætti af Með Ófærð á heilanum. Nýjar kenningar um fíkniefnaframleiðslu Stórfjölskyldunnar fá byr undir báða vængi og ljóst að Ása, sem reyndar sést ekkert í þessum þætti Ófærðar, veit meira en hún lætur uppi. Spilling innan lögreglunnar og sú staðreynd að tveir þættir af fjórum í þáttaröðinni hafa endað með yfirvofandi misþyrmingu á konu eru líka rædd í kjölinn.
11/7/2021 • 0

11/7/2021 • 35 minutes, 6 seconds
Rottur í káetum og karlmenn í svitahofi
Edda Falak og Hugleikur Dagsson eru gestir Snærósar í þriðja ófærðarspjallinu. Í þættinum koma upp glænýjar kenningar um hver ber ábyrgð á morðinu á Ívari og vangaveltur heyrast um rómantík í loftinu hjá Andra, ástarsexhyrninga stórfjölskyldunnar og hversu auðvelt það sé að sleppa frá löggunni í sjósundi. Hugleikur leggur fram brakandi ferska kenningu um svikara innan stórfjölskyldunnar og Edda telur morðingjann fela sig fyrir allra augum. Þátturinn inniheldur fullt af spilliefni úr þriðja þætti Ófærðar 3.
10/31/2021 • 0
Rottur í káetum og karlmenn í svitahofi
Edda Falak og Hugleikur Dagsson eru gestir Snærósar í þriðja ófærðarspjallinu. Í þættinum koma upp glænýjar kenningar um hver ber ábyrgð á morðinu á Ívari og vangaveltur heyrast um rómantík í loftinu hjá Andra, ástarsexhyrninga stórfjölskyldunnar og hversu auðvelt það sé að sleppa frá löggunni í sjósundi. Hugleikur leggur fram brakandi ferska kenningu um svikara innan stórfjölskyldunnar og Edda telur morðingjann fela sig fyrir allra augum.
Þátturinn inniheldur fullt af spilliefni úr þriðja þætti Ófærðar 3.
10/31/2021 • 32 minutes, 43 seconds
Baðferðir á dvalarheimili og meint hómófóbía
Fjölmiðlafólkið Margrét Erla Maack og Birgir Olgeirsson mættu til Snærósar og veltu upp nýjustu kenningunum um hvað gengur á í Ófærð 3. Hjá hverjum eða hverri svaf Ívar fyrir andlát sitt og hvar var Gunnar kvöldið sem morðið var framið? Það er full ástæða til að vara við spilliefni í þættinum. Það er alls ekki óhætt að hlusta á þáttinn fyrir þau sem ekki hafa séð annan þátt þriðju þáttaraðar af Ófærð.
10/24/2021 • 0
Baðferðir á dvalarheimili og meint hómófóbía
Fjölmiðlafólkið Margrét Erla Maack og Birgir Olgeirsson mættu til Snærósar og veltu upp nýjustu kenningunum um hvað gengur á í Ófærð 3. Hjá hverjum eða hverri svaf Ívar fyrir andlát sitt og hvar var Gunnar kvöldið sem morðið var framið?
Það er full ástæða til að vara við spilliefni í þættinum. Það er alls ekki óhætt að hlusta á þáttinn fyrir þau sem ekki hafa séð annan þátt þriðju þáttaraðar af Ófærð.
10/24/2021 • 35 minutes, 41 seconds
Mjólk með kjötsúpu og rándýrt hönnunarljós
Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona og Níels Thibaud Girerd sýningastjóri hjá Íslensku óperunni eru gestir Snærósar Sindradóttir í þessum fyrsta þætti af Með Ófærð á heilanum. Í þættinum er farið yfir víðan völl og oní minnstu smáatriði í fyrsta þætti Ófærðar 3. Passa innréttingarnar í íbúð Andra Ólafssonar við persónu hans? Er meðvirkni séríslenskur plagsiður? Hversu þrúgandi er nærvera Norrænu í smábænum og hversu mikið vesen mun fylgja leðurklæddu herdeildinni sem kom óvænt með skipinu í lok þáttarins? Þátturinn er smekkfullur af spilliefni úr fyrsta þætti Ófærðar 3 svo aðv örunar skal gætt.
10/17/2021 • 0
Mjólk með kjötsúpu og rándýrt hönnunarljós
Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona og Níels Thibaud Girerd sýningastjóri hjá Íslensku óperunni eru gestir Snærósar Sindradóttir í þessum fyrsta þætti af Með Ófærð á heilanum. Í þættinum er farið yfir víðan völl og oní minnstu smáatriði í fyrsta þætti Ófærðar 3. Passa innréttingarnar í íbúð Andra Ólafssonar við persónu hans? Er meðvirkni séríslenskur plagsiður? Hversu þrúgandi er nærvera Norrænu í smábænum og hversu mikið vesen mun fylgja leðurklæddu herdeildinni sem kom óvænt með skipinu í lok þáttarins?
Þátturinn er smekkfullur af spilliefni úr fyrsta þætti Ófærðar 3 svo aðvörunar skal gætt.
10/17/2021 • 37 minutes, 1 second
Kynning
Góðir gestir Snærósar Sindradóttir ætla að rýna í hvern einasta þátt af þriðju þáttaröð Ófærðar, spá í það hver sé morðinginn, hvað Andri Ólafsson lögreglumaður fær sér mörg mjólkurglös áður en hann leysir málið og hvort sérsveitin verði nógu snögg á staðinn til að stöðva ófremdarástandið sem skapast hefur í ískalda og torfæra smábænum sem skapar sögusvið þáttanna. Ekki missa af Með Ófærð á heilanum, í hlaðvarpi og Spilaranum, strax að loknum hverjum þætti af Ófærð 3.
10/11/2021 • 0