Við erum Tinna og Lára og við elskum að tala. Við eigum samtals sjö börn og komum til með að tala um allt sem okkur dettur í hug, allt frá barnatengdum hlutum, sambandserfiðleikar, kynlíf o.s.frv. Erum ekki feimnar að ræða hluti sem eru tabú.
68. Nú ert þú bara orðin svona..glansmyndahóra
4/28/2023 • 50 minutes, 35 seconds
67. Ef þið verðið ekki stillt þá krossfesti ég ykkur
4/9/2023 • 1 hour, 14 minutes, 26 seconds
66. Hvað ertu eitthvað gröð eða?
3/31/2023 • 48 minutes, 48 seconds
65. Oh my god, ég veit ekkert hver þú ert!
3/22/2023 • 1 hour, 5 minutes, 24 seconds
64. Smá plump
3/14/2023 • 1 hour, 1 minute, 39 seconds
63. Í hvaða mánuði á Einar afmæli?
3/7/2023 • 37 minutes, 41 seconds
62. Gulur bíll!
3/1/2023 • 1 hour, 11 minutes, 13 seconds
61. Gráar og gruggugar!
2/21/2023 • 58 minutes, 6 seconds
60. Loksins! Repjuolíu umræða
Pálína Páls kom til okkar í mjög skemmtilegt spjall um repjuolíu, margt fróðlegt og áhugavert!
2/10/2023 • 1 hour, 4 minutes, 30 seconds
59. ,,Ég hef sjaldan skammast mín jafn mikið!"
Lára missti kúlið í ræktinni, dýnurnar eru illa lyktandi og Tinna er of þyrst. Hver er annars heitasta celeb Íslands?
1/27/2023 • 1 hour, 9 minutes, 18 seconds
58. Föstudagsgleði!
Föstudagar eru nýju dagarnir okkar og nú ætlum við að vera duglegri að taka upp! Þátturinn á léttu nótunum í dag, góða helgi!
1/20/2023 • 39 minutes, 8 seconds
57. Þyngdartap, er það neikvætt?
Pælingar um þyngdartap, líkamsímynd og fleira. Er ekki bara mikilvægast að fólki líði vel í eigin skinni og hver og einn sjái um sig?
1/10/2023 • 42 minutes, 27 seconds
56. Bæ 2022
Geggjuðu ári að ljúka! Við lofum að taka okkur á og taka upp 1x í viku 2023.
12/29/2022 • 43 minutes, 2 seconds
55. Fitness, veikindi & slúður
Hafdís Björg ofurkona með meiru kom til okkar í áhugavert spjall. Hún lenti í rosalegum veikindum í kjölfar myglu á heimilinu, segir okkur frá fitness, slúðursögum og fleiru.
12/11/2022 • 1 hour, 10 minutes, 12 seconds
54. Að horfast í augu við dauðann
Elín Óladóttir er gestur þáttarins. Elín hefur lent í ótrúlegum atburðum og upplifað meira en margir gera á heilli ævi. Hún er alveg ótrúleg, magnað spjall með magnaðri konu.
11/20/2022 • 1 hour, 36 minutes, 22 seconds
53. We are back bi*ches!
Loksins mættar í settið eftir alltof langa fjarveru!
11/6/2022 • 43 minutes, 3 seconds
52. Sigga Dögg kynlífsfræðingur
Frábært spjall við hina einu sönnu Siggu Dögg. Hún býður hlustendum upp á afslátt af námskeiðum og bók (sjá ÞM insta). Styrktaraðilar þáttarins eru @losti.is og @subwayiceland
9/21/2022 • 1 hour, 26 minutes, 44 seconds
51. Að mála skrattann á vegginn
Jæja við erum mættar aftur eftir sumarfrí. HÆÆÆ :) Byrjum á djúpu umræðuefni sem okkur fannst samt þörf á að ræða!
8/16/2022 • 1 hour, 1 minute, 1 second
50. Njótið sumarsins!
Spjall um alls kyns random. Við segjum bara gleðilegt sumar og við heyrumst eftir mánuð <3
6/29/2022 • 1 hour, 4 minutes, 43 seconds
49. Markmið
Lára ætlar sér að verða fjölskylduráðgjafi og Tinna vill sumarbústað. Skemmtilegt spjall og við komnar á ról aftur, jibbý.
6/14/2022 • 1 hour, 2 minutes, 5 seconds
48. Það er dýrt að vera til!
Lára er Valla vælari og blöskrar yfir verði fótboltamóts. Erum ávallt þreyttar en samt hressar á kantinum.
6/5/2022 • 59 minutes, 49 seconds
47. Lára er Pam & Tinna er Tommy
Miðlar, Tene, lífið og auðvitað Pam og Tommy. Mættar eftir pásu og svona asskoti hressar.
5/22/2022 • 56 minutes, 52 seconds
46. Gömlu konurnar mættar í settið
Sumar eru tilbúnar að verða gamlar, en aðrar eru forever young. Giskið hvor er hvað, eða hlutsið. Styrktaraðili þáttarins er @subwayiceland
4/25/2022 • 58 minutes, 39 seconds
45. Tinna kaupir parhús og Lára fer til Tene
Við erum sjúklega hressar og margt spennandi að gerast hjá okkur. Þreyttar en hamingjusamar múttur í kósý spjalli. Styrktaraðili þáttarins er @subwayiceland
4/1/2022 • 52 minutes, 37 seconds
44. Gestur: Pálína Páls / ristilskolun
Gjörsamlega geggjað spjall um ristilskolun og fleira. Styrktaraðilar þáttarins eru @milly.is_ & @subwayiceland
3/20/2022 • 1 hour, 38 minutes, 54 seconds
43. Okkar reynsla af pararáðgjöf
Við erum báðar sammála um að pararáðgjöf sé nauðsynleg fyrir öll pör og elskum að tala um þetta málefni! Styrktaraðilar þáttarins eru @milly.is_ & @subwayiceland
3/9/2022 • 51 minutes, 40 seconds
42. WE ARE BACK
Loksins mættar aftur eftir covid ves! Mjög spenntar að komast aftur í gírinn. Man flu, er það annars eitthvað? Styrktaraðili þáttarins er www.milly.is
2/27/2022 • 46 minutes, 42 seconds
41. Opið hjónaband
Þórhildur (@sundurogsaman) kom til okkar í geggjað spjall. Kóðinn threyttarmommur20 gefur 20% af öllu inn á www.milly.is
2/3/2022 • 46 minutes, 53 seconds
40. Q&amp;amp;A og alls konar babbl
Tinna er Nilla neikvæða og Lára beilaði á átakinu eftir dag eitt. Annars fínt Q&amp;amp;A og það kemur gestur í næsta þætti! :) Styrktaraðili þáttarins er Milly - www.milly.is
1/18/2022 • 36 minutes, 34 seconds
39. Mánudagar til mæðu!
Lára og Tinna eru byrjaðar í skólanum og eru mánudagar nýju upptökudagarnir! Hvernig ætli Tinnu takist að lifa sparlega? Mun Lára massa sykurlausan janúar?
1/10/2022 • 40 minutes, 24 seconds
38. Camilla Rut
Camilla kom til okkar í geggjað spjall. Tilfinningamikið, lærdómsríkt & einlægt. Mælum mikið með <3
1/4/2022 • 1 hour, 45 minutes, 46 seconds
37. Gleðileg jól & farsælt komandi nýtt ár :*
Við ræðum jólahefðir og skrítinn jólamat, sem hlustendur sendu á okkur. Fórum svo yfir árið 2021. Takk fyrir okkur! <3
12/21/2021 • 38 minutes, 48 seconds
36. ADHD greining
Tinna er komin með ADHD greiningu og segir frá ferlinu og framhaldinu.
12/14/2021 • 38 minutes, 56 seconds
35. Gestur: Konni hagfræðingur
Skemmtilegt spjall við hagfræðing á mannamáli. Létt og þægileg umræða sem allir ættu að geta skilið, eða svona mest megnis :D
12/9/2021 • 50 minutes, 28 seconds
34. Örþáttur í nýja stúdíóinu
Létt spjall um random hluti í nýja stúdíóinu okkar. Mætum hressar með gest (hagfræðing) í næstu viku!
11/23/2021 • 29 minutes, 52 seconds
33. Jólapepp
Hó, hó hó. Við ræðum um jólagjafir, skógjafir, jólahefðir og alls konar jóla tengda hluti.
11/7/2021 • 1 hour, 3 minutes, 44 seconds
32. Agnes Barkar: kulnun, áföll og markþjálfun
Agnes kom til okkar í mjög skemmtilegt og áhugavert spjall. Hún hefur gengið í gegnum ýmislegt og starfar nú sem markþjálfi.
10/26/2021 • 1 hour, 13 minutes, 58 seconds
31. Q&A ll
Alls konar skemmtilegar spurningar frá ykkur. Njótið vel <3
10/12/2021 • 53 minutes, 39 seconds
30. Helga Sörens - andlegt ofbeldi og kúgun
Helga Sörensdóttir kom til okkar í spjall. Hún flúði 5.117km frá maka sínum og er komin heim og segir okkur sína sögu, sem er mögnuð! Þessi þáttur er rosalegur.
10/7/2021 • 1 hour, 22 minutes, 17 seconds
29. Fjármálatips
Tinna elskar fjármálaskjalið sitt og að tala um fjármál. Lára lofar því að útbúa fjárhagsskjal eftir þetta spjall, sjáum hvað setur.
9/28/2021 • 57 minutes, 26 seconds
28. Fæða barn eða bara....kveikja í mér?
Loksins annar gestur! Unnur Birna Bassadóttir er haldin tókófóbíu og ætlaði sér aldrei að eignast börn. Nú á hún 10 mánaða dóttur og segir sína sögu sem er mjög áhugaverð og skemmtileg.
9/17/2021 • 44 minutes, 25 seconds
27. Örþáttur
Mættar aftur! Við erum loksins komnar með nýtt forrit og munum byrja að taka á móti gestum í næstu viku og mánaðarlega framvegis. Létt spjall í þessum þætti um sálfræðiaðstoð, pararáðgjöf og hreyfingu. Njótið.
9/7/2021 • 22 minutes, 28 seconds
26. Djöfull er lífið skrítið
Erum við í Sims? Til hvers erum við hérna? Við höfum engin svör en ansi gaman að ræða alls konar um lífið.
8/24/2021 • 42 minutes, 31 seconds
25. Hugræn byrði
Ert þú forstjóri heimilisins? Tinnu finnst höfuðið stundum vera að springa og langar að laga þetta með manninum sínum, sem veit að þetta er vandamál.
8/15/2021 • 57 minutes, 4 seconds
24. Við erum mættar aftur, tipsy og til í tuskið
Loksins mættar aftur eftir sumarfrí, byrjuðum þáttinn edrú, enduðum tipsy, njótið. Hlökkum mikið til haustsins og rútínunarinnar.
8/6/2021 • 2 hours, 1 minute, 37 seconds
23. LÁRA ER FRÚ LÁRA
Lára gifti sig á laugardaginn og er því orðin frú Lára. Við tölum um daginn hennar og alls konar vitleysu, eins og vanalega.
7/14/2021 • 45 minutes, 15 seconds
22. Brúðkaup eftir fimm daga!
Lára er að fara gifta sig á laugardaginn. Við fórum báðar frekar óhefðbundnar leiðir í þessum málum. Skemmtilegt spjall um brúðkaupsundirbúning.
7/5/2021 • 48 minutes, 34 seconds
21. GÆS
Lára var gæsuð fyrir helgi og er himinlifandi með daginn, þrátt fyrir ömurlegt veður sem setti strik í reikninginn. Skemmtilegt gæsunarspjall, en svo fórum við langt út fyrir efnið, eins og vanalega.
6/29/2021 • 54 minutes, 49 seconds
20. Topp stöff
Við sögðum frá okkar uppáhalds kvikmyndum, mat, ferðalögum og fleira. P.s. Pink, er hún málið eða er Tinna úti að skíta?
6/21/2021 • 51 minutes, 20 seconds
19. Skapa peningar hamingju?
Við veltum því fyrir okkur hvort það veiti okkur hamingju að eiga dýrari hluti. Er betra að gráta í Micru heldur en Benz?
6/13/2021 • 46 minutes, 44 seconds
18. Verkaskipting heimilisins - er hún jöfn á þínu heimili?
Gerir makinn þinn jafn mikið og þú? Er pirringur á milli ykkar því annar gerir meira en hinn? Hvernig finnur maður jafnvægi í þessu? Áhugaverð umræða um þetta málefni.
6/6/2021 • 57 minutes, 42 seconds
17. Áhrifavaldar, eða áhrifaskaðar?
Tinna og Lára ræða um áhrifavalda. Eru þeir að hafa góð áhrif á okkur? Tinna hefur verið með opinn miðil í nokkur ár og segir sína hlið. P.s. Youtube "stjarnan" sem við mundum ekki hvað heitir: NASTYA
5/30/2021 • 58 minutes, 48 seconds
16. Ferðumst innanlands!
Við elskum að ferðast innanlands og tölum t.d. um sniðugar dagsferðir - það þarf ekki alltaf að eyða fullt af cash. Ferðumst innanlands sumarið 2021 og gerum mikið að því.
5/23/2021 • 57 minutes, 30 seconds
15. Spurningar úr sal
Við báðum okkar fylgendur að senda okkur hugmyndir að umræðuefnum og fengum margt skemmtilegt á borðið. Skemmtilegur "random" þáttur gjörið svo vel.
5/16/2021 • 1 hour, 8 minutes, 16 seconds
14. Fasteignatips
Tinna er fasteignaperri og elskar að tala um fasteignir, flutninga, lán og allt sem tengist fasteignum. Og vill miðla því áfram sem hún veit og hefur lært í öllu þessu flutningsbraski sínu.
5/9/2021 • 1 hour, 17 minutes, 29 seconds
13. Ævisaga: Lára Guðnadóttir
Lára fer yfir ævisögu sína á sögulegum mettíma. Mjög skemmtileg og einlæg frásögn þar sem hún talar m.a. um að hafa aldrei fundist hún fitta inn í grunnskóla og hún bjó um tíma á Reykjalundi aðeins 21 árs gömul!
4/28/2021 • 41 minutes, 59 seconds
12. Ævisaga: Tinna Rósamunda Freysdóttir
Tinna stiklar á stóru og fer yfir æskuna, föðurmissinn og já "ævisögu" sína á rúmri klst, geri aðrir betur. Tökum fram að sumt er búið að fara yfir í eldri þáttum og var þá ekki rætt í "ævisögunni" :)
4/21/2021 • 1 hour, 16 minutes, 22 seconds
11. Fyrsti gesturinn: Teddi sambandsráðgjafi
Vá hvað við mælum með því að hlusta á þennan þátt, það hefðu öll pör gott að því! Hann Teddi er æðislegur, hreinskilinn, mannlegur og Tinna er spennt að fara í ráðgjöf eftir þetta samtal!
4/15/2021 • 1 hour, 17 minutes, 57 seconds
Aukaþáttur
Fyrsti gesturinn okkar átti að koma í dag en tæknin hefur ekki verið að vinna með okkur undanfarið, svo hann kemur á morgun. Hér fáið þið 1stk auka þátt sem snýst um akkúrat ekki neitt.
4/14/2021 • 30 minutes, 50 seconds
10. Ófrjósemi
Við ræddum um ófrjósemi, þó svo að við höfum ekki upplifað hana persónulega finnst okkur þetta gríðarlega mikilvæg umræða sem á ekki að vera tabú.
4/8/2021 • 49 minutes, 1 second
9. Búlimía í átta ár
Tinna þjáðist af búlimíu í átta ár, er nú búin að ná 100% bata og vonast til þess að geta hjálpað öðrum.
3/31/2021 • 1 hour, 54 seconds
8. Fæðingarsögur
Fæðingarsögurnar okkar. Lára poppar börnum út á núll einni og Tinna er með tyggjóleg eftir þrjá keisara.
3/24/2021 • 1 hour, 7 minutes, 17 seconds
7. Q&A
Lára og Tinna svara alls kyns misgáfulegum spurningum. Mikið fjör og við fengum heiftarlegt hláturskast vegna neyðarástands flugna sem eru að drukka í sundi. Tengja ekki allir eða? Amk ekki Lára.
3/18/2021 • 1 hour, 11 minutes, 41 seconds
6. Þunglyndi og kvíði
Lára og Tinna ræða um þunglyndi og kvíða, en þær eru sérfræðingar á þeim sviðum. Þungur þáttur en við alltaf góðar á því. Gaman að opna sig um erfiða hluti. Njótið.
3/10/2021 • 1 hour, 26 minutes
5. Líkaminn og lífið eftir barneignir
Vá hvað margt hefur breyst! Bæ djamm, hæ tussubumba og ábyrgð :)
3/3/2021 • 1 hour, 3 minutes, 27 seconds
4. Vináttumissir án dauðsfalla
Hver hefur ekki lent í því að "missa" vin/i? Við ákváðum að ræða um vináttu og vináttumissi án dauðsfalla.
2/24/2021 • 1 hour, 8 minutes, 37 seconds
3. Erfiðleikar í samböndum
Þáttur þrjú. Við ræðum hluti sem ekki eru ræddir á kaffistofunni.
2/17/2021 • 1 hour, 16 minutes, 34 seconds
2. Two moms, seven kids
Við deilum nokkrum staðreyndum um okkur og tökum spjall um babies. Var allur þessi her planaður? Hvernig gekk að verða preggó?
2/10/2021 • 55 minutes, 15 seconds
1. Fyrsti þáttur
Smá kynning á okkur og spjall. Við erum Þreyttar mömmur, Tinna og Lára. Við erum svo tilbúnar í þetta skemmtilega verkefni og höfum ekkert lítið gaman af því að tala.