Winamp Logo
Hvítþvottur Cover
Hvítþvottur Profile

Hvítþvottur

Icelandic, Finance, 1 season, 9 episodes, 8 hours, 3 minutes
About
Hlaðvarp um peningaþvætti.
Episode Artwork

9. Áhættumat Ríkislögreglustjóra (Katrín Ýr Árnadóttir)

Katrín Ýr Árnadóttir, lögreglufulltrúi hjá Ríkislögreglustjóra, fer yfir nýútgefið áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.  Við lítum einnig á skýrslu FATF um misnotkun í tengslum við kaup og sölu á ríkisborgararétti og umfangsmikla aðgerð Europol sem leiddi til handtöku meira en eitt þúsund burðardýra í peningaþvætti.Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
1/19/202431 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

8. Milljarðasekt Binance og barátta fjármálafyrirtækja gegn peningaþvætti

Í þessu fyrsta fréttahorni Hvítþvottar förum við yfir milljarðasekt Binance og fall rafmyntakóngsins Sam Bankman-Fried með Kjartani Ragnars, regluverði Myntkaupa.  Auk þess  veltum við upp þeirri spurningu hvort barátta fjármálafyrirtækja snúi fremur að því að verjast eftirlitsaðilum heldur en glæpamönnum.Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
12/7/202316 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

7. Lucinity, tæknilausnir og peningaþvætti (Guðmundur Kristjánsson)

Guðmundur Kristjánsson, stofnandi og forstjóri Lucinity, segir frá mikilvægi tæknilausna og gervigreindar í baráttunni gegn peningaþvætti. Guðmundur líkir þeirri byltingu sem er að eiga sér stað í gervigreind við tilkomu rafmagnsins og segist vera hræddari við það hvernig fólk nýtir tæknina heldur en tæknina sjálfa. Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
5/1/202351 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

6. Grunsamleg viðskipti og Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu (Guðmundur Halldórsson)

Guðmundur Halldórsson, lögreglufulltrúi hjá Skrifstofu fjármálagreininga lögreglu, segir frá því hvers vegna tilteknum aðilum er skylt að tilkynna um grunsamleg viðskipti, hvað verður um slíkar tilkynningar og hvort aukinn fjöldi tilkynninga sé af hinu góða.  Guðmundur fer einnig yfir það hvað felst í góðri tilkynningu, mikilvægi þess að tilkynningarskyldir aðilar sinni rannsóknarskyldu sinni og hvernig mæla má árangur í baráttunni gegn peningaþvætti.Viðtalið var tekið upp undir lok ársins 2022 .   Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
3/7/20231 hour, 16 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

5. Fjársvik og fjármálafyrirtæki (Brynja María Ólafsdóttir)

Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir frá ólíkum tegundum fjársvika, allt frá ástarsvikum til fjárfestasvika, hvernig þau fara fram hér á landi og hvernig má varast þau. Brynja ræðir einnig um hlutverk fjármálafyrirtækja í baráttunni gegn peningaþvætti, hvernig peningaþvætti og varnir gegn því hafa þróast á síðustu árum og hvað felst í áhættumiðaðri nálgun. Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
1/27/202346 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

4. UK Special (Ray Blake)

Ray Blake, podcaster, author and financial crime expert from The Dark Money Files discusses the state of anti-money laundering in the UK, the Natwest case and the difference between financial crime risk and financial crime compliance risk. This show is sponsored by Rapyd. Rapyd simplifies payments so you can focus on building your business.
1/20/202355 minutes, 8 seconds
Episode Artwork

3. Vernd uppljóstrara, Panamaskjölin og hlutverk blaðamanna (Helgi Seljan)

Blaðamaðurinn Helgi Seljan ræðir um vernd uppljóstrara, Panamaskjölin, tengsl siðferðis og laga og meintar mútugreiðslur Samherja.Helgi segir einnig frá áreitni í garð blaðamanna, falli þýsku greiðslumiðlunarinnar Wirecard og heimildum blaðamanna til þess að taka á móti gögnum sem eru fengin með ólögmætum hætti.Þessi þáttur er styrktur af Rapyd. Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
12/9/20221 hour, 22 minutes, 6 seconds