Winamp Logo
Skoðanabræður Cover
Skoðanabræður Profile

Skoðanabræður

Icelandic, News, 1 season, 304 episodes, 3 days, 3 hours, 44 minutes
About
Skoðanabræður: „Kynferðislega brengluð gasveisla.“ – „Eina hlaðvarp sem ég get hlustað á.“ – „Ég verð gáfaðri af því að hlusta á þetta.“ – „Lét mig hætta að vilja drepa mig.“ – „Besta leiðin til að vita það sem skiptir máli.“ – „Ég verð anti-þunglynd við að heyra ykkur tala um lifnaðarhætti ykkar.“ Fremsta frétta-, menningar-, gas-, klám-, rapp- og veisluhlaðvarp landsins, í boði blóðbræðranna Snorra og Bergþórs Mássonar. Þáttur á hverjum föstudagsmorgni, en mun oftar fyrir þá sem ganga í Skoðanabræðralagið á www.patreon.com/skodanabraedur. Þessi djús er á vegum Útvarps 101.
Episode Artwork

#302 Að brjótast út úr fangelsinu

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Stórfenglegur þáttur í dag. Allt að gerast í Sigurðarstofu Sævars. Hérna erum við að tala um; að brjótast út úr fangelsi hugmyndafræðarinnar, Kanye, Werner Herzog, sigrast á sjálfum sér, hætta að vera veikburða ofl ofl ofl
2/23/202411 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#301 Þú þarft að byrja strax í dag!

Hér er rætt um nauðsyn þess að innleiða gervigreind á sem flestum sviðum, nauðsyn þess að gera talsverðar breytingar í íslenskum stjórnmálum, hita á sviði rafmynta og svo er enn bætt í þá sjálfshjálparvegferð sem Skoðanabræður hafa verið á og útskýrt hvað menn þurfa að gera til að geta byggt upp líf sitt. Inntakið þar er meðal annars: Þú þarft að byrja strax í dag! Þátturinn í heild sinni inni á Patreon. 
2/16/202417 minutes, 1 second
Episode Artwork

#300 Svona verðurðu ríkur

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þrjúhundraðasti þátturinn, „I keep it 300, like the Romans“ sagði skáldið. Við byrjum á því að fara yfir Jafnréttisstofu (FUERA!) og nýju herferð hennar sem snýst um það að segja fólki hvernig það eigi að hugsa? Spurning. Síðan tölum við um Peter Thiel og nýju ólympíuleikana hans þar sem leyfilegt er að dópa. Mikilvægi testósteróns rætt. Að lokum, og þetta er mikilvægur kafli, er farið yfir þýðingu Bergþórs á lokakafla bókarinnar The Science of Getting Rich. Hlustið á þetta kæra bræðralag og verðið rík, þetta er svona einfalt. Guð blessi ykkur!
2/9/202420 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

#299 Eftir þrítugt verður ekki aftur snúið

Farið yfir hættur áfengis, góðar leiðir til að græða peninga, „stöðu fjölmiðla“, góða skapið hjá ritstjóranum og þá hættu að vera virkur karlfemínisti þegar maður lendir á þrjátíu ára markinu – eftir það snúa fáir aftur.
2/2/202411 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#298 The Woke Mind Virus (FRÍR ÞÁTTUR)

Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið inni á www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður halda áfram að blása lífi í bræðralagið og sjálfa sig í leiðinni. Hérna er tala um áfengislaust líf, hvernig eigi að sigra, Shakespeare, þjóðvakningu & endurreisn, the woke mind virus, Óskarskandal vegna tilnefninga Barbie og allskonar annað. Guð blessi ykkur öll.
1/26/202458 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

#297 Ísland vs. Bandaríkin m/ Aroni Kristni Jónassyni

Fyrirsögnin sneiðir fram hjá fjölda mikilvægra umræðuefna en þetta er þó mikilvæg spurning. Í þessum einstaka þætti Skoðanabræðra er Aron Kristinn Jónasson frumkvöðull og rappari fenginn að borðinu til að ræða málefni lands og þjóðar í víðum skilningi. Allt frá íslenskum her, algrími samfélagsmiðla og einsleitni í klæðaburði til vellíðunar við að koma inn á bandarískt salerni; að þannig eigi hlutirnir ef til vill að vera. Bandaríska tilraunin töluvert rædd; og farið yfir hvaða þætti Íslendingar þurfa að taka til fyrirmyndar. Þátturinn í heild sinni á Patreon
1/19/20247 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#296 The Law of Attraction

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Lögmál aðdráttaraflsins er ekki nógu gott þannig titillinn er á ensku, kannski í fyrsta skipti? Fræðimenn geta kannað málið. Í þessum þætti er einmitt talað um þetta lögmál, hvernig þú lætur hlutina gerast með jákvæðni og trausti. Þannig virkar þetta. Síðan tölum við líka um allskonar annað eins og íslenska tónlist, XXX Rottweiler, hvalveiðibann,  Björk styttu, Ritstjórann og allskonar annað.  Lesið The Secret kæra bræðralag og heimurinn verður okkar!
1/12/20244 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#295 Nýtt ár, ný tækifæri

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti þátturinn í nýju húsnæði Skoðanabræðra. Allt að gerast! Það sem er talað um meðal annars: Hvernig maður verður ríkur, að gera eitthvað sem skiptir máli, Guðni Th. forseti, samfélagsmiðla- og sjálfsfróunarfasta Nökkva Fjalars, munurinn á ungmönnum nútímans og árið 1970 og fullt fullt fleira.
1/5/20249 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

#294 Öll eru maður ársins! *OPINN ÞÁTTUR*

2023 var risastórt ár fyrir öll. Heldur betur! Hér fara bræðurnir yfir árið sem leið, yfirvofandi vakningu, milljarðamæringshugsunarhátt, vonbrigði í aðfangadagsmessu, að vera feitur í hausnum á sér ásamt því að snerta á stemningunni í Portúgal þar sem Bergþór er staddur núna á milli jóla og nýárs. Hvað er málið með Portúgala? Gleðilegt nýtt ár kæra bræðralag!
12/29/20231 hour, 3 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#293 Að reyna að hætta að hata jólin

Bræðurnir eru komnir í jólaskap og fara yfir allt sem vita þarf í undirbúningi fyrir hátíðirnar. Bergþór ætlar að gera ýmislegt á nýju ári, en hann ætlar ekki sérstaklega að reyna að draga úr hugmyndafræðilegri einangrun sinni. Snorri á fyrstu jólin með börnum og hefur raunhæfar væntingar til góðrar skemmtunar. Umræðuefni: Upplýsingaóreiðan í jólaboðinu, Taylor Swift manneskja ársins hjá Time, væntanleg plata Kanye West og margt sem ég er núna að gleyma.
12/22/202314 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#292 Er kominn tími á stjórnmálaflokk?

Hlustaði í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Víkingaflokkurinn, Víkingar, Bræður Íslands eða Þjóðveldisflokkurinn. Þetta eru allt nafnahugmyndir af nýjum stjórnmálaflokk sem lögð eru drög af hérna í þessum þætti. Jákvæðni, frelsi, hreysti og sannleikur. Þetta boðar flokkurinn. Guð blessi ykkur öll.
12/15/202313 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

#291 Skoðanir Atla Steins Guðmundssonar

Atli Steinn Guðmundsson er blaða- og ævintýramaður. Glöggir hlustendur muna eftir honum úr #128 Skoðanir Noregs. Hreinn og beinn kóngur. Hér er talað um: Norðurlöndin, glæpi, rokk, lyftingar og ritstörf. Alhamdulillah!
12/8/202319 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#290 Skoðanir Ívars Orra Ómarsson *FRÍR ÞÁTTUR*

Hér ræða bræðurnir við bardagakappann, frumkvöðulinn og mataræðisfrömuðinn Ívar Orra Ómarsson. Ívar Orri, einnig kallaður Seiðkarlinn, kafaði ofan í allt mögulegt tengt mataræði eftir að hann greindist með sykursýki – og lærði margt, sem hann deilir nú með fylgjendum sínum á Instagram.  Hann hefur einnig mjög ákveðnar hugmyndir um hinn eina sanna góða lífsstíl og hugarfar, sem allt er reifað í þessum þætti.
12/1/20231 hour, 34 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#289 Eðli mannsins

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins heldur áfram að framleiða þetta hágæða. Snorri segir að löggan eigi að fá byssur en Bergþór segir Fuck The Police. Heimspekingurinn sem sameinaði austræn og vestræna speki Arthur Schopenhauer er ræddur og hans hugmyndir lauslega kynntar. Virðing sett á ICEGUYS og nýja forseta Argentínu hann Javier Milei. Allahu akhbar.
11/24/202317 minutes, 59 seconds
Episode Artwork

#288 Þetta þarftu til að stofna fjöldahreyfingu

Hvað þarf leiðtogi fjöldahreyfingar eins og þeirra sem spruttu upp á 20. öld að hafa til að ná langt? Hvað þarf fjöldahreyfing til að virka? Hér er rætt um fjöldahreyfingar, Kanye, einkavæðingu sundlauganna í Reykjavík og ágæti einkaframtaksins, stórar hugmyndir eftir að Guð dó og í gegnum allt þetta: Farið með lifandi hætti yfir bókina True Believer eftir Eric Hoffer - sem fjallar um fjöldahreyfingar og þar með auðvitað sértrúarhópa hvers konar. Þátturinn í heild sinni á Patreon.
11/17/202320 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

#287 Skoðanir Halldórs Guðmundssonar

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Halldór Guðmundsson er ævisöguritari Halldórs Laxness, bókmenntafræðingur, forleggjari og menningarmaður mikill. Hérna er reynt að komast að því hvað gerði Laxness að svona miklum king, afhverju Íslendingar elska bókmenntir, hvort að Sovétríkin hafi borgað fyrir Mál og Menningarhúsið niðri í bæ ofl ofl ofl. Hrein veisla, njótið vel.
11/10/202319 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

#286 Skoðanir Guðna Gunnarssonar *FRÍR ÞÁTTUR*

Guðni Gunnarsson lífsþjálfi og heimspekingur er með marga mikilvægar persónur í einkaþjálfun, andlegri og líkamlegri, og í þessum þætti gefur hann Skoðanabræðrum smá sýnishorn úr hugmyndafræði sinni. Meginpunkturinn: Það er val að hætta að vera fórnarlamb í eigin lífi. Hér er hægt að læra mikið. Þátturinn er opinn öllum – EN FARIÐ INN Á PATREON!
11/3/20231 hour, 43 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#285 Skoðanir Ernu Mistar

Hlustaðu/horfðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Erna Mist er listmálari og pistlahöfundur. Tjékkið á pistlunum hennar inni á Vísi. Umræðuefni eru meðal annars: innræting í LHÍ, pólitískur rétttrúnaður, forvitni, ótti, ferðamennska og listaheimurinn, þjóðernisvakning, bókmenntir og ritstörf.
10/27/202320 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#284 Ákall til íslenskra auðmanna

Hlustaðu eða horfðu á í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður hafa misst trúnna á ríkisvaldinu, allavega akkúrat núna, hvað gerum við þá? Hérna er talað um listamannalaun til YouTubera, Logan Paul, stöðnun samfélaga, vöxt, Prettyboitjokko, siðferði í popptónlist, Peter Thiel og skemmtigildi lista.
10/20/202320 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

#283 Er nauðsynlegt að skjóta þá? já

Hlustaði í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Mikið í gangi, mikið í gangi! Skoðanabræður fara yfir það sem skiptir máli. Drake plata, hið sanna siðferði alheimsins sem birtist í popptónlist, ísbirnir á landi, The Lindy Effect og mikið mikið meira. Njótið lífsins kæra bræðralag
10/13/202317 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

#282 Alvöru vald er að segja nei

LENGRI ÚTGÁFA Á PATREON. Upphaf kjötlífsins og endalok sannleikans, gæti þessi þáttur líka heitið. En aðallega: Ný speki bræðranna kynnt til leiks: Via negativa. Hér er farið yfir ritdeilur sem Snorri Másson ritstjóri hefur staðið í, hér er farið yfir nýjan kjötætulífstíl sem Bergþór hefur tileinkað sér og Snorri peppar, vandamálið við læknastéttina, hliðarverkanir alls sem við gerum og loks þá mikilvægu staðreynd að sannleikurinn býr aðeins innra með okkur. 
10/6/202315 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#281 Ástæður til þess að elska nútímann

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti þáttur Skoðanabræðra í vídjó-formi. Ágætis byrjun. Hérna er talað um Kanye West, Reykjavíkurborg, skáldskap, tækni, nútímann og framtíðina.
9/29/202314 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#280 Það sem Ísland þarf að gera *FRÍR ÞÁTTUR*

Þessi þáttur er frír en komdu samt í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur Íslendingar þurfa að breyta um hugarfar á ýmsum sviðum að mati bræðranna, meðal annars að endurvekja gömlu góðu sjálfsmyndina, ef vel á að fara. Auk þess leggja bræðurnir til, að hætti Cató gamla, að Heiðari Guðjónssyni verði hleypt á hafsbotn að sækja olíu. Þetta segir Bergþór innblásinn af dvöl sinni í Oslóarfirði í hinum ríka Noregi, okkar fornu fósturjörð aftur í ættir. Umræður þessar spretta um leið af þeirri staðreynd sem nú er orðin lýðum ljós, að karlmenn hugsa mjög oft og mjög þungt um Rómaveldi. Þegar ég skrifa þetta man ég að við þurfum að fá Siffa G. í þáttinn. Önnur umræðuefni: Russell Brand og Edvard Munch og hvaðeina annað. Og tilkynning: Nú er ekki lengur vísað til Domino’s-vinstrisins, heldur Volt-vinstrisins, í anda nýs sendifyrirtækis í Reykjavík, þar sem sendlar harka á hefðbundnum reiðhjólum fyrir umburðarlynda símafíkla.
9/22/20231 hour, 15 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#279 Bræðurnir kynna sér kynlífsvinnu í Hamborg

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri og Bergþór eru staddir í fjölmiðlahöfuðborginni Hamborg. „Sem sagt mikið logið hérna,“ eins og Bergþór lætur um mælt í því samhengi. Hann er ómálefnalegur andstæðingur hefðbundinnar fjölmiðlunar, en hver er það ekki á þessum síðustu og verstu tímum? Við ræðum Þýskaland það fagra land, menningu, list og heimspeki - síðan setjum við virðingu á stelpurnar í Skoðanabræðralaginu og tölum um hvað við elskum þær mikið. Einnig ræðum við mikilvægi þess að vera beinn í baki fyrir börnin sín og lykilinn að því að láta góða hluti gerast í lífinu.
9/15/202311 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#278 Af íslensku menníngarástandi (ásamt Joey Christ)

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Jóhann Kristófer Stefánsson snýr aftur í ráðuneyti Skoðanabræðra eftir langa fjarveru. Hvað hefur breyst? Hérna er talað um íslenska menningu, víkinga, barnauppeldi, samtímann og ég veit ekki hvað og hvað og hvað! Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Segið vinum ykkur að koma á Patreon.
9/8/202313 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#277 Skoðanir Gunnars Smára Egilssonar

Farðu á https://www.patreon.com/skodanabraedur Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi sest í ráðuneyti Skoðanabræðra og reynir að afstýra hægrisveiflunni, sem tekst því miður ágætlega, enda er viðtalsrýmið safe-space þar sem gesturinn fær að ráða för. Engin erfið viðtöl. En hér er margt rætt: Staða hins viðkvæma unga karlmanns, Sjálfstæðisflokkurinn sem mafíustarfsemi, flækjustig þess að sannfæra fólk um ágæti félagshyggju þegar hið gagnstæða er ráðandi hugmyndafræði og svo hin nýja blaðamennska sem nú rís upp úr djúpinu og fer aftur út til fólksins. Samanber einmitt þetta hlaðvarp, kæru hlustendur. Gleðilegan september, incels! Skoðanabræður, fremsta hlaðvarp landsins.
9/1/202323 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#276 Svona sigrar þú lífið: Nietzsche

Hlustaðu í fullri lengd á þennan þátt og ótal annarra inni á www.patreon.com/skodanabraedur - lengd þáttar þar inni: 01:45 klst. Sérstakur þáttur Skoðanabræðra um heimspekinginn Friedrich Nietszche. Hræðir það þig? Þá þarftu að hlusta, þá verður þú að hlusta! Þetta er noob-friendly. Við förum lauslega yfir ævi Nietszche og kynnum helstu hugmyndir. Unnið er útfrá grein Vilhjálms Árnasonar: „Við rætur mannlegs siðferðis: Siðagagnrýni og heilræði Friedrich Nietszche“.
8/25/202313 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#275 Skoðanir Auðuns Blöndal

Hlustaðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Auðunn Blöndal hefur náð þeim fágæta árangri að endurnýja umboð sitt sem helsti skemmtikraftur landsins hjá hverri kynslóð á eftir annarri. Hvaða ekki-tónlistarmaður selur upp tónleika í Laugardalshöll? Hér sest Auddi í ráðuneyti Skoðanabræðra, fer yfir ferilinn, pólitíkina, umræðuna, skítafréttirnar, hlaðvarpið, innblásturinn, föðurhlutverkið, spilavítin, giggin, Þjóðhátíð og ég nenni ekki að skrifa meira. Hlustið! Ný hlið á lykilmanni. P.S. Í þættinum eru athugasemdir hafðar frammi sem gefa upptökutíma hans til kynna, sem sé skömmu fyrir verslunarmannahelgi í ágúst 2023. Þá er þar rætt um að gefa þáttinn út á tíma, sem ekki varð útgáfudagur þáttarins. Misræmi þetta skýrist af ólíkum áherslum þáttastjórnenda og markaðsdeildar fyrirtækisins, en síðarnefnd eining tekur endanlega ákvörðun um öll mál.
8/18/202315 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

#274 66° No Swag

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Kæra bræðralag það er allt að gerast hjá okkur.. Er 66°N orðið nett aftur? Getur Snorri verið eitthvað annað en feitur, ljótur og asnalegur? Mun Gísli Pálmi nokkurntímann fá heiðurinn sem hann á skilið? Er þriðja vaktin raunveruleg eða sundrar hún fjölskyldum? Er hægt að kenna einhverjum um eitthvað?
8/11/20237 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#273 Þræladans á Þjóðhátíð

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þjóðhátíð! Skoðanabræður lýsa yfir stuðningi. 150 ár af íslenzkum þrælum að dansa í hlekkjunum sínum? Kannski. Þetta er rætt ásamt öðru: Egilssaga, Travis Scott og Kardashian nornirnar, innflytjendur og fegurðarsamkeppnir.
8/4/202318 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#272 Skoðanir Kára Stefánssonar

Vísindamaðurinn Kári Stefánsson sest niður með Skoðanabræðrum og ræðir allt frá stríðsástandi og heimsvaldastefnu okkar uppáhalds stórþjóðar Bandaríkjanna (í þessu samhengi, hvað verður um íslenska tungu?) og til gervigreindar á sviði læknavísinda og mikilvægi þess að fara til starfa á hverjum morgni eins og barn í sandkassann. Hlaðvarp um sjálfbærni og jafnréttismál gerir undantekningu á efnistökum, sem sagt. Spurning sem reynt er að svara: Var siðferði fornmanna ólíkt því sem nú er? Farið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur
7/28/202314 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

#272 Þetta er 90% sannleikurinn *FRÍR ÞÁTTUR*

Nýja reglan hjá Skoðanabræðrum snýst um að segja 90% sannleikann. Minnir að það hafi áður komið fram. Umræðuefni af ýmsum toga; allt frá fordómum vinstrimjúklinga fyrir hægrafólki í ræktinni til já, ýmislegs góðs.. Hið harða hægri lætur ekkert á sig fá. Búum við í lýðræðiskerfi? Naumlega. Gagnrýni á hendur Heiðars Guðjónssonar karlmanns vikunnar svarað. Þætti lýkur með einu fegursta ljóði íslenskrar tungu. P.s. Laus staða hjá Skoðanabræðrum í samfélagsdeild. P.s.s. mögulega lök hljómgæði hér vegna ferðalaga.
7/21/20231 hour, 11 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#271 Svona talar maður ekki við kærustuna sína

Skoðanabræður: Alltaf 90% sannleikurinn. Það er loforðið og það er ekki svikið í dag. Farið yfir ritskoðun á sviði tækninnar og framtíðarland internetsins. Zuckerberg er að breyta ímynd sinni. Snorri uppgötvar forvitnilega þræði í langfeðgatali sonar síns. Milan Kundera minnst. Landsframleiðsla dregst saman vegna veðurs. Og fyrirsögnin: Jonah Hill er óþægilegur við fyrrverandi kærustu sína. Hún ósanngjörn að opinbera allt dæmið.
7/14/20233 minutes, 8 seconds
Episode Artwork

#270 Hugmyndir íslenskra auðmanna (ásamt Heiðari Guðjónssyni)

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti karlmaður vikunnar nýrrar seríu er fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson, nýkominn heim frá Grænlandi, þar sem hann leitar af málmum. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel og framtíðin. „Ertu team Björgólfur Thor eða ertu team Róbert Wessmann?“ - „Já ég er svo sannarlega ekki team Róbert Wessman“.
7/7/20239 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

#269 Frelsi, (jafnrétti), bræðralag

SKOÐANABRÆÐUR Í FULLRI LENGD Á PATREON:  Hvað hefði Travis Scott gert ef hann hefði rekist á Snorra Másson á Íslandi? Margt rætt. Bræðurnir fara yfir þá endurskrifun sögunnar sem nú á sér stað. En það er allt í lagi, það er auðvitað ekki hægt að skrifa sögu, heldur aðeins endurskrifa. Lúsmý nefnt – hvernig leggst sú bölvun fyrst á okkur nú eftir þúsund ára Íslandsbyggð? Snorrabúð stekkur. Á þeim nótum: Kallað eftir endurreisn Alþingis á Þingvöllum. Þjóðernisofsi eina leiðin fram á við, segja menn. Eflaust umdeilt. Hvaða hlutverki gegna „rappararnir“? 
6/30/20236 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#268 Disgusting brothers

Snorri og Bergþór snúa aftur.. 4 þættir á mánuði.. í allt sumar og allt haust og allan vetur! Hlustið á þennan þátt með áskrift inni á www.patreon.com/skodanabraedur
6/22/20232 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#267 Í öngum mínum erlendis: Japan

Sólin heim úr suðri snýr.. sumrið lofar hlýju.. Grand Finale. Upp og niður í Nippon: Tokyo, Nagano, Osaka, Nara, Kyoto, Hiroshima, Ozu, Tokyo. 24. apríl, 26. apríl, 30. apríl, 1. maí, 3. maí, 6. maí, 8. maí, 10. maí, 13. maí, 16. maí, 17. maí, 18. maí, 20. maí, 23. maí, 26. maí, 27. maí. Arigato josé-mas!
5/30/20231 hour, 54 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#266 Í öngum mínum erlendis: Indónesía ii.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Kominn aftur til Bali, liðsauki kallaður inn, rúllað yfir eyjuna í taxa; Uluwatu, eldfjall, Norðurhluti. Snúum síðan aftur í djöfulganginn í suðri, leigjum villu og endum síðan epíkina í hreinu paradísinni Gili Air. 1.-24. apríl
4/27/20231 hour, 22 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

#265: Í öngum mínum erlendis: Indónesía i.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Hrökklaðist frá Bali yfir á eyjurnar í kring, sný síðan aftur tilbúinn í stríð. 3. mars - 1. apríl Bali (Canggu), Nusa Lembongan, Nusa Penida, Gili Air.
4/4/20231 hour, 19 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#264 Í öngum mínum erlendis: Nepal ii.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Sannleikurinn á þriðja degi.  Ítarleg Vipassana frásögn 17-28. febrúar, 2. mars, 4. mars Vipassana & Kathmandu.  Við höldum áfram - As we proceed.....
3/9/202349 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#263 Í öngum mínum erlendis: Nepal i.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Mjúk lending í Nepal.  12. feb, 16. feb, 17. feb, 28. feb. Lumbini, Bardia frumskógur, Vipassana inngangur og útgangur. pt. 2 soon come!
3/6/202332 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#262 Í öngum mínum erlendis: Indland iii.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Sjúkir en fagrir dagar að baki. Indlandsþríleiknum formlega lokið, I had a ball. Lokaniðurstaða: Stórkostlegt land og þjóð. Bodh Gaya, Bihar, Gorrikhpur. 3. - 10. feb. 5. feb, 8. feb, 10. feb, lokaorð.
2/20/202341 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

#261 Í öngum mínum erlendis: Indland ii.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Sveitamaðurinn í stóra landinu - himnaríki & helvíti.  Bollywood, Varanasi, Bodh Gaya. 26. jan - 3. feb. 28. jan, 29. jan, 30. jan, 31. jan, 2. feb, 3. feb.
2/15/202343 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#260 Í öngum mínum erlendis: Indland i.

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Hingað hafa vestrænir menn komið og sótt pokann. Heldur betur. Það versta og það besta í heimi er sagt. Belee dat. Hlutirnir fara upp og hlutirnir fara niður. Þvílíkt land og þvílíkt líf. Ekkert er eilíft osfrv. 9. jan - 26. jan. Delhi, Rishikesh, jóga retreat & Bollywood. 9. jan, 10. jan, 12. jan, 17. jan, 20. jan, 22. jan, 24. jan, 26. jan.
2/8/202353 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

#259 Í öngum mínum erlendis: Ísrael & Palestína

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Shit is real got me feelin' Israelian. Heilaga landið, sköllaða landið. Allt milli himins og jarðar. Þetta eina sanna ísraelska og palestínska. Alhamdulillah! Shalom. Jerúsalem, Ramallah, Breaking The Silence, Suður-Hebron hæðir, Tel Aviv. 30.des - 9. jan. 1. janúar/ 5. janúar/ 9. janúar/ Lokaorð.
2/8/202323 minutes, 58 seconds
Episode Artwork

#258 Þórbergur og Halldór (ásamt Pétri Gunnarssyni)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Pétur Gunnarsson er rithöfundur og sannkallaður great icelander. Hann hefur starfað við ritstörf í fimmtíu ár; skrifað skáldsögur, ævisögur og þýtt úr frönsku. Hér tyllir hann sér í Egilsstofu og ræðir bókmenntirnar og landið okkar. Þátturinn er nokkurnveginn strúktúreraður þannig að fyrsti hluti fer í feril Péturs, annar í fornöldina og sá þriðji í Þórberg og Halldór.  Ef eitthvað er skylduhlustun, kæra bræðralag, þá er það þetta.. Gleðileg jól.
12/9/20222 hours, 11 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

#257 Falskt fullveldi (ásamt Snorra Mássyni)

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur SMN snýr aftur í Egilsstofu vopnaður vilja gas-guðanna. er ísland fullveldi? eiginlega ekki - þurfum við ritskoðun? kannski - erum við öll hneppt í þrældóm? jebb. guð blessi ykkur kæra bræðralag, gleðilegan desember
12/2/20221 hour, 17 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#256 Svartur, svartur föstudagur

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Black Friday week, nýja jörðin, samanburður, Trumparinn og allskonar annað. Stanslaus veisla
11/25/20221 hour, 12 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#255 Sókrates lifir (ásamt Halldóri Armand)

Hlustaðu í fullri lengd á þenann tveggja tíma epíska þátt inni á www.patreon.com/skodanabraedur Rithöfundurinn Halldór Armand Ásgeirsson mætir ferskari en aldrei fyrr í Egilsstofu og ræðir nýju hljóðbókina sína (aðgengileg á Storytel), ástríðu, ritstörf, klassíska heiminn, Ísland og allt það sem gaman er að gasa um. Epískur þáttur kæra bræðalag, Guð blessi ykkur.
11/18/20222 hours, 6 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

#254 Snillingar 20. aldarinnar, karlkyns og kvenkyns

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Kæra bræðralag þetta er góður þáttur, njótið vel! Endurvinnsluscam, fyrra líf, getting out the game, snillingar karlkyns og kvenkyns, karlfemínismi og fullt annað ejpískt.
11/11/20221 hour, 18 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

#253 Samfélagsmiðlar eru dauðir, loksins

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Það sem er fjallað um þennan fallega föstudag er: Dauði samfélagsmiðla og internetsins, Bjarni Ben vs. Gulli, Takeoff (R.I.P). Eintóm veizla
11/4/20221 hour, 11 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#252 My People Are Sick

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Er Kanye búinn að ganga of langt? Kannski, kannski ekki. Það, ásamt trauma-economy, Brennu-Njálssögu, og allskonar allskonar allskonar annað! Godspeed kæra bræðralag.
10/28/20221 hour, 24 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#251 Amateur Hour (ásamt Unnsteini Manuel)

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Unnsteinn Manuel Stefánsson endurreisnarmaður kemur heim í Egilsstofu eftir langa dvöl í Berlín. Hér er talað um tónlist, sköpun, samfélagið, djúpkommúnisma og listina að vera byrjandi. Þátturinn var tekinn upp 28. sept.
10/21/20221 hour, 44 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

#250 Skoðanir Mikaels Torfasonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Rithöfundurinn Mikael Torfason er loksins mættur í Egilsstofu, beint frá Berlín - þar sem hann starfar við skriftir. Leikhúsið, sjónvarpið, bækurnar! Þetta er allt rætt. Farið djúpt í málin. Epískur þáttur. Godspeed kæra bræðralag.
10/14/20222 hours, 11 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

#248 Freethinkers ehf.

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Recap á Björk, Avatar & Pacifiction, Sveppir á RÚV, Freethinkers, mótmæli í MH, Kanye mál og allskonar annað tímalaust og stórfenglegt.
10/7/20221 hour, 18 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#247 Björk í Egilsstofu (ásamt Björk)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Björk Guðmundsdóttir söngkona er gengin í bræðralagið, loksins! Hér er talað um nýju plötuna hennar, 90s London, sköpunarkraftinn, almættið, tengsl Bjarkar við rapptónlist, langhlaupið sem lífið er og allskonar annað. Guð blessi ykkur kæru hlustendur.
9/30/20221 hour, 15 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

#246 #girldad

Styddu frjálsa fjölmiðlun og hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Ný dóttir bræðralagsins, hitamál Þjóðleikhússins, íslenzkur terrorismi og ótti við hann, tilgangur íslenska ríkisins og auðlindabölvunin mikla! Shit is real
9/23/20221 hour, 22 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#245 Góðir hálsar ég finn blóðið renna í æðunum í hvert einasta skipti er ég stend andspænis fræðunum (ásamt Jóni Kristni Einarssyni)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Jón Kristinn Einarsson, sagnfræðingur bræðralagsins, var að gefa út bók um Jón Steinsgrímsson og Skaftárelda (móðuharðindin (móðurharðindin?)). Hér er bókin rædd og svo farið djúpt í undraveröld fræðanna. Samband Íslands og Danmerkur, lágpunktur íslensku þjóðarinnar, nýlenduveldi Danmerkur og sögufölsun eru meðal annars til umræðu. Njótið, kæra bræðralag. Þessi er fyrir ykkur öll.
9/16/20221 hour, 36 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

#244 Skoðanir ClubDub (iii)

ClubDub Rockers snúa aftur, í þriðja skipti, tímamót í bræðralaginu. Þáttur #2 vakti mikla lukku. Mun þessi toppa? Patreon menn vita! Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur
9/9/20221 hour, 6 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

#243 Legalize It (ásamt Atla Bollasyni)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Atli Bollason listamaður og menningarviti snýr aftur í Egilsstofu og ræðir lögleiðingu allra eiturlyfja (https://www.visir.is/g/20222304345d/svona-ut-rymum-vid-skipu-logdum-brota-hopum), The Global Enslavement Project, stjórnmálaswampið mikla, áfengi höfuðeitur mannkynsins, menningarástandið, tónlist, Harry Styles og ótal annað. Hreinræktað gas úr innstu lögum Egilsstofu.
9/2/20221 hour, 46 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

#242 Woodstock 2029

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Netflix heimildarmyndin Woodstock '99, swampið & Sanna finnska, Áslaug Arna matröð barna, DJ Khaled & Eminem, menningarnótt og zombiegoons.
8/26/20221 hour, 28 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#241 Hverju er hægt að trúa í dag?

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Fyrri hluti þáttarins fer í klassísk málefni: hinar raunverulegu falsfréttir, Eckhart Tolle, undirmeðvitund og stjórnmálin. Um miðjan þáttinn fer umræðan yfir í stöðu rappleiksins vestanhafs. Í þriðja hluta förum við í samfélagsmiðla, lýtalækni og áhrifavalda.
8/19/20221 hour, 32 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

#240 Góði bróðir (ásamt Snorra Mássyni)

Hlustið í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Pride, Bronze Age Mindset, franska útlendingahersveitin, heróínneysla og The Global Enslavement Project. Þetta, og endalaust annað. Þetta var frábær þáttur, guð blessi ykkur kæra bræðralag.
8/12/20221 hour, 24 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#239 Skoðanabræður, endurfæddir karlfemínistar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Eftir u.þ.b tuttugu mínútur af spjalli um hitt og þetta er farið í stóru málin: karlfemínisminn og jafnréttissinninn er kominn aftur.
8/5/20221 hour, 34 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

#238 London, New York, LA (ásamt Ágústu Ýr)

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Ágústa Ýr (@iceicebabyspice) er leikstjóri, ljósmyndari, fyrirsæta og creative director. Hún lærði í New York og hefur síðan þá verið að keyra gott prógram í stórborgum Vesturheims. Hérna er farið yfir það; verkefni, Instagram, partí, metorðastiginn, völd og virðing.
7/29/20221 hour, 8 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

#237 Sex Positive Podcast (ásamt Lóu Björk)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Lóa Björk Björnsdóttir snýr aftur í Egilsstofu, nú orðinn ríkisstarfsmaður, svamlandi í swampinu. En það er ekki til umræðu hér, það eru mikilvægari hlutir að gerast. Eins og t.d auglýsingar í skemmtiefni okkar Íslendinga, einkvæni, sambönd, eiturlyf og alkohól, framtíðin og Guð.
7/22/20221 hour, 42 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#236 Nýtt Ísland með techno í eyrunum og draslið í blóðinu

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og styddu frjálsa fjölmiðlun inn á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrri hluti þáttarins fer í hefðbundin umræðuefni á borð við Elon Musk, forfeður, OnlyFans og Twitter en síðan er snögglega skipt um gír og Skoðanabræður ræða upplifun sína af rave-i í Gufunesi, Grafarvogi, þar sem þeir tóku báðir inn sveppi og MDMA. Að lokum er grein um Halldór Laxness í New Yorker tekin fyrir.
7/15/20221 hour, 19 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

#235 Hugvíkkandi hlaðvarp (ásamt Ara Mássyni)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Ari Másson blóðbróðir Skoðanabræðra mætir aftur í Egilsstofu eftir þriggja ára fjarveru. Nú er hann snúinn aftur heim til Íslands eftir tíu ára flakk um heiminn og sestur á skólabekk. Hugvíkkandi efni, hvað þau eru, hvað þau gera, og hver framtíð þeirra er, er hér helst til umræðu. Sömuleiðis er talað um hugleiðslu, Wim Hof, ferðalag og svo er sálfræðingurinn Jordan Peterson aðeins tekin fyrir en hlustendur eru beðnir um að athuga að þessi þáttur var tekinn upp u.þ.b tveimur vikum fyrir komu hans til landsins. 
7/8/20221 hour, 43 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

#234 Hver er munurinn á R. Kelly og Michael Jackson? (ásamt Sigurbjarti Sturlu)

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Þegar stórt er spurt - reyna Skoðanabræður að svara. Tekst það? Hlustaðu til þess að komast að því. Einnig er farið ofan í Jordan Sketerson á Íslandi og áhrif hans á unga karlmenn. Menn búnir að skipta um skoðun þar. Að lokum er farið ofan í komandi borgarastyrjöld í Bandaríkjunum, Trump og syni hans og Brandon.
7/1/20221 hour, 27 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

#233 Að bjarga heiminum (ásamt Héðni Unnsteinssyni)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Héðinn Unnsteinsson er sérfræðingur í stefnumótun hjá Forsætisráðuneytinu og formaður Geðhjálpar. Stjórn landsins og andleg heilsa þjóðarinnar er tekin fyrir hér. Getum við bjargað heiminum? Hlustaðu til þess að komast að því.
6/24/20221 hour, 30 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#232 Slæmar mæður (ásamt Kolfinnu Nikulásdóttur)

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - og styddu frjálsa fjölmiðlun í leiðinni! Kolfinna Nikulásdóttir leikhúskona mætir aftur í Egilsstofu eftir tiltölulega langa fjarveru. Í þetta skiptið ræðum við móðurhlutverkið, Johnny Depp & Amber Heard, samskipti kynjanna og fullt af öðru stöffi.
6/17/20221 hour, 25 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#231 Nýr meirihluti Jordans Peterson

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Nýja báknið, sameining swampsins, þéttur kafli um nýja tónlist, Kendrick Lamar plata, Northman, Ruben Ostlund, koma Jordan Petersons til landsins, Eckhart Tolle, Birnis tónleikar í Gufunesi OFL!
6/10/20221 hour, 21 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

#230 Íþróttir í Egilsstofu (ásamt Pavel Ermonlinskij)

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Pavel Ermolinski er fyrsti karlmaður vikunnar sögunnar til þess að vera íþróttamaður. Þetta eru tíðindi og þetta er vibe shift. Pavel er einn besti körfuboltamaður landsins og neitar fyrir það að vera „þenkjandi“ íþróttamaður. Hann kemur íþróttahreyfingunni til varnar, sem hefur almennt ekki fengið góða umfjöllun hér í frjálsasta og fremsta hlaðvarpi landsins. Það er ekki bara talað um íþróttir heldur ræðum við líka allskonar annað. Mun bræðralagið setja virðingu á íþróttir eftir þennan þátt? Dæmi hver fyrir sig.
6/3/20221 hour, 41 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#229 Sál þjóðarinnar (ásamt Sæunni Kjartansdóttur)

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir ræðir fyrstu þúsund daga í lífi barns, tengsl almennt, foreldra og streitu, sálgreiningu, sannleika, Freud, Háskóla Íslands, sálgreiningarnámið og margt annað. Skylduhlustun!
5/27/20221 hour, 9 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

#228 Ræsum fram mýrina (ásamt Snorra Mássyni)

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Leitað aftur í ræturnar: RÚV, swampið og mýrin, Þriðja Heimsstyrjöldin, Elon Musk, libbarnir á Twitter og Jordan Peterson.
5/20/20221 hour, 29 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#227 Small talk með rapparanum Birni

Styddu fremsta hlaðvarp landsins inná www.patreon.com/skodanabraedur - það er auðveldara en þú heldur. Birnir tónlistarmaður og rappari snýr aftur til Skoðanabræðra eftir þriggja ára fjarveru. Það hefur margt breyst - en á sama tíma ekkert. Útgáfutónleikar Bushido, samskipti og small talk, borgarstjórnarkosningar, lærdómur, Kaupmannahöfn og danski drillarinn, það sem ekki er hægt að tala um - og margt fleira.
5/13/20221 hour, 20 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#226 Dóri NDA (ásamt Dóra DNA)

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - það er auðveldara og ódýrara en þú heldur! Dóri DNA rífur í mækinn í Egilsstofu enn á ný. NoFap, skrifa bækur og handrit, mikilmennskudraumar, the endgame. Þetta og allskonar annað!
5/6/20221 hour, 24 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#226 Báknið burt, í nafni Guðs (ásamt Davíð Þór Jónssyni)

Davíð Þór Jónsson prestur og fyrrum skemmtikraftur mætir í Egilsstofu vopnaður heilögum anda og kryfur þjóðarsálina. Hið andlega og hið pólitíska tvinnast saman. King Shit Only.
4/29/20221 hour, 22 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

#225 The Death of Einlægni

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - það er ódýrara og einfaldara en þú heldur. Fyrri hluti: The Police og The Government - fuck em! Seinni hluti: Nánd, skömm og varnarkerfi - sannleikur vs einlægni.
4/22/20221 hour, 31 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

#224 Ayahuasca á Alþingi

Komdu í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur - Það er auðveldara en þú heldur. Þú munt græða á því. Hvernig færðu Alþingismann til þess að hætta að vera klámsjúkur lúser? Þú býður honum pening til þess að fara í ayahuasca retreat eða hugleiðslubúðir. Don’t nothing move but the money. Spillingarmál síðastliðna vikna rædd og lausnir boðaðar. 50 ára ríkið Ísland. Uppljómun Inc. Will Smith og Elon Musk koma líka við sögu. As-Salaam-Alaikum!
4/15/20221 hour, 27 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

#223 Sjö podcöst um skömm (ásamt Tyrfingi Tyrfingssyni)

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - komdu í áskrift, það er auðveldara en þú heldur.  Tyrfingur Tyrfingsson, the realest leikskáld in the game right now, mætir í höfuðstöðvar íslenskrar sjálfsvorkunnar og skammar, Egilsstofu, og rokkar mækinn.  Staða leikhússins, karlmennskan, geðlækningar og Amsterdam eru meðal umræðuefna.
4/8/20221 hour, 24 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

#222 TikTok heilar (ásamt Göggu Jónsdóttur)

Frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona mætir í Egilsstofu til þess að ræða þetta helst: Internetið, samfélagsmiðla, alkohólisma, ofbeldi og sjónvarpsþætti.
4/1/20221 hour, 27 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#221 Sannleikurinn í sænskum skógi (ásamt Snorra Ásmundssyni)

Hlustaðu í fullri lengd, 90mínútur, inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri Ásmundsson myndlistarmaður hefur boðið sig fram til forseta, beefað við bankamenn, keyrt áfram hina og þessa gjörninga og lent í ótal andlegum upplifunum. Epískur þáttur sem fjallar um allt þetta sem skiptir máli. Mælt með djúphlustun.
3/25/20221 hour, 34 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#220 Uppljómun íslensku lögreglunnar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur The male millennial zetgeist: ÍSTÓN, löggan og norska aðferðin, Eurovision, Kanye mál, Godfather, Power of Now.
3/18/20221 hour, 30 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

#219 Áhrifavaldar Anonymous (ásamt Pétri Kiernan)

Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - þú trúir því ekki hvað það er einfalt að koma í áskrift. Fyrsti karlmaður vikunnar snýr aftur þremur árum seinna. Hvað er búið að breytast? Margt og mikið. Í rauninni allt. Gamlir tímar gerðir upp og horft til framtíðar. Metta Sport head huncho Pétur Kiernan tyllir sér í Egilsstofu og lætur gamminn geysa. Athyglisbrestur sem konsept. Áhrifavaldastarfið analýserað. Önnur umræðuefni snúast um kvikmyndir, sjónvarpsþætti, djammið, samfélagsmiðla og allskonar annað goodsh. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
3/11/20221 hour, 38 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#218 Veni, Vidi, Vici/Kremlin, Kronik, Kanye

Styddu fremsta hlaðvarp landsins á www.patreon.com/skodanabraedur Stríðið í Úkraínu, Islamistar, Robbi Kronik í borginni, Kommúnístaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn, Euphoria, Kanye West heimildasería og annað kingshi rætt.
3/4/20221 hour, 20 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#217 Þriðja Heimsstyrjöldin (ásamt Blaz Roca)

Barnaefni, kapítalismi, Ísland, Rússland, Kína, Bandaríkin. Þrír klukkutímar af þessu fentanýl-gasi. Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
2/25/20222 hours, 38 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#216 Kynferðisleg bæling íslenskra karlmanna (ásamt Vigdísi Howser)

Frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti sex positive þáttur í sögu Skoðanabræðra! Tímamót. Vigdís Howser ferskasti podcastari landsins mætir í Egilsstofu. Opin sambönd, þrekantur inná Berghain, Reykjavíkurdætur í Eurovision, stríð við 101 Boys, MDMA, weed, sveppir, kynferðisleg bæling íslenskra karlmanna, Berlínarlífið og skömm foreldra.
2/18/20221 hour, 36 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

#215 Endurkoma Isis og Snorra Mássonar

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Snorri kíkir í heimsókn! Isis snúnir aftur, Sleepy Joe kallar blaðamann son of a bitch, skólasund, Hanna vs. Sigga Dögg í Kastljósinu, póstfemínisminn, NoFap laun ríkisins ofl ofl ofl.
2/11/20221 hour, 23 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#214 Guð í hinu góða (ásamt Bríet Isis Elfar)

Www.patreon.com/skodanabraedur Söngkonan Bríet fær sér sæti í Egilsstofu og reynt er að komast að því afhverju hún er eins og hún er. Einnig er talað um; Guð, tengslakerfi, edrúmennsku, hipsterahroka, náttúruna, uppeldi, the collective pain body, samfélagsmiðla, cancelanir og margt fleira.
2/4/20221 hour, 38 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

#213 Menningararfurinn áframseldur til barnaníðinga?

Hlustaðu í fullri lengd í gegnum www.patreon.com/skodanabraedur Hvor er meiri kóngur: Neil Young eða Joe Rogan? Er borgarastyrjöld í aðsigi í Bandaríkjunum? Er sala Öldu Music á íslenskri tónlist landráð? Öllu þessu eru svarað. Núanseruð umræða eins og ávallt. Leggist við hlustir! https://stundin.is/grein/14584/er-borgarastrid-i-uppsiglingu-i-bandarikjunum-mjog-sennilega-segir-i-nyrri-bok/
1/28/20221 hour, 21 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#212 Grand Theft Auto: Hafnarfjörður

Hlustendaverðlaunin (zzz), listamannalaun, Kommúnistaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn, stækkun swampsins og báknsins, Vopnaburður hafnfirskra ungmenna, the collective pain body, spilling og stöðugleiki. Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur. Auðveldara en þú heldur! https://kjarninn.is/skodun/frelsid-til-ad-standa-kyrr-og-breyta-engu/
1/21/20221 hour, 37 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

#211 The Master of Male Misery

Hlustaðu í fullri lengd á Patreon! Www.patreon.com/skodanabraedur Epíkin er hafin. Fyrsti þáttur Skoðanabræðra með Jóhanni  í frontlínunni. Þykkur og þéttur þáttur um hot sauce smokkana hans Drake, nýja plötu the master of male misery The Weeknd, fall íslenskra valdmanna í kjölfar viðtals við hina 24 ára Vitalíu,  bólusetningar Möggu Friðriks, nýja mynd Adam McKay „Don't Look Up“ og nýtt ástarsamband Kanye við Juliu Fox. Letsgo!
1/14/20221 hour, 24 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#210 Síðustu skoðanir Snorra Mássonar (í bili)

Snorri Másson kveður Skoðanabræðralagið í bili. Jóhann Kristófer Stefánsson gengur inn í hans stað. Þetta fyrirkomulag er rætt - ásamt öðru; Fox News, kommentakerfið, David Foster Wallace, samfélagsmiðlarnir góðu og framtíð Skoðanabræðra; sem er epísk. Guð blessi ykkur kæru hlustendur. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
1/7/20221 hour, 26 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#209 Skoðanir Nökkva Fjalars Orrasonar

Nökkvi Fjalar Orrason athafnamaður mætir í Egilsstofu og factar hlutina. Ferðalag hetjunnar; Bóluefni, psychedelics, sársauki, sannleikur og tilgangur.  Öllu þessu eru gerð ítarleg skil, njótið! www.patreon.com/skodanabraedur
12/31/20211 hour, 49 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#208 Árið 2021 kvatt

Nýliði ársins: Tommi Steindórs. Þú færð ekki að vita meira - við förum yfir allt árið með mjög samviskusamlegum hætti hér rétt undir lokin. Hver er maður ársins? Klúður ársins? Viðburður ársins? Comeback ársins? Farðu á Patreon!
12/28/20211 hour, 6 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#206 Skoðanir Ísaks Hinrikssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Ísak Hinriksson leikhúsmaður og king kemur sér vel fyrir í Egilsstofu og ræðir það sem skiptir máli við Skoðanabræður; áróður skólakerfisins, hinn toxíska Halldór Laxness, að fara til útlanda, að vera eða ekki vera, Þórólf kaupfélagsstjóra, gellurnar í LHÍ, tilgangsleysi og frelsi.
12/24/20211 hour, 41 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#205 Sænska leiðin/sænsku gengin

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Covid takmarkanir og róttækar skoðanir á þeim komnar frá jaðrinum inn í meginstrauminn... loksins.. staða mála í Svíþjóð (glæpir, morð, byssur, Einár).. The Godfather, Sopranos, Goodfellas og drill tónlist.. skötur í heimahúsum (ætti að vera bannað).. hin klámsjúka Billie Eilish..
12/21/20211 hour, 3 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

#204 Skoðanir Braga Páls Sigurðssonar

Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur var að gefa út skáldsöguna Arnaldur Indriðason deyr. Sá titill pirrar suma. Hneyksli, og við gerum það upp. Að öðru leyti kóngur og blaðamaður og pistlahöfundur og aumingi árum saman. Vinstrivillingur en faðirinn Miðflokksmaður. Margt í þessu... En byrjum hér: Íslendingar eru að uppistöðu Írar, ekki Norðmenn, eins og haldið hefur verið fram. Hér fer Bragi yfir rök sem hníga að þessu. Raunverulega áhugavert og ef þú ert sagnfræðingur, fokkaðu þér. Síðan þetta. Fulltrúalýðræðið er hrunið, það sér hver maður sem er með fullum sönsum. Því þarf að draga á Alþingi, sem Bragi segir að sé hugmynd sem sé nokkuð til umræðu á meðal fólks þessi dægrin. Maður hafði svosem ekki heyrt af henni fyrr en nú, en ekki seinna vænna. Lottóræði – kynnt til leiks; Skoðanabræður frjór vettvangur ferskustu hugmyndanna. Farið á Patreon, taparar!
12/17/20211 hour, 56 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#203 „Ungar konur í blóma lífsins“

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Mánudagsmorgun í Egilsstofu! Stemning eins og vanalega. Það sem er talað um m.a er; Picasso, hlutverk ungra kvenna í bókmenntun, fjölskyldur, bólusetningar, Joe Rogan, Hverfisgata og jólin.
12/14/20211 hour, 1 minute, 32 seconds
Episode Artwork

#202 Skoðanir Frosta Logasonar og Mána Péturssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Skeggfestival í Egilsstofu þetta laugardagseftirmiðdegið. Harmageddon bræður líta við og tala um allt sem er gaman að tala um; lúserana á þingi, endalok þáttarins, kreppuna, pólitísku þróun sína, góða fólkið, radíkalíseringu, samskipti við valdhafa, svívirðingar, skammir ofl ofl ofl.
12/10/20211 hour, 46 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

#202 Léttasta vinna í heimi

Hver er léttasta vinna í heimi? Hér er sett fram alvarleg kennning. Og það er alvarleg stemning á sunnudagsmorgni. Hvort mótar þinn heila, hlaðvörp eða útvarp? Skiptar skoðanir. Skoðanabræður hvetja Gísla Martein til að íhuga framboð. Styttist í kosningar. Issi nýr rappari: „Ég ætla að taka yfir.“ Viturleg orð fyrir upprennandi einstakling. Er það vel. Hvað annað? Tesla er það öðrum rafbílum sem iPhone er Android-símum. Þetta liggur fyrir. Og margt fleira. Farið á Patreon!
12/7/202157 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#201 Skoðanir Fríðu Ísberg

www.patreon.com/skodanabraedur Fríða Ísberg skáld og rithöfundur fær sér sæti í Egilsstofu og ræðir pólaríseringu, samkennd, ritstörfin, gagnrýni, success, stjórnmálin almennt, spítaladvöl sína, nýju skáldsögu sína Merkingu og allskonar annað epískt.
12/3/20211 hour, 41 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

#200 Stóri þátturinn um fíkn

Í vikulegum þætti er rætt um grasfíkn, áfengisfíkn, lögleiðingu í Þýskalandi, þráhyggjur, gerðar upp sakir við Fortuna Invest og hinir óumflýjanlegu fjórir kostir hvers karlmanns; I. að verða að föður sínum; II. að ganga í herinn; III. að gera konseptlist; eða IV. að deyja í skóginum.  Og auk þess leggjum við til að ÁTVR verði lögð í eyði. Farið á Patreon!
11/30/20211 hour, 4 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#199 Skoðanir Kjartans Þórissonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Kjartan Þórisson er king frumkvöðull og hefur sett nokkur fyrirtæki á stofn í gegnum tíðina. Við förum yfir startup heiminn í viðu samhengi - á skemmtilegan hátt. Geðsjúka peningamaskínan Google, Noona, heilsukvíði, Guð, Zuckerberg, Game A & Game B, framtíðin, ethics, hnignandi heimsveldi, peningar, sýn, stefnur, samfélög og stjórmál!
11/26/20212 hours, 24 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#198 Auðvitað kennum við leiðinlegt shit en ekki gagnlegt drasl

Veður eru válynd… nóvember. Þetta gerist ekki verra, segir Bergþór, en það er jákvætt. Þetta er þess vegna bókstaflega ekki að fara að verða verra. Til umræðu í vikunni eru að sjálfsögðu einkum skilaboð kvennanna í Fortuna Invest til þjóðarinnar: Lánveitingar skipta meiru máli en helgur menningararfur. Það er svosem hægt að fallast á það í svona praktískum skilningi. En málið er flóknara, eins og hér er rætt. Við ræðum einnig stöðu fjölmiðla, eins og okkar er von og vísa. RÚV – eru þau að missa tökin, er spurt. Og Rosalía.. verður sá katalani næsta stórstjarna heimsins?
11/23/20211 hour, 2 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#197 Skoðanir Níels Thibaud Girerd

Sælir, Nilli, og nú er hann mættur í Skoðanabræður, öllum þessum árum síðar. Hann er útskrifaður leikari, hefur verið lykilmaður í Íslensku óperunni um árabil og kann bíómyndina uppúr Kristnihaldi undir jökli utan að. Persónulegt viðtal við Niels, sem er sérstaklega mikill kóngur, verður að segjast. Og auðvitað, óhjákvæmilega, eru gerð upp þau miklu eftirmál sem urðu af sakleysislegu freestyle-i Nilla fyrir sjónvarp mbl.is á Airwaves 2011. Að verða stjarna fyrir annað eins er auðvitað einstakt fyrirbæri í menningarsögunni – en þetta er frægð sem hefur verið nýtt til góðs.
11/19/20212 hours, 3 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#196 Rotnandi Líkami Joe Bidens

Hlustaðu í  fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Stemningin var gífurleg í Egilsstofu þetta mánudagskvöldið. Epískur þáttur og epískar umræður um Joe Biden og hægðirnar hans, Verzló Vælið, hvort það sé í lagi að hringja sig inn veikan, Viðreisnarlibba, Dave Chapelle & Þórdís Kolbrún & transfólk, Spánn, heilbrigðiskerfið og íslenska vinstrið.
11/16/20211 hour, 1 minute, 57 seconds
Episode Artwork

#195 Skoðanir Glódísar Guðgeirsdóttur

Glódís Guðgeirsdóttir er fyrrverandi fimleikakona, jarðfræðingur og leikmaður í leiknum. Hérna er farið yfir allt það sem er gaman að hlusta á fólk tala um í podcasti: Lyftingar, Twitter, Fimleikasambandið, borgarskipulag, Vatnsenda, Flateyri, djammið og bíla.
11/12/20211 hour, 45 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#194 Er ásættanlegt að klæðast Ralph Lauren?

Snorri á Spáni, Bergþór í borg kvíðans. These are dark times, there is no denying. But you can't fight this war on your own, Mr. Potter… segir á einum stað. Þetta á líka við núna, og um hlustendur Skoðanabræðra – þið þurfið á þessu að halda. Ýtið á play og hlustið á vitrænar samræður um allt frá nýju nýlendustefnunni til hins syfjaða einstaklings í Hvíta húsinu. Hvað gerir maður þegar Frakkarnir týna töskunni manns og hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum?
11/9/20211 hour, 12 seconds
Episode Artwork

#193 Skoðanir Joey Christ og Tatjönu Dísar

Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís eru að sitja upp leiksýninguna Sýningin Okkar í Þjóðleikhúsinu. Skoðanabræður höfðu svo gaman af sýningunni að þeir vildu ræða hana frekar og fengu kings í þáttinn. Joey ætti að vera bræðralaginu kunnur - þetta er tíunda framkoma hans í Skoðanabræðrum, en annars er hann sviðshöfundur og rappari. Tatjana er sviðshöfundur og raftónlistarkona. Hérna er talað um: kakóhægrið, Leynilögguna, áföll, fjölmiðla, samfélagsmiðla, seremóníur, hlutverk listar og allt þetta helsta sem gaman er að tala um. KING þáttur hér á ferð!
11/5/20211 hour, 36 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#192 Skeggjuð sambönd stórstjarnanna

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Í þessum kóngalega bræðralagsþætti er farið um heima og geima en hinum hreina þræði haldið þéttum í gegn eins og vanalega. Umræðuefni eru meðal annars; hrekkjavökur í Hlíðunum, poppstjörnur, tæknimenntað fólk, Kim Kardashian, Pete Davidson, Nóvember, Freud fjölskyldan og The Century of the Self, Simmi Vill og nýja félagið hans, aðdragandi morðsins á sænska rapparanum Einár ofl ofl ofl.
11/2/202159 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

#191 Skoðanir Hjörvars Hafliðasonar

Velkomin í hlaðvarp ungra jafnaðarmanna. Hjörvar Hafliðason er stór í leiknum, það liggur fyrir. Hér á nýjum vettvangi, nefnilega mættur í 101 og þurfti að kaupa nýjan bol á leiðinni í þáttinn til að falla örugglega í kramið.  Skoðanabræður vildu óska þess að þeir kynnu að meta snilligáfu hans á sviði fótboltans. Því er ekki að heilsa og því er grafið eftir snilligáfu á öðrum sviðum, sem reynist ekkert ýkja djúpt á. Það er ekki margt um þetta að segja svona skriflega, hér setjast einfaldlega regin öll á rökstóla og facta hlutina, þrír PhD. Stuttur kynningartexti helgast sem sé af sama lögmáli og lýst er í þættinum, að það er ömurlegt að þurfa að skrifa djöfuls fréttina. Munnlegt skúbb er æðsta stig.
10/29/20212 hours, 9 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

#190 Einkaskoðanir Jóhannesar Hauks

Farðu á Patreon fyrir heildarupplifunina. Það kostar í alvöru mjög lítið. Það er talað um poetic justice í enskumælandi löndum... að fá Jóhannes Hauk til að gagnrýna ráðstafanir Skoðanabræðra í auglýsingamálum, en um leið nota viðtalið við hann til að fjölga áskrifendum að sama kerfi og gerir þeim kleift að stunda umræddar brellur. Brellur er ákveðin leið til þess að orða þetta og að mínu mati ómakleg. Þetta eru afkomubætandi áherslubreytingar. Sömuleiðis ræðum við mál Alec Baldwin við Jóhannes Hauk, sem hefur töluvert um það mál að segja. En, hér er ýmislegt annað rætt; psycho vibes hjá stærsta fjölmiðlaútgefanda í Evrópu, endalaus lúserakuldi í Reykjavík, tónleikarnir hennar Bríetar, baksviðið hjá Gísla Marteini þegar goons mættu á staðinn og að sjálfsögðu, margt fleira.
10/26/20211 hour, 3 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#189 Skoðanir Sögu Garðarsdóttur

Saga Garðarsdóttir.. hún vildi ræða „samskipti kynjanna“ – rangt podcast! Skoðanabræður eru sex-negative en einhvern veginn leiðist umræðan út á þessar slóðir. Það er þó sannarlega ekki verið að ræða einstök mál heldur almennt um eðli málaflokksins. Annað rætt; grínið, rétttrúnaðurinn, lífið og leigumarkaðurinn. Einkum er til umfjöllunar ákveðin íslensk kvikmynd. Sögu blöskraði þegar hún las annan Skoðanabræðra benda á hið rétta, að Stella í orlofi væri „versta mynd sem hann hefði séð.“ Saga: „Ég hugsaði, djöfulsins hrokagikkur.“ – Hugsaðirðu kvenhatari? – „Ha?“ – Kvenhatari. „Hvannadarri?“ – Nei, kven-hatari. – „Nei, ég hugsaði bara ungur, massaður, cocky að hrauna yfir Stellu í orlofi sem er eitthvert jákvæðasta fyrirbæri sem hefur gerst í íslenskri kvikmyndasögu.“ Efitt að vera king, greinilega. Ath. hér á Patreon vantar hefðbundin aðfaraorð, sem munu þó fylgja þættinum á hlaðvarpsveitur þegar þar að kemur 22. október.
10/22/20211 hour, 50 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

#188 Sérstakur Succession-þáttur, seinni hluti

Í heild sinni inni á Patreon: Í seinni þætti Skoðanabræðra um Succession, bestu sjónvarpsþáttaseríu allra tíma, greinum við karakterana, þættina sjálfa, tónlistina, handritin, leikarana og aðra seríu í heild sinni! Sérfræðingar og góðvinir þáttarins kallaðir inn; Hákon Jóhannesson leikari og Jóhann Kristófer Stefánsson sviðshöfundur. Epic epic epic epic.
10/19/20211 hour, 12 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#187 Skoðanir Emmsjé Gauta

Reykjavík… eins og beittur hnífur. Hann þekkir borgina, leikinn, strætin og svo núna, lífið. Gauti átti að vera kominn fyrir löngu en núna er hann fenginn til að gera upp ýmis mál. Fyrst dettur mér í hug ummæli hans um Reykjavíkurdætur á sínum tíma - hér er það loks gert upp! Allt á fremsta vettvangi íslenskra hlaðvarpa. Einnig er rætt um CBD, sem er mögulega að verða helst til fyrirferðarmikið í Skoðanabræðrum. Skulum reyna að finna lausn á því. En er á meðan er – njótið þáttarins og farið á Patreon til að skrá ykkur á spjöld sögunnar.
10/15/20211 hour, 58 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

#186 Sérstakur Succession-þáttur, fyrri hluti

Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur Í þessum fyrsta þætti Skoðanabræðra um Succession, bestu sjónvarpsþáttaseríu allra tíma, greinum við karakterana, byrjun þáttanna, tónlistina, handritin, leikarana og fyrstu serínu í heild isnni! Sérfræðingar og góðvinir þáttarins kallaðir inn; Hákon Jóhannesson leikari og Jóhann Kristófer Stefánsson sviðshöfundur. Epic epic epic epic.
10/12/20211 hour, 3 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

#185 Skoðanir Ármanns Arnar Friðrikssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Ármann Örn Friðriksson úr Kef Lavík er tónlistarmaður, skáld, sjóari, verkfræðingur, a man of science, kvótakrakki, kapítalisti, free thinker, Hornfirðingur, libertarian og mikill king. Hér tyllir hann sér í Egilsstofu og fer yfir heima og geima með okkur.
10/8/20212 hours, 9 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#184 Munurinn á körlum og konum

Ertu kona? Eða ertu búin að vera í lýðháskóla í sex ár? Eða áttarðu þig á því að loftslagsváin er sannkölluð ógn? Þá er þessi þáttur fyrir þig. Farðu á Patreon! (Önnur umræðuefni: Nýja serían af Ófærð, Auto nýr skemmtistaður, Beggi stjarna í Noregi, ævisaga Woody Allen og loks sannleikurinn um rómantískar gamanmyndir.)
10/5/202159 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#183 Skoðanir Sigurðar Sævars Magnúsarsonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Hér er tekið viðtal við myndlistarmanninn Sigurð Sævar og drukkið kampavín í beinni, í fyrsta skipti í Egilsstofu og örugglega í podcasti á Íslandi. Sigurður fer yfir ferilinn, ræðir pólitík, haters, myndlista, enskukunnáttu sína, Holland, kónginn í Hollandi, frelsið, fegurðina og fagmennskuna.
10/1/20211 hour, 50 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

#182 Hafa heimskir Bandaríkjamenn frjálsa hugsun?

Allt rætt nema niðurstöður kosninganna, að sjálfsögðu. Þetta er ekki pólitískt hlaðvarp. Að því sögðu.. umræðuefni þáttarins eru niðurstöður þýsku kosninganna, grundvallarhugmyndir bandarískrar nýlendustefnu og ákvörðun demókrata að koma Joe Biden að á sínum tíma. Djók!! Í alvöru, það sem við ræðum eru lúserasmásögur, kostir íslensks samfélags og persónutöfra Glenn Greenwald. Og svo er daðrað við anti-vax, að vanda.
9/28/202158 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

#181 Skoðanir Dóra DNA og Unu Þorleifsdóttur

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Dóri DNA skáld og Una Þorleifsdóttir leikstjóri ræða fótbolta, kynlíf, Kanye West, samfélagsmiðla, leikritið sem þau eru að sýna í Borgarleikhúsinu, stjórnmál, borgarpólitík, uppeldi, cancel-kúltur og allskonar annað.
9/24/20211 hour, 40 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

#180 Kosningaþáttur með Jakobi Birgis og Aroni Kristni

Kannski ekki það sem heimurinn vill, en það sem hann þarf. Sérstakur kosningaþáttur með grínistanum Jakobi Birgis og poppsöngvaranum Aroni Kristni. Sérfræðingar kallaðir til. Málin rædd, og ekki rædd. Eru þessar kosningar svona sjúklega leiðinlegar, eða hvað?
9/21/20211 hour, 8 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#179 Skoðanir Steinþórs Helga

Steinþór Helgi Arnsteinsson.. been in the game. Sérfræðingur í málefnum djammsins og hefur nálgast það úr ýmsum áttum, sem umboðsmaður, tónleikahaldari og nú rekstraraðili, Röntgen. Þar er sýslað með skegg, en demógrafían er óræð. Það rætt hér í þessum þætti. Og fleira, hápunktar djammsögunnar, en einnig, enda er það nauðsynlegt með mann eins og Steinþór, einfaldlega farið yfir ferilinn. Gettu Betur, þar sem Steinþór er sagður hafa látið sig falla til að vinna, og CCP, þar sem hann skipulagði nördaráðstefnur í Las Vegas. 
9/17/20211 hour, 28 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#178 Domino's er ekki vont, lúserinn þinn

Tvöfalt beikon og tvöfaldur ostur. Það er karlmannleg samsetning. Aðeins farið yfir pizzur Skoðanabræðra. Og: Eiturlyfjanotkun íslenskra stjórnmálamanna og nýja platan hjá J Balvin. Hvað fleira? Man það ekki, epískur þáttur samt. Farðu á Patreon!
9/14/202150 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#177 Skoðanir Kristrúnar Frostadóttur

Kristrún Frostadóttir hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar ræðir heimssýnina, stjórnmálin, the campaign trail, hina flokkana, eina prósentið, fjármálageirann,The Wire, kosningarnar í haust, Samfylkingu fyrr og nú, sameiningu vinstrisins og framtíðina. Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur
9/10/20211 hour, 49 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

#176 Að fá símtal frá Kveik

Hlustaðu í fullri lengd með áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur Katrín Jakobsdóttir í partíum, betalúserarnir á Twitter, DONDA, Certified Lover Boy, Símtal frá Kveik, háskólanám, Flottur Skrákur 2, Samsung classismi, The Mike Show cancellation (Dominos & Thule), DaBaby & Marilyn Manson, Stundin & Kjarninn, lögfræðingar og spilltir dómarar og allskonar annað.
9/7/20211 hour, 4 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#175 Skoðanir Sigurbjarts Sturlu Atlasonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Sigurbjartur Sturla Atlason Sturla Atlas fær sér sæti í Egilsstofu og kóngar sig í gang eins og aldrei fyrr. Shakespeare, leikhús, íslenskt menningarástand, NoFap, kaldar sturtur, Jordan Peterson, aumingjaskapur, loftslagsmálin og hvernig skal sigra.
9/3/20211 hour, 46 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#174 Afgönsk paradísarheimt

Heilaveiki Joe Biden, hið ósigrandi epíska Afganistan, Trumparinn, Kanye West & Drake, DONDA & HRingar,  KSÍ & Guðni Bergs, OnlyFans & vændi, valdaleysi og kokkálun fótboltamanna og allskonar annað til umræðu í þessum king þætti!
8/31/202157 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#173 Skoðanir Kristínar Eiríksdóttur

Kristín Eiríksdóttir skáld fer yfir málin með Skoðanabræðrum og ræðir skoðanir sem þó fá mann ekki upp á kassa til að steyta hnefann í mótmælaskyni, hún ræðir brjálæðislega tímann í kringum síðustu aldamót, hún ræðir ósanngirni þess að draga rithöfunda persónulega inn í verkin sín – og möguleg varnarviðbrögð þeirra við því – og loks er hún kurteislega spurð út í nýlegt mál, nefniega líkindi verks hennar Hystory við sjónvarpsþættina Systrabönd.
8/27/20211 hour, 24 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

#172 „Gellur eru alltaf graðastar í bústað”

Já.. við höldum áfram að taka við umræðuefnum úr sal, af einhverjum sökum. Þau eru eftirfarandi: kjarnorka, tilfinningar, djamm fm95blö að byrja með podcast á eh vísis patreon platformi í staðinn fyrir að nota bara patreon hvers vegna living legendið már jónsonn er ekki enn mættur í heilan þátt deep analysis á hráhakkáti SDG - hvað er í gangi með SDG stöðu fjölmiðla á íslandi og mikilvægi þeirra hálendisþjóðgarður staðreyndina að það eru geimverur búnar að vera að heimsækja okkur síðustu 70 árin hvaða flokk á að kjósa sem mun leyfa að markaðssetja cbd almennilega á íslandi og hver er ykkar afstaða gegn cbd? skoðanir á twitter reikningnum @oliogviktor fm95blö skandinavíski HR velmegunarforritarinn ICCP nýtekjuuppspretta lögreglunnar: að frelsissvipta fólk sem fílar það fyrir pening: skoðanir? væri það í lagi? no fap hvaða stelpu eruði skotin í?
8/24/20211 hour, 5 minutes
Episode Artwork

#171 Skoðanir Lil Curly

Lil Curly.. samfélagsmiðlastjarna landsins. „TikTok“ – er það ekki sakleysisleg tómstundaiðja? Nei, virðist geta verið annað og meira og maður sem hefur þegað sigrað Ísland þarf auðvitað að fara út í heim. Stefnan er tekin þangað, eins og hér er rætt. Í millitíðinni er samt best að láta ekki cancella sér, segir Curly, sem er auðvitað bara maður með sínar tilfinningar, heitir meira að segja Arnar Gauti Arnarsson svona að skírnarnafni. Og ræðir hér ýmislegt við Skoðanabræður, allt frá háleitum markmiðum sínum að daglegu lífi - og jafnvel að sambandi hans við King Nökkva Fjalar.
8/20/20211 hour, 8 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#170 Hjörvar Hafliða vs. Covid?

Skoðanabræður tóku við frábærum spurningum frá Skoðanabræðralaginu og gerðu gott úr þeim. Þeim er svarað í þessum þætti og eru eftirfarandi: hjörvar hafliða vs covid gísla valdórsson take á hvort það sé hægt að forðast frændhygli nepotism í samfélaginu allt dæmið með kanye núna - donda - markaðssetningin, thoughts á plötunni, er kanye að fokka í drake og bíða þangað til hann droppar CLB? hafiði fengið closure á kynhneigð ykkar þeas hvernig vitiði að þið eruð ekki hommar bitcoin komið aftur á skrið afhverju er gkr svona vinsæll í útlöndum viðbrögð við búningnum hans snorra í veiðiferðinni snorri sellout frímúrarafélag íslands tala um gömlu sálin hans snorra ofvitinn bls 56 lesa hús og lesa bækur ekki gefa laxness credit sem þórbergur á skilið snorri að láta fe við að þið gerið grein fyrir því afhverju ég fæ ekki fleiri gas þætti en raun ber vitni væri líka til í konsept að þið takið viðtal við hvorn annan vil heyra ykkar take á: spiritualismi, gillz, vestifirðir
8/17/202153 minutes
Episode Artwork

#169 Skoðanir Tuma Gonzo Björnssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsta einkaviðtalið við Tuma Gonzo Björnsson, manninn sem Trumpaði forsetakosningar MH árið 2015 og lofaði að gera skólann meira dirty. Þátturinn er tekinn upp í Egilsstofu og karlmennirnir þrír sem grípa í mæka eru allir í rúllukragapeysum. Hér talar Tumi um hvernig hann komst inn á Sviðshöfundabraut LHÍ (Joey Christ brautina), hvernig hann lauk því námi og hvað hann fékk út úr því. Einnig talar hann um grasferðir til Amster, vinnuna í ferðaþjónustunni, reefer partí í Vesturbænum, MH heimapartí, raf- og rokktónlist og Secret Solstice.
8/13/20212 hours, 15 minutes, 59 seconds
Episode Artwork

#168 Eini rapparinn sem hefur verið cancelled

Já.. það er nauðsynleg umræða. Annað sem er mjög til umræðu er ögrandi sundfatnaður kvenna, sem Skoðanabræður telja sig í stöðu til að hafa skoðun á. Enn annað sem er mjög til umræðu í þættinum: Stóra plastmálið, þar sem fyrirtæki telja sig þess umkomin að skerða lífsgæði neytenda í nafni sýndarmennsku. Hver tapar?
8/10/202154 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#167 Skoðanir Atla Fannars Bjarkasonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Karlmaður vikunnar er núverandi samfélagsmiðlastjóri Ríkisútvarpsins og fyrrverandi fjölmiðlamaður; Atli Fannar Bjarkason, kóngurinn sjálfur. Við tölum um bóluefni, samfélagsmiðla, fjölmiðla, Bandaríkin, íslenska pólitík - og allskonar annað sem skiptir máli.
8/6/20211 hour, 52 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

#166 Sannleikurinn sem opinberaðist með mollý

Já.. ekki aðeins MDMA á reifi í Reykjavík og allt um reynslu annars þáttastjórnanda af öðru eins, heldur líka ólöglegt partí á Flateyri. Ertu lögga? Njóttu vel. „Hvað er það sem lætur fólk elska að gera hluti sem það má ekki,“ spyr einn king. Svara leitað. Önnur umræðuefni: Nietzsche og siðferðið, svívirðingar á TikTok og Óli Stef handboltamaður. Patreon!!!
8/3/20211 hour, 43 seconds
Episode Artwork

#165 Skoðanir Siffa G & Tomma Steindórs

Frá þeim sem færðu þér Skoðanir Siffa G., Skoðanir Siffa G. II. og Skoðanir Tomma Steindórs, koma nú Skoðanir Siffa G. og Tomma Steindórs! Þetta er tímamótaveisla - rúta af Tuborg og staðreyndir. Strákar eru æðislegir! Ekkert um stöðu fjölmiðla, ekkert um skaðsemi samfélagsmiðla og ekkert um íslenskar bókmenntir. Bara veisla: Eru dýragarðar siðferðislega réttlætanlegir? Já. Strákaferðir? Veisla. En að vera strákur í sex manna hóp? Tækt á meðan þið eruð ekki fleiri. LungA? Gardínuhátíð, en kóngalegt að mæta þangað nokkrir gaurar frá AK. Kveikið á þessu. Patreon, Skoðanabræður, styðjið þetta framtak.
7/30/20211 hour, 42 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#164 Kanye West - fimmti þáttur, lokaþáttur

Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er m.a talað um The Life of Pablo, Kim Kardashian og fjölskyldu, Jesus is King, Trump, ye, Pusha T og framtíð Kanye.
7/27/202153 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#163 Skoðanir Sölku Valsdóttur

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Salka Valsdóttir tónlistarkona fær sér sæti í Egilsstofu og fer yfir stóru málin með okkur. Fyrri hluti: MeToo, sjálfskoðun, trauma og sársauki Íslendinga. Seinni hluti: Berlín, saga og þýðing Reykjavíkurdætra, leikhúsmenning þýsk og íslensk, listgagnrýni og sköpun.
7/23/20211 hour, 59 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#162 Kanye West - fjórði þáttur

Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er m.a talað um Cruel Summer og Yeezus, raftónlist og geðveiki.
7/20/202150 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

#161 Skoðanir ClubDub (II.)

ClubDub mæta aftur tveimur árum eftir fyrri þátt. Þeir hafa þroskast - nema nei! Óábyrgt tal í boði Skoðanabræðra þessa vikuna, en líka ýmislegt skynsamlegt. Þetta er bókstaflega epískur þáttur.
7/16/20211 hour, 53 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

#160 Kanye West - þriðji þáttur

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er talað um Taylor Swift og VMAs, meistaraverkið mikla My Beautiful Dark Twisted Fantasy og svo Watch The Throne.
7/13/202159 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#159 Skoðanir Jakobs Birgissonar (II.)

Gæinn sem léti sér detta í hug að bjóða Skoðanabræðrum að vera með annan live þátt, eins og þeir gerðuð með Jakobi Birgissyni 2019, hlýtur að vera mesti startup-loser á Íslandi. Hann myndi tróna á toppnum – og næg er samkeppnin. En sem betur fer er ekki verið að gera það. Nú er Jakob fenginn að borðinu inn í hljóðverið á Útvarpi 101. Og hann hefur frá ýmsu að segja, sem sagt nokkurri reynslu af vettvangi skemmtanalífsins á Íslandi. Í alvöru. Hjörvar Hafliða segir meira að segja að hann sé fyndinn. Áður en Jakob varð eðlilegur þegn var hann þó hræðilegt barn og unglingur, eins og þegar hann hætti að mæta í skólann í 9. bekk. Þetta tímabil er umræðunnar vert, en fyrst og fremst þjónar það þeim tilgangi að vera stökkpallur inn í stóru málin; kynferðismálin, klámið, eiturlyfin, stjórnmálin, íhaldssemina og lífið sjálft. Lífið sjálft er auðvitað mjög slæmt.
7/9/20212 hours, 11 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

#158 Kanye West - annar þáttur

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Annar þáttur enn betri en sá fyrsti. Graduation & 808s Heartbreak meginfókus. Að sjálfsögðu talað um margt annað. Síðasti þátturinn með Arnari og Aroni. Góðir gestir í næstu þáttum. 
7/6/20211 hour, 16 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

#157 Skoðanir Atla Bollasonar

Atli Bollason myndlistarmaður, bókmenntafræðingur og leikmaður í leiknum rýnir í „menningarástandið“ með okkur. Rave & techno, löggufasismi, áhrifavaldar, rapparar, auðvaldið, RÚV, tilgangsleysi, vinnur og samfélagsmiðlar, þetta klassíska. Þetta er epic þáttur, hlusta!
7/2/20212 hours, 17 minutes, 1 second
Episode Artwork

#156 Kanye West - fyrsti þáttur (AFLÆSTUR)

Þá er loksins komið að því.. the long awaited KANYE WEST sería. Epík í eyrun. Arnar Ingi Ingason og Aron Kristinn Jónasson tónlistarmenn eru með okkur í fyrstu tveimur þáttunum. Gestir í rest kynntir inn seinna. Í fyrsta þættinum gerum við Kanye skil, hvað þýðir hann, hvað er hann og hver er hann? Æskan, pródúseraferilinn, College Dropout og svo Late Registration. Meira í næstu viku, lessgo. Næstu þættir eingöngu aðgengilegir inni á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur
6/29/20211 hour, 21 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#155 Skoðanir Lóu Bjarkar og Sölku Gullbrár

Meeting of the minds… Skoðanir Athyglisbrests á lokastigi, óvinapodcasts Skoðanabræðra. Hérna er virkilega tekið á málunum - allt frá samskiptum kynjanna til harðra eiturlyfja. Í rauninni bara fullkomlega basic umræðuefni, en virkilega ferskur þáttur með persónulegu árásarívafi. Farið á Patreon!
6/25/20212 hours, 11 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#154 Hafnanir á djamminu

Klassískur epískur bræðralagsþáttur.. útskriftarveislu gerð skil, áfengi & vímuefni rædd, íslenskt tónlistarlíf án gatekeepera, Gísli Pálmi & Aron Can, hjúkrunarfræðingar og læknar, ófyrirsjáanleiki djammsins og allskonar annað! mælt með hlustun..
6/22/202156 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

#153 Skoðanir Vignis Heiðarssonar

Frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Vignir Heiðarsson átti sér draum um að verða stærsti endursöluaðili notaðra bóka á Íslandi. Sá draumur rættist. Síðan vildi hann í rauninni verða Góði Hirðirinn; Góði Vignirinn. Það á eftir að gerast. Hérna fer hann yfir braskið í bókaheiminum og segir frá því þegar hann var niðurlægður og rekinn úr vinnu, kærði málið, græddi milljón og fór að ferðast. Önnur umræðuefni eru: Elon Musk sem stærsta fyrirmynd Vignis, Tesla, Neurolink og SpaceX, Jeff Bezos, minimalísmi, aumingjaskapur og óþægindi, ADHD og margt annað.
6/18/20211 hour, 42 minutes
Episode Artwork

#152 Íslenski draumurinn: að traðka á andlitum

Farðu á Patreon, taparinn þinn. Umræðuefni eru: Atburðir síðastliðinna daga, hvað kjósa Birgitta Líf, Sunneva Einars og Kristín Péturs?, Brynjar Níelsson, DV, hnefanir í flugvélum Play, snilligáfa Áslaugar Örnu, Janssen þynnkan, anti-vaxx kóngar, íslenskt næturlíf og allskonar annað epískt.
6/15/202159 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#151 Skoðanir Auðar Ómarsdóttur

Komið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur Auður Ómarsdóttir er myndlistarkona nýkominn úr mastersnámi í Noregi. Einnig hefur hún spilað handbolta semi-pro, þannig að hún er fact fyrsti karlmaður vikunnar sem hefur haft atvinnu af íþróttum. Myndlist og handbolti! Tvenna guðs. Talað um það hér ásamt ýmsu öðru eins og; bælingar og peningar íslenskra útgerðarmanna, Britney Spears & Billie Eilish, Peyote seremóníur á Laugarvatni, útistöður við leigusala og Tinder í Noregi, Listaháskóli Íslands, íslenski skorturinn og ágæti íslenskra myndlistarmanna.
6/11/20211 hour, 54 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#150 Sannleikurinn um Daða og Gagnamagnið

Farðu á Patreon - fáðu það í símann, það er mjög þægilegt. Af hverju er Eurovision-atriðið svona ömurlegt? Það er ekki sanngjörn lýsing. Skulum kafa dýpra. Þessi þáttur er samt alls ekki um það. Annað er rætt í þessum vikulega þætti: Pressan er orðin veruleg á Twitter og við verðum aðeins að ræða það, allt auðvitað án þess að cancella sjálfum okkur. Góð veisla.
6/8/202155 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#149 Skoðanir Ísabellu Lenu

Patreon! Skoðanabræður. Komið í áskrift. Já... hér segir titillinn allt sem segja þarf. Skoðanir Ísabellu Lenu. Er MeToo gengið of langt? Nei, grín. Hér er rætt um mál málanna, ofskynjunarlyf, sem mig grunar svo sem að verði kallað eitthvað allt annað að liðnum fáeinum árum eftir því sem þekkingu vindur fram á fyrirbærinu. Það á sem sagt að nota þetta í lækningum, og Ísabella ætlar að vinna við það. Við ræðum einnig hið pólitíska landslag, sem sagt um allt þetta ógeðslega fólk sem er alls staðar í andlitinu á manni alltaf.
6/4/20212 hours, 5 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

#148 Skoðanir MS

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Menntaskólinn við Sund tekinn fyrir. Páll Bergþórsson lögfræðingur (f. 1990) og Stormur Kormákur Baltasarsson (f. 2002) fara yfir málin. U-ið, baggið, djammið, dópið?, kúkaklósettin, sterarnir, vinkonurnar og staða skólans í valdastrúktur íslenska menntaskólakerfisins. Lengi lifi Beljan, lengi lifi Svanurinn, þetta er Gnoðavogurinn!
6/1/20211 hour, 10 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

#147 Skoðanir Jakobs Bjarnars Grétarssonar

www.patreon.com/skodanabraedur „Guð minn almáttugur já“, „loksin loksins“, „shit hvað ég fkn hlakka til að hlusta“. Þetta eru viðbrögð nokkura meðlima bræðralagsins (skeggjuðustu smásálirnar? maður spyr sig) sem fengu, á undan öðrum, að frétta af því að The Dark Knight Jakob Bjarnar hafi fengið sér sæti í Egilsstofu með okkur eitt föstudagskvöldið og látið gamminn geysa. Væntingarnar voru miklar og Jakob stóðst þær. Hér er talað um; íslenska fjölmiðla, mikilvægi DV & Mannlíf, hvað ógeðslegir Íslendingar höndla ekki sannleikann, áhrifavalda, Sölva Tryggva - og margt fleira.
5/28/20212 hours, 10 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#146 Skoðanir Verzló

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Verzlunarskóli Íslands, þar sem valdafýsnir ungir karlmenn komast í fyrsta skipti í snertingu við hinn sjúka heim spillingar, læra að svívirða konur og aðra hópa sem minna mega sín, bæla niður allra tilfinningar, drepast á bjórkvöldum, kýla í veggi, öskra í kodda, og ganga yfir mörk? Eða hvað? Sóley Margrét Valdimarsdóttir (f. 2002) stjórnar hlaðvarpsþætti Verzlunarskólans; Verzló Podcast. Hún greinir stöðu Marmarans í dag. Aron „Mola“ Ólafsson (f. 1993) útskýrir að „PC var ekki til“ þegar hann var í Verzló. 12:00 þættir, Morfís, Gettu Betur, Nemendafélagskosningar, Leynifélög. Þetta er allt rætt!
5/25/20211 hour, 14 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#145 Skoðanir Karls Ólafs Hallbjörnssonar

Karl Ólafur Hallbjörsson heimspekingur er karlmaður vikunnar. Umræðuefni eru meðal annars: Þegar ljóðabækur fara sem stormsveipur um samfélagið, Karl Marx, þjáningar íslenska nútímamannsins vs. þjáningar þræla á sveitabýlum fornalda, heimspeki & þunglyndi, að búa í útlöndum, húmorsleysi hægrimanna, Twitter ofl ofl
5/21/20212 hours, 7 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

#144 Skoðanir MH

Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - Hvaða viðbjóður er Norðurkjallari? Eru MH-ingar enn grashausar í gardínum eða er byltingarandinn á undanhaldi? Og tengist það nýjum sófum í Norðurkjallara? Anti-homeless architecture hefur aldrei átt meiri rétt á sér. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur og Sunna Tryggvadóttir nýútskrifaður MH-ingur ræða skólann í fortíð og framtíð. „MH er nýi Kvennó“ heyrðist sagt í Reykjavík á dögunum. Er það rétt?
5/18/20211 hour, 12 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

#143 Skoðanir Önnu Marsibil Clausen

Fullkomlega frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Anna Marsibil Clausen útvarpskona í mikilli veislu hér. Umræðuefni eru meðal annars: Hlaðvörp sem gas eða visionary stream of consciousness, fjölmiðlaumhverfi Íslands, áhrifavaldar & árás þeirra á lýðræðið, Davíð Oddsson og hlutverk hans á Íslandi í dag, ekki nauðgarar heldur fólk sem nauðgar, valdeflandi twerk, RÚV, menningargagnrýni, MeToo, forræðishyggja, TikTok og svo mögulegt menningarnám Bassa Maraj og félaga?
5/14/20212 hours, 33 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

#142 Skoðanir Kvennó

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Kvennaskóli Reykjavíkur - einu sinni bara fyrir konur en nú einnig fyrir karlmenn. Kvennskælingar eru allskonar eins og kemur í ljós í þessu samtali. Einhverjir myndu lýsa þeim sem fullkomlega venjulegu fólki; heiðarlegum Íslendingum - en sumir myndu hinsvegar svívirða og segja þá meðalmennskuna uppmálaða. Skoðanabræður taka ekki afstöðu, endilega. Maríanna Katrín (fædd 2003) og Stefán Gunnar Sigurðsson (fæddur 1993) fara yfir málin með okkur.
5/11/20211 hour, 17 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

#141 Skoðanir Bergs Ebba Benediktssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Karlmaður vikunnar er Bergur Ebbi grínisti, rithöfundur, fyrirlesari og podcastari! Umræðuefni þáttarins eru meðal annars; staða íslenskra hlaðvarpa, Norðurslóðir, líkamsstaða, jakkar, að klæða sig eftir aldri, ógnarvald Facebook, customer service tæknifyrirtækja, áhrifavaldar & stjórnmálamenn, Áslaug Arna, Guðmundur umhverfisráðherra, árshátíðir, íslenskir fjölmiðlar og Morgunblaðið '95.
5/7/20212 hours, 5 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#140 Skoðanir MR

MR? Nördar? Lúðar? Kvenhatarar og vændiskonumyrðandi karlmenn? Femínistar? Allt saman, er rétta svarið, virðist vera, enda útilokar ekki annað hitt, en þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta er margslungin ofbeldisstofnun sem við gerum hér tæmandi skil í einum þætti (sem má nálgast í heild á Patreon, ef þú ert í hlaðvarpsveitunni þinni að vera lúser). Umræðupunktar: Böll, áfengi, stofulúðar, gangnaslagur, málbreytingar og svo framvegis og svo framvegis. Persónur og leikendur eru þessir: Þrír MR-ingar á móti einum Verzlingi, Bergþóri Mássyni. MR-ingarnir eru Grímur Smári Hallgrímsson, fæddur 2002 og úr Laugalækjarskóla, Guðrún Sóley Gestsdóttir, fædd 1987 og úr Hagaskóla, og loks Snorri Másson, fæddur 1997 og einnig úr Hagaskóla.
5/4/20211 hour, 20 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#139 Skoðanir Ágústs Elí Ásgeirssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Ágúst Elí kvikmyndagerðarmaður og teiknimyndaking gerði flestöll góðu tónlistarmyndbönd rapparanna í góðærinu góða 2016/17/18 - hér segir hann frá því hvernig var að vinna með röppurum höllum undir plöntuna grænu í miðjum xanax faraldri, hvernig teiknimyndir virka og eru gerðar - einnig tölum við um; myndasögur, íslenska gagnrýni á whack dóti, B.O.B.U JóaPé og Króla, 12:00 og Verzló (förum vel yfir það), sósíalisma og framtíð Íslands.
4/30/20211 hour, 45 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#138 Við hörmum að Ofurdeildin hafi ekki orðið að veruleika

Það er synd og skömm að ekki hafi orðið af Ofurdeildinni, einhverju merkasta framtaki síðari tíma, að mati Skoðanabræðra. Þetta kemur fram í nýjum Bræðralagsþætti, þar sem markið var sett hátt: Að mynda sér skoðun á einhverju gefnu fyrirbæri án þess að hafa nokkra minnstu forsendu til þess. En okkur skilst að ef af þessu hefði orðið, hefði verið úti um fótboltann. Þarna var dauðafæri illa nýtt. Önnur umræðuefni: Rétt og röng stjörnuspá, sturlaðar hugmyndir um einkavæðingu, viðbjóðslegir brundstólar fyrir Playstation 5 úr Eymundsson og aumingjaskapur FIFA-spilarana. Og margt fleira! Patreon, fyrir djúsinn. Googla Skoðanabræður Patreon.
4/27/202159 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#137 Skoðanir GDRN

Söng- og leikkonan GDRN ræðir með okkur OnlyFans, áhrifavalda, Instagram, leiklistina, tilgangsleysi skoðana, Pál Óskar, tónleikahald, tónlistarbransann, að meika það erlendis og allskonar annað Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur
4/23/20211 hour, 19 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

#136 Skoðanir Joey Christ á grasi (4/20 Special)

„Ég held að þeir sem eru að borga í bræðralagið séu í miklu meira mæli einhverjir nerds sem eru ekki í alvöru að smoke-a hann.“ Jóhann Kristófer Stefánsson um ykkur, lúserarnir ykkar. Eru menn að fagna deginum? Eða viljið þið bara weed eftir djammið þegar þið eruð að fara heim með stelpu sem þið eruð að sofa hjá í fyrsta skipti og hún reykir augljóslega ekki það oft en er samt bara eitthvað mm jájá þú mátt alveg reykja? Hvert sem svarið er, er þessi þáttur óður til plöntunnar ógurlegu, eiturnautnarinnar maríjúana. Í boði í heild sinni á Patreon – alhliða umræða um kannabis á 4.20., eða 20.4. eins og maður segir hér á landi, þar sem allt sökkar.
4/20/20211 hour, 8 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

#135 Skoðanir Herra Hnetusmjörs

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Herra Hnetusmjör talar um aðgerðir stjórnvalda, mótmæli á Reykjanesbrautinni, landamæralokanir, hlaðvörp, stöðu íslensks rapps og íslenskrar tungu, Framsóknarflokkinn, sinn eigin stjórnmálaflokk og forsetaframboð, eftirlaunin 2044, fasteignabrask, árshátíðaspjallið, Hamraborg sem kvenmannsnafn og síðan eru hinar og þessar stofnanir svívirtar svo sem: RÚV, Rás 1, Rás 2, ÍSTÓN og FÍH
4/16/20211 hour, 21 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#134 Á að gera venjulegt klám jafn ólöglegt og barnaklám?

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Það sem er m.a talað um: Prins Filipus rest in pussy, DMX rest in power, fólk trúir því sem það vill trúa, grasreykingar um páskana, á að gera klám ólöglegt?, algoriþminn sem þurrkar út Joe Biden og Trump, klámvörubúðirnar íslensku sem raka inn milljónum og framtíðar bræðralagsþættir.
4/13/20211 hour, 1 minute, 12 seconds
Episode Artwork

#133 Skoðanir Þórðar Inga Jónssonar (Lord Pusswhip)

Þórður Ingi Jónsson hinn eini sanni íslenski Underground King einnig þekktur sem Lord Pusswhip fer yfir allt þetta helsta með Skoðanabræðrum: NFT's, alþjóðlega myndlistarmarkaðinn, Berlín, TikTok radíkalísering, stuðningur olíufyrirtækja við avant-garde listamenn, Reykjavík, Vesturbærinn, LA, Píratar og Vinstri Grænir, Bangerboy, íslenskt rapp, léleg íslensk popptónlist,  og allskonar fleira. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
4/9/20211 hour, 35 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

#132 Skoðanir Danmerkur

Hlustaðu í fullri lengd á www.patreon.com/skodanabraedur Danmörk - þriðji þáttur í Norðurlandaseríu Skoðanabræðra. Draumaríki unga fólksins, veisla, hvort sem þú vilt reykja sígarettur og drekka bjór eða vera í CBS og myrða vændiskonur.  Nokkrir sérfræðingar varpa ljósi á land og þjóð.   Sindri Jensson kaupmaður fór til Kaupmannahafnar fjórum sinnum á ári áður en faraldurinn skall á og stýrði þar fataverslun á árum áður.   Kári Eldjárn Þorsteinsson er staddur í Danmörku núna og fílar lífið sem kennari: Golf á morgnana og kennsla eftir hádegi. Komið við í Christianiu þegar það á við.   Ísabella Lena var á djamminu í Kaupmannahöfn þegar hún var 19 ára. Það er alvöru stöff.   Már Jónsson sagnfræðingur fjallar um sögu Danmerkur sem lítils nýlenduveldis og auðvitað tengsl hennar við það gráa lúsuga Ísland.
4/6/20212 hours, 30 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#131 Skoðanir Magnúsar Leifssonar

Magnús Leifsson leikstjóri er karlmaður vikunnar.  Hér er talað um: Stofuhita með Bergi Ebba á Stöð 2, tónlistarmyndbönd, Úlf Úlf, árangursríka nísku Emmsjé Gauta, auglýsingabransann og fljótfærnina þar, hvernig maður býr til kvikmynd, hvernig maður býr til stuttmynd, söfnunaráráttu, innblástur héðan og þaðan, íslenska kvikmyndagerð, þróun rapptónlistar, graffiti menningu, Steindann Okkar seríur 2 og 3, Hreinan Skjöld, samtök ungs fólk gegn veggjakroti og allskonar annað. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
4/2/20211 hour, 39 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#130 Skoðanir Svíþjóðar

Þáttur tvö í Norðurlandaseríu Skoðanabræðra. Í heild sinni aðgengilegur á PATREON - gúglið Patreon Skoðanabræður og borgið svona 500kr á mánuði fyrir endalausan aðgang að endalausri veislu. Svíþjóð – fyrirmyndarríkið, ólíkt Noregi, sem allir hata. Í Svíþjóð er gott að búa og það getur eiginlega enginn útskýrt af hverju. Hér gera samt fjórir mismunandi sérfræðingar tilraun til þess. Feðgarnir Jakob Birgisson grínisti og Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur segja frá dvöl sinni í Svíþjóð og rekja sögu þjóðar í stuttu, hnitmiðuðu og ögn bældu máli. Emma Ástvaldsdóttir viðskiptafræðingur segir frá sænsku samfélagi eins og hún hefur kynnst því í Stokkhólmi frá því á unglingsárum, en þar hefur hún verið með annan fótinn. Andrea Röfn Jónasdóttir bloggari kveður Svíþjóð eftir þriggja ára dvöl og eitt stykki barnsburð – og það gerir hún með trega, enda frábært land sem má segja ýmislegt um.
3/30/20211 hour, 23 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

#129 Skoðanir Jökuls Sólberg

Karlmaður vikunnar er Jökull Sólberg, ráðgjafi og sérfræðingur í hinu og þessu. Hér tölum við um radíkalíseringu hans sem sósíalista, tímann á stafrænni auglýsingastofu í London, sprotafyrirtæki, QuizUp, rafflæði, samband hans við Hreiðar Má fyrrverandi bankastjóra, hvernig hagfræði í HÍ er fullkomlega úrelt og allskonar annað. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
3/26/20211 hour, 42 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#128 Skoðanir Noregs

Fleiri Norðurlandaþættir koma á Patreon – sá fyrsti er frír í heild sinni. Googla: Patreon Skoðanabræður og fáðu aðgang að endalaust að efni fyrir 634 krónur. Noregur! Kæra bræðralag: Vorgjöf Skoðanabræðra er þessi sérstaki þáttur um Noreg, þar sem heyrast skoðanir fjögurra álitsgjafa á þessu sérstaka landi, sem er auðvitað upprunastaður okkar Íslendinga, a.m.k. að svo miklu leyti sem aðrir staðir eru það ekki. Menning, efnahagur, pólitík í Noregi - og hreinræktaður ömurleiki tilverunnar í mynd elliheimilismáltíða sem samanstanda af bæði kjötbollum og fiski – þessu eru hér öllu gerð fullkomin skil í samtali við fjóra sannkallaða Noregskonunga. Hlustið bara á þetta frá A til Å (síðasti stafur norska stafrófsins). Og ef þið villist um í hverfinu hérna, eru tímasetningar einstakra viðtala eftirfarandi: 9. Már Jónsson sagnfræðingur 36. Brynjar Barkarson popptónlistarmaður 51. Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður 1:22. Þóra Tómasdóttir blaðamaður
3/23/20211 hour, 44 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

#127 Skoðanir Kolfinnu Nikulásdóttur

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Kolfinna Nikulásdóttir er sviðshöfundur FKA Kylfan. Hér tölum við um beefið við Emmsjé Gauta, Reykjavíkiurdætur, meðalmennsku í íslensku listalífi, kvenhatur og hnignun karlkynsins, hvað má og hvað má ekki, MeToo hreyfinguna, Woody Allen, gagnrýnendur og áhorfendur, lélega íslenska sjónvarpsþætti ofl ofl ofl
3/19/20211 hour, 42 minutes, 16 seconds
Episode Artwork

#126 Skoðanir Bassa Maraj og Jóa Pé í partíi

Það er áfengi, það er djamm, það eru óheflaðar umræður. Við erum stödd í partíi í miðbæ Reykjavíkur með mjög góðar upptökugræjur – í titli þáttarins eru svívirt nöfn þeirra sem sannarlega hafa mikla aðkomu að umræðunum, en eru ekki endilega eins vel til þess fallin að hala inn smellum og nöfnin sem urðu fyrir valinu. Til dæmis sitja Hákon Jóhannesson og Ísak Hinriksson inni í hljóðveri lungann úr þættinum og systkinin Sigurbjartur Sturla og Rafnhildur Rósa Atlabörn leggja þannig sömuleiðis ófá orð í belg. FARÐU INN Á PATREON! Skoðanabræður.
3/16/202152 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#125 Skoðanir Hákonar Jóhannessonar

Nýr þáttur. Ég var að klippa hann og gat ekki hætt að hlæja, þannig að ég skil hann bara eftir hér. Fyrsta símaat í Skoðanabræðrum og fyrsti söngur frá viðmælanda. Quote: „Ég er að keyra frá Kjalarnesi og ég hlýt að mega spyrja þig um eitt,“ segir Hákon á leiðinni í Vesturbæjarlaugina. Hákon Jóhannesson leikari, nánar tiltekið.
3/12/20212 hours, 30 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

#124 Litlu brundhúsin og híerarkía áhrifavaldanna

Góðan daginn góðan daginn veislan heldur áfram...  hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - hér er talað um: Instagram Vikunnar vs. Stjörnulífið, hvers vegna Snorri kýs að skrifa fréttir og beita sjálfan sig ofbeldi, hvað það er ömurlegt að spila, hvort það megi uppnefna Dómsmálaráðherra, deyfing, áfengi & gras & lögleiðing, Björgúlfur Thor vs. Robbi Wessman, míkróbrewery, Erpur & Stefán Pálsson, Bjarni Ben & Katrín Jak sem áhrifavaldar, hvort áfengi eigi að vera í búðum, ÁTVR og Thule, suicide boming og hryðjuverk ofl ofl ofl
3/9/202159 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#123 Skoðanir Sóleyjar Tómasdóttur

Karlmaður vikunnar hefur skoðanir á karlmönnum - skoðanir sem flestir ættu að heyra. Hér er ekki verið að tala um skoðanir í þeirri skilgreiningu að þær séu lægsta form þekkingar, heldur erum við að tala um að hér sé verið að facta hluti - íslensk föct eins og þau gerast best. Hér er talað um: þróun femínismans, aktívisma, stjórnmál, réttlætiskennd, Miðflokksógnina miklu og Sigmund Davíð,  hvernig umræðan færist hægt og rólega til hægri, misskilninginn um að strákar séu sérstaklega illa staddir í skólakerfinu, þunglyndi og kvíði stelpna í skólakerfinu, Moggabloggið, Holland, jafnréttisfræði ofl ofl ofl ofl! Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur
3/5/20211 hour, 32 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#122 Allt það helsta um glæpagengi á Íslandi!

Gjörið svo vel, brot af því versta. Vikulegir þriðjudagsþættir á Patreon, þar sem gasleiðslurnar eru raunverulega ræstar. Kostar um 800kr að fá aðgang að þessu!
3/2/202154 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

#121 Skoðanir Guðmundar Bjarnar Þorbjörnssonar

„Sigurvegarinn er aldrei spurður hvort hann hafi verið að segja satt,“ sagði Hitler og það voru orð í tíma töluð. Allir hafa nokkuð til síns máls, eins og Guðmundur Björn Þorbjörnsson bendir á í þættinum. Guðmundur! Menntaður prestur, en starfar ekki sem slíkur, heldur hljómar hann frekar eins og áhangandi nýrrar og sanngjarnari póstkristinnar hugmyndafræði, ekki ósvipaðrar póstfemínisma þeim sem Skoðanabræður hafa talað fyrir. En það kemur málinu ekki við, þó að það sé töluvert talað um þetta í þættinum. Yfirveguð umræða um trúárbrögð! Guðmundur er blaðamaður á RÚV, þó að hann hafi átt bestu ár sín sem blaðamaður á Bæjarins besta á Ísafirði. Síðan þá hefur líf hans einkennst af ritgerðarskrifum og öðrum alvarlegu einkennum sem fylgja þeim sjúkdómi sem doktorsnám er. Hér segir hann sína sögu og útskýrir fyrir Bergþóri og Snorra hvað það er í raun og veru lúseralegt að vera antí-sportisti. Farðu á Patreon! Skoðanabræður hjá Útvarpi 101.
2/26/20211 hour, 54 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

#120 Slagnum tapað en stríðið heldur áfram

Þriðji og síðasti Drake þáttur Skoðanabræðra og sá epískasti hingað til. Farið yfir hinn skeggjaða stóra kanadíska frá 2016 til nútímans. Vonbrigði í kjölfar Views, grasreykingar og áfengisdrykkja Snorra og Bergþórs á Drake tónleikum í London 2017, More Life slappleikinn, beefið við Kanye og Pusha T, góðu versin, góðu lögin, lélegu plöturnar, sigrarnir stóru 2018, Euphoria og Top Boy 2019, viðbjóðurinn af lagi sem Toosie Slide er, Dark Lane Demo Tapes, DJ Khaled, Lil Durk, Certified Lover Boy og svo er barnagirnd mannsins sem búið er að framleiða þrjá heila þætti um rædd í lokin.
2/23/20211 hour, 22 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#119 Skoðanir Óla Kja

Að sækja sigra.. er það ekki það eina sem skiptir máli í þessu öllu? Ólafur Kjaran Árnason, ratfucker og ráðgjafi, gengur í ráðuneyti Skoðanabræðra. Ekkert nema efld tengsl við gasrótina. Þátturinn hefst á bjór í Árnagarði, þar sem sagnfræðiprófessor þáði heimsókn ungs hagfræðings, sem sá fyrir sér að prófessorinn væri á leið í veigamikið embætti. Patreon! Googlið Skoðanabræður Patreon og gangið í bræðralagið. Græðið heilan þátt í hverri viku.
2/19/20211 hour, 51 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#118 Strákurinn eitrast og verður að manni

Þáttur 2/3 í Drake umfjöllun Skoðanabræðra.. Drake stækkar og stækkar og þá erum við að tala um líkama, frægð og toxicity. Árin 2011-2015 tekin fyrir hér. Take Care, Nothing Was The Same, If You're Reading This It's Too Late, What A Time To Be Alive!
2/15/202147 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#117 Skoðanir Gunnars Jörgens Viggóssonar

Rafmyntabylting, hugleiðsla, uppljómanir, psychedelics, heimspeki, hagfræði, verkfræði, völd og stjórnmál, sannleikar, orka og efni, bankar, óstöðugleiki, hagnaður og tap, fjölmiðlar (brjálæðingar að skrifa um aðra brjálæðinga), bláar skyrtur og málaliðar, að aflæra áróður og margt fleira! Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur 06:15 Hvers vegna Crypto? 45:10 Munurinn á rafmyntum og venjulegum peningum 57:00 Hverjar eru neikvæðu hliðar rafmyntarinnar? 1:04:00 Hvernig er hægt að kynna sér Bitcoin og rafmyntir? Hvernig byrjar maður? 1:25:00 Breytingar á alsheimkerfum og hugarfar fátæktar 01:40:10 Hvernig er hægt að breyta kerfinu innanfrá 01:48:15 Hugleiðsla og psychedelics 2:09:00 Uppljómunarferlið 2:28:00 Hugleiðsla í beinni Gunnar á Twitter: @00qq22 www.bitcoinblack.is
2/12/20212 hours, 43 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#116 King kanadíski kóngurinn (Drake #1)

Stutt brot úr fyrsta þætti Drake umfjöllun Skoðanabræðra.. Hlustaðu í fullri lengd á www.patreon.com/skodanabraedur
2/9/202153 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#115 Skoðanir Sylvíu Hall

www.patreon.com/skodanabraedur - styddu frjálsa fjölmiðlun! Afhverju verða allir lögfræðinemar hægrinazis? er rannsóknarspurning þáttarins. Í leit að svörum er farið yfir hin ýmsu málefni; lögfræðinámið sem innræting ákveðinna hugsjóna og hugmynda, Verzló, NFVÍ, marmarinn, 12:00, nemendafélög og menntaskólar, loftslagsmálin, sósíalisminn, kapítalisminn, íþróttakennsla, Breiðholtið og fleira!
2/5/20212 hours, 1 minute, 48 seconds
Episode Artwork

#113 Skoðanir Gunnars Smára Egilssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Gunnar Smári Egilsson sósíalisti og fjölmiðlamaður fer yfir sögu sósíalismans og auðvaldsins, misræmi milli félagshyggju Íslendinga og svo kosninganiðurstaðna, traust almennings á sterkum stórum stjórnmálamönnum, að missa vonina, sérfræðingavæðing, borgarastéttin, verkalýðurinn, hagfræðingar & lögfræðingar, nýfrjálshyggjan & ómannúðarstefnan, frjálsi markaðurinn, dagblöð, áhrifavaldar á þingi, hetjur, Chomsky, falskir spámenn ofl ofl ofl
1/29/20212 hours, 28 seconds
Episode Artwork

#112 Bóndadagsdómsdagur

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur upp koma umræður um; Jón Ásgeir, Helgi Seljan, Einar Kárason, Gunnar Smári, Joe Biden, Donald Trump, Bernie Sanders, Stuðmenn og síðan er munurinn á íslensku bönkunum ræddur, The Biden years, Ísland sem hluti af bandaríska heimsveldinu ofl ofl ofl
1/26/202159 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#114 Grunnskólakrakkar eru svo heimskir!

Njótið vel kings... Grunnskólakrakkar pólaríseraðir, óupplýstir og fordómafullir, segir Snorri Másson, yfirvegaður, upplýstur og fordómalaus öðlingur. Farðu á Patreon og sjáðu hvað hann á við! Googlaðu "Skoðanabræður Patreon" og restin skýrir sig sjálf - eða ertu ekki digital native, er kóðinn ekki móðurmál þitt, barn.
1/26/20211 hour, 58 seconds
Episode Artwork

#111 Skoðanir Jóns Péturs Þorsteinssonar

Jón Pétur um viðtal Skoðanabræðra við Sóllilju Baltasarsdóttur: „Ekki skrýtið að þið séuð orðnir níhilistar með blæti fyrir þjóðernisíhaldi, þið hafið enga trú á náunganum og eðlilega komist þið að sömu niðurstöðu og Hobbes að það sé þörf á sterkum leiðtoga. Þið getið kannski rætt þessar pælingar við Sigmund Davíð þegar hann mætir loksins í þáttinn ykkar.“ Í stað þess að fá Sigmund Davíð (við gerum það síðar) fengum við Jón Pétur sjálfan! Þar með beygjum við aftur inn á beinu brautina og höldum áfram okkar vegferð okkar í nafni hins margumtalaða pólitíska rétttrúnaðar. Farið á Patreon, þar sem þið finnið mjög marga þætti sem ekki eru á hlaðvarpsveitum.
1/22/20212 hours, 4 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#110 Séríslenskt stéttaofbeldi með Sturla Atlas

Hlustaðu á þennan þátt í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - 45 mínútna spjall með Sturla Atlas Leikarinn og tónlistarmaðurinn Sigurbjartur Sturla Atlason púllar upp í settið um miðjan þátt og fer yfir þetta helst með okkur; 8 Mile og Gunnar Smári, jákvæðni og gleði, Katrín Jakobsdóttir, Frosti Logason & Bitcoin, afstöðuleysi í bankasölu, stéttaskipting í skólum og á Íslandi, Svíþjóð versta land í heimi, menningarelíta og alþýðumúsík, menningarnám í leikhúsinu, pólitísk list, róttækni í listum, misheppnaðir leikarar, Atli123, Rússland fyrir byltingu, incest, Macron og konan hans, klám, kynlífsatriði í bíómyndum, Tesla & Elon Musk, Bólivía, tyrkneskt rapp í Þýsklandi og danskt rapp.
1/19/20211 hour, 14 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#109 Skoðanir Tómasar Steindórssonar

Góðan daginn. Tommi Steindórs… Tómas Steindórsson (born 24 April 1991) is an Icelandic entertainer, social media celebrity and basketball player, segir í alfræðiritinu Wikipedia. Hver skrifar þetta? Greinilega ekki hann sjálfur, ef marka má frásögn hans hér í Skoðanabræðum. Stóra spurningin: Hvernig er Tommi í náðinni hjá bæði vegan vinstrinu og mjög vonda hægrinu? Hann er Joe Biden Íslands, mættur til að sameina. Hlustaðu á þáttinn og heyrðu hvernig Tommi borðaði Metro, hrossakjöt og 12 litlar kókosbollur á einum og sama deginum. Patreon! Googlaðu Skoðanabræður á Patreon og gakktu í ljósið.
1/15/20212 hours, 39 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#107 Nýtt 9/11 og viðtal við rapparann Birni

Hlustaðu á þetta spjall við vinsælasta karlmann vikunnar fyrr og síðar í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Önnur umræðuefni eru; Stöð 2 í lokaðri dagskrá, failaðir fjölmiðlar, rapparinn Birnir snýr aftur í Skoðanabræður og talar um listamannalaunin sín og nýja lagið sitt og Páls Óskars, uppþot í USA, Trump Media, Sleepy Joe, helsta áhugamál íslenskra Viðreisnartölvunarfræðinga; gera lítið úr málfari annara ofl ofl ofl ofl
1/12/202159 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

#106 Skoðanir Sóllilju Baltasarsdóttur

patreon.com/skodanabraedur Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar, útlitsdýrkun, Nike, H&M, þrælahald, hraðtíska, veganismi, kjötát, hestamennska, skíðamennska, eldamennska, náttúra, miðborgin, myndlist, kvikmyndagerð og hlaðvarpsgerð. You name it - hér eru málin rædd..
1/8/20212 hours, 2 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#105 Að hata stjörnuspá er að hata konur

Já.. nýtt ár! Hver hefði haldið. Fámennt áramótapartí er eins og eilíft fyrirpartí, það hefur komið fram, en það sem hefur ekki komið fram er að af örfáum konum á vettvangi héldu tvær uppi metnaðarfullri stjörnuspá fyrir veislugesti. Hvað á þunglyndum karlmanni að finnast um það og hvort finnst honum betra, það, eða kennisetningar nýfrjálshyggjunnar? Margt fleira rætt, svo sem, og vísast að hlusta á allan þáttinn inni á Patreon til að njóta hans til hlítar.
1/5/202155 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#104 Skoðanir Benedikts Erlingssonar

Karlmaður vikunnar! Benedikt Erlingsson... leikari og kvikmyndaleikstjóri, þekktur fyrir Fóstbræður, hin og þessi leikrit, kvikmyndirnar Hross í oss & Kona fer í stríð. Hér rekur hann sögu Íslands og setur mikla virðingu á nöfn þrælanna Karls og Vífils, leggur til lausnir við loftslagsvánni, hvetur ríkisstjórnina til þess að selja kynlíf, rassskellir Ríkisútvarpið, kallar Auði, GDRN og Herra Hnetusmjör Fjölnismenn og opnar sig loks um þá hræðilegu upplifun að lenda í ærskýringu.
1/1/20211 hour, 30 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

#103 Blóðugasti bardagi íslenskrar nútímasögu

Verðugt umfjöllunarefni: Guttó-slagurinn. Bergþór Másson gerir honum mögnuð skil í þessu stutta broti, sem má nálgast í fullri klukkustundarlengd á Patreon, en þar er sannarlega fjallað um endalaust margt annað: Umræðuefni eru Bjarni Ben, Ásmundarsalur, 2020, skeggjaðir menn leiknir grátt af Covid, Gúttóslagurinn mikli, kommúnismi, kapítalismi, Siglufjörður, Ólafur Thors, sérsveitin, hvítliðar, sjálfstæðismenn, Viðreisnarmenn, ömurlegir pistlar, auglýsingar til barna, heilaþvottur barna, Valdís, jóladagatöl og margt margt fleira.
12/29/20201 hour, 1 minute, 25 seconds
Episode Artwork

#102 Skoðanir Arons Kristins Jónassonar

Jólasveinar, einn og átta.. Ég er auðvitað ekki að kalla Aron Kristin Jónasson einn af þeim! En það mætti ýmislegt um manninn segja. Til að spara tíma (klukkan er 16.52 á aðfangadag þegar þetta er skrifað) segi ég bara: Hann er Geitin Sjálf, þó að mannanafnanefnd þverskallist við að taka nafnið gilt. Rappari, listamaður, viðskiptasiðfræðingur, sem hér tjáir sig um allt á milli himins og jarðar. Athugið þó að þær skoðanir sem hér koma fram hafa, eins og maðurinn tiltekur sérstaklega af ótta við Æstan Múg Góða Fólksins, ekki lengri líftíma en sem nemur nákvæmlega þessum þætti. Farið á www.patreon.com/skodanabraedur.
12/25/20201 hour, 43 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

#101 Úr meginstraumsbarnaklámi til Only Fans

Það bar til um þessar mundir að þáttur datt inn frá Skoðanabræðrum í jólagjöf fyrir alla aumingjana sem þó eru ekki að styðja þá á Patreon. Þetta er í fullri lengd, sem sé í tilefni þjáningarhátíðarinnar. Og klárlega einskiptisaðgerð. Fáið ykkur áskrift en fleytið ykkur um sinn áfram með þessum brauðmolum. Af Patreon: enn og aftur komnir inn í eyrun og umræðuefni eru: King Tommi Steindórs, LungA, Seyðisfjörður, barnaklám, OnlyFans, Þórbergur Þórðarson, seinni heimsstyrjöldin, CIA, Indónesía, Jake Paul & Logan Paul, Black Lives Matter. Þetta er góður þáttur!
12/24/202049 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#100 Skoðanir Jóhannesar Hauks

„Jóhannes Haukur er leim, hann er með sökkaðar skoðanir, eða mig minnir það allavega, ég man ekki alveg hvað hann var alltaf að segja, en mig minnir að hann sé með ömurlegar skoðanir“ sagði Bergþór í #14 Skoðanir Arons Mola sumarið 2019. Sumarið 2020 var Jóhannes Haukur staddur á Írlandi í einangrun, nýgenginn í bræðralagið, og heyrði þessar svívirðingar. Jóhannes svívirti ekki til baka heldur fyrirgaf ummælin, svona þannig séð, og gerðist styrkjakóngur Skoðanabræðra á Patreon. Þessi atburðarrás er rakin í þaula ásamt umræðum um: Hollywood, nísku Þjóðleikhússins, Klaustursmálið, mótmæli, umhverfismálin, skeggvöxt, Svartur á leik, barnauppeldi, grasreykingar, tjáningarfrelsi, skoðanir, framkomubann LHÍ ofl ofl ofl. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
12/18/20202 hours, 45 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#99 Framtíð íslensks rapps

Má kalla kvennalandsliðið í knattspyrnu litlar mýs? Það virðist Bergþóri finnast! Umdeilt mál... En gjöfult þegar kemur að lækunum. Talandi um læk, þ.e. nafnorðið „lækur“. Hvernig beygist það í eignarfalli? Læks? Lækjar? Ef þú velur fyrri myndina, þarftu að segja af þér, því það er rangt. Skóggangssök, eins og vitað er, guðlast af verstu sort, fannst alla vega á sínum tíma öllum nema Halldóri Kiljan Laxness.  Síðast en ekki síst: íslenskt rapp! Framtíð tungumálsins, samanber sigurvegara Rímnaflæðis þetta árið, sem fjallað er sérstaklega um hér. Linkur hér: https://www.ruv.is/ungruv/spila/rimnaflaedi-2020/31317/9al62j?fbclid=IwAR3mhuF36tGATr6W6WuprYpG8EEElv0N-aNGSuaUrWQKNMgaewTXsEDRHUg Útvarp 101, farið á Patreon: https://www.patreon.com/skodanabraedur
12/15/202059 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#98 Skoðanir Siggu Ólafsdóttur

Sigga Ólafsdóttir hefur í gegnum árin starfað á tónlistarhátíðum, í félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum og nú á Stuðlum. Umræðuefni eru meðal annars: eiturlyfjaneysla unglinga, lögleiðing fíkniefna, Telegram, Secret Solstice, Sónar, Wow Air, KR, stemningin á Stuðlum og Retro Stefson. www.patreon.com/skodanabraedur
12/11/20201 hour, 25 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

#97 Offitufaraldurinn

Þáttur um allt það helsta og aldrei þessu vant: Dagskrá! Spurningakeppni þar sem Bergþór veður eld og brennistein og niðurlægir sjálfan sig auðvitað. Farðu á Patreon! Útvarp 101.
12/8/202058 minutes, 1 second
Episode Artwork

#96 Skoðanir Sigmars Vilhjálmssonar

Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er á þessum síðustu og verstu tímum orðinn einn allra mikilvægasti áhrifavaldur á íslenskum samfélagsmiðlum, með fleiri en 20.000 dygga fylgjendur á Instagram. „Þetta er ótrúlega sérstakt atriði… Háaldraður maðurinn.“ Skoðanir? Alla vega þetta: „Ég og Gísli Marteinn erum sammála um fátt.“ Borgarmálin, business og orkupakki 3! Þetta er allt saman gullfallegt. Farið inn á www.patreon.com/skodanabraedur... við gerum þetta fyrir ykkur! Útvarp 101.
12/4/20201 hour, 57 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#95 Símtal til Flona, eitruð jákvæðni, Volkswagen og nasismi

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - nýir þættir alla þriðjudaga. Í þættinum er meðal annars talað um: atvinnuleysisbætur, toxic jákvæðni, markþjálfun, sjálfshjálp, síðan er það símtal til Flóna um ilmvatnið hans, FLONI 3 og Simma Vill, sundleysi og vöðvabólga, krabbamein, Wolkswagen & nasismi & brasilíska herstjórnin, þrælahald í Bandaríkjunum, Ari Eldjárn, Facebook á Íslandi, Grammy verðlaun, Stan herir, Family Guy, ofl ofl ofl
12/1/20201 hour, 35 seconds
Episode Artwork

#94 Skoðanir Halldórs Armands

Það er þak, en ekki gólf, í húsi lífsins... Karlmaður vikunnar er rithöfundur og pistlahöfundur, Halldór Armand. Epískt spjall um það sem skiptir máli... fyrri hluti: pólitík, þunglyndið og samantekin ráð um að almenningur eigi ekki að hafa gaman. Seinni hluti: bókmenntir og ómældar þjáningar rithöfundarins, ekki kannski Halldórs, en svona, almennt þess sem skrifar. Útvarp 101. www.patreon.com/skodanabraedur
11/27/20202 hours, 18 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

#93 Viltu byrja með mér?

Sýnishorn dagsins... að lesa Harry Potter og síðan spyr hún þig hvort hún þig hvort þú viljir byrja með henni? Þá þarf að forgangsraða. Annars hvaðeina rætt; Johnny Depp, Angela Merkel, jólin, íslensk kvikmyndagerð og Bergur á fjöllum, verðlaun fyrir bestu afsökunarbeiðnina og svo mætti lengi halda áfram. www.patreon.com/skodanabraedur
11/24/202058 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

#92 Skoðanir Siffa G. (II)

Handbremsa, stopp, beygja til vinstri. Þetta er ekki heillaskref. Raunar stórhættulegt og ætti að banna með umferðarlögum. En þetta eru örlög ófárra skeggjaðra einstaklinga sem einn daginn í sakleysi sínu sjá glitta í ljósið, eins og það heitir. Þeir ákveða að gá betur að því en sjá auðvitað ekki þá að það eru þeirra mestu mistök hingað til, því ljósið gleypir þá og þeim er þaðan af skapað að bera þungan kross um allan aldur. Vandinn er nefnilega sá að sá sem hefur séð ljósið ratar ekki aftur inn í myrkrið. En í myrkrinu líður manni best. Þetta er greinilega ekki spurning um það. Hér er rætt um Twitter, Rómaveldi, bandaríska pólitík, hryðjuverkastarfsemi og lesin upp alvöru tölvupóstsamskipti við Noam Chomsky. Það er sem sagt verið að skrifa söguna. Farið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur. Útvarp 101.
11/20/20201 hour, 59 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

#91 Hvernig dó Jónas Hallgrímsson í raun og veru?

Fyrir ykkur! Það er fyrir ykkur sem við gerum þetta. Gleðilegt bræðralag. Bergþór er á Langjökli, Snorri er í Skegg City, og það er bókstaflega allt að gerast. Nýir tímar fara í hönd, en í millitíðinni eru þeim málum gerð skil sem tilefni er til: kvikmyndaframleiðsla, alvöru vinnur, Spotify heimsyfirráð, af-radíkalísering, dagur íslenskrar tungu, Jónas Hallgríms, alkohólismi, Octavian cancelled, ofbeldismenn, ratfuck í Bandaríkjunum, að lifa í sátt við liberals, Kamala Harris girlboss, podcöst og hljóðbækur, Rosalía, Embla finnur sjálfa sig ofl ofl
11/17/202055 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#90 Skoðanir Bngrboy (Marteins Hjartarsonar)

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Marteinn Hjartarson AKA Bangerboy er einn fremsti pródúser landsins og hefur unnið með öllum þessu helstu. Umræðuefni eru meðal annars: Hvort er betra að græða millu eða poppa pillu?, Tæpur Ungur Drengur, sérsveitin, Birgir Hákon, Joey Christ & Floni, rappleikurinn, covid göngutúrar, stöðumælavarðastarfið ofl ofl ofl!
11/13/20201 hour, 9 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

#89 „Svo þunglyndur að ég er byrjaður að setjast í sturtunni“

Fáðu aðgang að þessum þætti í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Umræðuefni eru meðal annars: bóluefni, eðlublóð Joe Bidens, fake news, fall frjálslyndra fjölmiðla, spurningaspil, Wim Hof, samkeppni,  þunglyndissjúkdómurinn, sannleikurinn um Hunter Biden, Glenn Greenwald, hjúskaparbrot hægrimanna, sjónvarpsefni vs. bækur & kvikmyndir, samsæriskenningar lífsins ofl ofl ofl
11/10/202058 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#88 Skoðanir Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur

www.patreon.com/skodanabraedur  „Ég er komin hingað til að læra“ segir Guðrún Sóley í byrjun þáttar og síðan er meðal annars talað um: Menninguna á RÚV, skilningsleysi á myndlist, listrænt gildi, tónleikar, sársauki íslendinga, heimspekilegar vangaveltur um tilgangsleysi og sjálfsmorð, Lemúrinn, afreksvímur, aumingjaskap, vinnan á RÚV, góðar samræður, umfjöllun Ríkisútvarpsins um íslenskt rapp, að taka viðtal við fólk sem fer aldrei í viðtöl, þunglyndi og þjáning, val á viðmælendum, íslenskir unglingar, dauði íslenskunnar, Björn Bragi, óæskilega listgagnrýni í litlu samfélagi, „jákvæðu“ hliðar samfélagsmiðla, Stóri Leki, ákvarðanatöku á Instagram, að kjósa með hjartanu, Joe Biden og heilandi hlátur.
11/6/20201 hour, 52 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#87 Nútímaþrælahald, átfíknin og TikTok-klámkanínuholan

Ný vika gengur í garð. Af því tilefni er allt rætt, nema kórónuveiran að sjálfsögðu. Hvað gerist þegar einhver setur Instagram story-ið þitt á TikTok og af hverju getur einn þunglyndur skeggjaður maður borðað einn dall af ís, snakkpoka, súkkulaði og skolað þessu öllu niður með bjór, allt rétt upp úr hádegi á sunnudegi?
11/3/202058 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

#85 Kynjafræðikrísan mikla

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Umræðuefni eru meðal annars: -súperspredd/barnasturta í Moneygarðinum hans Simma Vill -Instagram tengingarleysi, kvíði, þunglyndi og angist -karlmenn í hóp -allir þunglyndir og geðsjúkir útaf covid -Trump persónugreining -Joe Biden ruslaheili -Frímúrarareglan á Íslandi -barnaníðingar og blóðdrykkja í Bandarísku elítunni -Jordan Peterson - Íslenska ratfuckið -Frosti Logason & kynjafræði -Lögfræði og hagfræði -Sackler fjölskyldan - Lyfjafyrirtæki og lobbýismi - Bernie Sanders ratfuck -Hagsmunagæsla á Íslandi
10/27/202054 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#84 Skoðanir Þórsteins Sigurðssonar

Þórsteinn Sigurðsson er ljósmyndari fyrrum þekktur sem Xdeathrow og hefur gefið út bækurnar Container Society Pt. 1 og Juvenile Bliss. Umræðuefni eru meðal annars: ljósmyndun, jaðarhópar, villtir unglingar, gámarnir útá Granda, dagvinna Dodda í líkbrennslunni, Instagram, arfleið, tilgangur lífsins, graffiti, Jakob Frímann, Kegr, rapp, slagsmál og eiturlyf. Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið á www.patreon.com/skodanabraedur
10/23/20202 hours, 1 minute, 58 seconds
Episode Artwork

#82 „Hvar ertu?“

Þjóðhátíð er stórhættulegur staður. Samfélagsmiðlar! Full lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur Umræðuefni eru: hárlitanir, sniðmenning í samhengi við Björn Braga, Ingó Veðurguð, Þorstein Má, Ágúst Ólaf og borgarstjóra Kaupmannahafnar, senda „hvar ertu?“ til stelpna, setja tvær stelpur saman í groupchat óvart, setja vini sína í groupchat óvart, Norðuvígi, hár Jay-Z & Halldór Benjamíns, rakstur og klippingar, síðir toppar á karlmönnum, The Insider (1999), Trump, kvíðaköst og Wim Hof, nasismi á Íslandi og í Evrópu, #MeToo í Danmörku, Sigmundur Davíð, mannanafnanefd OFL!
10/20/20201 hour, 2 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#82 Skoðanir Andra Snæs Magnasonar

Umræðuefni eru: framleiðsla á kvikmyndum og bókum, álver, goðsögur, jöklar, hagkerfi, hugmyndir, vísindi, stjóriðja, fjölmiðlar, lobbýismi, nýlendan Ísland, óskiljanlegt bull í fjölmiðlum eins og útflutningsverðmæti, fyrirlestrar, hagvöxtur, handrit, pólitískir andstæðingar, rökræður, Konungsbók Eddukvæða ofl ofl Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið á www.patreon.com/skodanabraedur
10/16/20202 hours, 10 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

#81 Atvinnulífsscam og hinn hræðilegi Helgi Björns, sem er samt líklega fínn gaur

Þetta er allt saman ekkert nema bara sýnishorn! Full lengd og mun meiri veisla inni á  www.patreon.com/skodanabraedur. 
10/13/202056 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#80 Skoðanir Bjargar Magnúsdóttur

Karlmaður vikunnar! Björg Magnúsdóttir. Langþráð, langíhugað, nú framkvæmt, á meðan plága ríður yfir þjóðirnar. Það á ekki að stoppa lestina. Björg er fjölmiðlakona par excellance og skýtur uppi kollinum hvarvetna þessa stundina, í Ráðherranum, í Málfari eða hvað sem sá ágæti þáttur heitir... Orðspori? Kappsmáli! Svona er tungumálið dyntóttur djöfull en alltaf ratar merkingin á sinn stað. Þetta allt sem sagt og fjöldi annarra aðskiljanlegra atriða, sem hér eru sérstaklega tekin til umræðu. Síst er þó stefnan að taka aðeins augljós atriði til umræðu og menn leiðast í miðjum klíðum út á ýmsar slóðir.. Versló upp úr aldamótum.. Anórexían.. Samfélagsmiðlalaust menntaskólalíf (abstrakt safngripur, raunar).. og loks útvarpið sem steindauður miðill – allt um það, í því sem er auðvitað ekkert annað í grunninn en útvarpsþáttur. Samanber Útvarp 101! Og farið inn á www.patreon.com/skodanabraedur og takið þátt í veislunni. 
10/9/20201 hour, 49 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#86 Skoðanir Unnsteins Manuels

Skoðanir Unnsteins Manuels, löngu tímabært. Hann kom til Skoðanabræðra fyrir margt löngu og ræddi nýjar ráðstafanir ýmsar, listina, lífið og leikinn. Nú eru nýir tímar, hann er í Berlín að skrifa þætti inni í stórum fundarherbergjum og hann dreymir um frekari afrek. Hvaða afrek? Sjá þátt. Efnistök, að öðru leyti: Hlaðvörp um suðuramerískar tónlistastefnur, tungumálið sem stjórntæki og miðstéttarvæðing á húsnæðismarkaði. En þetta er aðeins brotabrot. Útvarp 101! Farið á Patreon.
10/9/20201 hour, 32 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

#79 Hvort er betra að vera nafnlaus þunglyndur lúser eða nafnlaus nasisti?

Full lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Hrun siðmenningar í World of Warcraft, nafnleysi á netinu, menntaskólar í Covid19, Trump og stóra gríman hans Biden, Netflix fjarstýringar uppí rössum, raunveruleikinn vs. skáldskapur, Brian Cox, Ríkisútvarpið svívirt, vaxandi kynslóðir vestur-íslendinga ofl ofl ofl. Útvarp 101 ber ábyrgð á öllu sem er sagt hér.
10/6/20201 hour, 3 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#78 Skoðanir Sigurjóns Sighvatssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Sigurjón Sighvatsson, skilgreiningin á því að vera legend í leiknum, er genginn í bræðralagið. Hann hefur framleitt fleiri en 50 kvikmyndir og starfað í Hollywood í 35 ár. Meðal verka hans eru; Twin Peaks, Bevery Hills 90210, Killer Elite, Wild At Heart og Brothers. Hér setur hann m.a virðingu á nafn Robert DeNiro og svívirðingu á nafn Harvey Weinstein, segir sögur af Jason Statham, David Lynch og Madonnu, greinir frá hugleiðsluaðferðum sínum ásamt því að ræða bókmenntir, tónlist og ástandið á vinnumarkaðinum. Og þetta er engin virðing eða svívirðing á nöfn úr þægilegri fjarlægð netverjans eins og við flest þekkjum, heldur þekkir Sigurjón þetta fólk beinlínis. Innsýn!  Útvarp 101 ber ábyrgð á þessum óskunda öllum.
10/2/20201 hour, 56 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#77 Kanínuhola íslenska alt-rightsins: „Rasismi og affjármögnun lögreglu”

„Ég vil ekki kommúnisma, ég vil ekki kommúnisma, ég vil ekki kommúnisma“ segir hagfræðingurinn og pistlahöfundurinn Anna Karen Jónsdóttir... full lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
9/29/20201 hour, 2 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#76 Skoðanir Gumma Emils

Celebrity trainer Gummi Emil er karlmaður vikunnar. Líkamsrækt, orkudrykkir, samfélagsmiðlar, sjálfsfróun, concerta, no fap og Jordan Peterson. Allt þetta rætt í bland við annað. www.patreon.com/skodanabraedur
9/25/20201 hour, 42 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#75 Er réttlætanlegt að gera lag um samstöðu í COVID?

Stóru spurningar lífsins... og dauðans. Víri er kominn á kreik, þ.e. sú krýnda. Lætur til sín taka og veldur hörmungum eins og tónlist um samstöðu á viðsjárverðum tímum. En! Gas í þætti dagsins, allt frá framhaldi um Herra Hnetusmjör og rappleikinn til Sigríðar Andersen, flóttamannaveislunnar og yfirvegaðs uppgjörs við nasismann í Þýskalandi. Farið á Patreon strax! Útvarp 101. Nýr bræðralagsþáttur í hverri viku.
9/22/20201 hour, 54 seconds
Episode Artwork

#74 Skoðanir Bjarna Frímanns

Ópera.. púra ofbeldi í ýmsum skilningi, fyrst og fremst jákvæðum. Bjarni Frímann Bjarnason er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar en látið ekki blekkjast. Hann er alþýðlegur, ungur og að sögn sérfróðra tónlistarsnillingur. Það eðli brýst fram þegar hann stendur og stjórnar, en það braust líka fram þegar Bjarni var í áttunda bekk, varð ástfanginn af stelpu í 10. bekk, bauð henni á deit, var hafnað og brást við með því að… a) fara að væla og skammast sín eða b) mæta fullur í skólann, vera rekinn tímabundið og klára 9. og 10. bekk síðan saman á einu vori og útskrifast tveimur árum of snemma og byrja í rauninni í LHÍ svona 15 ára? Veljið svarið og hlustið á þáttinn til að heyra hvort er rétt! Farið á Patreon og fáið miklu miklu meira efni. Allt þetta, í boði Útvarps 101.
9/18/20202 hours, 25 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#73 Íslenskt rapp kannski aðeins að spá í að drepa sig

Andlát: Íslenskt rapp, segir Davíð Roach, gagnrýnandi Ríkisútvarpsins. Skoðanabræður fagna slíkri dáð, að lýsa yfir dauða einhvers sem auðvitað gefur sig út fyrir að vera sprelllifandi. Pistill sem vakti athygli ögn tekinn og skoðaður nánar, og komist að niðurstöðu um brotalamir í röksemdafærslu, sem eru þó auðvitað óhjákvæmilegar, enda röksemdafærslur á endanum ekki annað en bara tilfinningar. Annað rætt: Dýrafjörður sem ný skeggparadís, dauði sósíalismans, ágæti fóstureyðinga og margt annað skelfilegt. Allur þátturinn á Patreon, þar sem áskrift að vikulegum aukaþáttum fæst fyrir fimm Bandaríkjadali. Útvarp 101 biður að heilsa.
9/15/20201 hour, 5 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

#72 Skoðanir Hallgríms Helgasonar

Höfundur Íslands… sem sagt Hallgrímur Helgason. Sem skrifaði einmitt bók sem heitir Höfundur Íslands, þar sem talað var illa um kommúnisma. Helstefna, segja hægrimenn, og voru ánægðir með bókina. Allt eðlilegt við það. Að vera skáld! Það er ágætur eiginleiki sem veitir innsýn. Eða þá að innsýnin valdi skáldskapnum. Hvernig sem það er hefur Hallgrímur frá ýmsu að segja og koma hans í þáttinn fellur vel að heimsmarkmiðum Skoðanabræðra, sem er að útvega hreinar skoðanir á færibandi. Hver er skoðun hans á 1) fornsögunum 2) Sjálfstæðisflokknum 3) bælingunni í íslensku samfélagi 4) Reykjavík 5) Siglufirði 6) hljóðbókum og 7) Instagram? Þetta er síðan síður en svo tæmandi listi,
9/11/20201 hour, 19 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#71 Andlegir nazis, alt-right hippar, kakó & kvíðaköst

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur og eigðu von á því að vinna epíska vinninga.
9/8/202054 minutes, 27 seconds
Episode Artwork

#70 Skoðanir Gunnhildar Fríðu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur (nýju stjórnarskrárinnar)

Stærstu mál samtímans... Skoðanabræður gera þeim að sjálfsögðu skil. En það má heita umdeilt hver þau eru nákvæmlega... klámið, grasið og skeggið eða þá „róttækar“ stjórnmálalegar breytingar, sem mætti svo sem vera gæsalappalaus lýsing á þeirri ráðstöfun að setja þjóð nýja stjórnarskrá. Sú hugsjón er helsta ætlunarverk karlmanna vikunnar, Gunnhildar Örnu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur, sem eru að vesenast í ríkjandi ástandi með því að dæla út vel heppnuðum áróðri á samfélagsmiðlum og svo sem á götum bæjarins sömuleiðis, en áróðurinn  lýtur allur að því að vekja fólk til vitundar um nýju stjórnarskrána, sem var skrifuð árið 2011, kosin árið 2012 og svo hunsuð alla tíð síðan.  Þetta plagg á að vera fært um að breyta samfélaginu mjög til batnaðar, aðeins ef vilji ráðamanna stæði til að færa það í nyt. Það gerir hann ekki, heldur er þetta vandræðabarn hálfgert, því að fólkið vill þetta, en stjórnmálamennirnir ekki. Eða alla vega vinstrisquad.. Skoðanirnar eru að sjálfsögðu skiptar. Fræðist!  Skoðanabræður eru á Útvarpi 101 og þeir þiggja styrki og áskriftir á Patreon, þeim ágæta vettvangi.
9/4/20201 hour, 14 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#69 Þegar Instagram myndir tanka, kvaðir listamanna og heitar þýskar gellur

„We were in the jungle, there were too many of us, we had access to too much money, too much equipment, and little by little we went insane“ Innihald orkudrykkja, að hætta drekka vegna þunglyndis, Jónas Hallgrímsson, Jón Gnarr, heitar þýskur gellur, að mæta í skóla og sigra, uppistandarar og rapparar í Covid, lögfræðingar, ofbeldi og hnífastungur í miðbænum, undirheimar, mafíósar, Samherji, epískar heimildarmyndir, ofgnótt peninga, vont samfélag, kvaðir listamanna ofl ofl!
9/1/20201 hour, 8 minutes, 1 second
Episode Artwork

#68 Skoðanir Frímanns Gunnarssonar

Hashtag. Fremsti fjölmiðlamaður landsins sest á rökstóla með Skoðanabræðrum, sannkallaður karlmaður vikunnar. Frímann Gunnarsson hefur yfirgripsmikla þekkingu á öllu sem viðkemur list, menningu og æðri menntun og Skoðanabræðrum var sannast sagt farið að líða eins og þá væri farið að skorta þá vídd í þáttinn, að undangengnum viðtölum við „anarchists“ eins og Sölva Tryggvason eða „rappara“ á borð við Flóna eða Joey Christ. Frímann Gunnarsson er með þætti í sjónvarpinu ásamt því sem hann er að gefa út barnabók, Lárus og þankatröllin, og hann er hér beðinn að gera grein fyrir helstu sjónarmiðum. Framan af viðskotaillur en með tímanum þýður sem hinn viðkunnanlegasti maður. Setjið endilega virðingu á nafnið á www.patreon.com/skodanabraedur. Þetta er Útvarp 101, sem Frímann kannaðist vissulega ekki við.
8/28/20201 hour, 33 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Ferðalag: Aron Mola, Snorri og Bergþór - Núpur

Nú opið fyrir alla. Guð blessi ykkur. 27. ágúst 2020. Upprunalegur texti:Ferðalagið frá Reykjavík, á Núp í Dýrafirði og aftur til baka. PATREON EXKLÚSÍF! Mikil gæði.
8/27/20202 hours, 29 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

#67 Skoðanir Sölva Tryggva

Þrír karlmenn, allir PhD: Podcast having dudes. Sölvi Tryggva steig inn í leikinn og sigraði, það verður að segjast. En hvert er markmiðið með þessu hjá honum? Svarið er inni í þættinum! Vísbending: Í grunninn það sem hvetur alla PhD til dáða yfirleitt. Gasið! Það er markmið í sjálfu sér. Svo eru líka markmið eins og að fá Björgólf Thor í þáttinn og þar keppast Skoðanabræður við Sölva um hinn feita bita. Sjáum hver ber sigurorð af hverjum.. Sölvi segir frá því þegar hann var rekinn af Stöð 2 í árslok 2008. Hann segir að það hafi verið þá sem hann missti sakleysi sitt sem fjölmiðlamaður og telur ljóst að uppsögnin hafi tengst því að hann hafi byrjað að „pönkast“ í lífeyrissjóðum. Góð veisla, fjölmiðlasaga sögð í fjölmiðlum. Þá segir Sölvi frá því þegar honum varð það á að láta Kára Stefánsson bíða. Það gerir maður víst ekki og Sölvi leið fyrir það.  Og að öðru leyti segir Sölvi frá því sem menn segja ekki frá í öðrum hlaðvörpum en Skoðanabræður þora á meðan aðrir þegja! Instagram, kvennamál og skegg hins íslenska karlmanns. Þetta eru verðug umræðuefni enda snerta þau okkur öll. Farið á www.patreon.com/skodanabraedur - veislan er á vegum Útvarps 101.
8/21/20202 hours, 29 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

#66 HEITT og KALT á djamminu 1990: 19 atriði

Besti bræðralagsþáttur allra tíma, segir Bergþór. Stóru orðin... þau eru auðvitað síst til þess að spara þau. 90 mínútur af veislu, umgjörð hverrar er listi frá árinu 1990 yfir hluti sem eru annars vegar inn og hins vegar out á vettvangi skemmtanalífs. Segir sig sjálft að umdeild atriði eins og kynlíf, hugleiðsla og hip hop verða kveikjur að hágæðagasi fyrir hlustendur. Hvað þá jakkaföt, stjórnmálamenn og lögreglan? Hér á hlaðvarpsveitum fáið þið 40 mínútur, en á Patreon eru 90 mínútur. www.patreon.com/skodanabraedur. Þægilegasta app í heimi.
8/18/20201 hour, 28 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#65 Skoðanir Joey Christ og Lóu Bjarkar

Eins og Lóa orðar það vel: Fara í Skoðanabræður og eyðileggja mannorð sitt. Í þeirri feigðarför hennar eru Skoðanabræður ekki meira en auðmjúkir verkefnastjórar, þeir taka á móti henni og skapa umgjörð fyrir hana til þess að veitast með skipulegum hætti að eigin orðspori. Hvernig fer maður að því? Með orðum! Orð.. lengi hef ég haft á þeim illan bifur, sagði skáldið, og fleiri mættu tileinka sér, þeirra á meðal, Skoðanabræður. Jóhann er meðreiðarsveinn og hefur fyrir sitt leyti einnig upp viðleitni til áþekkra fyrirætlana og Lóa sjálf lýsir. Að tala í útvarp yfirleitt er enda auðvitað bara birtingarmynd dauðans. Þetta fólk er sem betur fer vant. Það var með Tala saman hér á árum áður á Útvarpi 101, framleiddi þar gæðagas á ljósvakanum dagsdaglega um hríð, og færir nú út kvíarnar úr hljóði í mynd. Þáttur á Stöð 2 í kvöld, er það sem ég á við. (Hver er ég-ið í textanum (hefur sögumaðurinn þegnrétt í lýsingu á hlaðvarpsþætti (uss, dreptu þig))).  PC-ismi, stéttaskipting, Free The Nipple, rasismi, raunhæf markmið í lífinu og eintómur sannleikur opinberaður í hvívetna, svo sem er Skoðanabræðra von og vísa og ekki síður viðmælenda þeirra, þar sem er valinn maður í hverju rúmi. Farið á www.patreon.com/skodanabraedur og leggið þessari tilberastarfsemi lið. Útvarp 101, vettvangur fólksins.
8/14/20202 hours, 18 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

#64 Skoðanir Egils Ástráðssonar

Egill Ástráðsson. Sterkt norrænt einnefni eins og bræðralagið vill hafa það. Hann er hinn sterki norræni maður (íslenskur með alskegg) og hefur lengi átt erindi inn í gasklefa Skoðanabræðra þó að hann hafi af ýmsum sökum ekki ratað þangað fyrr en nú. Hann er umboðsmaður, atvinnumaður í veseni og meðal stofnenda Útvarps 101, 101 Studios og 101 Sambandsins og hver veit hvers meira. Allt auðvitað bendlað við hálfbannsett póstnúmer, sem nú hefur þó fengið uppreist æru, eins og Egill segir: „Þetta lattelepjandi 101, mér finnst það alveg búið.“ Orðræðugreining! Meðal sérsviða Skoðanabræðra. Að þessu sinni með fulltingi þessa góða „sæmilega hamingjusama hvíta karlmanns í hamingjusömu parsambandi.“ Og bíðið þar til farið er að ræða um FreeTheNipple. Skellið ykkur á www.patreon.com/skodanabraedur og djúsinn, hann er að öðru leyti á vegum Útvarps 101.
8/7/20201 hour, 33 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#63 „Þú ert svo fokking leiðinleg“ - Þjóðhátíð á Tinder

Bræðralag. Náið ykkur niður eftir verslunarmannahelgi með því að skyggnast inn í hvað gerist á bakvið luktar dyr á Patreon. Þetta er brot úr þætti, og restin er í appinu. Skellið ykkur um borð. www.patreon.com/skodanabraedur. 
8/4/20201 hour, 7 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#62 Skoðanir Steineyjar Skúladóttur

www.patreon.com/skodanabraedur Snorri drakk fimm bjóra í stúdíóinu. Fyrirgefið það innilega. Hvaða eiturlyf hefur Steiney Skúladóttir tekið? Hvenær tók hún þau? Hvers vegna?  Stórum spurningum er svarað - ásamt ítarlegum umræðum um sálfræðinga, forréttindi, femínisma, RÚV, dagskrárgerð ofl ofl.
7/31/20202 hours, 33 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

#61 Skoðanir Högna Egilssonar

Það eru hálfgerð helgispjöll að fara um þennan þátt mörgum orðum enda orð ekki nema ómerkileg tilraun til þess að flækja veruleikann með merkingu. Veruleikinn er nefnilega til sjálfstætt og orðalaust, eins og í músík. Þar er veruleikinn þó saga og tónlistin er saga, sem er ofin úr efni goðsagna, stórsagna, mýta þeirra sem erfðaefni mannsins trúir á í blindni. Og ekki furða að maðurinn trúi, þessar sögur eru Sannleikurinn, ef hann er einhvers staðar til. Allt ofangreint kemur efnislega fram í þættinum, svona ef einhver hingaðkominn í textanum kynni að velta vöngum yfir því hvaða vegferð höfundur væri á. Listamaðurinn á bak við hugsunina er Högni Egilsson, stundum kenndur við Hjaltalín, einnig meðlimur um tíma í Gus Gus, nú tónskáld og alvarlega mikill almennur kóngur. Hann mætir til Skoðanabræðra að kvöldlagi, tekur við embætti karlmanns vikunnar og leggur línurnar fyrir þeim, svo ekki sé sagt að hann skilgreini heiminn upp á nýtt. Hann talar allavega, ræðir listina, lífið, útlönd, geðhvörf, Kanye West, íslenska tungu, rapp, og þar fram eftir götum, eins og taka mætti til orða ef eitthvað mætti ráða af undangenginni runu hvað kæmi næst á eftir rappi. Og þegar gengið er út úr hljóðveri eftir þáttinn er verulega tekið að rökkva enda komið vel fram á júlí, dimmblár hálfhringur, sagði skáldið, en áréttaði: Innan hans, nándir hausts. Farið í Patreon-appið og þar á www.patreon.com/skodanabraedur og komið um borð í veisluna. Fullt af þáttum þar sem eru ekki á hlaðvarpsveitum. Veislan, hún er sköpuð innan vébanda Útvarps 101.
7/24/20201 hour, 52 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#60 Eftirsóttustu skeggsveinarnir á Íslandi

Eftirsóttustu piparsveinar landsins teknir fyrir af sérstöku tilefni enda skeggjaður maður á meðal þeirra. Þetta er hans yfirlýsing. Bræðralag! Njótið þáttarins þið sem eigið það skilið. www.patreon.com/skodanabraedur. Þessir eru eftir: Ein­ar Ágúst Víðis­son , Björn Ingi Hrafns­son, Magnús Sig­ur­björns­son, Högni Eg­ils­son, Hall­dór Karls­son, Snorri Más­son, Pét­ur „Jesús“ Örn Guðmunds­son, Helgi Jean Claessen og Sölvi Tryggva­son.
7/21/20201 hour, 3 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#59 Skoðanir Kristínar Tómasdóttur

Að vinna við að láta fólk hætta saman… hljómar skynsamlega. Gæti verið á vegum borgaryfirvalda, þú mætir á vettvang og birtir pörum opinberan úrskurð þess efnis að þeirra ástarsambandi sé þar með lokið. Fróður maður lagði eitt sinn til að embætti á borð við þetta yrði stofnað í Reykjavík en það var við dræmar undirtektir pólitíkurinnar. Þetta er enda ekki endilega rétta leiðin til þess að koma því til leiðar í samfélaginu að aðeins séu viðhafðar réttlætanlegar ástir eða að fólk sé aðeins í heilbrigðum samböndum. Það er ekki hlutverk neins að láta fólk hætta saman, þó að þörfin geti virst skerandi í sumum tilvikum, heldur þarf fólk að fatta það sjálft. En hvernig fattar sá eitthvað, sem fattar augljóslega ekki neitt? Með aristótelískri samtalsrunu við Kristínu Tómasdóttur hjónabandsráðgjafa auðvitað, sem er nefnd til sögunnar hér í þessum kynningartexta að undangengnu alllöngu máli um ofangreint vandamál. Það er þó ekki að ófyrirsynju sem gerð er viðhlítandi grein fyrir vandamálinu enda er það risavaxið, en Kristín hefur sérstaka sögu af því að segja. Hún valdi sér starfsvettvang vegna þess að hún vildi starfa við að segja fólki að hætta saman, en komst fljótlega að raun um að önnur eins iðja væri fjarri því hluti af starfslýsingunni. Nema síður væri.. hún er í því að láta fólk halda áfram að vera saman, augljóslega. Innsýn í þetta og margt fleira, eins og ástæðurnar fyrir því að sambandið þitt er ekki góð hugmynd, í þessum vel þrungna þætti af Skoðanabræðrum. Til dæmis: Hvernig finnur rúmlega tvítug manneskja lífsförunaut? Og já! Patreon. Fáðu þér appið og fáðu aðgang að endalaust af Skoðanabræðrum. Djúsinn er á vegum Útvarps 101.
7/17/20201 hour, 28 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

#58 Skoðanir Geoffrey Huntingdon-Williams

Kosningar á næsta leiti… til embættis næturborgarstjóra, bitch! Afsakið munnsöfnuðinn og dæmið hann ómarktækan, en þið takið ekki af manninum embættið. Það er að vísu ekki til enn sem komið er en hvað um það. Spurningin er þessi: Hvað er að reka konunglegasta stað landsins, er það í grunninn að þrífa ælu og túrblóð í brotnu glasi ofan í klósetti eða er það að starfa daglega að þeirri göfugu hugsjón að gera Reykjavík að betri borg og Ísland að betra samfélagi og lífið að meiri veislu. Svarið, og hér ætti að standa hlustaðu á þáttinn til þess að komast að því hvað gerist, en það gerir það ekki, þannig að það stendur, svarið er að þetta eru tvær ár sem renna að sama ósi. En til þess að skilja hvernig, hlustaðu á þáttinn! „Ég nenni ekki að tala um neina fokking rýrnun“ er dæmi um quote í Geoff í þættinum, sem, ef þér vituð ekki enn, rekstrarstjóri Priksins. Skoðanabræður. Farðu inn á www.patreon.com/skodanabraedur til að fá þættina áður en þeir koma opinberlega og til að fá tvo sérstaka gasþætti í hverjum mánuði.
7/10/20201 hour, 44 minutes, 53 seconds
Episode Artwork

#57 Harðsoðið blaðamannsþunglyndi og hrun þjóðernisins

Sjá ég boða hér mikinn fögnuð. Alvöru umræðuefni á miklum alvörutímum. Allt fyrir bræðralagið, en hér aðeins að hluta, því restina er að finna inn á www.patreon.com/skodanabraedur. 
7/7/20201 hour, 16 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

#56 Skoðanir Benedikts Andrasonar

www.patreon.com/skodanabraedur Talandi um leikinn, hér er máttarstólpi. Karlmaður vikunnar er Benedikt Andrason, Benni Andra semsagt. Jafnvígur á þónokkra veruleika og hliðarveruleika, graff, tattú, dópshit og á þeim nótum, laxveiðar. Nokkrar ár sem renna að sama ósi, eins og maðurinn sagði. Hér, veitt innsýn inn í þessa leiki og við sögu koma dauða- og lífsreynslur sem eiga sér jafnt stað á vettvangi íslenskra laxveiðisvæða sem í lestarskemmum að næturlagi í Berlín. Maðurinn á alltaf í hættu að týna lífi, þannig að það er um að gera að kveikja á þættinum áður en svo fer Viðtalið hefst á mínútu 22.30. Samhengislaust quote: „Jakob Frímann, þegar hann var í borgarstjórn, þá fór hann í hardcore stríð gegn veggjakroti.“ 
7/3/20201 hour, 57 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#55 Skoðanir Andreu Rafnar

Það er ekki óskiljanlegt að sá sem gerir tilraun til þess að byrja að æfa fótbolta of seint og lendir í trámatísku áfalli og allsherjarhöfnun verði varanlega fráhverfur íþróttahreyfingunni til lengri tíma í kjölfarið og leggi sig jafnvel í líma við að kasta rýrð á hana og beiti í því skyni fyrir sér sínu persónulega hlaðvarpi. Skoðanabræður opna sig um þetta, en það er ekki aðalmálið. Andrea Röfn Jónasdóttir, bloggari, módel og svei mér þá áhrifavaldur, er karlmaður vikunnar og fer yfir aðalmálin með bræðrum: Áhrifavaldaleikinn, skoðanaleikinn, bloggleikinn, tískuleikinn og svo auðvitað barnaleikinn. Loks einnig fótboltaleikinn, sem Andrea er lofuð inn í. Innsýnin sem fæst þaðan er verðmæt og setur ofangreint tráma í mildara samhengi, en getur síst talist fullkomið mótefni. Það finnst aldrei. Djúsinn, á vegum Útvarps 101, og grundvöllurinn á www.patreon.com/skodanabraedur.
6/26/20201 hour, 28 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#54 Stóra smáhýsamálið, kitla

Stökkvið um borð í bræðralagið til að gangast á hönd hinum eina og sanna djús. Hér er átt við www.patreon.com/skodanabraedur, þar sem aðgangur fæst að tvívikulegum alvöru Skoðanabræðraþáttum, víðsfjarri ráðamönnum þjóðarinnar og þeirra formlegheitahjali. Sannleikur, eins og þar heitir.
6/23/20201 hour, 12 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

#53 Skoðanir Guðna Th. forseta Íslands

„Ég hvet öll ungmenni til þess að fylgja eigin sannfæringu. Ekki láta einhverja áhrifavalda segja þér hvað þú átt að hugsa, hvað þú átt að kaupa, hvað þú átt að gera. Vertu þú sjálf, vertu þú sjálfur. Ekki láta plata þig,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það fékkst ekki meiri svívirðing á nöfn áhrifavalda, sama hvað var reynt. Sjálfur er Guðni á Fésbók eins og hann kallar hana. Hann segist ekki telja „læk“-in, en er meðvitaður um að þau gætu verið fleiri. „Ég kann ágætlega við Fésbók. Ég hef reyndar farið þar líka þá braut að birta vikupistla sem mér skilst að brjóti öll lögmál um lengdir. Í einhverjum samfélagsmiðlafræðum eiga statusar að vera stuttir og hnitmiðaðir og frekar oft heldur en sjaldan en ég kann ágætlega við að hafa þá meginreglu að birta pistla vikulega þar sem ég fer yfir mín embættisstörf í liðinni viku. Ég veit að ég gæti fengið fleiri læk ef ég stytti pistlana og hefði þá fleiri,“ sagði Guðni. Þetta er bara brot af þeirri veislu sem fer fram í samtali við karlmann vikunnar, ýtið á play og hefjið aðildina. Og styrkið! Á www.patreon.com/skodanabraedur. 
6/19/20201 hour, 3 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

#52 Skoðanir Helga Seljan & Aðalsteins Kjartanssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræðraskjölin.. bjóðið velkomna ástsælustu blaðamenn þjóðarinnar, eins og maðurinn sagði, Kveiksmenn. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan ganga fúsir inn í gasherbergið á Hverfisgötu og leysa frá skjóðunni. Að því marki sem þeir mega hafa skoðanir, hvað finnst þeim um kvótakerfið? Ekkert sérstakt, eins og kemur fram, og hverjum er ekki sama um kvótakerfið! Fólk veit ekki muninn á botnfiski og uppsjávarfiski, þó að það reyndar læri það hér. Þátturinn er þó ekki um þetta heldur um mútur, spillingu, svik, veislu, blaðamennsku, fjölmiðla, pólitík og þar fram eftir götum. Í öllu falli.. squadið í samhengi, The Four Horsemen of the Apocalypse segir á engilsaxnesku þar sem heitir í íslenskum bókum verurnar fjórar. Frekar óáhrifarík íslensk þýðing sem geldir vísunina nánast alfarið, en það er önnur saga.
6/12/20201 hour, 38 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#51 Áhrifavaldar, Piece of Shit J.K Rowling og vestfirska vímuefnaveislan

Þetta er sígilt... skeggið leiðir til drykkju leiðir til neyslu kannabisefna leiðir til meira skeggs: Ég er bólginn af bjór og pilsner á Vestfjörðum. Þess vegna tek ég upp hlaðvarp! www.patreon.com/skodanabraedur
6/9/20201 hour, 7 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#50 Skoðanir Sönnu Magdalenu Mörtudóttur

04:30 Sanna mætir í stúdíóið 05:43 Samstöðin 08:18 fyrstu skrefin í pólitík 11:30 félagslega íbúðakerfi Reykjavíkur 14:20 rándýrt að vera fátækur 16:40 langtímaveikindi 18:30 hvernig er að vinna í borginni 20:30 íslenskir flokkar búnir að missa rætur sínar 22:40 kynslóðamunur sósíalista 24:04 hvað er sósíalismi? 27:27 afhverju á ríka fólkið á Íslandi svona mikinn pening? 30:20 Black Lives Matter 36:00 „looting“ og „riots“ 37:41 erum við að sjá allsherjar byltingu í Bandaríkjunum? 41:20 rasismi á Íslandi vs. í Bandaríkjunum 44:00 framtíð Bandaríkjanna 47:04 útlendingabíllinn 48:40 lögreglan á Íslandi 50:44 kapítalismi & rasismi 01:01:24 "J. Dilla -  Fuck The Police"
6/5/20201 hour, 3 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#49 Skoðanir Agnesar biskups

Er maðurinn syndugur? Hefur orðið siðrof? Er kannabis meiri synd en áfengi? Refsar Guð mannfólkinu? Það er ýmislegt sem maður getur leitt hugann að svona í sturtunni á morgnana, en enn betra er að ráðfæra sig við æðsta yfirmann Íslensku þjóðkirkjunnar, Agnesi M. Sigurðardóttur biskup. Hún er karlmaður vikunnar, komin til að kenna bræðralaginu lexíu og minna okkur á upprunann. Það er í kristinni kirkju. www.patreon.com/skodanabraedur
5/29/20201 hour, 10 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

#48 Teaser (kitla, kv. Snorri) Rauða pillan hans Elon Musk

Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, spakmæli sem hafa enga sérstaka merkingu þessa stundina frekar en fyrri daginn. En Skoðanabræður halda úti góðri veislu: Elon Musk, samkynhneigð, skáldskapinn, handritin, stuldinn á ofurtölvunum og Guð veit hvað fleira. Og Guð! Á þeim nótum sagt frá karlmanni vikunnar í næstu viku, sem er söguleg epík. Skellið ykkur inn á www.patreon.com/skodanabraedur.
5/26/20201 hour, 8 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#47 Skoðanir Þórðar Snæs ritstjóra Kjarnans

www.patreon.com/skodanabraedur Björgólfur Thor og Róbert Wessmann. Þegar þeir fara í fýlu út í hvor annan gerist ýmislegt fyndið. Hvað eru 800 milljónir á milli mjög ríkra óvina? Þær eru rekstur DV í örfá ár. Þórður Snær Júlíusson, alvarlegur kóngur, varpar ljósi á það sem annað. Loksins, loksins, segði einhver: Fjölmiðlaumræða í Skoðananabræðrum! Þó sneitt hjá henni eftir föngum, enda margþvælt og margsagt margt af því sem segja má. Mikilvægt þó að segja sannleikann, það rætt. Þessi lýsing síðan skrifuð seint að kvöldi, þannig að tregt er tungu að hræra. Þeim mun meiri vonir bundnar við að þátturinn tali sínu máli, enda raunverulega epískur, þegar út í það er farið, og hér ætti auðvitað er vera út í það farið. Það er þó ekki en þrennt nefnt sem stendur upp úr: Hvernig varð íslenska bankahrunið, á mannamáli, af hverju var það verra en það sem nú blasir við og hvað þarf Ísland að gera til að verða Great Again.   01:11 stuðningsfólk frjálsar fjölmiðlunar 06:59 Þórður Snær mættur í stúdíóið 07:46 Þórður Snær rekur feril sinn 16:30 hvað þarf til þess að halda floti í blaðamennsku 17:12 byrjunarkonsept Kjarninn.is 23:18 fjölmiðlar í Bandaríkjunum sem Kjarninn horfði til 26:45 rekstur fjölmiðla fyrir hrun 27:43 kreppan gerð upp í stuttu en þó löngu máli 29:50 afhverju allir gátu fengið lán fyrir kreppu 37:40 virði Íslands í alþjóðasamanburði 39:55 verðtrygging 42:44 stöðugleikasamningarnir 45:23 Árni Matthiesen fjármálaráðherra fer til útlanda með reiðufé ef kortin hans skyldu hætta að virka 46:46 þeir þrír hlutir sem komu Íslandi upp úr kreppunni 53:37 réttu störfin sem Ísland þarf að búa til til þess að komast upp úr næstu kreppu; hugverk. 58:00 íslensk tunga 1:00:40 brottflutningur íslenskra námsmanna 1:01:35 vilji stjórnvalda til þess að búa til réttar aðstæður 1:03:15 pópúlískir flokkar í Þýskalandi og flóttamannvandi, í samanburði við Ísland 1:07:25 ástæðan fyrir því hvers vegna pópúlísk öfl sem ala á útlendingaandúð hafa ekki náð fótfestu á Íslandi 1:15:50 raddir leiðara fjölmiðla 1:19:58 mikilvægi þess að viðurkenna mistök sín í fjölmiðlum 1:25:45 styrkjakerfi Kjarnans 1:29:50 vinnuskipulag ritstjórn Kjarnans 1:44:30 brotin sjálfsmynd Björgólfs Thor og Róberts Wessman 1:53:18 leiðinleg samskipti vegna skrifa 1:58:50 björt framtíð Kjarnans
5/22/20202 hours, 4 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

#46 Tobba Marinós ritstjóri DV, hrun Bandaríkjanna og „dagbækur Hitlers“

www.patreon.com/skodanabraedur. BDSM-róla í kjallarahvelfingu. Það er allt eðlilegt við það. Það er líka allt eðlilegt við að Tobba Marinós, ritstjóri DV með meiru, nefni ámóta kjallara sem það fyrsta sem henni detti í hug þegar hún nær sambandi við Skoðanabræður. Eða hún nær sambandi við er ekki nákvæmt orðalag. Þeir ná sambandi við hana, sem er gleðiefni, enda ekki auðsótt hjá uppteknum ritstjóra sem lofar því þó að hann sé ekki á leið hraðbyri inn í kulnun, eða Burnout eins og Þjóðverjinn kallar það og Bandaríkjamenn „for that matter.“ DV er umdeildur miðill, það er alveg ljóst. En siðleysið bundið í eðli blaðamennskunnar getur fengið að hafa sinn gang án þess að særa að óþarfa eða fara yfir velsæmismörk. Tobba segir að það sé stefnan, en hún blæs ekki á hitt að í henni býr dólgur frá fornu fari, sem sér fréttina, sækir hana, og segir hana. Það breytist ekki – ekki frekar en heilbrigða kvíðakastið sem blaðamaður fær kvöldið fyrir prent. Að öðru leyti stungið niður mállegum penna um hvaðeina aðskiljanlegt: Farið frá hlunkaskap í heimaæfingum, yfir í sauðburð, vegan fitubolluskap og falskar hugsjónir í því samhengi, og þaðan í þann Dýrafjörð allra pólitískra málefna sem heimsvaldastefna Bandaríkjanna er. Vísun í Gíslasögu, auðvitað, og á þeim nótum einnig tekinn rúntur um það mikilsverða atriði sem eru íslenskar fornbókmenntir. Í rauninni þó lýsingarhöfundur segi sjálfur frá, einhver fremsti þáttur Skoðanabræðra frá upphafi. Djúsinn flæðir um ljósvakann frá Útvarpi 101 og Skoðanabræður taka aldrei við greiðslu frá nokkrum öðrum en hlustendum, á www.patreon.com/skodanabraedur. 03:49 viðtal við Tobbu hefst  35:12 herferð rappara gegn DV 36:24 líkamsrækt og einkaþjálfun 41:05 hvernig á að byrja að finna sinn eigin takt í gymminu 43:30 Bergþór hættur að vera vegan 49:00 lömbin leidd til slátrunar 51:30 Snorri hatar sushi 53:30 vandamálið er kapítalismi - vegan er ekki lausnin 58:18 málfræðilega fyrirbærið að baula, hneggja og mjálma 01:01:00 Esperanto 01:06:10 Konungsbók Eddukvæða 01:08:00 World of Warcraft lore 01:09:30 eru konur minnihlutahópur? 01:11:00 upphaf áróðurs 01:13:02 falskar dagbækur Hitlers 01:20:00 heimsveldastefna Bandaríkjanna 01:24:07 kommúnismi vs. kapítalismi 01:26:20 Berlínarmúrinn 01:31:00 virðing sett á BlazRoca
5/15/20201 hour, 36 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#44 RISASTÓR TILKYNNING! Nýir tímar og sigur á Zuckerberg

Nýir Bræðralagsþættir; auglýsinga- og styrkjaupptalningalausir, stútfullir af hágæða gasi nú aðgengilegir inni á Patreon! Fyrir nýja Bræðralagsþáttinn:  www.patreon.com/skodanabraedur. Fyrir klink geturðu gerst áskrifandi að Bræðralagsþáttum og fengið aðra venjulega þætti degi fyrr en aðrir hlustendur. Skoðið síðuna og komið um borð í veisluna. Framtíðin er núna.
5/12/202023 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#45 Teaser (kitla, kv. Snorri): Flugvallargangbang

Hvað gerist þegar maður stendur í röð fyrir flugvél á vegum Wizz Air og einn er leiddur afsíðis af því að hann er að væla yfir aukagjöldum sem eru tilkynnt viðskiptavinum á óheppilegasta tíma í heimi? Lærðu meira með því að ýta á play, og svo enn meira með því að gerast áskrifandi að Skoðanabræðrum á www.patreon.com/skodanabraedur. 
5/12/202056 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

#43 Skoðanir Gísla Marteins

Gísli Marteinn Baldursson.. hvernig er að vera frægur! Grundvallarspurning blaðamennskunnar. Réttast væri að láta þar við sitja. (Sjá skiptingu á efni þáttarins neðst) Því miður getur maður ekki látið eina spurningu nægja þegar maður fær eins stóran lax í hljóðver, og því er farið yfir nokkur önnur atriði. Skoðanabræður spyrja um skoðanir, en ekki hvað, og þar þarf fyrst að kanna þá heimild, eða forréttindi, sem hver einstaklingur hefur til að yfirleitt hafa annað eins, sem sé skoðun. Gísli er opinber starfsmaður og loftkenndar en hvimleiðar kröfur They um hlutleysi fjölmiðlamanna er hávær, þannig að Gísli þarf að hvað? Passa sig? Eða hirða ekki um róginn og halda sínu striki? Sjá svör í þættinum. Gísli byrjaði sjálfstæðisflokksmegin í lífinu en stýrir nú sjónvarpsþætti góða fólksins. Það gerðist allur fjandinn á leiðinni frá A til B en lífið snýst um ferðalagið sjálft frekar en hvað gerist á leiðarenda, skrifa ég og velti fyrir mér af hverju ég skrifaði það, og þykist hér með neyðast sökum tímaþröngar að slá botninn í þessa tilgangslausu og innihaldsrýru lýsingu á þættinum, og álykta að hver sem hefur drifið alla leið hingað í lýsingunni hljóti einnig að vera reiðubúinn að láta kné fylgja kviði og láta sig hafa að hlusta á þáttinn, og þar með væri lýsingin þó ótrúlegt mætti virðast búin að rækja hlutverk sitt. Djúsinn? Hann er á vegum Útvarps 101 og þegin er virðing á nafnið í símanúmer 661-4648 á AUR eða KASS. 05:40 viðtal við Gísla Marteinn hefst 07:45 innsýn í Vikuna með Gísla Marteini 17:45 hvernig vinnuferlið hefur þróast á tuttugu árum í fjölmiðlum 21:42 Gísli Marteinn setur virðingu á bræðralagið 23:00 sjúka samtalið við Dripmund Davíð 29:45 Arnþrúður Karlsdóttir í Vikunni 38:00 atvinnustjórnmálamenn 41:22 hvað er deiliskipulag? 46:00 REI málið rakið í þaula 53:50 fyrsta skrefið í að búa til fullkomna borg 01:07:50 Bjössi í World Class 01:16:48 blönduð byggð 01:19:25 Gísli Marteinn rótalaus í Vesturbænum 01:23:55 gentrification í Breiðholti 01:27:22 tvenns konar pólitík 01:34:10 Skoðanabræður og Gísli Marteinn sameinast í framboði til borgarstjórnar árið 2022 01:34:30 frægðin og hamingjan 01:38:28 dvöl í Þýskalandi 01:42:34 lokaspurning; afhverju er maður að gera það sem maður gerir?
5/8/20201 hour, 50 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#42 Sólveig Anna formaður Eflingar, móðursýki auðvaldsins, tilgangur lífsins og framtíð íslensks rapps

03:00 Áslaug Arna eyðileggur Child 04:23 viðtal við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar 33:50 mikilvægi sannleikans 35:30 Instagram story afmæliskveðjur 38:20 ólík samskipti við ólíkt fólk 40:33 fjórtán ára stelpa í viðtali við Liberal Media 44:00 ADHD fjárglæpamaðurinn 51:00 Evran og saga Evrópusambands 58:00 músík sem verður til þegar allt er að hrynja 59:30 þróun íslensks rapps 01:11 Travis Scott og ógeðslegir átta ára strákar 01:15 Drake og textaþjófnaður 01:18:37 Larry David og Trump 01:22:30 Twitter 01:25:45 plokka eigin geirvörtu með hamri 01:30:25 fjölmiðlar og Facebook 01:36:40 stefnumótun og tilgangur 01:44:05 opnið á veisluna og taka psychedelics 01:46:15 vatn á púlsinn Fræg er sagan af því, hjóta fræðimenn framtíðar segja, þegar Skoðanabræður fengu til viðtals Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar. Niðurstaðan varð eitthvert ágætasta viðtal sem þeir bræður hafa tekið og líklega það eina þeirra sem á eitthvert raunverulegt skynsamlegt erindi við þjóðina. Það er 1. maí og allir vita hvað það þýða: Afmæli Snorra Mássonar. Afmælisdepurðin ætti að ráða ríkjum í dag, en hver veit hvort sólinni takist að skyggja að einhverju leyti á hana. Snorri óskar sér aðeins eins í afmælisgjöf frá bræðralaginu og þeim ætti að vera nokkuð hægt um vik: Skjáskot og story, heyra nánar í þættinum. Og það er 1. maí og allir vita hvað þýða, atriði tvö: Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Eins og nóbelskáldið lagði Ljósvíkingnum barnaníðingi í munn, eru „erfiðir tímar“, það er „atvinnuþref“, og kvæðið, sem átti að vera klaufalegt, er í raun ískyggilega nákvæmt á tímum kórónukreppunnar. Ég er semsé að tala um Maístjörnuna, og sem ég skrifa og gúgla verð ég æ ánægðari með hana, raunar svo að til þess gæti komið að ég láti það slá hér botninn í þáttarlýsinguna. Það væri ekkert nema viðeigandi, þar sem nú sem aldrei fyrr er þörf á að huga að hagsmunum heildarinnar og þar er verkafólk í meirihluta. Það, og margt annað helvíti ferskt í þætti dagsins, til dæmis frásögn af ævintýralegum fjárdrætti Viðreisnarmanns. - Ó hve létt er þitt skóhljóð ó hve leingi ég beið þín, það er vorhret á glugga, napur vindur sem hvín, en ég veit eina stjörnu, eina stjörnu sem skín, og nú loks ertu komin, þú ert komin til mín. - Það eru erfiðir tímar, það er atvinnuþref, ég hef ekkert að bjóða, ekki ögn sem ég gef, nema von mína og líf mitt hvort ég vaki eða sef, þetta eitt sem þú gafst mér það er alt sem ég hef. - En í kvöld lýkur vetri sérhvers vinnandi manns, og á morgun skín maísól, það er maísólin hans, það er maísólin okkar, okkar einíngarbands, fyrir þér ber ég fána þessa framtíðarlands.
5/1/20201 hour, 49 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

#41 Sannleikurinn um Lamestream Media og sagan um píkuna og dýrið

Bræðralag! Við reiðum okkur á ykkur. Og þó. AUR eða KASS í síma 661-4648. Maggi sushi er gestur þáttarins, sá eini sem hefur fengið að ganga í bræðralagið í beinni. Sjálfsagt að setja virðingu á hans nefnd, svo sem vér og vænumst eftir því af ykkur að þið gerið það við okkur. En allur fjandinn ræddur, samanber fyrirsögn, og ýmislegt endurtekið, orðræða mannsins enda ekki nema samfelld árétting þess sem áður hefur komið fram.
4/28/202043 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#39 VIÐTAL VIÐ GOONS: Stormur Kormákur og Patti, þunglyndi, kvíði og skagfirski kvenpeningurinn

02:00 Viljinn kominn út - 06:26 Þú Skuldar spilað til þeirra sem svíkjast undan - 09:30 gas um covid19 - 10:30 Skoðanabræður ræða eigin þunglyndi og kvíða - 17:20 virðing á Lönu Del Rey - 19:10 gaurar sem virkilega hata lögguna - 21:20 kvíðaköst - 22:30 get out the game - 27:00 Þórólfur með of mikil völd - 30:10 fólk í showbiz með sjálft sig á heilanum - 35:40 Stormur og Patti goonkings viðtal 58:24 - afmælisþáttur ræddur 60:20 - Kanye West kóngur heimsins - 65:00 Nýja Ísland - 69:42 grasreykingar á Marmaris - 76:34 Eyþór Arnalds - 84:00 Instagram - Að ræða kvenpening eins og bústofn – það gera Skoðanabræður ekki, nema ónarraðir út á þá villuslóð. Og beri svo fágætlega við, slá þeir nauðsynlega og heigulslega varnagla sem sýkna þá af orðum þeirra, eins og þennan hér. Byggðarlagið sem um ræðir er Skagafjörður, sem einhverjir binda vonir við sem heitan áfangastað í sumar, en víkur þá sögunni að heitum áfangastað úr fortíðinni, raunar náfortíð; henni víkur að Vík í Mýrdal. Þar í auðninni taka tveir goons til starfa nú um mundir, Patrekur Þór Þormar Ægisson og Stormur Jón Kormákur Baltasarsson. Svo mörg voru þau nöfn, og svo höfðinglegt er það af þeim að bjóða Skoðanabræðrum upp á viðtal. Þeir eru einir af fáum goons sem eru með vinnu, þó það sé ekki nema um stundarsakir næstu vikur. Þeirra framlag í umræðuna er mikilsvert, að fá innsýn sem sé í veröld goona á tímum heimsfaraldurs; atvinnumál, fjármál, vímuefnamál og kynferðismál rædd. Í þættinum að öðru leyti? Margt rætt, grunnur lagður að stefnu Íslands til framtíðar, og sjónarmið reifuð. Svo sem ekkert um það að segja. Djúsinn, á vegum Útvarps 101, og styrkir þegnir í síma 6614648 á KASS eða AUR.
4/28/20201 hour, 26 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

#40 Skoðanir Magga sushi, skoðanabræðrafræðings II.

Ég myndi aldrei kalla hann annað en Magga sushi, en get skrifað hér að Magnús Jochum Pálsson er gestur afmælisþáttar Skoðanabræðra. 1 ár af fremsta hlaðvarpi landsins og megi þau vera þúsund enn, en það er ekk ekki von nema spurt sé hvert sé orðið okkar starf í sex hundruð sumur: Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Stefnan er að ræða það, en það fer náttúrulega út í aðra sálma, því aðrir sálmar eru það eina sem við kyrjum.
4/24/20201 hour, 15 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

#38 Samið um gasgjaldið við Sindra Jensson í Húrra, graffað á grunnskóla og rúllað eins og Ísland fyrir þúsund árum

Fyrirtæki! Skoðanabræður hafa snúist á sveif með auðvaldinu í heimsfaraldrinum, enda ljóst að einhver þarf að rækta landið og hann gerir það ekki nema fá eitthvað fyrir sinn snúð. Og skemmtu þér vel við að fá eitthvað fyrir þinn snúð, þ.e. verða ríkur, með því að opna fatabúð, segir Sindri Jensson stofnandi Húrra, hálfpartinn augljóslega að grínast, enda ekki neitt gríðarlega hagkvæmt aktívitet sá rekstur. Það er menningin sem menn eru að horfa til og ekki verra að geta lifað á því um leið. Hann er karlmaður vikuna þessa viku og gefur Skoðanabræðrum innsýn í litlu veisluna sem er í gangi á vettvangi viðskiptalífsins nú um mundir, sem er mikilvægur fróðleikur fyrir leikmennina í Skoðanabræðralaginu. Fyrir utan key viðtal er margt annað frekar konunglegt rætt í þættinum, sem vonast er til að sé ekki í hrópandi ósamræmi við það sem kemur fram í viðtalinu, en sé svo er mönnum bent á sönn orð í bréfi Konráðs til Jónasar sumarið 1844: „allir hafa ekki sömu áhrif á mann, og þess vegna talar (og skrifar) maður ekki eins til allra, þó maður sje aldrei nema nokkurneginn einlægur, eins og [Skoðanabræður] eru.“ Samhengi skapar Útvarp 101 og fjármögnun fer fram í gegnum AUR eða KASS í númerið 6614648. Sundurliðun:  04:50 styrkjakóngur vikunnar kynntur inn  07:00 talað um tabú, kvíða og geðsjúkdóma 16:00 árangur Íslands í baráttunni við covid19  23:00 gas  26:50 nýir rapparar svívirtir, gamlir rapparar virtir  29:00 virðing sett á nafn Gísla Pálma  37:00 Vigdís Finnbogadóttir  43:12 Sindri Jensson karlmaður vikunnar  01:05:15 skjátími íslendinga  01:06:00 ALLIR eru að deyja úr óöryggi vegna Instagram og ógeðslegra áhrifavalda  01:14:00 loftslagsbreytingar og lífstíll  01:17:00 eggjun veganbúðinnar og vegan fólk svívirt  01:21:10 þegar Snorri og Bergþór gröffuðu á skólann sinn og voru teknir af skólastjóranum  01:25:55 niðurlægingin að vera settur í D-lið í fótbolta þegar maður var tólf ára   01:26:35 Snorri svívirðir alla fótboltamenn alheimsins eftir að hafa lofað hinu gagnstæða í viðtali fyrr í´þættinum (orsök mikillar eftirsjár sem hann er að glíma við í raunheimum einmitt núna)
4/17/20201 hour, 32 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#37 Kvíði, Kórónu Víri og samtalið sem vegurinn inn í ljósið

(Bræðralagsþáttur) Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og ber er hver Skoðanabræðrahlaðvarpsþáttur að baki nema sér skoðanabræðralag eigi, eins og við eigum á Facebook og á AUR og á KASS, það er að skilja, sumir sjá sóma sinn í að leggja sitt af mörkum til frjálsrar fjölmiðlunar, aðrir hírast í þögninni, reyna að gefa ekki frá sér múkk, allt í von um að ekki heyrist til þeirra, því þá verður afhjúpun aldarinnar: Það fer að verða komið ár af því að þessir púkar hlusti á Skoðanabræður án þess að setja virðingu á nafnið með fjárhagslegum hætti. Samt: Okkur er eiginlega alveg sama hvað við fáum af styrkjum – þetta er bara viss orðræðuhefð. Skilgreindu óvininn og segðu fólkinu að þú munir sigra hann. Deildu og drottnaðu. Keep America Great. Almannahagsmunir framar sérhagsmunum. Íslandsbanki tók ákvörðun um að veita bestu bankaþjónustu á Íslandi. Skoðanabræður eru fólgnir, allt saman á vegum Útvarps 101, og djúsinn, hann hefur aldrei verið eins hátt á lofti. Styrkjakóngur vikunnar er Guðmunda Bergsdóttir.
4/14/20201 hour, 2 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#36 DJ Dóra Júlía, ljósir punktar í faraldrinum og úrkynjuð unglingsgerpi á Instagram

1:18 fara aftur í menntaskóla og unglingalíkamar 07:30 styrkjakóngurinn kynntur inn 10:00 skoða gömul skilaboð á Messenger 13:40 Snorri mætir í mataboð yfirnáttúrulega þunglyndur 17:30 sumarbústaðabann 24:00 Joe Biden elliær 27:20 Þjóðhátíð og FM95BLÖ 41:30 nýja Drake lagið svívirt 45:45 Dóra Júlía 01:10:50 Hildur Lilliendahl,feministar og fjölmiðlar 01:22:40 Talented Mr. Ripley, Matt Damon og Gwyneth Paltrow 01:42:15 íslenskir tónlistar ópólitískir Aurið eða Kassið í símanúmer 661-4648 – Skoðanabræður eru að safna fyrir nýju hljóðkorti og þeir myndu aldrei taka fé fyrir að auglýsa nokkurn skapaðan hlut, og þurfa þeim mun frekar á hjálp þinni að halda. Þú veist að þú skuldar.  Þáttur dagsins, gjöf til hlustenda.. Fyrst skal frægan telja: Dóra Júlía heiðrar okkur með símtali árla morguns á skírdegi þar sem farið er yfir stöðu mála. Hvernig fer fólk að því að halda haus þegar bókstaflega svona fimm epískum utanlandsferðum um suðrænar sólareyjar er aflýst á einu bretti og ekkert blasir við nema líflaus auðn? Jú, það áttar sig bara allt í einu á því sem skiptir máli í lífinu, góðir félagar og góð veisla, sama hvað tautar og raular. Menn eru í þessari stöðu nú um mundir og enginn nær betur utan um það ástand en Dóra, sem er einmitt þolandi öfangreindra hörmunga – en líka uppgötvari dásamlegra uppgötvana. Skoðanabræður hafa þó einnig lagt áherslu á að gleyma ekki myrku hliðunum í þessu öllu saman, einkum Snorri, sem sérhæfir sig í neikvæðni og kvíða – því sem Bergþór hefur snilldarlega nefnt „smitandi sjálfsmorðsorku“. Horfið er aftur að því gamalkunna viðfangsefni þessa hlaðvarps og staðan tekin á þjáningunum.   Síðan er stiklað á stóru um helstu hugðarefni landsmanna, allt frá sumarbústaðarskömminni (hvert erum við komin) og til misfagurra dægrastyttinga í þessum sömu bústöðum, eins og til dæmis ósæmilegar sjálfssnertingar kvenna í kjölfar lestrar á bókum eftir Jón Kalman. Svo að ekki sé farið nánar út í það er best að vísa bara beint í efni þáttarins, og taka fram, að djúsinn er á vegum Útvarps 101. 
4/10/20201 hour, 44 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#35 Flóni & Joey Christ, snakkpokaát, fitufordómar, skáldskapur og svívirðingar

SÝNDU FRJÁLSU HLAÐVARPI STUÐNING MEÐ AUR/KASS STYRKJUM Í SÍMANÚMER 6614648. 03:40 styrkjakóngur vikunnar kynntur inn 08:00 sóttkví Snorra og Odds 12:00 dvöl Bergþórs á Siglufirði 15:45 spil svívirt 19:00 stafrænt líf 21:30 þegar Snorri var 100+kg og borðaði Lays Cheese and Onion á hverjum degi & Skoðanabræður athuga eigin fitufordóma 26:30 tilraun til að svívirða Snorra Björns 30:35 Flóni & Joey Christ 56:00 strákar sem gera beats svívirtir 01:02:00 pólitísk áhrif covid19 01:05:50 fötlunarfordómar Skoðanabræðra og Friend Zone 01:11:23 Tiger King 01:13:00 Snorri segir frá ömurlegri bók, framleiðsla og skilvirkni 01:17:00 Woody Allen 01:21:45 Áslaug Arna svívirt 01:30:00 Íslendingar sem vita ekki af Corona 01:37:00 skáldskapur, Mad Men & Íslendingasögur.  Cheese and Onion Lay’s klukkan 15. Offituskaðræði á eigin líkama um hábjartan dag – allt í nafni bekkpressunnar. Að sjá eftir slíkri hegðun, eru það fitufordómar? Að hata eigin líkama, er það að hata aðra vegna líkama þeirra? Í Skoðanabræðrum er ekki spurt að leikslokum enda þykir það vont orðalag, en heldur farin sú leið að spyrja eitthvað um miðbik þáttar, og svara aldrei. Þáttur dagsins er gæðaskúnkur, má segja, einkum í ljósi þess að Skoðanabræður eru orðnir opinbert kannabishlaðvarp, sem rekur harða lögleiðingarstefnu. Þeir benda þó á hitt, að hliðstæð stefna í áfengismálum sem yrði fylgt eftir nú um mundir hefði ekki æskilegar afleiðingar, og er alls ekki meira viðeigandi nú en áður, nema síður væri. Ég veit ekki af hverju ég er að skrifa þetta. Skoðanabræður eru frjálst hlaðvarp sem hlýða engum nema eigin sannfæringu.
4/3/20201 hour, 45 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#34 Femínistaperrar og spilltar löggur

(Bræðralagsþáttur)  Tvær fjarskyldar tegundir í íslenskri náttúru: femínistaperrar og spilltar löggur. Eina sem Skoðanabræður biðja um er að menn gangist við eðli sínu. Svo mörg voru þau orð, og þau eru fleiri. Bergur og Snorri ráða ráðum sínum landshluta, rétt eins og um væri að ræða samgöngubann, þegar slíkt er vitaskuld ekki í gildi, heldur aðeins samkomubann, þó að auglýsingabæklingurinn Fréttablaðið hafi reynt að æsa annað viðhorf upp í fólki á dögunum. Víði er hlýtt í hvívetna en honum er ekki treyst um of, enda er hann lögregla, og hlutverk lögreglu er að beita ofbeldi fyrir hönd ríkisvaldsins. Það væri hálfundarlegt að gjalda ekki varhug við því, þó að ýmis heilaþveginn gjaldi varhug við goldnum varhug, og bendi á hið augljósa, að lögreglumenn séu líka fólk, eins og það hafi einhvern tímann verið spurningin. Skoðanabræður lesa þá upp þá göfugu menn sem hafa lagt lykkju á leið sína til þess að styðja við frjálsa fjölmiðlun. Sumir æskja þess að nafni þeirra sé leynt. Við því er orðið. Aðrir gera ekki slíka kröfu. Þá er sett virðing á þeirra nöfn því sem nemur. Hliðstæða er dregin upp með styrkjendum og þeim Íslendingum í Bandaríkjunum sem tóku sig til á dögunum og sendu virðingu heim í formi öndunarvéla, gjaldmiðli sem hlýtur að þynnast mjög um leið og kórónaveiran hjaðnar, eins og vitur maður benti á á dögunum, sá sami og kallaði Nancy Pelosi “sick puppy.”
3/31/202055 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

#33 Berglind Festival, dópið í sóttkvínni og ástir samkynhneigðra karlmanna sem eru samt no homo

Það var í gegnum Holland sem Snorri flaug heim frá Þýskalandi til Íslands og það var í gegnum Holland sem hugtakið „no homo“ fann sér aftur leið upp á yfirborðið í Skoðanabræðraþætti dagsins. Þetta hefur ekki verið sagt í um það bil heil fjögur almanaksár en er hér vakið aftur til lífs af ærinni ástæðu, sem heyra má um snemma í þættinum. Mikilvægur atvinnuvegur þessarar þjóðar sem sekkur nú í sæ kemur við sögu, það er, stýrið. Og um leið er sjónarmiðum lýst á þá leið að ofsögum sé sagt að kalla Hollendinga þjóð. Það er ekki auðferðast milli landa þessi dægrin og sökum þess snýst þátturinn á tíma upp í óð til eiturlyfjaneytenda þessa lands. Það eru óvissutímar á markaðnum, sagt er að kókaín sé runnið með öllu til þurrðar uppi á Íslandi og spekúlantar velta fyrir sér hver birgðastaðan er á kannabisefnum. Stónerasóttkvíin hlýtur að vera ljúf þeim sem eiga nóg til, sem ættu að vera ófáir: Það er myndarleg kannabisræktun víðs vegar á landinu og svínin hafa að líkindum lítinn tíma til þess að hamast á saklausum bændum. Á þessum nótum má spyrja sig hvaða eiturlyf væri best í sóttkvínni, og til þess að leita svara við þeirri spurningu sem látið er eins og sé eðlileg í þessu samhengi, fengu Skoðanabræður til sín fornan ráðuanut: Berglindi festival. Vegna tilmæla frá sóttvarnamiðstöð hafa Skoðanabræður talið öruggara að fara ekki út fyrir Skoðanabræðralagið sjálft og leitast við að ræða aðeins við fólk sem hefur verið karlmenn vikunnar áður. Þeim er treyst. Berglind hafði nýverið lokið við ömmuleikfimi heima hjá sér umkringd ódýrum græjum og kunni af þeim sökum ekki við að gefa Skoðanabræðrum myndræna innsýn inn í íbúðina. Þeim mun meira var skeggrætt; Berglind gaf góð ráð við ofangreindri spurningu, kvaðst þó sjálf halda sig við rauðvín, sem þó væri opnað á óreglulegum tímum dagsins, og hún lauk síðan máli sínu með því að veitast að starfsheiðri Skoðanabræðra með óvægnum hætti. Það var tímabær aðför. Þessir þættir eru á vegum Útvarps 101 og eru reknir á styrktarfé, sem látið er af hendi á KASS eða AUR í síma 661-4648.
3/31/20201 hour, 25 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#32 Odd Þórða og versta skiptinám sögunnar, sem blessunarlega tekur nú snöggan enda

„Það hefur enginn skiptinemi í mannkynssögunni nýtt tímann verr heldur en ég,“ segir viðmælandi. Odd Þórða var fyrsti Íslendingurinn sem Skoðanabræður fabúleruðu um að væri kominn með Covid-19, þar sem hann dvaldi í ömurlegu skiptinámi í Southampton (sjá þátt #21). Eftir 7 mánuði inni í herbergi er Odd á leið í einkaþotu heim á sunnudaginn, mun fyrr en áætlað var, og því ber að fagna: Dvölinni er lokið, sem hann segir réttast að hann fengi kafla fyrir í heimsmetabók Guinness, nefnilega fyrir „versta skiptinám allra tíma.“ Hann segir hér í smáatriðum frá þeim breytingum sem orðið hafa á högum hans síðan síðast, þriðji karlmaður vikunnar sögunnar til þess að vera gestur þáttarins tvisvar. Skjótt skipast veður í lofti á þessum síðustu og bestu – örlög ráðast á svipstundu, sem annars hefðu líkast til orðið önnur. Skoðanabræður eru sagnaþulir samtímans og hlutverk þeirra er fanga þessar sögur í orð og skrásetja það sem annars hefði fokið út í vindinn. Á sama tíma eru þeir sjálfir viðfang eigin skrásetningar, nú þegar suðrið sæla andar vindum þýðum og það vorar í mestu borgum Evrópu, tekur Snorri saman föggur sínar og álpast með fyrsta flugi heim, nánar tiltekið kórónavél sérstakri, og lendir á miðnætti í kvöld. Hann, sem hugðist halda kyrru fyrir í Berlín, biðja að heilsa öllum heima rómi blíðum og koma síðan með haustskipum, sér sóttarsæng sína nú uppreidda og kemur heim með skottið á milli lappanna. Til þess að kynnast þættinum efnilega er mælst til þess að hlustendur stilli töppunum haganlega í eyrun og kveiki á þessari músík. Hér er síður en svo aðeins verið að ræða kórónaveiruna þó að vissulega svífi hún yfir vötnum. Þetta helvíti er á vegum Útvarps 101 og er alfarið rekið með framlögum frá hlustendum með því að senda pening með AUR eða KASS í númer 661-4648.
3/20/20201 hour, 50 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

#31 Skoðanabræðralagið – virðing á nafn Sigurðar Stefáns - svívirðing á nafn Björns Þorlákssonar

Þessi var að setja virðingu á nafnið. Og þessi var að setja virðingu á nafnið. Heyrðu, síðan var þessi að setja virðingu á nafnið. Og veistu hver er búinn að vera að hlusta frá vordögum Skoðanabræðra? Björn Þorláksson. Frá honum hafa Skoðanabræður þó ekki séð túmark með gati á. Svívirðing sett á nafn hans þetta skiptið. Skoðanabræður þiggja engan pening frá fjársterkum aðilum sem kynnu að vilja hafa nokkuð um efnistök þeirrar fjölmiðlunar að segja. Þeir þiggja vald sitt einvörðungu frá hlustendum sínum, sem styrkja þá í gegnum AUR eða KASS í símanúmerið 661-4648. Það heitir að setja virðingu á nafnið, að styrkja frjálsa fjölmiðlun. Getur verið 500 kall, 1000 kall, getur verið 2000 kall eða 10000 kall – alveg sama; nafnið þitt verður nefnt í þessum þætti óskirðu ekki nafnleyndar. Með því höldum við áfram þeirri samfélagslegu vegferð sem við erum á. Þessir þættir koma út á tveggja vikna fresti á þriðjudögum. Skoðanabræður eru ekki til án Skoðanabræðralagsins – en Skoðanabræðralagið væri líka ekkert án Skoðanabræðra, og þess vegna þurfa þeir styrki. Styrkirnar fara síðan undir engum kringumstæðum í „laun“ heldur renna þeir beint í umbætur á efninu. Þeim mun meiri sem þeir eru – þeim mun betri eru þættirnir. Samtalsþættir koma út á þriðjudögum á tveggja vikna fresti.
3/17/202026 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#30 Pétur Sóttkvíernan, tjara og fiður í skólablöðum og NEI við kynfræðslu

Skoðanabræður áskilja sér rétt til þess að ræða ekki undir nokkrum kringumstæðum þá ákvörðun hóps ungra karlmanna að neita sér um að stunda sjálfsfróun og fara í kaldar sturtur. Slík umræða fer fram í öðrum síðri hlaðvörpum, sem þó er erfitt að festa fingur á hver eru nákvæmlega, enda er eftir allt aðeins eitt hlaðvarp til í leiknum: Skoðanabræður. Málið er í sjálfheldu. Annað mál í sjálfheldu er Pétur Sóttkvíernan athafnamaður: Hann er í sóttkví á heimili sínu ásamt allri fjölskyldu sinni og verður í nokkra daga enn. Manni hefnist að hafa verið í Ölpunum. Pétur er fenginn sem karlmaður vikunnar í annað sinn og lýsir fyrir hlustendum raunum hins raunamædda manns, hvers raunir eru þó nákvæmlega engar að undanskildum nákvæmlega þeim einu raunum að vera í sóttkví. Í sömu mund er Pétri veitt ókeypis atlaga að því að hreyfa andmælum við meintum svívirðingum í hans garð á vettvangi hlaðvarpsins, tækifæri sem á að kosta 250.000 krónur, en Pétur fær kostnaðarlaust upp í hendurnar fyrir sakir gamallar vináttu og hefðbundinnar íslenskrar frændhygli. Til umræðu kemur þó að greiðsla sé innt af hendi í formi hlutabréfa í Icelandair, en fljótlega sammælst að sú aðgerð væri bjarnargreiði á þessum síðustu og verstu. Og í þriðju málsgrein lýsingar sem þessarar brýst fram kunnugleg upphrópun: Annað rætt! Skoðanabræður skera upp herör gegn ritskoðun skólastjórnenda á efni nemendafélaga, hvetja til upplausnar í þeim efnum, ræddir eru karlmenn sem gera tilraunir til þess að stunda mök við sjálfa sig með því að beina eigin getnaðarlimi inn í eigin endaþarm í trúarlegri athöfn, og svo er kórónaveiran yfir og allt um kring. Í því samhengi verða aðgerðir Donalds Trump Bandaríkjaforseta að teljast fyllilega fullnægjandi, svo ekki sé fallið í þá gildru að ætla honum allt illt sem frá Bandaríkjamönnum og þeirra heimsvaldastefnu kemur. Skoðanabræður – frjálst og sjálfstætt hlaðvarp – sem reiðir sig einvörðungu á styrki frá hlustendum í númerið 661-4648 á AUR eða KASS. Bylgjurnar eru Útvarps 101.
3/13/20201 hour, 40 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra

„Skækjan – það er eiginkonan; eiginkonan – það er skækjan. Aðra kaupi ég til samneytis við mig ævilángt … Hina kaupi ég til samneytis við mig eina nótt.“ Skoðanabræður gerast svo djarfir að mótmæla þessari tvígreiningu kvenna sem má lesa um í skáldsögu frá því snemma á 20. öld. Í hvaða bók? spyr sig sá sem gengur svo langt að lesa þetta klór. Upplýsingar þar um finnast inni í miðjum þættinum, sem þýðir að orðin sem þú ert að lesa eru smellibeita. Þú ert ormétinn og úrkynjaður lax úr eldiskví sem silast niður eftir lækjarsprænu og bítur loks á agnið, sem sé hlustar á þáttinn. Svona flýturðu sofandi undan ævistraumi og þinn feigðarós er hjákátlegur hlaðvarpsþáttur; hafðu fyrir alla muni hugfast í millitíðinni það sem góðskáldinu rataðist forðum á munn, að lasta því síður laxinn, sem „leitar móti straumi sterklega og stiklar fossa.“ Straumurinn stendur ekki í vegi fyrir Skoðanabræðrum sem eru umræddur heilbrigður lax svo myndmálið fái hér áfram að njóta sín; þeir eru villtur lax. Þess vegna segja þeir það sem They – kapítalið – vill ekki að sagt verði. Meiriháttar uppljóstranir gerðar í þættinum, sem lúta að fjölmiðlavaldi, tæknivaldi og kaupmannavaldi. Þeim mun mikilvægara er að Skoðanabræður geti haldið áfram vegferð sinni; AUR eða KASS í síma 661-4648. Karlmaður vikunnar er engin önnur en Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, söngkonan sem þið hafið að líkindum haft á fóninum allar götur síðan ykkur barst sá fögnuður til eyrna, að út væri komin ný plata. GDRN veitir hér fyrsta viðtal eftir að hún hreppti verðlaun sem söngkona ársins á einhverjum hlustendaverðlaunum í gær; og hvað ber framtíðin í skauti sér, er spurt. Óvíst – líklega ekki eiturlyfjafíkn. Og þó. Annað vitaskuld rætt: metafóran í meme-inu, hin héðan af forboðna gredda hlaðvarpsformsins og ekki óskylt henni, hin karnivalíska mennska margfætla sem skíðayfirstéttin myndaði í Austurríki, upp á vesturíslensku eitt loftþétt Human Centipede sem liðaðist um íburðarmikil salarkynni skíðaskálans endilöng, grandalaust um vá þá er vofði yfir mönnunum; þegar ljósin voru kveikt voru almannavarnir ekki lengi að lýsa yfir neyðarástandi.  Skoðanabræður eru frjálst og sjálfstætt hlaðvarp á vegum Útvarps 101.
3/6/20201 hour, 31 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

#28 Samtal við Skoðanabræðralagið

Aurið Skoðanabræður í símanúmer 661-4648 og verðið hluti af samfélaginu. Þið getið unnið bolla, bol en fyrst og fremst er samviska ykkar í húfi. Hversu langt gangið þið í baráttunni fyrir frjálsa fjölmiðla? Fyrsti þriðjudagsþátturinn kemur hér í margumrætt hús. Í Bræðralaginu þylja Skoðanabræður upp stuðningsmenn sína, setja virðingu á nafn þeirra sem hafa sett virðingu á nafn þeirra, ef það er ekki of setningafræðilega tormelt fyrir þig, kæri stuðningsmaður, ef þú ert slíkur, það er. Þátturinn er tekinn upp 27. febrúar 2020.
3/3/202029 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

#27 Unnsteinn Manúel, follow frá 99 stelpum og langt, einhliða hláturskast

Á ögurstundu verður degi ljósara fyrir hvern Skoðanabræður vinna í raun og veru: Fyrir Skoðanabræðralagið. Tvennt er til marks um það: Þessi þáttur, sem var tekinn upp eftir að annar eyddist vegna mistaka tölvunnar. Til þess að endurtaka leikinn þurfti mikið þrek. Hitt hollustumerki Skoðanabræðra gagnvart hlustendum er sú nýja ráðstöfun að héðan af verða engar auglýsingar. Þeir eru frjálst hlaðvörp, eins og lagt var upp með og er rétt. Unnsteinn bjargar málunum sem strákur vikunnar; tekin staðan á næstum þrítugum manninum, sem ákvað í haust að setjast á skólabekk. Margt að ræða, etc. Annars er ekki beint hógdrægt úr hugarfylgsni nú þegar lýsing er samin að þættinum, enda sorgin að hafa glatað frumupptökunni þyngri en tárum taki. Þeim mun opnar er rætt um tilfinningar í þáttarræksninu, sem þó má segja að hafi orðið helvíti ferskt á endanum, einkum eftir að upptöku úr því sem aldrei varð var splæst inn í þáttinn; módernískt hláturskast. Skoðanabræður eru á vegum Útvarps 101 og taka við styrkjum í þróunarsjóð í númerinu 661-4648 á KASS eða AUR. Styrkjendur eru nefndir í þáttum sem koma út annanhvorn þriðjudag.
2/28/20201 hour, 24 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#26 Formaður Samfylkingarinnar í Weedbúðinni og hið vesturíslenska Trust Fund Trap

Allt sem þú segir getur og mun vera notað gegn þér fyrir rétti, segja bandarískir lögreglumenn þegar þeir misþyrma saklausum glæpamönnum. Annað eins mætti vera haft yfir nú þegar formaður næststærsta stjórnmálaflokks landsins samkvæmt könnunum gengur í vatnið, nánar tiltekið í Skoðanabræðralagið. Einsamalt vatnið augun sjá, sem sé gildruna, en glöggskyggn og ósvinnur sér tækifæri öllu heldur: Skoðanabræðralagið er þúsundaþjóð ungra kjósenda. Og hvað þurfa þeir að vita? Eigum við að lögleiða skúnkinn og stofna Weedbúð í Vínbúðinni? Eigum við að nota stórhættuleg skynörvandi bulllyf til lækninga? Eða eigum við að halda okkur við að leyfa smásölu áfengis í gegnum netið (sem þýðir í öllum meginatriðum afnám einokunar Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins)? Erum við ekki eftir allt að tala um að halda óbreyttum hætti, stefna í átt að breiðri vinstristjórn og sveigja af vegferð ránfuglsins, að svo miklu leyti sem hann hefur ekki fargað sér sjálfum? Öllu þessu er svarað í þættinum, „on the record“ í þeim sjálfgefna skilningi að þetta er bókstaflega allt tekið upp og útvarpað í tappana í eyrun á þér, hávelborinn hlustandi. Strákur vikunnar er semsé Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, sem er á leiðinni inn í kosningabaráttu, sem Skoðanabræður hringja hér með inn. Fyrstir með fréttirnar, má segja. Aðrar fréttir eru sagðar sitthvoru megin við viðtalið og við sögu kemur allur andskotinn; íbúðamarkaðurinn, og í því sambandi Trust Fund Trappið, nýtt hugtak í stéttafræðunum, svo ruslið sem Íslensku tónlistarverðlaunin eru, og ekki síður Hlustendaverðlaunin, og að lokum er sögð hugljúf saga úr samtímanum af körlum sem horfa á klám á meðan þeir sofa hjá konunum sínum. Skoðanabræður, frjálst hlaðvarp fyrst og síðast á vegum Útvarps 101, og í farsælu samstarfi við AUR.
2/21/20201 hour, 33 minutes, 22 seconds
Episode Artwork

#25 Kynsjúkdómsins Köben, kínverjinn með klinkið og höfnun sem hluti af lífi þínu

Mamma, hvernig verða kynsjúkdómar til? Við viðskiptafræðideildir, bláeyga flón. Skoðanabræður – fæddir um og upp úr miðjum tíunda áratug tuttugustu aldar – þeir þekkja ekki reynsluheim kvenmanns fædds 1999, svo ekki sé talað um það ef kvenmaðurinn hefur framfæri sitt af því að selja blíðu sína, sem er einmitt ekki tilfelli stráks vikunnar, Ísabellu Lenu! Sálfræðinemi, barstarfsmaður, þekkingarmaður leiksins, hefur verið í honum í þónokkur ár og hvað gerist þá: Maður eldist, eldist og eldist og loks úreldist, sem nú er orðin yfirvofandi ógn. Hvað gerist þegar 02 módelum er farið að finnast maður gamall? Þau geta troðið því upp í rassgatið á sér og sest við fótskörina á sér vitrari mönnum, eins og goonhjörðin hefur einmitt þegar gert – þeir mynda Skoðanabræðralagið. Ísabella heiðrar bræðralagið að þessu sinni með nærveru sinni og miðlar af reynslunni. Hvað gerist á Tinder í Kaupmannahöfn? Er það þar sem einmana lúserskiptinemalúser getur nálgast nakið hjarta þjóðarinnar – eða gerir hann ekki annað en að hitta sjálfan sig fyrir, einmana útlending í ókunnu landi? Eða verra: rasískan drykkfelldan bældan andfeminískan Dana. Bældur Dani er svosem eftirlendustefnulega Skoðanabræðrum að skapi, ástand sem sver sig í ætt við þá stefnu sem þeir boða í kynferðismálum; skírlífi. Skírlífi rætt, auðvitað, og maður myndi halda slík tímaskekkja hefði í það minnsta lágmarkspresens í röðum yfirborðslega siðaðra CBS-manna, að það leyndist innan bláu skyrtnanna, en því síður! Hér liggur hundurinn grafinn – og kynsjúkdómarnir á klúbbnum,  þangað sem Húrra Reykjavík leitar þegar staffið bregður undir sig betri fætinum, fer til Köben og stígur  léttan dans. Er það dans hinna dauðu? Skoðanabræður birtast hér í sinni fullkomnustu mynd – hljóðbyltingin er orðin. Önnur bylting er á leiðinni, sem von er á að farið verði nánar út í áður en menn vita af. Hér má gefa þetta upp: Þáttunum mun fjölga sem þýðir að þú munir hlusta meira. Gasið mun flæða inn um eyrun – allt á vegum Útvarps 101 og í heilbrigðu og góðu samstarfi við AUR. Loks: „Alls staðar fólk, potandi í símann með tappa í eyrunum, músik!“ segir Bergþór ekki þegar hann hefur upp raust sína um miðbik þáttar og heldur einræðu um Spotify, enda er hann ekki Ólafur Grímur Björnsson að skrifa minningargrein um prentara á Þjóðviljanum. Hjá Bergþóri kveður við ögn fágætari, yfirvegaðri og heilbrigðari tón en vandinn er í hlaðvarpi þessu, nokkuð sem væri ef til vill æskilegt að leitast við að endurtaka þegar fram líða stundir, möguleiki sem verður tekið fyrir á stjórnarfundi Skoðanabræðra í vikunni sem hefst eftir ömurlega Valentínusarhelgina sem gnæfir yfir óöruggum brundspreyjurum þessa lands eins og hótun, eins og bros.
2/14/20201 hour, 38 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

#24 Aronmola hættur á samfélagsmiðlum – mikil ánægja

Lífið gengur sinn vanagang, sem er náttúrulega mjög deprímerandi í sjálfu sér, en Skoðanabræður halda sínu striki og biðjast aldrei afsökunar, hvorki innilega né innilegrar. Hér ræða þeir við frægan kóng sem brá út af vananum og hætti á samfélagsmiðlum eftir áramót; þeir höfðu fyllt hausinn hans af nægu eitri, tekið af honum nægar klukkustundirnar af tilgangslausu hangsi og misþyrmt geðheilsunni hans nóg. Hann tók málin í sínar eigin hendur, eins og reyndar er líka sagt sagt þegar samfélagið hrósar sigri yfir því þegar óbreyttur borgari beitir glæpamann ofbeldi. Aronmola hætti á Instagram og varð Aron Már. Það er sem sé strákur vikunnar þessa vikuna, lítill karlmaður, en langt frá því að vera krumpaður eins og klisjan kveður á um. Ásamt því að taka hann tali símleiðis ganga Skoðanabræður að vanda óragir til verks og stinga á helstu kýlum samfélagsumræðunnar; fjölmiðlakrítík, þó að idjótar biðji um annað, tóbaksvandinn, þó að lúserfíklar biðji um annað, rappið, þó að boomerinn biðji um annað. Sem sé ekkert gert til að geðjast, allt saman andóf í einhverri mynd gegn hinu ríkjandi, talað upp ekki niður, sem þýðir líka að „viðskiptarefir“ eru ekki aufúsugestir í hljóðver til Skoðanabræðra, sem hafa bent á betra orð yfir þá – arðræningja. Það er þó svo sem tekið til baka líka, enda augljóslega í grunninn borgaralegt hlaðvarp hér á ferð. Rétt eins og Álfgrímur í Brekkukoti var allur í því að finna hinn hreina tón, eru Skoðanabræður enn að leggja lokahönd á umbreytingaferli það sem hefur í för með sér hljóðbyltingu. Áfram heldur frásögn um margboðað morð á slæmum gæðum. Það er svo sem ekki eins háleitur draumur og það sem bjó í eistunum á Álfgrími forðum, þessi um hreina tóninn, við viljum bara bjóða hlustendum okkar upp á góð gæði, fyrst þeir láta sig hafa þetta yfirleitt. Annað sem við bjóðum hlustendum okkar eru síðan sérkjör hjá fyrirtækjum ýmsum, sem aðeins ósvinnur maður léti framhjá sér fara: Farðu á sambandid.is, gakktu í félagið og fáðu 60 GB af neti í símann þinn frí. Farðu á forlagid.is og kauptu þér bók mánaðarins (nýja lasna skáldsögu eftir Eirík Örn Norðdahl) á 2.990 (grínverð), hvort sem það er á kilju eða í rafbók. Og farðu í símann þinn og AUR-aðu vin þinn 40 þúsund kallinn sem þú skuldar honum.
2/7/20202 hours, 43 seconds
Episode Artwork

#23 Strákur vikunnar og útsmogni alþjóðadildóinn

– Ath. látið ekki glepjast af ögn síðri gæðum fyrstu sjö mínúturnar en vera skyldi. Það batnar, rétt eins og orðfærið, eftir því sem líður á þáttinn. – Að vera avókadó eða að vera ekki avókadó, þarna er efinn, enda avókadó lýsingarorð málfræðilega. Í Southampton í Bretlandi er avókadóstigið í sögulegu lágmarki, ekki síst eftir að íslenskur stjórnmálafræðinemi ákvað að flytjast þangað í skiptinám í heilt ár. Sá tók þá ákvörðun grandalaus um að málum yndi fram með þeim hætti sem varð: Oddur Þórðarson liggur með Kórónavírusinn á stúdentagörðum í Englandi og bíður eftir Brexit og dauðanum. Ef íslensk stjórnvöld þurfa að velja hvort hann lifi eða deyi, telur hann víst að síðari kosturinn verði ofan á. Í samræmi við grundvallarlögmál hinnar tælandi en svikulu fyrstu málsgreinar flestra þáttalýsinga Skoðanabræðra, stendur auðvitað ekki steinn yfir steini í ofangreindu, nema ef til vill aðeins að því leyti sem það er satt, að Oddur er í Southampton, hann er með sjúkdóma og Brexit nálgast, skapadægur alþjóðasamstarfs eins og við þekkjum það. Oddur er strákur vikunnar í Skoðanabræðrum, sem innleiða þann dagskrárlið hér mit Pomp und Pracht, strák vikunnar, stuttan karlmann. Í viðburðaríkri fréttaviku er síðan, ásamt því sem rætt er við Odd um Brexit á yfirvegaðan hátt, farið yfir allt það helsta, öllu blandað saman en með því um leið skerpt á huldum tengingum á milli stóru málanna, sem the Corrupt Media vill ekki að þú sjáir. Er ljóðalöggan Stefán Eiríksson pólitískur agent (lesist eins og Ameríkuagent, Vestur-Íslendingarnir ykkar) sem kominn er inn á RÚV til að ganga erinda huldumanna? Líklega ekki. En hann var ráðinn á grundvelli stjórnunarhæfileika, en ekki reynslu af rekstri fjölmiðla, en hver segir að maður þurfi hana, ég meina, þetta snýst bara um rekstur fjölmiðils. Mun hann laga leitarvélina (gefið að laga megi hluti sem eru ekki til), mun hann endurreisa RÚV Núll (sem var reyndar bara frumreist fyrir mjög stuttu) eða bara sigla áfram hinn lygna sjó menningarstéttaofbeldisins sem dynur á óbreyttum landsmönnum dag eftir dag af hálfu stofnunarinnar? Þessu svarað, eða raunar bara varpað fram sem spurningum í ábyrgðarleysi að hætti hússins. Við höfum RÚV; hví þá ekki að ríkisvæða Bíó Paradís? Varhugaverð þróun, kynnu frjálshyggjulúserar að segja, en aðrir skynsamir þó einnig að hugsa með sjálfum sér, en ekki segja upphátt. Varla fer ríkið að grípa inn í – hvar var það þá þegar WOW air? Tillaga: Gammavæðum Bíó Paradís, Bíó Gamma, minnisvarði um fallið félag og hamslausa misþyrmingu markaðslögmálanna á verðmætum okkar. Einum bíósalnum  gæti verið breytt í íslenskt míkró Maddam Tussauds, Gísli Hauksson fyrsti munur þess safns, lifandi og talandi í kaupbæti . Skoðanabræður eru í boði AUR og 101 Sambandsins. AUR, besta leiðin til að flytja peninga. 101 Sambandið, símafélagið sem býður þér hagstæðustu símadílana. Auraðu Skoðanabræður í síma 661-4648 og segðu þína skoðun. Gakktu í sambandið á sambandid.is og fáðu 60GB (mjög mikið) frí, bara með því að nota kóðann SKODUN.
1/31/20201 hour, 39 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

#22 Skoðanir Young Nazareth

Sjálfstæðismenn sem gera lyndistákn (á vesturíslensku emoji) á undan hverju orði sem þeir gasa út úr sér á Twitter. Óheillaþróun, sem árvökult auga Skoðanabræðra fer auðvitað ekki á mis við. Hvernig endar þetta? Festur mun slitna, freki renna og að lokum verður byltingarkenndur indie-bragur yfir því að tjá vafasöm pólitísk áform án lyndistákna. Skoðanabræður taka auðvitað ekki afstöðu til einstakra mála, allra síst pólitískra, nema auðvitað þegar mikið ríður á, og einnig að vísu þegar minna ríður á, eins og til dæmis í ómerkilegum pólitískum dægurmálum, þar sem engin sjáanleg þörf er á að þeir taki afstöðu. Í þætti tvö í nýrri seríu sem er ekki ný sería er þetta gert, trekk í trekk, í félagi við Young Nazareth, öðru nafni Lil Nazareth, skírnarnafni Arnar Ingi Ingason. Og Skoðanabræður eru í farsælu samstarfi við framúrskarandi fyrirtæki: Forlagið, AUR og 101 Sambandið. Kóðinn til þess að kaupa Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson sem hljóðbók á afsláttarkjörum (ný skáldsaga á 990kr) á forlagid.is er SKODUN. Kóðinn til þess að fá 60 GB frí þegar þú gengur í Sambandið á sambandid.is er SKODUN. Arnar er einn burðarstólpanna í íslenskri rappsenu, í því hann semur taktana og framleiðir lögin. Hann er þó eiginlega búinn að færa sig frá þessu menningarlega arðráni sem Íslendingar stunda á rappmenningu svartra Bandaríkjamanna og yfir í nýlegra og blíðlegra menningarlegt arðrán sem Íslendingar stunda á R&B-menningu svartra Bandaríkjamanna. Hann hefur til dæmis, ásamt öðrum, veg og vanda af tónlistinni á plötu GDRN sem ætti að vera gefin út á næstu vikum. Til þess að geta einbeitt að slíku þjóðþrifaverki mute-aði hann Pétur Kiernan á Instagram, kallaði það adblock. Pétur Kiernan er Skoðanabróðir, þannig að af hálfu þáttastjórnenda, alltént þess sem hér veldur fjöður, verður engin vanvirðing sett á hans nafn. Þessi ungi Naza leitast við að tala hreina íslensku, eins og það heitir, sem sé hvorki rétt né rangt mál, heldur einfaldlega vandað. Það ætti að vera til eftirbreytni fyrir goonin við viðtækin, sem hverfa í auknum mæli frá góðri notkun viðtengingarháttarins, halda að maður á að segja eitthvað tiltekið, en ekki eigi að segja eitthvað. Hvort það eru ensk áhrif eða innvortis úrkynjun íslenskunnar, veit Guð einn, en ljóst er að vesturíslenskan er að sækja í sig veðrið, það er að segja slettur! sem eru þó málfræðilega ekki endilega grein af sama meiði og dalandi viðtengingarháttur. Vestur-Íslendingarnir eru hvað sem öllu líður ógn við heilbrigt málsamfélag með Íslendingum, og ekki nema von að Skoðanabræður gjaldi dassi af varhuga við. Annað er auðvitað rætt í þessum rausnarlega langa þætti, svosem leiðir til að sigrast á óvininum Instagram, styttur starfstími leikskólanna, apatía hins tvítuga karlmanns gagnvart sögum af áreiti sem konur verða fyrir af hendi einmitt manna eins og hans, síðan áhugi þessa sama karlmanns á öðrum karlmönnum sama hvað þeir gera, og loks er það stéttaofbeldismoli dagsins: Aflýsing Hafnfirðingabrandara, sem er þó að mæta svolítið sein í aflýsingapartí sniðmenningarinnar, þar sem allir eru hvort eð er hættir að segja þessa brandara. Breytar efnahagslegar forsendur kipptu stoðunum undan bröndurunum; grínið, sem þarf alltaf útrás, hefur fundið sér nýtt fórnarlamb, og hver veit nema þú sért næstur.
1/24/20202 hours, 5 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

#21 Skoðanabræður snúa aftur

Landvarðarbrundið! Það er hinn heiðni helgi safi sem grundvallaði þessa þjóð í öndverðu – og heldur áfram að gera það á kojufylleríum í hinum ýmsu þjóðgörðum landsins. Þetta er fólkið sem er ekki á Instagram, en tryggir í gegnum aðrar göfugri boðleiðir framgöngu kynstofns okkar. Að vera ekki á Instagram er svo sem eitthvað fyrir aðra en bara skinhelgar síðhærðar skeggjaðar lopapeysur: Skoðanabræður hoppa um borð í þann vagn, alltént Bergþór. Hann ætlar að hætta á Instagram í febrúar, bylting, segir hann, febrúarbylting, bætir Snorri um betur, orðhagur og sagnfræðilega meðvitaður höfundur þessa texta hér. Verið velkomin í aðra seríu af Skoðanabræðrum, helsta hlaðvarpi landsins, sem smeygir sér nú inn í eyru ykkar í fullkomlega tærri og óbreyttri mynd, að breyttu reyndar breytanda, sem var fjárhagsmódelið og fáein önnur atriði. Héðan í frá er þetta gersamlega ókeypis fyrir ykkur hlustendur, og á sama tíma erum við farnir í farsælt samstarf við framúrskarandi fyrirtæki: Forlagið, AUR og 101 Sambandið. Kóðinn til þess að kaupa Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson sem hljóðbók á afsláttarkjörum (ný skáldsaga á 990kr) á forlagid.is er SKODUN. Kóðinn til þess að fá 60 GB frí þegar þú gengur í Sambandið á sambandid.is er SKODUN. Í þessum fyrsta þætti er allur andskotinn ræddur, eins og einmitt verðmætir kynstofnar, eins og þeir sem koma við sögu fyrr í þessari lýsingu. Snorri er staddur í Berlín þar sem hann rannsakar ásamt kraftmiklum krökkum yfirburði og eiginleika norræna kynstofnsins, á vegum félags sem heitir því viðeigandi nafni Norðurvígi. Hann segir okkur frá ýmsu spennandi af þeim frjóa vettvangi. Bergþór lýsir síðan áhyggjum sínum af Instagram, samfélagsmiðlum, en trúir að Skoðanabræður geti komið góðu til leiðar með því að halda áfram að bera út boðskapinn. Femínískan boðskap segir hann, enda hans hagsmunir, kvenkyns sjálfur. Og þetta grín er smellibeita og aðeins skrifað svo að þú sperrir eyrun og setjir Skoðanabræður í gang. Hér er ráða auðvitað jafnréttisviðhorf ríkjum. Karlmaður vikunnar að þessu sinni er ekki neinn, heldur er baneitruð karlmennska Snorra látin tala sínu máli. Á næstu vikum verða þó gestir í þáttunum, og þar er hvaðeina spennandi framundan. Það breytir því ekki að smávægileg stefnubreyting hefur orðið, sem felst í að þættirnir bera ekki nafn viðmælanda, heldur njóta efnislega sannmælis útaf fyrir sig, enda annað andrósentrismi, sem Skoðanabræður láta seint kenna sig við. Þið fáið sem sé fyrirsagnir, bitastærð við ykkar hæfi, smánautnaseggir. Skoðanabræður eru eins og ævinlega afurð Útvarps 101. Þeir eru framleiddir í samstarfi við Forlagið, AUR og 101 Sambandið.
1/17/20201 hour, 8 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

#20 Skoðanir Magga Sushi, skoðanabræðrafræðings

Eftir að maður lítur um öxl er hollt að staldra við, og líta um öxl. Magnús Jochum Pálsson, Maggi Sushi, helsti Skoðanabræðrafræðingur á Íslandi, kemur hér að máli við Skoðanabræður og fer yfir farinn veg. Við erum að tala um excel-skjal, við erum að tala um styrkleikaröð, við erum að tala um sannferðuga lýsingu á veröldinni. Það má enn styrkja Skoðanabræður í númerið 661-4648 á KASS eða AUR og þó styrkirnir verði lesnir upp seint, verður það aldrei um síðir. Snorri Másson er nú blaðam., bús. í Berlín, og Bergþór Másson er á flakki, einkum um Suður-Ameríku. Þeir eru þó ævinlega væntanlegir aftur á öldur ljósvakans, þó engu sé slegið föstu um hvenær. Hér skal þakklæti tjáð til allra þeirra góðvildar-, velvildar- en ekki síst velgjörðarmanna, sem styrkt hafa þáttinn í sumar. Þættir Skoðanabræðra í stigveldi, samkvæmt athugun Magnúsar: 1. Ari Másson, 2. Þóra Tómasdóttir, 3. Birnir, 4. Lóa Björk, 5. ClubDub, 6. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, 7. Jói og Flóni, 8. Jakob Birgisson, 9. Danni Deluxe, 10. Berglind Festival, 11. Aron Mola, 12. Dóri DNA, 13. Siffi G, 14. Pétur Kiernan, 15. Katrín Jakobsdóttir og þrjú neðstu, saman í 16. sæti: Karó, Birgitta Líf og Logi Pedro. Og þessi uppröðun hlýtur að vera umdeild, en hún er studd sterkum rökum fræðimannsins. Ýmsir þættir spila inn í, flæði, húmor, efnistök, rökfesta, orðfæri, hljómgæði, hlutfall hins persónulega og hins almenna og svo framvegis og svo framvegis. Allt metið, sem gerir góðan Skoðanabræðraþátt að góðum Skoðanabræðraþætti. Umræðurnar leiða menn svo út um allar trissur og í anda Skoðanabræðra er engin leið að halda sig við efnið. Það er meðal annars farið yfir það þegar Snorri verður annaðhvort stressaður eða ofmetnast og fer að segja hluti sem hann meinar ekki. Niðurstaðan er hins vegar sú að kannski komi þar fram nákvæmlega það, sem hann meinar í raun og veru. Svo bendir Magnús á hvað eina sem honum hefði þótt betur fara, en hvaða gildi hefur hans persónulega mat, hvaða gildi hefur það. Skoðanabræður kveðja að sinni úr höfuðvígi Útvarps 101 á Hverfisgötu og óska mönnum velfarnaðar í haust. Og vel að merkja, haustið: Sól eftir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg. Á morgun er ártíð skáldsins.
8/30/20192 hours, 7 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

#19 Skoðanir Jakobs Birgissonar

Velkomin í Live Fílalag! Í dag fílum við göndulinn á Jakobi Birgissyni í beinni á Port 9, þátturinn afrakstur þeirrar kynlegu iðju. En fyrst: Svívirðum þá sem melduðu sig en mættu ekki, tóku þannig pláss frá þeim sem raunverulega vildu koma, þeim sem raunverulega eru meðlimir í Skoðanabræðralaginu, þeim sem setja virðingu á annarra manna nöfn. Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Skoðanabræðra eftir styrkjum, þ.e. mannsæmandi launum fyrir sín störf, ætti líka að vera svarað og það getur verið gert með því að AURA eða KASSA í númerið 661-4648. Síðasta tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri í þættinum er núna. En áfram verður hægt að styrkja um aldur og ævi, á meðan nafn Skoðanabræðra lifir. Jakob Birgisson er king uppistandari, góðvinur Skoðanabræðra og tölfræðilega líklegasti karlmaður vikunnar. Hér ræðir hann það sem Skoðanabræður ræða best: eiturlyf, klám og hörundsára krossfittara. Auðvitað af sömu nærgætni og endranær, Skoðanabræður eru meistarar aðgátar hafðar í nærveru sálar. Þessi Skoðanabræðraþáttur er sérstakur að því leyti að áfengi var haft við hönd, sem ef til vill var í hæsta máta óæskilegt, en var alltént gert. Það gefur tjáningunni lausari tauminn, enda ærið tilefni til ráðstafana sem stuðla að því, á víðsjárverðum tímum, þar sem þrengt er að tjáningarfrelsinu úr öllum áttum. Tímum, þar sem nauðsynlegt er að stofna embætti eins og barnaperraráðherra. Það líður að lokum þessarar vegferðar og viðeigandi að þar stígi Jakob inn og bendi á það sem miður hefur farið, og það sem betur má fara á komandi tímum. Þátturinn er innlegg inn í þá uppbyggilegu umræðu sem ávallt fer fram á þessum vettvangi, og hefur ávallt gert. Og vel er að merkja, að þó að fýsískt hafi aðildin verið átt á Port 9, þeim virðingarverða stað, er vettvangurinn Útvarps 101. Allt sem er sagt um Íslandsbanka í þessum þætti er ósatt. En það er athyglisvert, og varð að koma fram.
8/28/20191 hour, 23 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

#18 Skoðanir Ara Mássonar, bróður Skoðanabræðra

Lífið er veisla, segir höfundur þess frasa, Ma King, blóðbróðir Skoðanabræðra, sem forðum var dæmdur til ævarandi hippadóms. En það er næs og ráðstöfunin sver sig ekki í ætt við örlög Sýsifosar, hún er jákvæð, eins og rætt er í þessum þætti. Líklega öllu betri en líf ritstjóra Skoðanabræðra. Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Skoðanabræðra eftir styrkjum, þ.e. mannsæmandi launum fyrir sín störf, ætti líka að vera svarað og það getur verið gert með því að AURA eða KASSA í númerið 661-4648. Síðasta tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri í þættinum er núna. En áfram verður hægt að styrkja um aldur og ævi, á meðan nafn Skoðanabræðra lifir. Ari Ma (Másson) varð auðvitað að koma í viðtal. Hann er sjö árum eldri en yngsti Skoðanabróðirinn, Snorri, og fimm árum eldri en Bergþór. Hann kenndi þeim flest sem þeir kunna, þó að síðar meir hafi þeir lært sitthvað upp á eigin spýtur og hér snýr hann aftur til að kenna þeim allt upp á nýtt. Hann hefur búið mikið til erlendis síðasta að verða áratug, í Taílandi, Suður-Ameríku, í Nepal, í Amsterdam, í Marokkó, í Indlandi, í Tyrklandi, á Spáni, í Bandaríkjunum og hver veit hvar í andskotanum. Þar hefur hann látið sér detta í hug allan fjandann til að gera, og gæti nú hvergi annars staðar hugsað sér að búa en einmitt þar: alls staðar. Hann vinnur þó sem landvörður á Íslandi á sumrin. Ýmislegt rætt í þessum þætti, draumarnir, hugsjónirnar, eiturlyfin ef þau eru einhver, og reynt að komast að niðurstöðu um hvernig má lifa fordómalaus í þessari guðsvoluðu veröld. Hugleiðsla kann að vera lykilorð í því sambandi. Og klifur! Veröldin veltist um svo fast en Skoðanabræður og þeirra bróðir skeyta ekki um það, þeir halda áfram siglingu sinni en haga síður en svo seglum eftir vindi, engir hentistefnumenn, heldur bara saklausir samfélagsrýnar sem hafa þennan óljósa grun um, að lífið sé eftir allt veisla.
8/28/20191 hour, 23 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

#17 Skoðanir Joey Christ og Flóna

Núvitund, það er að eyða miklum pening! Einkum ef þú ert heimskur rappari. Skoðanabræður hafa hingað til aðeins rætt þá hlið persónuleika Flóna, hvursu hann eyðir. En það er auðvitað meira í hann spunnið en bara það. Það er ást, það er virðing og það er von um betri heim. Þess skal getið hér strax, að um ræðir næstsíðasta þátt í fyrstu seríu af Skoðanabræðrum. Þeir sem eiga eftir að launa þeim erfiðið skulu aura þá eða kassa í síma 661-4648. Flóni er ekki eini karlmaður vikunnar, þótt hann dygði vitaskuld sem slíkur. Jóhann Kristófer er karlmaður þessarar sömu viku, rappari einnig, stéttbróðir Flóna. Og það er voða erfitt að vera rappari, búhú. Þeir mega ekki segja neitt í lögunum sínum án þess að Domino’s-vinstrið rjúki upp til handa og fóta og krefjist þess að þeir taki það allt til baka. Að poppa eina pillu og líða síðan frekar vel, er það verra en að græða eina millu og líða síðan vel? Og hvað þá um kvenfólk með rassa „sem er nóg til af?“ Hugað að goons. Domino’s-vinstrið kepptist líka í vikunni við að segja að engir fjölmiðlar væru að fjalla um regnskóga í ljósum logum. Í fyrsta lagi, haldið kjafti, segir maðurinn. En sér vitanlega eftir því. Skynsamleg umræða ómöguleg, heimsendir er í nánd, sól tér sortna, og þá brenna regnskógar. Skoðanabræður standa af sér strauma og stefnur. Þeir eru fremsta hlaðvarp á Íslandi. Snilldin er töfruð af fingrum fram viku hverja á vettvangi Útvarps 101.
8/23/20191 hour, 55 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

#16 Skoðanir Skoðanamóðurinnar

–Nærbuxur, skyrtur, dósir, bollar, diskar, handklæði, sokkar. Allt á gólfinu á víð og dreif um íbúðina. Bergþór kemur heim, sópar þessu öllu saman og hrúgar í rúmið hans Snorra. Illa vegið að góðum manni – ófagleg vinnubrögð. –En þeir eru vel upp aldir af móður sinni, sem hér er mætt í Skoðanabræður, Skoðanamóðirin! Hún fæddi þessa menn og auðvitað vinda menn sér umsvifalaust í þá umræðu: Hvað er að eiga barn? Er það sjúkdómur eða er það lífrænt ferli? Því svarað, að vonum. Má fæða börn heima?  –Margrét Jónsdóttir Njarðvík er karlmaður vikunnar. Ber er hver að baki nema sér móður eigi. Móðirin axlar ábyrgðina, hún ber ábyrgð á þremur karlmönnum þessa heims. Það er ábyrgðarhluti, þess vegna voru synirnir settir í „Ég axla ábyrgð“-nærbuxur þegar þeir voru litlir. Þeir hafa þurrkað út þær minningar. Stígamótamerch, sem kemur á daginn að er ekki nógu skemmtilegur vinnustaður. Það er alltént mál manna, Bergþórs. –Ýmislegt rifjað upp. Óvatnsgreiddir íslenskir drengir í kaþólskum nunnuskóla í Sevilla rétt upp úr aldamótum, sérferð með Snorra til Spánar, sérferð með Bergþór til Danmerkur. Lífið var gott og það er gott að koma mönnum til manns. Þá er ónefndur þriðji og elsti, Ari Ma, skoðanabróðir mikill. –Þátturinn er góður, en bara af því að Snorri náði í byrjun að jafna sig á bráðsmitandi bráðaþunglyndinu sem sveif á hann í upphafi þáttar. –Styrkið frjálsa fjölmiðlun með AUR eða KASS í síma 661-4648. –Safinn var skaptur innan vébanda samsteypunnar 101.
8/16/20191 hour, 48 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

#15 Skoðanir Katrínar Jakobsdóttur

Hlustaðu til að heyra hvort Katrín Jakobsdóttir drekki fimm eða tíu vínglös á viku!  –Karlmaður vikunnar. Þetta finnst feminískum forsætisráðherra gott grín. Og hann, hún, reynir að standa undir nafni!  –Sú tilraun ber árangur.  –They sitja eftir með sárt ennið. Ein valdamesta persóna á Íslandi í viðtali hjá Skoðanabræðrum. Hver hefði haldið. Hún var nörruð í þennan þátt... á fölskum forsendum, segir hún… ekki satt! Forsætisráðherra var öllu heldur ljúft og skylt að koma til skyldmenna sinna, Skoðanabræðra. Þau eru öll afkomendur Jóns Thoroddsen. –Í því samhengi: óhjákvæmilega rædd hin meinta fyrsta íslenska skáldsaga, sem nákvæmlega helmingur ritstjórnar Skoðanabræðra hefur gefið sér tíma í að lesa. Hinn ekki. –Katrín Jakobsdóttir prófaði golf í fyrsta skipti í sumar. Hér segja Skoðanabræður þá frétt, fyrstir miðla. –Hún vann líka sem póstburðarmaður á sínum tíma og lærði þar að líta einkasamskipti fólks öðrum augum en hversdagslegum. Skilaboð á Facebook eru ekki eldhúsborð, þau eru bréf. –Og samfélagsmiðlakvíðinn sá arna. Er pólitískur leiðtogi Íslendinga haldinn honum? Svo virðist ekki vera. Hlustaðu til að komast að því!  –Það hefur aldrei riðið meira á að styrkja frjálsa fjölmiðlun. Skoðanabræður – þeir veita valdhöfum aðhald. Og þiggja styrki fyrir í síma 661-4648 á Aur eða Kass. Það er á vettvangi Útvarps 101 sem Skoðanabræður töfra gæðaefni þetta fram af sinni alkunnu list.
8/9/20191 hour, 8 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

#14 Skoðanir Arons Mola

–Free The Nipple? Feit pæling sem gekk ekki upp. –Og ert þú að horfa á midget shemale klám? Þetta er þátturinn fyrir þig. –Hér fáið þið Gamla-Mola! Aron Mola endurfæddist eitthvað í kringum 2016, minnir þann sem hér veldur fjöður. Það var stór breyting. He Changed. A Lot. He’s A Nice Guy. I Like Him. Enskan er óræð vísun sem verður ræð við hlustun þáttar. –Karlmaður vikunnar er beinlínis móðurriðill. –Þetta er Verslunarmannahelgarþátturinn, með greini. Þess vegna er hann extra langur, rétt eins og limurinn á Aroni Mola var extra langur þegar hann tók hálfa töflu af rislyfjum niðri í miðbæ Reykjavíkur. Hver gerir það nema shitty fíkill, alkóhólikker. Moli er það samt ekki, þó hann sé hættur að drekka. Það rætt, það rætt.  –Fyrir langan þátt á fólk skilið langa poka af peningum. Alltént lágmarkslaun. Það má Aura í númerið 661-4648. Og það má Kassa. Styrkið frjálsa fjölmiðlun. –Hver myndi ekki styrkja þátt sem þennan, þar sem rædd eru helstu vandamál samtímans: ungir karlmenn sem koma heim eftir skóla, mamma þeirra er ekki heima, þannig að þeir vippa út lóknum og taka að flekka sjálfan sig. Fá sér svo stóra lummu og fara á handboltaæfingu. Lífið er bölvun. –Einmitt. Skoðanabræður, hinir einu sönnu talsmenn sannleikans líkt og haft var á orði forðum, þeir starfa í umboði Útvarps 101. 
8/2/20192 hours, 18 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#13 Skoðanir Birnis rappara

–Lífið er erfið veisla! Eða lífið er veisla en það mæta nokkrir óboðnir gestir. –Eins og til dæmis eiturlyfjafíkn. Karlmaður vikunnar hefur kynnst því. Og hann virðist jafnframt hafa sigrast á því. Af hverju ertu að spyrja mig, af hverju, á hverju ertu, eða hvað sem í fjandanum er sagt í þessu lagi. En Birnir er ekki á neinu, það er punkturinn. –(Skoðanabræður má og á að styrkja í síma 661-4648 á Kass eða Aur) –Birnir gekk í öndverðu með drauma í eistunum, hann tjáði þá við karlmenn í portinu á Prikinu, hann ætlaði að verða stór, hann ætlaði að sigra leikinn, og hvað gerðist. Draumarnir rættust. Þeir sem sé gera það, en til þess að skýra það nánar þarf að spóla nokkur ár til baka. Hver er Birnir! er því spurt og því svarað skilmerkilega.  –Þátturinn er með óhefðbundnu sniði: Birnir fylgist ekki með bullshittinu sem Skoðanabræður hafa lifibrauð sitt af. Skoðunum. Hann er meira að líta inn á við, að mæta sínum innri manni og kanna aðeins hvert stefnir. Hann er nýkominn úr meðferð við áfengis- og eiturlyfjafíkn. Hann dvaldist í Svíþjóð um hríð. –Þetta virðist vera fyrsta opinskáa mannlífsviðtal sem hann fer í eftir það og um leið afsveinar hann Skoðanabræður í að framleiða slíkt efni fyrir útvarp. Útkoman er alvöru opinskár lasleiki í beinni. Nema vitaskuld ekki í beinni, enda öldur ljósvakans teknar nýstárlegum tökum af Skoðanabræðrum, hlaðvarpið er aðgengilegt hvenær sem er. –Og „ég held að ég þurfi að fara að kveikja aðeins á perunni, fullt af wack motherfuckers hérna í senunni.“ Hverjir eru þessir ræfilslegu móðurriðlar, Birnir, hverjir eru þeir? –Safinn er á lofti, hann er heilandi í eðli sínu og hann er á vegum Útvarps 101, eins og kveðið var á um í öndverðu.
7/26/20191 hour, 45 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

#12 Skoðanir Þóru Tómasdóttur

•„Þetta er svo viðbjóðslegt og rótgróið stéttahatur,“ segir Snorri. „Svona Facebook-hópar á Íslandi eru bara viðbjóðslegir,“ segir Bergþór. „Þetta er ekki fyndinn hópur,“ segir Þóra. Þetta eru ekki góðar umsagnir. Hlustið áfram til að vita hvaða hóp ræðir um. •Þóra Tómasdóttir blaðamaður og almennur kóngur er Karlmaður vikunnar í vikunni, sá elsti til þessa. Og sennilega sá greindasti, yfirvegaðasti og áhugaverðasti að öllum öðrum ekkert það mikið löstuðum. Þóra þekkir Skoðanabræður persónulega og af opinberum vettvangi, enda þeir opinberar og mikilsvirtar persónur, en telur ekki æskilegt að annar þeirra fái of mikil völd. Það er spurning um hvorn það á við. Sá vægir þar sem vitið hefur meira, eins og eilíft gildir. •(Skoðanabræður er frjálst hlaðvarp, framleitt með hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Það má styðja þá vegferð með því að leggja henni fé í s. 661-4648 á Aur eða Kass.) •LungA er haldin hátíðleg um þessar mundir og í þættinum er kastað kveðju á þá hlustendur sem taka upp á því að stunda kynlíf í tjöldum. En þess þarf auðvitað ekki að geta hér í kynningu þáttarins. •Og Þóra tæki aldrei þátt í eins óviðurkvæmilegum kveðjuköstum enda komin vel á fertugsaldur. Hún hefur önnur lög að mæla, eins og ígrundaðar vangaveltur um aukna pólaríseringu í viðhorfum fólks, það er hin umrædda síbreikkandi gjá á milli stjórnmálaskoðana ólíkra hópa og víðsjárverða sundurlyndið sem hlýst af henni. Á þeim nótum kom gaurinn sem kom Donald Trump í embætti til Íslands á sínum tíma. Þóra segir frá því. •Ekki bara pólitík heldur öllu mikilvægara: lífið og hvernig er hægt að lifa af í þessu viðbjóðslega þjóðfélagi. Þóra er reynslunni ríkari og þekkir leiðina út, því eins og skáldið spurði, og margir hafa velt fyrir sér síðan, hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum. Svarið leynist í þessum þætti af Skoðanabræðrum. •Þetta einstaka efni er á vegum Útvarps 101 og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum. 
7/19/20191 hour, 45 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#11 Skoðanir Siffa G.

„Var bara einhver sem reið 16 ára gellu og því var bara leyft að slæda?“ er spurt. Hverjum tvítið glymur, er spurt. YFN Lucci er með 7 árum yngri gellu. Og það er dóttir Lil Wayne. •Upplýsingaóreiða, þetta er þekkt vandamál. Karlmaður vikunnar skrifaði BS-ritgerð um FAKE NEWS. Og niðurstaðan var þessi: *****. Það kemur fram í þættinum. Karlmaður umræddur er enginn annar en Siffi G.  •Siffi G. keypti ekki baðvatn af asískri cosplay gellu á Instagram. En hann fylgdist með. Hann kannaði.  •Hann er enda samfélagsrýnir, vaknar dag hvern, setur á sig samfélagsgleraugun, ælir öllu út úr sér á Twitter þegar honum hugnast svo en er þess á milli bara heima að hlusta á hlaðvörp um stríð. •Hér er beðist afsökunar fyrir hönd allra gaura á þrítugsaldri sem hlusta á hlaðvörp um stríð. Og um leið spurt áleitinna spurninga sem vakna við þá íhugun, eins og hve lengi Vera Illugadóttir er að skrifa einn Í ljósi sögunnar. Af hverju getur hún ekki heimilda?  •Siffi G. skrifaði aðdáendapóst til Veru en fékk engin svör. •Hann fékk fleiri svör þegar hann lá inni á spjallborðum á netinu um hryðjuverkamenn. Þar öðlaðist hann dýrmæta reynslu og af henni miðlar hann af miklu örlæti í þættinum í dag.  •Styrkið Skoðanabræður á Aur eða Kass.  •Þátturinn er vitaskuld á vegum Útvarps 101.
7/12/20191 hour, 46 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

#10 Skoðanir Karó

•Í draumi sérhvers manns er fall hans falið, sagði skáldið, en Skoðanabræður kafa bókstaflega dýpra: Í eista sérhvers karlmanns er draumur hans falinn. Og Hitler missti annað eistað og það var ekki draumaeistað, því ljóst var að hann dreymdi allt fram á hinsta dag. Hið sama gildir um hinn meðalhvíta unga karl sem þarf ekki nema sopa af bjór til að fara að tala um næstu sigra. •Þetta eru hásálfræðilegar vangaveltur, það liggur svo sem fyrir að ekkert er Skoðanabræðrum óviðkomandi, en þeir njóta hér liðsinnis næstum því sálfræðimenntaðs karlmanns vikunnar. Nefnilega Karó(línu) Jóhannsdóttur. Hún er ekki freudisti, frekar en Bergþór, sem lætur hugann reika á meðan Karó og Snorri ræða fræðin. Hér er tilefni til að biðjast afsökunar. •(Frjáls framlög til frjálsra ritstjórna eins og Skoðanabræðra eru meira en vel þegin og eru raunar skyldubundin á sinn hátt fyrir dygga hlustendur. Númerið er 661-4648. Aur eða Kass.) •Skoðanabræður sérhæfa sig í að ætla að fara yfir fréttir vikunnar en gera það ekki. Hér fara Skoðanabræður því út fyrir rammann og gera raunverulega það sem þeir eiga að gera: fara yfir fréttir vikunnar.  •Og hvað er meira í fréttum en piece of shit loftslagsmálin? Karó er með loftslagskvíða enda kona. Sem hugsar um að eignast börn. Viðraðar hugmyndir um líffræðilegan mun á körlum og konum, sem er náttúrulega fullkomlega sígild og óumdeild pæling. Kynslóð foreldra okkar sá von. Við sjáum óvon. Og þó. •Borgarlínan vefur sig eins og höggormur um hin ýmsu viðfangsefni sem hér bera á góma, frjálshyggja berst í tal og flóttamenn og hælisleitendur. Allt rætt af yfirvegun og sanngirni, eins og hefðin býður. •Svo hafa Skoðanabræður verpt einu páskaeggi inn í þáttinn, eða þremur, sem sagt litlum glaðningi fyrir karlmenn með drauma í eistunum um að tala spænsku einn daginn. Með öðrum orðum: Hún segist ekki reykja en ef ég kveiki í jónu tekur hún hit.  •Skoðanabræður eru frjálst hlaðvarp og þeir starfa, eins og kveðið var á um í öndverðu, á vegum Útvarps 101. 
7/5/20191 hour, 46 minutes, 14 seconds
Episode Artwork

#9 Skoðanir Danna Deluxe

Þú ert afi íslensk rapps. Þú bjóst til þennan leik. Þú varst getinn í Afríku. Og þú varst tekinn með keisaraskurð. Þetta er borðleggjandi: Þú heitir Sesar A. –En þú heitir ekki Danni Deluxe, sem hlýtur að teljast öllu betra. Daníel Ólafsson athafnaskáld er karlmaður vikunnar og er sá sem upplýsir um það sem kemur fram hér í upphafi. Sjúki fanturinn sem hann er upplýsir líka um allan fjandann annan, um Keflavík, um markaðinn, um pólitíkina, um lífið, um sigrana og um ósigrana. –Hræðileg lýsing á einum þætti. Ef enn hefur ekki tekist að telja þig af því, aumingjans lesandi, að hlusta á þennan þátt þá ætti ekkert að geta það og þá getur þú alveg eins ýtt á play.  –Play er útlenskt orð af þeirri gerð sem Skoðanabræður neita að úthýsa, enda augljóslega þarfaþing. Af því er leiddur playerinn og playerinn er meginstef í þættinum að þessu sinni. Playerinn er Danni sjálfur og hann býr í blokk með nokkrum playerum í þokkabót. Nágrannar hans eru playerar og vegna aðstæðna í blokkinni veigrar Danni sér við að gera þarfir sínar á heimili sínu og með þörfum er átt við þá mætu list að trappa. –Mæt list að trappa, trappið er íslenskt orð ekkert síður en það er frá Atlanta. Ég þekki nokkra stráka sem að elska að vera að trappa segir Danni og bendir á hið rétta, að setningin er fullkomin til að vera yfirlýstur þátttakandi í trappinu en um leið utan hennar. Þegar þú ert dreginn til ábyrgðar sagðirðu ekkert annað en þetta, að þú værir málkunnugur aðilum sem vitað væri að legðu stund á þessa tilteknu iðju. Að trappa. –Velkomin í gildruna, velkomin í Reykjavík árið 2019 og sælla minninga base-ið í KEF, base-ið sem arfleiddi Keflavík að trámanu. –Skoðanabræður eru á vegum Útvarps 101 og Skoðanabræður eru knúnir áfram af eintómri framkvæmdagleði, tærum hugsjónum og fjárframlögum á Aur eða Kass í númerið 661-4648.
6/28/20191 hour, 53 minutes, 37 seconds
Episode Artwork

#8 Skoðanabræður líta um öxl

–Það er hverjum hollt að staldra við endrum og eins, líta um öxl og allt að því horfa yfir farinn veg. Skoðanabræður þekkja mikilvægi þessa. Eftir stormasama 7. þætti, taka þeir áttunda í að leggja mat á hvert vegferðin hingað til hefur leitt þá. –(Til þess að styðja frjálsa fjölmiðlun sendið styrk á Aur eða Kass í númerið 661-4648) –Einmitt. Tveir gaurar með podcast. Leitað aftur í ræturnar. Snorri sjálfur, ritstjóri Skoðanabræðra, er karlmaður vikunnar. Bergþór aðstoðarritstjóri er aðstoðarkarlmaður vikunnar.  –Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og í upphafi þáttar er Bergþór fræddur um hvað það er að vera frilla. Hvernig ber maður þetta orð fram? Vísbending: hliðstætt karlkynsnafnorð er friðill. Reiknaðu nú. –Og Sjálfstæðisflokkurinn er hann kominn á vonarvöl eða á hann sér Viðreisnar von, er spurt. Þó vitaskuld ekki rætt um pólitík sérstaklega enda þekkja Skoðanabræður hlustendur sína, nema hvað þeir þekkja þá auðvitað ekki neitt. Hvað vilja menn heyra, er því spurt. –Menn vilja stemningu, greinilega, og það er viðbjóðslegt. Stemning er flan blinds manns, sagði Þórbergur, og Snorri tekur undir það hér í þessum þætti. Því er mótmælt af manni sem að vísu tekst ekki sjálfum að vera stemningsmaður. Enda slíkt viðbjóðslegt, eins og kemur fram. –Það er Secret Solstice um helgina. Hér er farið yfir sviðsmyndina. Sumir eru orðnir 22 ára og hyggjast því frekar hreiðra um sig og hver veit nema þeir taki sig til og lesi fagrar bókmenntir sér til dundurs.
6/21/20191 hour, 25 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#7 Skoðanir Berglindar Festival

„Hvernig finnst þér ég?“ spyr Snorri. Berglind Festival hefur skilning á vangaveltum Skoðanabræðra. En hún er orðin 30 ára. Hún er farin að linast. Hún er karlmaður vikunnar að þessu sinni. Um Skoðanabræður: „Þetta er bara mjög ferskt konsept,“ segir hún. „Nei, djók.“ Kuldahlátur. Svívirðingar. Tveir gaurar með podcast. En hlýja! Fram kemur að ef Berglind festival væri á fótboltamóti í boði álvers og væri að gista í tjaldi myndi hún anga af áfengi, þrátt fyrir börnin. Hún er 30 ára og lítur á son sinn sem jafningja. Það gengur vel, þar til hann fer að gráta yfir því að hún halar niður mynd á ensku. Þá man hún.  Berglind uppfyllir skilyrði Skoðanabræðralagsins. Listnám, auglýsingastofur, markaðsstörf, fjölmiðlun, hetjudáðir á internetinu og vín með matnum.  Djúsinn á vegum Útvarps 101, eins og eitthvað annað kæmi til greina. Skoðanabræður eru í boði Dohop og Hótels Sigluness.
6/13/20191 hour, 43 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

#6 Skoðanir ClubDub

***EINA VIÐTAL CLUBDUB Í KJÖLFAR ÚTGÁFU NÝRRAR TÓNLISTAR*** –Begga (þolfall) langar til Winnipeg. En hverjum er ekki drullusama? ClubDub komu í eina viðtalið sem þeir gefa í tilefni nýrrar plötu. Sem þeir segja samt að sé ekki plata. Þeir kalla sig listamenn. –Allt frá „er hægt að þrá Rolex úr en segjast ekki vera materíalískur?“ til „við tölum ekki um dýraníð í þessum þáttum“. –Og hvaða rusl er ClubDub? –Bílskúr í Grafarvogi. Einbýlishús í 101. Úr hvoru tveggja er víst lárétt boðleið inn í Versló. En fall Íkarosar er lóðrétt fyrirbæri. Teknir fyrir það að svindla á prófi. Engin fjallabaksleið greið í malbiksmartröðinni Reykjavík. Aron stúdent úr FG. Brynjar úr MK. Og nú: ClubDub. –Það leynist enginn boðskapur undir öllu skrautinu. Öllu heldur er skrautið sjálfur boðskapurinn. –ClubDub ruddu nýjar brautir með Juice Menu sumarið 2018. Síðan hafa þeir ekki hætt að gigga. Nú kemur meiri tónlist. En þeir standa fyrir aðeins meira en bara (innan)tóma tónlist.  –Planið þeirra er að miðla lífstíl, ekki bara tónum í mismunandi röð. Og það má vera smá á ensku líka, í guðanna bænum. Að neita sér um slettur er að sækja vatnið yfir lækinn. Icelandic Mineral Water er bara eins og hvað annað vatn.  –„Þetta var bara fínt, er það ekki?“ heyrist í Aroni þegar hann á að vera hættur að tala. –Juice-inn er á vegum Útvarps 101, eins og er margframkomið.
6/7/20191 hour, 28 minutes, 11 seconds
Episode Artwork

#5 Skoðanir Birgittu Lífar

Flóni var á B5 um helgina. Skoðanabræður hafa sagt frá öðru eins og frásögnin væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hún er í frásögur færandi. Flóni straujaði Apple Pay kortið fyrir 200 þúsund kall. En sagan er ekki þar með sögð því annar var aðili að máli. – Sá er enginn annar en sú hin eina sanna, Birgitta Líf Björnsdóttir. Hún er þjóðinni að góðu einu kunn og hana þarf vart að kynna sérstaklega. –(Styrkið Skoðanabræður með Aur eða Kass í síma 661-4648) –Birgitta Líf er karlmaður vikunnar! „Heiður,“ segir hún. „Kom mér á óvart,“ segir hún. „Skoðanabræður er fremsti vettvangur ígrundaðrar þjóðfélagsumræðu á Íslandi og þið eruð fæddir útvarpsmenn,“ segir hún ekki. –En hún segir ýmislegt. Það er erfitt að vera umdeildur. World Class, Ungfrú Ísland, Instagram, B5, Verzló, smábílar, stórir bílar, staðgreidd íbúð og lán hjá banka.  –They (hinn almenni hatari) eru áfjáðir í að rægja þá sem ná minnsta árangri, á hvaða vettvangi sem það kann að vera, jú, allir lúserar landsins mættir til að fella kónginn er ekki sjaldséð sviðsmynd þessi dægrin. Birgitta er til vitnis um það ófremdarástand. –Og allir lúserar landsins voru, réttilega, mættir til að fella ekki sérstaklega mikinn kóng sem lét ömurleg ummæli falla í beinni útsendingu af fótboltaleik. Skoðanabræður hafa skoðun. Eins og himinninn er blár. Eins og Sigmundur Davíð tekur frægum enskum útlendingahatara fagnandi. –Blað brotið í sögu Skoðanabræðra: ómennsk fylgja var fjórði gestur þessa þáttar, nefnilega hundurinn Bella.  –Spurt að leikslokum: er eðlis- eða stigsmunur á rónanum sem sníkir vodkadreitil af auðmönnum á B5 og þeim sem hefur valið að hafna áfengi og taka Íslamstrú? –Safinn er alltumlykjandi og hann er sem endranær á vegum Útvarps 101.
5/31/20191 hour, 45 minutes, 20 seconds
Episode Artwork

#4 Skoðanir Loga Pedro

Logi Pedro hefur svo viðbjóðslega mikið af skoðunum að Skoðanabræður héldu varla í við hann. Maðurinn mætir og skellir fyrirvaralaust nokkrum kílóum af gæðaskoðunum á borðið. Hann vinnur vinnuna fyrir bræðurna. –Honum veitir ekki af að fá að læra að vinna, enda vinnur hann vart nokkuð sjálfur, hann er listamaður. –Listamenn! –Í ljós kemur að þessi skoðun stenst ekki alveg, því listamenn þurfa að vinna ansi mikið, og ekki aðeins það, heldur þurfa þeir að færa fórnir á öðrum sviðum til þess að yfir höfuð mega vinna vinnuna sína. Þeir mega til dæmis ekki dissa árshátíð Orator á Twitter. Fyrir nokkrum árum varð Loga á og hjó aðeins í þann knérunn. Nýlega var hann svo beðinn um að gigga á umræddri árshátíð. Og þá hófst atburðarás sem er efniviður í fyndna sögu sem er að sjálfsögðu sögð í Skoðanabræðrum, helsta vettvangi íslenskra nútímafrásagna. (Innskot: Lögfræðingar eru viðbjóðsleg stétt). –Er verið að ganga of langt með lýsingunum á þessum þáttum, spyr höfundur sig á meðan hann hripar þessa hér niður. Og ríkir ekki örugglega sáttmáli á meðal manna um að lögfræði sé fyrirlitlegur starfi? –„Er Logi á Twitter?“ spurði enginn aldrei. Það hlýtur að vera 50% af frægð Loga, Twitterið hans, hann er orðinn að talsmanni góða fólksins, hann tekur slaginn, hann stingur á kýlin, hann tjáir skoðanir sínar. „Twitter er skemmtilegt“, segir Logi um þetta tiltekna efni. Hann elst upp á internetinu eins og Skoðanabræður.  –Þetta eru menn sem þekkja myrkravíddir spjallborðanna og Logi hefur samt þessa skoðun? Twitter skemmtilegt? Ekki líður á löngu uns málið er útskýrt: „Mér finnst gaman að talk shit,“ segir Logi. –Enskuskotið, jú, að tala shit, en orðalagið samræmist málvitund fróðra manna. Að tala skít! Það leggja bestu menn í vana sinn, ekki síst í kringum Eurovision þetta árið, og Logi lætur hér kné fylgja kviði: „Þessar dómnefndir eru bara úti að aka. Þetta er fólk sem heldur að það viti hvað fólk vill en það veit bara ekki rassgat,“ lætur Logi út úr sér við þetta tilefni. Ísland fékk sem sagt 48 stig frá dómnefndum Evrópu. Og Logi talar ekki vitleysu þó hann tali skít, maðurinn var dómari fyrir hönd Íslands í alþjóðlegri dómnefnd Eurovision. „Þetta eru bara einhverjir gaurar eins og ég, nema þeir eru bara ekki jafnsmekklegir og ég,“ fullyrðir hann. –Ef ykkur svo dettur í hug að eina teik Loga á Eurovision sé bara um þessa stigagjöf sem öllum er drullusama um þá misskilduð eitthvað. Farið er út í pólitíkina í kringum Hatara, út í yfirlýsingarnar, út í viðbrögðin öll. Og þaðan yfir í reynslu Loga sjálfs af því að alast upp svartur á Íslandi. –Djúsinn er á vegum Útvarps 101. Sem sagt Loga sjálfs. Við sögðum aldrei að hann væri ekki sjálfhverfur.
5/24/20191 hour, 38 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

#3 Skoðanir Lóu Bjarkar

 „Ég held að það séu bara gaurar sem hlusta og þeir eru að fara að skippa yfir nafnið mitt,“ segir Lóa Björk Björnsdóttir, sviðshöfundur og femínisti, áhyggjufull í viðtali við Skoðanabræður. Hún er fyrsti kvenkyns karlmaður vikunnar. Og ber þann titil hróðug. – Karlmaður vikunnar! Hálfbakað konsept, smá eins og léleg list, sem er til þess eins fallin að triggera PC gellur á Twitter. (Það virkar.) Þetta er þó á endanum eitthvað sem Skoðanabræður axla enga ábyrgð á. Þeir vísa þessu til áhorfanda. Það er undir honum komið að túlka listina. Þeirri túlkun kann að stýra afstaða túlkanda til Jordan Peterson.  – Lóa öskraði þegar hún hlustaði á síðasta þátt af Skoðanabræðrum. „Þegar þú segir að ‘umræðan sé á villigötum’ er það mjög hrokafullt,“ segir hún við Snorra. Niðurstaða Lóu er einfaldlega sú að hann sé karlmaður í tilvistarkreppu.  – Ljóst er að árásirnar á málfrelsi Skoðanabræðra eru hafnar. Um sinn eru það fáeinar gagnrýnisraddir sem jarma af veikum mætti á Twitter. Það er þó engu minni ástæða til þess að grípa til vopna, því umræðan kann að verða óvægin. – Hér er ekki vel talað um Skoðanabræður á þeirra eigin vettvangi. Spurt er hvernig það megi vera. Þeir styðja nýja þungunarrofsfrumvarpið. Þeir vilja banna áfengi. En þeir eru reyndar sammála um eina óvinsæla skoðun: að kynlíf eigi ekki að ræða á opinberum vettvangi. „Þið viljið horfa á klám í skömm,“ segir Lóa. Það eru dylgjur. – Eurovision. Nauðgunarbrandarar. Menn með yngri konum. Náttúran segir til sín – án tölvísi, sagði Laxness. – Og fyrstur til að leiðrétta rammskakka tilvísun Snorra í Hávamál fær shoutout í næsta þætti.  – Djúsinn er á vegum Útvarps 101.
5/17/20191 hour, 31 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#2 Skoðanir Dóra DNA

Dóri DNA er búinn að mæta í hvert einasta shitty hlaðvarp á landinu. Hann náði klukkutíma með Skoðanabræðrum áður en hann þurfti að þjóta í það næsta. Hann lofaði samt að það sem kæmi fram í þessum þætti væri exklúsíft einkaefni Skoðanabræðra. Það er viðbúið að Skoðanabræðralagið sperri eyrun… í suðupotti vikunnar malla nokkrar vel sjúkar hugmyndir. Eins og hverjar? Fróður spyr ófróðan: þegar gellur á Twitter segja að einhver gaur hafi hrútskýrt eitthvað fyrir þeim, er það bara til að minna heiminn á sig? Eða eru þær raunverulega að gagnrýna eitthvað? Og ef þú sæir nágranna þinn myrða mann, myndirðu fara á Twitter að myndirðu hringja á lögregluna? Það stendur á svörum hjá Domino's-vinstrinu. Þar er bara eitt svar. Svart. Eða hvítt. Eða að niðurstöðu á þá lund komust Skoðanabræður í þættinum. Karlmaður vikunnar var sem segir enginn annar en Halldór Laxness Halldórsson eða jú einhver annar en hann, meinum við: hann vill ekki láta kalla sig Laxness. Hann er Dóri DNA. Undir því nafni hyggst hann að minnsta kosti gefa út Kokkál, nýju skáldsöguna sína, sem fjallar um mann sem horfir upp á konuna sína ríða öðrum manni. Og skáldsögur, hver í fjandanum skrifar enn þá skáldsögur, er spurt. Hver veit nema Kokkáll toppi Brekkukotsannál. Og hver hefði haldið, pólitískan rétttrúnað bar loks á góma. Það er það eina sem karla langar að tala um eða það eina sem körlum langar að tala um, eins og hinn sjúki segði. Karlarnir fóru að tala um fóstureyðingar eða þungunarrof, eftir því hvernig á það er litið, það er, hvort er verið að myrða barn eða hlífa því. Best að drepa það tal.  Djúsinn er á vegum Útvarps 101.
5/10/20191 hour, 6 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

#1: Skoðanir Péturs Kiernan

Rapparinn „Flóni“ lenti í verkfalli norska flugfélagsins SAS á dögunum þegar hann tók skyndiákvörðun um að fara til Amsterdam í einn dag að hitta vin. Ákvörðunin kostaði hann 400.000 kall, segir umboðsmaður hans. „Það þarf að svipta hann fjárræði,“ bætir hann við. Þessi umboðsmaður er enginn annar en Pétur Kiernan. Áhrifavaldurinn. Instagram-fígúran. Stjórnmálaskýrandinn. Hin albjarta rassabora veraldar. Honum hlotnast þessi fágæti heiður, að vera fyrsti karlmaður vikunnar hjá Skoðanabræðrum. Og hann mætir í nýjum Balenciaga strigaskóm, sem eru að sögn aðeins þægilegri en þessir gömlu.  Ýmislegt brennur á Skoðanabræðrum þessa fyrstu viku í maí. Eitt hvað heitast: PC-fasisminn. Og hann er vel að merkja jákvætt fyrirbæri, Skoðanabræður eru ekki Harmageddon. Hér er niðurstaðan sú að taka verði aftur upp þann sið að taka fólk af lífi á Austurvelli. Hverja? Þá sem selja læknadóp með hægri og styðja listasöfn með vinstri. Svo víkur sögunni að öðrum sígildum úrlausnarefnum jarðvistarinnar. Hassi og klámi, vændi og verkfræði. Þetta venjulega ting, sem sé.  Þessi djús er á vegum Útvarps 101.
5/2/20191 hour, 22 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Skoðanabræður #0

Fyrsti þátturinn er svo góður að þunglyndir klámfíklar myndu kalla hann byrjendaheppni. Í honum er enginn karlmaður vikunnar, heldur var punkturinn að bræðurnir fyndu út hvers kyns hlaðvarp þetta ætti eiginlega að vera. Spjallið gekk svo langt að það þurfti að klippa hann til. Og það var ekki gert. Þessi djús er á vegum Útvarps 101.
4/26/20191 hour, 12 minutes, 13 seconds