Í þáttunum er fjallað um ítalska verkfræðinginn Giancarlo Gianazza og arkitektinn Þórarin Þórarinsson og leit þeirra að hinu heilaga grali á hálendi Íslands. Umsjón: Halla Ólafsdóttir og Þóra Hjörleifsdóttir.
5. Huglæga gralið
Þórarinn er með sína eigin kenningu um hvar x-ið á kortinu á að vera og það er ekki uppi á Kili. Þáttastjórnendur fara með honum í leiðangur á slóð musterisriddara á Þingvöllum.
7/6/2022 • 0
4. Undir yfirborðinu
Giancarlo er búinn að útvega sér bestu jarðsj á í Evrópu og mætir með teymi jarðfræðinga á Kjöl og myndar undirlag jarðinnar og gerir óvænta uppgötvun.
7/6/2022 • 0
3. Hjálp að handan
Giancarlo og Þórarni berst aðstoð úr óvæntri átt þegar enski flautuleikarinn og sjáandinn David Heath slæst í för og breytir stefnu leitarmanna.
7/6/2022 • 0
2. Dante á Íslandi
Giancarlo Gianazza kemur til Íslands og leitin hefst. Forsendur leitarinnar miðast við dulkóðuð hnit sem Giancarlo fann í Hinum guðdómlega gleðileik eftir Dante. Saga um ferðalag fjársjóðs frá Evrópu til Íslands er rakin.
7/6/2022 • 0
1. Ísland í miðju Evrópu
Arkitektinn Þórarinn Þórarinsson hefur lengi rannsakað Íslendingasögurnar og menningu landnámsfólks. Honum barst óvenjuleg fyrirspurn sumarið 2004 þegar ítalski verkfræðingurinn Giancarlo Gianazza bað hann um að aðstoða sig við að leita að hinu heilaga grali á hálendi Íslands.