Birkir Fjalar og Smári Tarfur láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.
012. Hellirinn Metalfest #3, Reykjadoom, Morpholith og Bongripper (Hörður Jónsson & Jónas Hauksson)
Hugsjónamennirnir Jónas Haux og Hörður Jónsson, báðir meðlimir Morpholith, mættu í kaffi hjá strákunum til að ræða Hellinn Metalfest #3 (fyrir alla aldurshópa) sem fram fer 14. október næstkomandi, tilurð og stöðuna á Morpholith þessi dægrin, pælinguna á bak við og tilgang Reykjadoom (áður Doomcember) en síðast en ekki síst tilvonandi heimsókn doom og sludge metal risanna í Bongripper. Hellirinn Metal Fest #3 fer fram 14. október, í TÞM/Hellinum og hefst klukkan 18 fyrir alla aldurshópa.Fram koma:ULTRA MAGNUSBLÓÐMÖRDAUÐYFLINNYRSTALCHEMIAZHRINEBONGRIPPER koma fram á Gauknum 26. október næstkomandi ásamtSLOR og MORPHOLITH.Tónlist í þættinum:* It's Alright - ALCHEMIA (New Reality, 2021)* Orsök - NYRST (Orsök, 2020)* Satan - BONGRIPPER (Satan Worshipping Doom, 2020)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
10/8/2023 • 1 hour, 3 minutes, 3 seconds
011. Reykjavík DeathFest (Ingólfur Ólafsson & Stefán Friðriksson
Það er alltaf mikill glaumur og gleði þegar Reykjavík Deathfest á sér stað. Í raun ættum við að vera þakklát fyrir þessa hátíð og hugsjónastarfið sem hún grundvallast á. Metnaður og stemmning, tengingar og uppgötvanir, það er það sem allt snýst um. Hér er dauðarokkið --og afkimar þessu-- komið til vegs og virðingar.Til að ræða þetta, sögu hátíðarinnar og þau atriði sem eru á boðstólnum þetta árið, fengum við til okkar tvo eldhressa hátíðarstrumpa sem brenna fyrir málstaðinn, þá Ingólf Ólafsson og Stefán Friðriksson.Hátíðin fer fram 29. til 30. september á Gauknum.Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
9/21/2023 • 52 minutes, 7 seconds
010. Obituary - Slowly We Rot & Cause of Death (Baldur Beck)
Lengsta tilhlaup Stokkið í eldinn til þessa og ekki að ósekju. Þetta er stór, safaríkur og blóðugur biti og mikið af tilfinningum í spilinu. Einir af guðfeðrum dauðarokksins, Obituary, liggja til grundvallar, nánar tiltekið fyrsti tvær plötur þeirra; Slowly We Rot og Cause Of Death.Aldargamall vinur og ævifélagi Smára og Birkis, Baldur Beck, er þeim til fulltingis í þessi sneisaþykka niðurbroti. Komið endilega í þetta ferðalag með okkur og lát heyra! Við erum blood soaked andspænis gates of hell! Vér endum body bag í! Dzzzzzzaaaaaauuuuuuhhhhh!Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
9/19/2023 • 3 hours, 52 minutes, 11 seconds
009. Lífið er lag; sóló Friðriks Karlssonar (Þráinn Skálmöld, Haukur Blóðmör og Snorri Barón)
Heill þáttur um eitt gítarsóló og það úr Júróvisjónlagi? Að sjálfsögðu! Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik Friðriks Karlssonar (Mezzoforte, Heart To Heart, Stjórnin, Tívolí) í poppsmell Model, „Lífið er lag.“ Þeim til fulltingis voru Þráinn Árni Baldvinsson (Skálmöld), Haukur Þór Valdimarsson (Blóðmör) og Snorri Barón (ríki myrkrahöfðingjans).Tónlistin í þættinum:- DARK HARVEST "Going South" (2008)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
9/11/2023 • 1 hour, 12 minutes, 45 seconds
008. Lífsmark (Kvöldsund með tveimur kumpánum)
Sannast hið fornkveðna að á misjöfnu þrífast börnin best. Þetta vita Smári Tarfur og Birkir Fjalar. Hvað hefur það með nokkurn skapaðan hlut að gera, eða öllu heldur, með þetta hlaðvarp og þessa miklu þögn? ...Það veit enginn.Af hverju hefur engin þáttur farið í loftið síðan 3. júní síðastliðinn? Svörin er að finna í þessum ólgandi þætti. Ólgandi!Hvað sem því líður þá lifir Stokkið í eldinn. Lifi!Tónlistin í þættinum:- GRAVESLIME "Double Damage" af Roughness And Toughness (2003)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
8/25/2023 • 1 hour, 3 minutes, 21 seconds
007. Death - Human (Magnús Halldór Pálsson)
Þungarokksbræðurnir standa oft á gati þegar Human plata Flórídarisanna í Death ber á góma. Ástæðan er einföld; þegar um tímamótaverk er að ræða - sem tíminn fær ekki bitið á - þá verður lotningin slík að hún breytist nánst yfir í óttablandna virðingu. Það er svo ægilega mikið sem loðir við foringja sveitarinnar, frumkvöðulinn Chuck Schuldiner, og hans áhrif á þungarokkið æ síðan hann gaf út sína fyrstu plötu. En það er meira. Hann var ólíkindatól og vandræðapési, en þó ekki í hefðbundnum þungarokksskilningi þessara orða. Hann er engin Philip Anselmo eða Tommy Lee. Hann er eitthvað annað. Miskilið nörd? Sérhlífinn fýlupúki? Yfirgaf hann hljómsveit sína á miðju tónleikaferðalagi og þeir þurfti að spila án hans, söngvaralausir? Já. Hnakkreifst hann við umboðsmann sinn og sagði honum upp og réði eins og um jójó væri að ræða? Já. Skipti hann meðlimum út og inn án þess að láta þá vita? Ó já. Er hann einn af allra bestu lagasmiðum og útsetjurum þungarokksins? Jahá!Blessuð sé minning meistarans!Og já, Birkir mismælti sig þegar hann sagði "Flight of Icarus" í stað "Where Eagles Dare"! Gerist á bestu...En, er Human merkasta dauðarokksplata allra tíma? Það getur bara vel verið. Er Human besta plata Death? Eigum við ekki að komast að því í sameiningu?Sérstakur gestur þáttarins er okkar eigið undrabarn og snillingur, Magnús Halldór Pálsson (Forgarður Helvítis, Changer, Dark Harvest, Vetur, Beneath o.s.frv.).Tónlistin í þættinum:- BLOODLETTER "Blood Is Life" af netskífu (2023)- GADDAVÍR " Heimabæjarhetja" af Haltu kjafti ég hef það fínt (2022)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook! Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
6/3/2023 • 2 hours, 15 minutes, 56 seconds
006. Kvöldstund með listamanni. Dagur Gonzales (MISÞYRMING) og Rammstein
Kvöldstund með listamanni;Forsprakki Íslensku svartmálsmsveitarinnar Misþyrmingar, hann Dagur Gonzales, mætti í hljóðver til að eiga við okkur orð um eina af hans lifsins hljómsveitum. Sú er Þýsk. Mjög þýsk. Rammstein hefur verið í eyrum Dags síðan hann var polli. Það heyrist og jafnvel sést. Dagur spólaði hressilega til baka og sagði okkur frá því hvernig Þjóðverjarnir knáu komu inn í líf hans og hver áhrif þeirra hafa verið til dagsins í dag.Viðtalið hefst 00:41.30.Þessi Kvöldstund með listamanni er í boði Malbygg. Malbygg er brugghús hvers hágæða handverksdrykkir eiga sannarlega upp á pallborðið hjá Stokkið í eldinn og mun víðar. Finnið og fylgið Malbygg á netinu:Heimasíða.Facebook.Instagram.Malbygg taproom er í Skútuvogi 1G, Reykjavík. Frábær staður til að sækja heim og njóta og fá auðvitað eins nálæga fræðslu og snertingu við viðfangsefni og hægt er. Mælum með!Tónlistin í þættinum:- MISÞYRMING "Með Harmi" af Með hamri.- MISÞYRMING "Engin Miskunn" af Með hamri. - FUNERAL MIST "Children of The Urn" af Deiform.Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook! Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
4/10/2023 • 2 hours, 50 minutes, 45 seconds
005. Pantera (Terry Glaze árin)
Á undan Anselmo var Glassúrinn.Það er þessi eilífi vandræðagangur á Pantera alla daga. Þannig hefur það verið síðan við vorum peyjar. Eins og öll vita urðu Pantera stærri en lífið sjálft og þannig var það lengi, lengi. En svo var hvíslað að manni að fortíð þeirra, tónlistarleg fortíð þeirra, væri þyrnum stráð. Hernig stóð á því? Er þetta ekki bara búin að vera heljarinnar sleggja síðan Kúasmalar helvítis kom út? Er það ekki útgangspunkturinn góði? Svo er víst ekki. Áður en sú platan reið röftum þá var Pantera dæmigerður 9. áratugs hárgreiðslumetall (eða svo er sagt). Hair metal! Glam metal! Mikið eitís. Hard rockin' dudes! Einhvernveginn varð það þannig að plöturnar fjórar sem út höfðu komið fyrir Cowboys From Hell voru ekki til. Horfnar, nánast sporlaust. Pantera töluðu ekki um þessa vafasömu fortíð sína. Aðdáendur sveitarinnar létu sem þessar plötur tilleyrðu einhverjum öðrum og annar þáttarstjórnenda Stokkið í eldinn afneitaði þessu alfarið að því leitinu að hann lét aldrei verða að því að svo mikið sem renna einni "svona plötu" í gegn. Þar til nú.Á plötunum Metal Magic (1983), Projects in the Jungle (1984) og I Am the Night (1985) er að finna vísbendingar um hvaða Pantera kom og hvað þeir áttu eftir að gera. Er eitthvað varið í þessar plötur? Eiga þær erindi? Eru þær jafn hjákátlegar og fólk vera láta? Jafn ömurlega misheppnaðar og myndirnar á umslögunum? Sitt sýnist hverjum. Pælum í þessu saman.Tónlistin í þættinum:- CHANGER "River of Bones" af Pledge Of The Dying.- ÓREIÐA "The Eternal" af samnefndri plötu. - GRAFNÁR "Ómennsk" af samnefndri útgáfu.Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook! Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
3/19/2023 • 1 hour, 48 minutes, 48 seconds
004. Anthrax (Big Four)
Hvað með Anthrax?Þetta þarf að ræða. Þetta verður að ráðast. Eða hvað? Neinei, fyrst og fremst er yndislegt að tala um tónlist og samtalið er lifandi og í stöðugri þróun. En. Og þetta er stórt en. Stundum hefur fólk rangt fyrir sér. Einfaldlega. Og þó...Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér hvernig það megi vera að enn sé Anthrax fyrsta sveitin til að detta út af Big 4 of Thrash sé yfirleitt spurt hvort önnur sveit eigi að taka stað Metallica, Slayer, Anthrax og Megadeth. Metalbræðurnir klóra sér í höfðinu og einkennist samtalið af koffínæði annars þeirra og viðleitni hins til að komst lífs af úr hljóðveri. En það besta við þetta viðfangsefni, hvort sem það er í endurskoðun eða ekki, er að velti þú steinum, þá kemur eitthvað nýtt upp en umfram allt tala öll um þetta mál af ástríðu, ákefð og sannfæringu. Því er ekki öðruvísi farið í tilfelli Tarfs og Fjalars.Auk þessa aðalmáls þá fara þáttastjórnendur yfir fréttir... Þungarokksfréttir! Þetta er nýbreytni sem við vonum að leggist vel í hlustendur.Gestur þáttarins er Peter Carparelli, forsprakki Bloodletter, sem er þungarokkssveit frá vindhanaborginni Chicago í Bandaríkjunum.Tónlistin í þættinum:- BLOODLETTER "Poisenous Affair" af Malignancy.- NECKSPLITTER "Uroxicide" af Exponential Trauma. - WILD BEYOND "Sculpting The Abyss" af samnefndri plötu.- NIGHTMARER "Throe Of Illicit Withdrawal" Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook! Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
3/5/2023 • 2 hours, 13 minutes, 30 seconds
003. Gorguts - Erosion Of Sanity
Í smábæ einum í Frönsku-Kanada leystist úr læðing dauðarokksafl svo ægilegt að ennþá eimir af áhrifum og keðjuverkun þess sem bílskúraðist og blandspólaðist af stað árið 1989. Gorguts var það heillin! Við erum á jaðrinum, því þrátt fyrir veru sína hjá Roadrunner útgáfunni og að frumraunin, Considered Dead (1991), hafi verið tekin upp af hinum goðsagnakennda Scott Burns, í hinu sögufræga Morrisound hljóðveri, þá náðu Gorguts ekki að gægjast upp úr fjöldanum. Og þeir fóru enn dýpra ofan í pittinn á annari plötu sinni, Erosion of Sanity (1993) sem hér liggur til grundvallar. Því meistaraverki, að Birki finnst. Hvað finnst Tarfinum?Tíminn hefur farið vel með Considered Dead, þ.e.a.s., hún á sér marga aðdáendur enda skartar hún eftirminnilegu og grípandi dauðarokki undir áhrifum þess tíma. Þriðja platan, Obscura (1998), kom óvænt út eftir langt hlé, þá höfðu mörg afskrifað sveitina. En sú plata snéri hugmyndum okkar um dauðarokk á hvolf, svo um munaði. En á undan henni kom Erosion Of Sanity, sem er einhvernvegin týnd á milli tveggja platna sem rata, af einhverri ástæðu, oftar á varir fólks. Hvað veldur og á hún þetta skilið?Sérstakur gestur þáttarins er Ingólfur Ólafsson, sérlegur æðsti dauðarokksprestur Íslands, en hann hefur m.a. gert kirkjugarðinn frægan með Severed Crotch og Ophidian I og nú síðast Devine Defilement og Epidermal Veil. Einnig fer hann fyrir tónlistarhátíðum á borð við Reykjavík Death Fest. Hann segir okkur frá sambandi sínu við Erosion Of Sanity.Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook! Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
2/22/2023 • 1 hour, 39 minutes, 30 seconds
002. Slayer (Metal Blade árin)
Slayer! SLAYER! Tölum um Slayer.Þungarokksþátturinn Stokkið í eldinn (hlaðvarp) er í umsjá Birkis Fjalars og Smára Tarfs.Þátturinn er studdur af Luxor: Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. www.luxor.is
2/9/2023 • 2 hours, 15 minutes, 30 seconds
001. Kill 'Em All (Metallica)
Málmhausarnir ræða vægi og gæði fyrstu hljómplötu Metallicubræðra á líf Reyð - og Patreksfirðings sem og gjörvalls mannkynsins, svei mér þá. Tímamótaverkið Kill 'Em All kom út árið 1983 og ekkert varð eins eftir það.
Fullyrðingar sem fram koma í þættinum eru sagðar án ábyrgðar.
Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.
- Snæfugl
2/1/2023 • 2 hours, 36 minutes, 30 seconds
000. Kynningarþáttur
Hæ öll!
Af hverju þungarokksþáttur? Af hverju svona? Af hverju þessir tveir karlar? Hvernig verður þetta allt? Er Slayer? SLAYER!!!