Ein Pæling
Icelandic, Social, 1 season, 297 episodes, 2 days, 23 hours, 16 minutes
Ein Pæling
Icelandic, Social, 1 season, 297 episodes, 2 days, 23 hours, 16 minutes
#286 Þórður Gunnarsson - Endamarkmiðið er að fækka fólki og minnka lífsgæði
Þórður Gunnarsson er hagfræðingur og viðskiptablaðamaður. Í þessum þætti er rætt um stöðu orkumála í breyttum heimi. Fjallað er um orkuskiptin, orkuöflun, matvæli, áherslur stjórnmálanna og eftirfarandi spurningum svarað:Getum við útrýmt notkun jarðefnaeldsneytis?Í hvaða stöðu er Ísland í orkumálum?Hvernig heim skiljum við eftir fyrir börnin okkar?Í hvaða stöðu er ríkisstjórnin?Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
2/4/2024 • 15 minutes, 2 seconds
#285 Þorgerður María Þorbjarnardóttir - Lífsgæði, samdráttur, orkuskortur og náttúruvernd
Þorgerður María er formaður Landverndar. Í þessum þætti er rætt um lífsgæði, loftslagsmál og náttúruvernd og eftirfarandi spurningum svarað:Hvað þýða kröfur um minnkandi losun fyrir þróun í fátækari löndum heimsins?Er hægt að halda í lífsgæði samhliða samdrætti?Er orkuskortur á Íslandi?Hver er sýn Landverndar gagnvart virkjunum?Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling
2/2/2024 • 17 minutes, 36 seconds
#284 Eldur Ólafsson - Sjaldgæfir málmar leggja undirstöður velmegunar
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq kemur í annað skiptið til þess að svara eftirfarandi spurningum:Afhverju eru Norðmenn að íhuga að grafa á hafsbotni?Í hvað eru sjaldgæfir málmar notaðir?Verður Ísland og Grænland að sameiginlegu efnahagssvæði?Afhverju er Kína OPEC málmheimsins?Hvað þarf að gera í orkumálum á Íslandi?Hvaða áhrif hafa sjaldgæfir málmar á alþjóðastjórnmálin?Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
1/31/2024 • 16 minutes, 14 seconds
#283 Diljá Mist Einarsdóttir - Þeir sem þagga niður umræðu bera ábyrgð á aukinni skautun
Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur í hlaðvarpið en í þessum þætti er lögð sérstök áhersla á málefni Palestínu, flóttafólks og hælisleitenda. Rætt er um hversu mörgum Ísland getur tekið á móti, tjaldbúðirnar á Austurvelli, rasisma, menningarleg áhrif innflutnings fólks á samfélagið, staðan í Evrópu og hvort að Ísland þurfi að læra af reynslu Breta og Norðurlandanna.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
1/27/2024 • 15 minutes, 53 seconds
#282 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Það ríkir neyðarástand í menntamálum
Þórarinn ræðir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í þessum þætti er rætt um stjórnmálin á Íslandi, verðmætasköpun og hugmyndafræði, stöðu menntamála og þá sérstaklega STEM greina og margt fleira.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
1/25/2024 • 17 minutes, 50 seconds
#281 Íris Róbertsdóttir - Ísland hefur ekki efni á að hafa þetta skólakerfi
Þórarinn ræðir við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, um orkumál, stöðu Vestmannaeyja en einna helst um skólamál og þær áherslubreytingar sem gerðar hafa verið með góðum árangri.Til að styrkja þetta hlaðvarp: www.pardus.is/einpaeling
1/23/2024 • 1 hour, 7 minutes, 15 seconds
#280 Sigurður Hannesson - Fyrirtæki fá ekki þá orku sem þau þurfa
Þórarinn ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdarstjóra Samtaka Iðnaðarins. Þetta er í annað skipti sem að tvímenningarnir ræða saman en að þessu sinni er rætt um meintan yfirvofandi orkuskorts og hvaða áhrif það muni koma til með að hafa á fyrirtæki í iðnaði. Fjallað er um húsnæðismál, verðmætasköpun, loftslagsmál og að sjálfsögðu mismunandi orkugjafa.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
1/20/2024 • 17 minutes, 35 seconds
#279 Hörður Arnarson - Rúllandi rafmagnsleysi ekki óhugsandi
Þórarinn ræðir við Hörð Arnarson um orkumál á Íslandi. Fjallað er um þann orkuskort sem Hörður telur yfirvofandi, sjónarmið umhverfissinna, loftslagsmál, flutningsgetu, jarðefnaeldsneyti og fleira.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
1/16/2024 • 16 minutes, 2 seconds
#278 Helga Vala Helgadóttir - Hvernig getum við tekið á móti flóttafólki frá öðrum menningarheimum
Þórarinn ræðir við Helgu Völu Helgadóttur, lögmann og fyrrum þingmann Samfylkingarinnar. Rætt er um stjórnmálin og hvort að Helga Vala sakni þess að vera á þingi. Þá er einnig talað um fólk á flótta og hvaða skyldum Ísland þarf að bera ábyrgð á í því að taka á móti fólki og samfélagsleg áhrif þess að taka á móti fólki frá öðrum menningarheimum. Að lokum er svo rætt um rétttrúnað og woke-kúltur. Tekist er á um réttmæti þess og afvegaleiðingu hugtaksins.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling.
1/11/2024 • 18 minutes, 29 seconds
#277 Jasmina Vajzović Crnac - Stefnuleysi ríkir í hælisleitendamálum
Þórarinn ræðir við Jasminu Vajzović Crnac um flóttamanna- og hælisleitendamál. Jasmína er stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þær áskoranir sem fylgja því að taka á móti flóttafólki og hælisleitendum. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
1/5/2024 • 14 minutes, 50 seconds
#276 Áramótadeigla 2023
Þórarinn, Ívar Elí og Eyþór ræða ýmis mál. Þar á meðal frásagnarlistina, stjórnmálin, ríkt fólk, fiskeldi, Grindavík, frelsi og fleira.Til að styrkja þetta framlag og fá aðgang að öllu efni hlaðvarpsins má fara á www.pardus.is/einpaeling
1/1/2024 • 1 hour, 27 minutes, 28 seconds
#275 Júlíus Viggó Ólafsson - Trúverðugleiki Sjálfstæðisflokksins, flóttafólk, PISA og ráðning Svanhildar Hólm
Þórarinn ræðir við Júlíus Viggó, formann Heimdallar. Tvímenningarnir ræða það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur komist hjá því að missa meira fylgi, hvernig flokknum hefur tekist að takast á við aukinn straum hælisleitenda, menntakerfið og PISA, og hvað Júlíusi finnst um að ráða Svanhildar Hólm sem nýjan sendiherra í Bandaríkjunum.Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
12/24/2023 • 22 minutes, 54 seconds
#274 Jón Pétur Zimsen - Hagsmunaöfl skólakerfisins í vörn eftir hörmulegar PISA niðurstöður
Jón Pétur Zimsen er aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla. Í þessum þætti er rætt um nýlegar niðurstöður PISA sem sýna að 40% grunnskólabarna útskrifast án þess að geta lesið sér til gagns. Jón Pétur telur lausn vera fyrir hendi til þess að bæta þessa stöðu en kerfis- og hagsmunaöfl innan skólakerfisins ríghalda í eigin hagsmuni á kostnað barnanna. Þetta telur hann að muni koma til með að leiða til áframhaldandi þróun niður á við er varðar getu barna til þess að takast á við verkefni lífsins síðar meir. Sú þróun muni svo koma til með að hafa hræðilegar samfélagslegar afleiðingar.Til þess að styrkja þetta hlaðvarp má gerast áskrifandi á www.pardus.is/einpaeling
12/18/2023 • 1 hour, 25 minutes, 43 seconds
#273 Ingvar Smári Birgisson - Flóttamenn, þriðja vaktin og íslensk stjórnmál
Þórarinn ræðir við Ingvar Sm ára Birgisson en í dag starfrækir hann lögmannsstofuna Firma. Ingvar var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar á meðan hann sinnti stöðu dómsmálaráðherra núverandi ríkisstjórnar. Hann er því sjóaður er varðar málefni hælisleitenda hér á landi en eins og þekkist lagði Jón Gunnarsson sérstaka áherslu á þann málaflokk í sinni ráðherratíð.Í þessu hlaðvarpi er rætt um stöðu mála á Íslandi er varðar hælisleitendur, menningu, þriðju vaktina, tjáningarfrelsi, íslensk stjórnmál og fleira.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
12/15/2023 • 17 minutes, 12 seconds
#272 Magnús Þorkell Bernharðsson - Hin fullkomna deila - Ísrael og Palestína
Þórarinn ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson um stöðu mála við botni Miðjarðarhafs. Magnús Þorkell er prófessor við Williams College þar sem hann kennir Mið-austurlandafræði. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi og hvaða áhrif stríðið mun koma til með að hafa á Mið-Austurlönd í heild sinni.Hlaðvarpið er hægt að finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
12/9/2023 • 18 minutes, 18 seconds
#271 Atli Þór Fanndal - Er Ísland lágspillingarland?
Atli Þór Fanndal er framkvæmdarstjóri Transparency International sem eru alþjóðasamtök sem berjast gegn spillingu.Í þessum þætti er fjallað um spillingu á Íslandi, fjölmiðla, stjórnmálamenningu og margt fleira.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
12/3/2023 • 14 minutes, 8 seconds
#270 Hanna Björg Vilhjálmsdóttir - KSÍ, kulnun kvenna, þriðja vaktin og aumingjar
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur, kynjafræðikennara við Borgarholtsskóla þar sem tekin er staðan á KSÍ-málinu svokallaða og árangur þeirrar baráttu sem hófst árið 2021. Einnig er rætt um mál Frosta Logasonar og Eddu Falak, þriðju vaktina, kulnun kvenna, valdaójafnvægi milli kennara og foreldra, ástarsorg og aumingja.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
11/29/2023 • 17 minutes, 8 seconds
#269 Heiðar Guðjónsson - Það sem skiptir mestu máli er að trúa á framtíðina
Þórarinn ræðir í þriðja sinn við Hei ðar Guðjónsson, fjárfesti og fyrrverandi forstjóra Sýnar.Í þessum þætti er rætt um:- Umhverfismál - Sorpu- Rétttrúnað- Hvort að Heiðar gæti séð fyrir sér að gerast formaður Sjálfstæðisflokksins- Fjölmiðlastéttina- Skattamál- Akademíuna- Deilu Palestínumanna og ÍsraelsmannaHlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
11/24/2023 • 26 minutes, 12 seconds
#268 Hlynur Guðmundsson - Sjálfstæðismaður ekki velkominn í Samtökin
Hlynur Guðmundsson lýsir reynslu sinni af því að vera samkynhneigður maður sem kemur seint út úr skápnum í litlu bæjarfélagi. Hann fluttist til Reykjavíkur í von um að kynnast fleira fólki á keimlíkum stað og hann var sjálfur þegar hann sótti nám en þar mætti honum andstaða vegna þess að hann er hægrisinnaður í stjórnmálum.Í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
11/20/2023 • 14 minutes, 47 seconds
#267 Brynjar Níelsson - Uppeldis- og hjónabandsráðgjöf
Brynjar Níelsson kemur enn eina ferðina og í þetta sinn býður hann upp á uppeldis- og hjónabandsráðgjöf. Farið er um víðan völl og meðal annars þessum spurningum svarað:Hvað á að skattleggja sjávarútveginn mikið?Er Kristrún Frostadóttir í rauninni vinstri manneskja?Viltu bjóða Þorsteini V. heim til þín?Hver sinnir þriðju vaktinni heima hjá Brynjari?Er ríkisstjórnarsambandið að grafa undan ímynd Sjálfstæðisflokksins?Hver er munurinn á Heimildinni og Mogganum?Afhverju fer ungt fólk í kulnun?Hvernig mun Samfylkingin takast á við útlendingamálin?Er Brynjar sár yfir að hafa ekki verið valinn ofar í síðasta prófkjöri?Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
11/13/2023 • 32 minutes, 2 seconds
#266 Már Wolfgang Mixa - Lækkun stýrivaxta var dýrkeypt tilraun
Þórarinn ræðir við Má Wolfgang Mixa um stöðu húsnæðismála. Rætt er um leigjendur, stýrivaxtahækkanir og lækkanir, stjórnmálin, hvata og fleira.Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling
11/11/2023 • 17 minutes, 39 seconds
#265 Þórður Pálsson - Maðurinn drap Guð og fór að trúa á ríkið
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um allt á milli himins og jarðar. Meðal annars menntamál, orkumál, woke-hugmyndafræðina, stríðið í Ísrael og Palestínu, heimspeki, íslensk stjórnmál, og kjarasamninga.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
11/4/2023 • 23 minutes, 8 seconds
#264 Orka, matvæli og raunhagkerfið (með Þórði Gunnarssyni)
Þórarinn ræðir við Þórð Gunnarsson um framtíðarhorfur í efnahagsmálum. Rætt er um orkumál, alþjóðamál, matvælaöryggi, lánamál og stöðu Íslands í öllum þessum málum.Til þess að styrkja hlaðvarpið má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
11/1/2023 • 58 minutes, 2 seconds
#263 Ísrael, Palestína og hatursorðræða (með Lenyu Rún Taha Karim)
Þórarinn ræðir öðru sinni við Lenyu Rún Taha Karim.Að þessu sinni er rætt um hatursorðræðu, deilu Ísrael og Palestínu, íslensk stjórnmál og orkumál.Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling
10/28/2023 • 14 minutes, 33 seconds
#262 SA verði að mæta grjóthörð í kjaradeilurnar (með Magdalenu Torfadóttur)
Þórarinn ræðir við viðskiptablaðamanninn Magdalenu Torfadóttur um ýmis mál.Rætt er um efnahagsmál, stjórnmálin, áherslur í menntastefnu háskóla á Íslandi, snjóhengju lána og verðbólguna.Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
10/22/2023 • 14 minutes, 53 seconds
#261 Hvað þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gera? (með Birgi Ármannssyni)
Þórarinn ræðir við Birgi Ármannsson um ríkisstjórnarsambandið, Lindarhvolsmálið, heilbrigðiskerfið og hvort að þessi ríkisstjórn geti starfað saman.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling.
10/19/2023 • 16 minutes, 19 seconds
#260 Afsögn Bjarna Ben - Hvað nú? (með Birni Inga Hrafnssyni)
Þórarinn ræðir við Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans, um stöðu ríkisstjórnarinnar. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi, stöðu stjórnarandstöðunnar, stöðu Bjarna Benediktssonar, fráfarandi fjármálaráðherra, stöðu Samfylkingarinnar og margt fleira.Í heild á www.pardus.is/einpaeling
10/12/2023 • 13 minutes, 22 seconds
#259 Hvað myndi Viðreisn gera? (með Sigmari Guðmundssyni)
Þórarinn ræðir við Sigmar Guðmundsson um ríkisstjórnarsambandið, stjórnmálin, flóttamannamál og fleira.
10/10/2023 • 14 minutes, 42 seconds
#258 Gervigreind, rökhugsun og framtíðin (með Þorsteini Siglaugssyni)
Þórarinn og Þorsteinn Siglaugsson ræða um gervigreind, ákvörðunartöku, hagfræði, bók Þorsteins sem nefnist From Symptoms to Causes: Applying the Logical Thinking Process to an Everyday Problem og margt fleira.
10/6/2023 • 1 hour, 1 minute, 47 seconds
#257 Er Flokkur fólksins flokkur góða fólksins? (með Eyjólfi Ármannssyni)
Þórarinn ræðir við Eyjólf Ármannsson um stemninguna á þinginu, stjórnmálin, málefni öryrkja, húsnæðis- og flóttamannamál.
10/4/2023 • 17 minutes, 11 seconds
#256 Er Ásgeir seðlabankastjóri á villigötum? (með Ólafi Margeirssyni)
Er seðlbankastjóri á villigötum? Er verðtryggingin svikamylla? Hvað getur ríkisstjórnin gert? Geta lífeyrissjóðirnir bjargað málunum og ættu þeir að gera það? Um hvað fjallar bók Ólafs Margeirssonar?Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti og mörgum fleirum.Áskrift: www.pardus.is/einpaelingBók Ólafs: https://www.amazon.com/-/es/%C3%93lafur-Margeirsson-ebook/dp/B0CCNZQQMM
9/28/2023 • 20 minutes, 37 seconds
#255 Hvað gerist ef Samfylkingin tekur við? (með Jóhanni Páli Jóhannssyni)
Hvað ætlar Samfylkingin að gera ef hún kemst í ríkisstjórn? Er Samfylkingin tilbúin að vinna með Sjálfstæðisflokknum? Mun Samfylkingin fjarlægjast Twitter-herinn? Öllum þessum spurningum og mörgum öðrum er svarað í þessu hlaðvarpi. Hlaðvarpið má sjá í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
9/26/2023 • 13 minutes, 59 seconds
#254 Getur Úkraína unnið stríðið? (Með Hilmari Þór Hilmarssyni)
Þórarinn Hjartarson talar við Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri um málefni Úkraínu, Kína og breytinga valdhafa í alþjóðamálum.
9/23/2023 • 1 hour, 52 minutes, 26 seconds
#253 Kynfræðsla, hinseginfræðsla og börn (með Ivu Adrichem)
www.pardus.is/einpaelingÍ þessum þætti er fjallað um BDSM-hneigð, málefni kynseginfræðslu og kynfræðslu, transmál, hinseginbörn, stjórnmálin, Þorstein V. Einarsson, réttindabaráttur undanfarinna ára og margt fleira.
9/20/2023 • 33 minutes, 46 seconds
#252 Beitir sér fyrir útrýmingu Sjálfstæðisflokksins þjóni flokkurinn ekki þjóðinni (með Arnari Þóri Jónssyni)
Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer hörðum orðum um sinn eigin flokk og segist vera tilbúinn að beita sér fyrir útrýmingu flokksins kjósi flokkurinn ekki að breyta um stefnu í málefnum lagaumgjörðar Evrópusambandsins og bókun 35 sem veldur forgangi laga Evrópusambandsins gagnvart lögum sem Alþingi setur.Í þessum þætti er rætt um þau fjölmörgu mál sem að þessu snúa, heimspeki, frelsi og fleira.
9/17/2023 • 17 minutes, 5 seconds
#251 Pólitísk ráðgjöf til allra flokka (með Stefáni Óla Jónssyni)
Getur Sjálfstæðisflokkurinn náð fyrri styrk? Hvað er Sósíalistaflokkurinn? Þurfa Píratar að fara aftur í ræturnar? Afhverju er ekki eftirspurn eftir Viðreisn? Getur Samfylkingin náð fylgi skoðanakannanna í kosningum? Er Framsókn stefnulaus flokkur? Hvað þarf Flokkur fólksins að gera? Hafði Miðflokkurinn rétt fyrir sér? Hvað gerir VG?Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti.
9/15/2023 • 1 hour, 24 minutes, 7 seconds
#250 Þarf lögreglan rafbyssur og forvirkar rannsóknarheimildir? (með Fjölni Sæmundssyni)
Þórarinn ræðir við Fjölnir Sæmundsson um störf lögreglunnar. Fjallað er um aukna hörku í undirheimunum, forvirkar rannsóknarheimildir, hryðjuverkamálið, hvort að lögreglan eigi að bera rafbyssur, menninguna og fleira.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
9/10/2023 • 12 minutes, 1 second
#249 Kerfið stendur vörð um kerfið (með Jóni Ívari Einarssyni)
Jón Ívar Einarsson er læknir og kennari við Harvard háskóla. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Jón Ívar um heilbrigðiskerfið á Íslandi og þær áskoranir sem að það mun koma itl með að þurfa að þreyta á næstu árum og áratugum. Til þess að áskotnast áskrift má finna allt efni í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
9/5/2023 • 46 minutes, 28 seconds
#248 Vinstri græn skortir heilindi (með Jóni Gunnarssyni)
Þórarinn ræðir við Jón Gunnarsson, fyrrum dómsmálaráðherra og þingmann Sjálfstæðisflokksins, um ríkisstjórnina, útlendingamál og hvalveiðibannið.Facebook síða: https://www.facebook.com/groups/708593984436728Áskrift: www.pardus.is/einpaeling
8/30/2023 • 16 minutes, 36 seconds
#247 Hvað getur Ísland tekið á móti mörgum flóttamönnum á ári? (með Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur))
Þórarinn ræðir við Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur um málefni hælisleitenda á Íslandi og margt fleira.Facebook síða: https://www.facebook.com/groups/708593984436728Áskrift: www.pardus.is/einpaeling
8/29/2023 • 15 minutes, 54 seconds
#246 Gerði Katrín mistök með myndun þessarar ríkisstjórnar? (með Ólafi Þ. Harðarsyni og Bjarna Halldóri Janussyni)
Þórarinn, Ólafur Þ. Harðarson og Bjarni Halldór Janusson fara yfir stjórnmálin nú þegar stutt er í upphaf þingvetursins.
8/27/2023 • 1 hour, 14 minutes, 9 seconds
#245 Orkumál og flóttamenn (með Sigríði Á. Andersen)
Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaelingSigríður Á. Andersen er fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður sem að er óhrædd við að láta í ljós sínar skoðanir. Hún hefur undanfarið gagnrýnt stjórnvöld í málefnum orku- og loftslagsmála ásamt því að telja málefni flóttafólks og hælisleitenda vera í ólestri. Í þessum þætti er rætt um þau mál.
8/24/2023 • 22 minutes, 1 second
#244 Ef sjálfstæðis- og framsóknarmenn hafa einhver prinsip þá slíta þeir stjórnarsambandinu (með Vilhjálmi Birgissyni)
Þórarinn ræðir við Vilhjálm Birgisson um ýmis mál. Má þar nefna hvalveiðibannið, kjaramálin, stjórnmál og hvort meta eigi menntun til launa.
8/21/2023 • 21 minutes, 5 seconds
#243 Hvernig getur Sjálfstæðisflokkurinn starfað með flokki sem hefur rofið traust? (með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur)
www.pardus.is/einpaelingHeiðrún Lind Marteinsdóttir er er lögmaður og núverandi framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Í þessum þætti er rætt um hvalveiðibannið svokallaða, stöðu sjávarútvegsins, spillingu, stjórnmálin og margt fleira.
8/17/2023 • 20 minutes, 49 seconds
#242 Uppgangur öfgaafla verður í boði þeirra sem þagga niður umræðu (með Diljá Mist Einarsdóttur)
www.pardus.is/einpaelingDiljá Mist Einarsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Diljá um stöðu ríkisstjórnarinnar, hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur og útlendingamál.
8/13/2023 • 17 minutes, 31 seconds
#241 Þó svo að ríkisstjórnarsambandið sé dautt er ekki víst að það muni hætta (með Ólafi Arnarsyni)
www.pardus.is/einpaelingÓlafur Arnarson er hagfræðingur og viðskiptablaðamaður hjá Eyjunni. Í þessu hlaðvarpi er rætt um alþjóðamálin og hvernig stöðu Íslands í kviku umhverfi í breyttum heimi. Einnig er rætt um stjórnmálin á Íslandi og stöðu ríkisstjórnarinnar og annarra flokka á þingi.
8/11/2023 • 21 minutes, 2 seconds
#240 Hvað gerist þegar vextir föstu lánanna losna? (með Birni Berg Gunnarssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um afleiðingar þess þegar vextir þeirra lána sem tekin voru á föstum kjörum á faraldurstímum. Þau lán voru tekin á töluvert betri kjörum en hægt er að fá í dag og afleiðingar þess á heimili sem tóku stór lán sem munu, að öllum líkindum, bera töluvert hærri greiðslubyrði en áður.
7/31/2023 • 18 minutes, 59 seconds
#239 Lýðheilsa og ójöfnuður (með Sigurrós Elddísi)
Sigurrós Elddís er meistaranemi sem hefur verið að rannsaka lýðheilsu á Íslandi og tengingu hennar við ýmis samfélagsmál. Í þessum þætti er rætt um tengsl lýðheilsu og ójöfnuðar.
7/28/2023 • 20 minutes, 32 seconds
#238 Er hægt að treysta íslenska bankakerfinu? (með Herði Ægissyni)
Þórarinn ræðir við Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja, um Íslandsbankasöluna, fjármálakerfið, stjórnmálin og fleira.
7/21/2023 • 16 minutes, 53 seconds
#237 "Alþingi er óskilvirkasti vinnustaður sem ég hef unnið á" (Með Þorsteini Víglundssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞorsteinn Víglundsson er fyrrum ráðherra og Alþingismaður en í dag er hann forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteinn. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Þorstein um reynslu hans sem ráðherra og áhrif stjórnmálanna á skilvirkni markaðarins.www.pardus.is/einpaeling
7/17/2023 • 1 hour, 2 minutes, 27 seconds
#236 Er faraldurinn búinn? (með Þórólfi Guðnasyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn talar við Þórólf Guðnason þar sem litið er í baksýnisspegilinn og tveggja ára tímabil faraldursins skoðað.
7/13/2023 • 16 minutes, 15 seconds
#235 Getur ríkisstjórnin haldið áfram? (með Brynjari Níelssyni)
www.pardus.is/einpaeling
7/7/2023 • 22 minutes, 10 seconds
#234 Samskipti á tímum tæknibreytinga (með Ernu Mist)
Rætt er um sannleikann, áhrif tækninnar á samskipti, samfélagsbreytingar og margt fleira.
7/2/2023 • 58 minutes, 10 seconds
#233 Misheppnað valdarán í Rússlandi (með Alberti Jónssyni)
www.pardus.is/einpaelingAlbert Jónsson er sérfræðingur í utanríkismálum og með mikla reynslu við störf á þeim vettvangi. Í þessum þætti er rætt um misheppnaða valdaránstilraun Yevgeny Prigozhin, stríðið í Úkraínu, Kína, Taiwan og aðrar vendingar í alþjóðastjórnmálum
6/26/2023 • 15 minutes, 53 seconds
#232 Sýn sósíalista á borgina (með Trausta Breiðfjörð Magnússyni)
Þórarinn ræðir við Trausta Breiðfjörð Magnússon, sem er borgarfulltrúi sósíalista. Rætt er um launamál, myglumál, reksturinn og margt fleira.
6/25/2023 • 14 minutes, 6 seconds
#231 Heilbrigðiskerfið, húsnæði og Framsókn (með Stefáni Einari Stefánssyni)
Þórarinn ræðir við Stefán Einar Stefánsson um heilbrigðiskerfið, stjórnmálin, húsnæðismál og margt fleira.
6/18/2023 • 19 minutes, 9 seconds
#230 Útgjöldin eru vandamálið (með Ásdísi Kristjánsdóttur)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs. Rætt er um kjaramál, stjórnmálin, húsnæðismál og fleira.
6/15/2023 • 19 minutes, 9 seconds
#229 Þingslit, kjarasamningar og úkraínskar kjúklingabringur (með Þórarni Inga Péturssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn Ingi Pétursson er þingmaður Framsóknarflokksins. Í þessum þætti ræða hann og nafni hans um þinglok, kjarasamninga, landbúnað, úkraínskar kjúklingabringur og Brynjar Níelsson.
6/10/2023 • 18 minutes, 14 seconds
#228 Hvernig virkar fjármálakerfið? (með Andrési Magnússyni)
Andrés Magnússon, geðlæknir og prófessor, ræðir bók sem hann skrifaði um fjármálakerfi og peningaprentun.
6/2/2023 • 15 minutes, 42 seconds
#227 Skák, leikjafræði og pólitík (með Birki Karli Sigurðssyni og Leifi Þorsteinssyni)
www.pardus.is/einpaelingBirkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson stýra hlaðvarpinu Chess After Dark þar sem þeir fjalla um menningu, stjórnmál, fótbolta, og, síðast en ekki síst, skák.Í þessum þætti er rætt um alla þessa hluti en sérstaklega stjórnmál. Spekúlerað er um framvindu þeirra flokka sem mælast stærstir í dag, Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn og rýnt í stöðu þeirra með tilliti til mannafla.
5/26/2023 • 17 minutes, 38 seconds
#226 Framleiðni er týnt hugtak í efnahagsumræðum (með Konráði S. Guðjónssyni)
Þórarinn ræðir við Konráð S. Guðjónsson um efnahagsmál, verðbólgu og hugmyndafræði.
5/22/2023 • 16 minutes, 22 seconds
#225 Eru fjölmiðlar í gíslingu stjórnmálamanna? (með Þórhalli Gunnarssyni)
Þórarinn ræðir við Þórhall Gunnarsson um ríkisstyrk fjölmiðla, stöðu RÚV á auglýsingamarkaði, stjórnmálin og margt fleira.
5/20/2023 • 16 minutes, 30 seconds
#224 Dómarar eiga ekki að reyna að þóknast viðhorfi almennings (með Jóni Steinari Gunnlaugssyni)
Þórarinn ræðir við Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrum hæstaréttardómara, um stjórnmál, stöðu dómsvaldsins á Íslandi og margt fleira.
5/14/2023 • 19 minutes, 59 seconds
#223 Deyja hugsjónir þegar fólk fær völd? (með Evu Hauksdóttur)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Evu Hauksdóttur um tjáningarfrelsi, transmál, mannréttindi og margt fleira.
5/9/2023 • 23 minutes, 53 seconds
#222 Við lifum á tímum þar sem allir eru hetjur (með Dóra DNA)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn Hjartarson ræðir við Dóra DNA um grín, kynferðisafbrot, slaufanir og stjórnmál.
4/29/2023 • 23 minutes, 39 seconds
#221 Deiglan - Kannski ættir þú að skammast þín
Eyþór, Ívar og Þórarinn fjalla um skömm og félagslegt taumhald.
4/23/2023 • 20 minutes, 37 seconds
#220 Skaðaminnkun og fíknivandi (með Svölu Ragnheiðar- Jóhannesardóttur)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Svölu Jóhannesardóttur um skaðaminnkandi úrræði við fíknivanda. Svala er sérfræðingur í skaðaminnkun hjá Matthildarsamtökunum og er ein helsta talskona slíkra úrræða. Þórarinn hefur sínar efasemdir sem þau ræða í löngu máli í þessum þætti.
4/16/2023 • 29 minutes, 34 seconds
#219 Slagorð og slaufunarstríð (með Hrafni Haraldssyni Dungal)
Www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Hrafn Haraldsson Dungal um slagorða- og slaufunarmenningu.
4/12/2023 • 16 minutes, 45 seconds
#218 Fighting censorship (with Toby Young)
Toby Young er stofnandi Free Speech Union sem að berst fyrir tjáningarfrelsi bæði í Bretlandi og víðar. Hann skrifar fyrir the Spectator og hefur mikla reynslu á sviði fjölmiðlunar. Einnig er hann gagnrýninn á stöðu upplýsingadreifingar og samfélagsmiðla.
4/7/2023 • 1 hour, 36 seconds
#217 NATO: Kjarnorkusprengjur, herbrölt og hernaðarandstæðingar (með Stefáni Pálssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Stefán Pálsson um NATO, hernaðarandstöðu á Íslandi, Íraksstríðið, fall Sovíetríkjanna og margt fleira.
3/30/2023 • 22 minutes, 25 seconds
#216 Hvað er að gerast í hagkerfinu? (Með Má Wolfgang Mixa)
Már Wolfgang Mixa er fjármálafræðingur og lektor við Háskóla Íslands. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Má um fall bandarískra Banka og Credit Suisse og möguleg áhrif á Ísland, húsnæðismál, stjórnmál, kjarasamninga og Tenerife.
3/22/2023 • 22 minutes, 6 seconds
#215 Það er alltaf einhverjum misboðið (með Brynjari Níelssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um flóttamannamál, transmál, Covid-19, stéttabaráttu og woke-isma.Hvað finnst Brynjari um Óperumálið. Er hann latasti stjórnmálamaður samtímans? Hvert er viðhorf hans til föstudagsþáttar Gísla Marteins? Hvert er viðhorf hans til málefni transfólks?Öllum þessum spurningum er svarað hér.
3/18/2023 • 23 minutes, 9 seconds
#214 Það eru bara lúserar á leigumarkaði (með Ólafi Margeirssyni)
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson, doktor í hagfræði, um húsnæðismálin á Íslandi.Rætt er um verðbólguna, kjarasamningana, félagsleg áhrif húsnæðisskorts, stjórnmálin og fólk á leigumarkaði.
3/10/2023 • 48 minutes, 16 seconds
#213 Stjórnmálin eru loksins að byrja aftur (með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, um íslensk stjórnmál, rétttrúnaðinn, bókmenntir og margt fleira.
3/8/2023 • 21 minutes, 18 seconds
#212 Frelsi og bönn (með Lenyu Rún Taha Karim)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Lenyu Rún, varaflokksþingmann Pírata, um stjórnmál á Íslandi, hatursorðræðu, frelsi og fleira.
3/4/2023 • 20 minutes, 46 seconds
#211 Skólakerfið er að bregðast börnunum okkar 2 (með Hermundi Sigmundssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir öðru sinni við Hermund Sigmundsson um skólakerfið, hugmyndafræði, framtíðarhorfur og fleira.
3/1/2023 • 1 hour, 12 minutes, 5 seconds
#210 Skólakerfið er á rangri braut (með Jóni P étri Zimsen)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen um skóla- og menntakerfið á Íslandi. Jón Pétur hefur náð miklum árangri í þeim skólum sem hann hefur starfað hjá en stjórnvöld og hagsmunaaðilar virðast hafa lítinn áhuga á að kynna sér af hverju sá árangur stafar.Rætt er um einelti, símanotkun, hugmyndafræði, borgarpólitíkina og fleira.
2/25/2023 • 19 minutes, 55 seconds
#209 Tveir stuttir strámenn - Kjaramál og hinir ofurríku (með Þórði Snæ Júlíussyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um kjaramál, pólitík og stöðu efnahagsmála á Íslandi.
2/21/2023 • 17 minutes, 53 seconds
#208 Kynfrelsi, klám og vændi (með Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur)
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um kynfrelsi, klám og vændi. Rætt er um menningarleg áhrif þessara þriggja hluta, fræðsluefni, stjórnmálin og fleira.
2/15/2023 • 20 minutes, 15 seconds
#207 Hrunið, verðbólga og kjaramál (með Ásgeiri Brynjari Torfasyni)
Www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Ásgeir Brynjar Torfason um efnahagshorfur á Íslandi. Rætt er um Hrunið 2008, áhrif stjórnvalda, verðbólgu, kjaramál og MMT (Modern monetary theory).
2/12/2023 • 19 minutes, 21 seconds
#206 Aðför opinberrar stofnunar að tjáningarfrelsi (með Ivu Adrichem)
www.pardus.is/einpaelingIva Adrichem var fjarlægð úr myndbandi Ferðamálastofu, ÖBÍ og Sjálfsbjargar um aðgengismál fatlaðs fólks. Ástæðan var sú að hún þótti hafa óæskilegar skoðanir.Iva fer yfir málið í hlaðvarpinu Ein pæling.
2/9/2023 • 18 minutes, 31 seconds
#205 Kauphöllin - Óvissutímar og kjaradeilur (með Magnúsi Harðarsyni)
Þórarinn ræðir við Magnús Harðarson um kauphöllina og fjármál á Íslandi.
2/3/2023 • 18 minutes, 49 seconds
#204 Íslenskir þrælar og rúllukragapeysur í Borgartúni (með Gunnari Smára Egilssyni)
www.pardus.is/einpaelingGunnar Smári Egilsson mætir enn á ný. Rætt er um kjaradeilur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, veruleika hinna lægstlaunuðu í samanburði við mann í rúllukragapeysu í Borgartúni og fleira. Er Vilhjálmur Birgisson skúrkurinn? Hvernig á að takast á við verðhækkanir húsnæðismarkaði? Virka verkföll? Öllum þessum spurningum er svarað hér.
1/29/2023 • 23 minutes, 17 seconds
#203 Rauði þráðurinn (með Ögmundi Jónassyni)
www.pardus.is/einpaelingÖgmundur Jónasson hefur haft víðtæk áhrif á íslensk stjórnmál og stjórnmálamenningu. Hann er yfirlýstur sósíalisti, fyrrum dómsmálaráðherra, verkalýðsleiðtogi, fréttamaður og fleira. Í þættinum Ein pæling er rætt við Ögmund um málfrelsi, Kúrda, hugmyndafræði, forræðishyggju, hina ósýnilegu hönd markaðarins, nútímastjórnmál á Íslandi og margt fleira.
1/26/2023 • 19 minutes, 21 seconds
#202 Framtíð hægrisins (með Ísaki Rúnarssyni)
Www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Ísak Rúnarsson um framtíð hægrisins. Rætt er um hugmyndafræði, íslenska hægrið í samanburði við þróun þess erlendis, ungt fólk, rétttrúnað og fleira.
1/21/2023 • 16 minutes, 59 seconds
#201 Nýjar átakalínur stjórnmálanna (með Arnari Þór Jónssyni)
Www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir enn á ný við Arnar Þór Jónsson. Að þessu sinni er rætt um hugmyndir Arnars um nýjar átakalínur stjórnmálanna, skólamál, tjáningarfrelsi, lýðskrum og fleira.
1/17/2023 • 21 minutes, 21 seconds
#200 Málfrelsi og það sem ekki má ræða (með Þorsteini Siglaugssyni)
Þórarinn ræðir við Þorstein Sigulaugsson, formann félagsins Málfrelsi - samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði. Umræðuefnin snúast um mál- og tjáningarfrelsi, rétttrúnað og fleira.
1/14/2023 • 20 minutes, 46 seconds
#199 Stjórnmál og íþróttir (með Stefáni Pálssyni)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn og Stefán Pálsson ræða um stjórnmál og íþróttir.
1/7/2023 • 20 minutes, 2 seconds
#198 Fólk sem telur sig vera umburðarlynt verður að geta þolað umræðu (með Diljá Mist)
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir við Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, um útilokunarmenningu, orkumál, hugmyndafræði og margt fleira
1/3/2023 • 21 minutes, 21 seconds
#197 Áramótadeigla
www.patreon.com/einpaelingEyþór, Ívar og Þórarinn gera upp árið 2022.
12/31/2022 • 35 minutes, 41 seconds
#196 Yfirgengilegri ávöxtunarkröfu leigufélaga er ávallt velt yfir á leigjendur (með Guðmundi Hrafni Arngrímssyni)
www.patreon.com/einpaelingAlma leigufélag komst nýlega í fréttirnar fyrir yfirgengilegar hækkanir á leiguíbúðum í sinni eigu. Guðmundur Hrafn telur þetta ekki endilega vera frábrugðið því sem tíðkast hefur á leigumarkaði heldur sé vaninn að ávöxtunarkröfur og áhættufjárfestingar eiganda leigufélaga og íbúðarhúsnæða sé nær alltaf velt yfir á þá sem eru á leigumarkaði.
12/24/2022 • 23 minutes, 44 seconds
#195 Skólakerfið er að bregðast börnunum okkar (með Hermundi Sigmundssyni)
www.patreon.com/einpaelingHermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við háskólann í Þrándheimi í Noregi. Hann býr yfir áratuga reynslu í rannsóknum á lestrarhæfni og árangri skólabarna sem hann hefur kynnt víða um heim. Hermundur hefur stórkostlegar áhyggjur af þróun skólamála hér á landi og telur hann að ef að ekki sé tekist á við þennan vanda verði erfitt að vinda ofan af því.
12/21/2022 • 26 minutes, 15 seconds
#194 Hrunið og Landsdómsmálið (með Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni)
www.patreon.com/einpaelingHannes Hólmsteinn skrifaði nýlega bók um Landsdómsmálið. Nefnist hún Landsdómsmálið - Stjórnmálarefjar og Lagaklækir. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Hannes um bókina, hrunið 2008, pólitíska ábyrgð, og margt fleira.
12/17/2022 • 25 minutes, 56 seconds
#193 Deiglan - 2
Www.Patreon.com/einpaelingÞórarinn, Ívar Elí og Eyþór kryfja helstu málefnin.
12/15/2022 • 25 minutes, 42 seconds
#191 "Hvaðan koma frelsismálin? Þau koma frá hægrinu." (með Andreu Sigurðardóttur)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Andreu Sigurðardóttur um kjaramál, femínisma, tjáningarfrelsi og fleira.
12/9/2022 • 26 minutes, 29 seconds
#190 Coleman Hughes - Is America ready for a color blind society?
Tóti speaks with Coleman Hughes about police brutality, political discourse, culture and more.
12/3/2022 • 47 minutes, 39 seconds
Fyrsta live-hlaðvarpið með Brynjari Níelssyni - Forvirkar rannsóknarheimildir og hælisleitendur
Upptaka af fyrsta live-hlaðvarpi Einnar Pælingar en gesturinn var Brynjar Níelsson og rætt var um forvirkar rannsóknarheimildir og hælisleitendur.
11/30/2022 • 1 hour, 33 minutes, 22 seconds
#188 Orkuskiptin og vannýtt tækifæri Íslands (með Heiðari Guðjónssyni)
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/14455/Þórarinn ræðir við Heiðar Guðjónsson í annað skiptið. Heiðar skrifaði nýverið grein um orkuskiptin og vannýtt tækifæri Íslands til þess að hafa marktæk áhrif gagnvart þeim krefjandi áskorunum sem Evrópa stendur nú frammi fyrir vegna innrásar Rússa í Úkraínu.
11/23/2022 • 31 minutes, 28 seconds
#187 Rafíþróttir eða tölvuleikir (viðtal við Aron Ólafsson)
Miðar á live-show: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/14455/Aron Ólafsson er framkvæmdarstjóri Rafíþróttasamband Íslands. Í þessu hlaðvarpi er rætt um hlutverk sambandsins, hvort að tölvuleikir eigi að teljast til íþrótta, samanburð við aðrar íþróttir og margt fleira.
11/18/2022 • 31 minutes, 32 seconds
#186 Deiglan - 1
Miðar á live-show: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/14455/Eyþór, Ívar Elí og Þórarinn ræða um flóttamannamál, jöfn tækifæri, stríðið í Úkraínu og fleira.
11/14/2022 • 32 minutes, 56 seconds
#185 Science teaches you to not be afraid of being wrong (with Lawrence Krauss)
Lawrence Krauss joins Toti for the second time. Now to discuss the importance of science, black holes, controversies and much more.
11/11/2022 • 33 minutes, 44 seconds
#184 Hvor mun sigra, Gulli eða Bjarni? (með Gísla Frey Valdórssyni)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Gísla Frey Valdórsson, blaðamann á viðskiptadeild Morgunblaðsins og hlaðvarpsstjórnandi Þjóðmála. Í þættinum er rætt um hvor muni bera sigur úr býtum í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins, Twitter herinn, hvernig Gísli myndi ráðleggja Kristrúnu Frostadóttur væri hann hennar persónulegi ráðgjafi og margt fleira.
11/3/2022 • 32 minutes, 47 seconds
#183 Foreigner's experience of the American education system (with Bruce Bagnall)
In 2016-17 Þórarinn and Bruce Bagnall shared an experience in an American academic institution. This is what they experienced.
10/31/2022 • 48 minutes, 42 seconds
#182 Hugmyndir um gyllta fortíð eru bull (með Boga Ágústssyni)
wwww.patreon.com/einpaelingBogi Ágústsson er fréttamaður á RÚV til fjörutíuogsex ára. Í þessu hlaðvarpi ræðir Bogi um hvernig fjölmiðlar hafa breyst, mikilvægi tengsla Ísland við Norðurlöndin í fjölmiðlun, hina gylltu fortíð, hvernig stjórnmál hafa breyst og margt fleira.
10/28/2022 • 30 minutes, 32 seconds
#181 Afglöp íslenskra stjórnvalda og endurvinnslufyrirtækja (með Bjartmari Oddi Þey Alexanderssyni)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Bjartmar Odd Þey Alexandersson um lýgilega samantekt Bjartmars í Stundinni um endurvinnslumál á Íslandi. Rætt er um glerendurvinnslu, Úrvinnslusjóð, plastið í Svíþjóð og tregðu af hálfu iðnaðarins gagnvart upplýsingaöflun blaðamanna.
10/24/2022 • 28 minutes, 44 seconds
#180 Allt mun verða dýrara (með Birni Berg Gunnarssyni)
Þórarinn ræðir efnahagshorfur við Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka.www.patreon.com/einpaeling
10/21/2022 • 31 minutes, 3 seconds
#179 Stjórnmálaspjall með Ólafi Þ. Harðarsyni
Stutt upptaka með Ólafi Þ. Harðarsyni en mixerinn gaf upp öndina og restin af upptökunni eyðilagðist.Á þeim stutta tíma er rætt um framtíðarhorfur í stjórnmálunum og hryðjuverkamálið.
10/14/2022 • 18 minutes, 42 seconds
#178 Forvirkar rannsóknarheimildir og skotvopn lögreglumanna (með Margréti Valdimarsdóttur)
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur í þriðja sinn. Að þessu sinni er rætt um forvirkar rannsóknarheimildir, vopnaburð lögreglu, rafbyssur, ACAB og Thin Blue Line hugmyndafræðin og lagaleg viðbrögð í kjölfar hryðjuverkaógnar.
10/11/2022 • 38 minutes, 39 seconds
#177 Stéttarfélagafrelsi (með Óla Birni Kárasyni)
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstu dögum leggja fram tillögu um breytingu á aðild launþega að stéttarfélögum. Hér er rætt við Óla Björn um stéttarfélög, vanþekkingu fólks á réttindum sínum, stjórnmálamenningu, frumvarp Jóns Gunnarssonar um auknar rannsóknarheimildir lögreglumanna, hugmyndafræði og margt fleira.
10/7/2022 • 38 minutes, 32 seconds
#176 "The Fight for the Truth should be for the Fight for the Truth. Period." (with Gad Saad)
Gad Saad is an evolutionary biologist who focuses on consumer behavior. In this conversation Tóti and Gad discuss various topics. Including academic culture, universal truths and postmodernism which is the focus of his book, the Parasitic mind. In the latter half the conversation moves towards Gad's clash with Sam Harris.To support this work: www.patreon.com/einpaeling
10/2/2022 • 1 hour, 1 minute, 13 seconds
#175 Leikhús og rétttrúnaður (með Jakobi Bjarnari Grétarssyni)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn fær til sín góðvin þáttarins hann Jakob Bjarnar Grétarsson. Að þessu sinni er rætt um leikrit sem sætti mikilli gagnrýni nýverið og nefnist Sem á himni. Var það gagnrýnt fyrir að hafa sýnt fötluðum lítilsvirðingu og ekki vera nægilega nærgætin í sinni túlkun á þessu sænska leikriti.
9/28/2022 • 33 minutes, 38 seconds
#174 Hver verður stefna Samfylkingarinnar undir stjórn Kristrúnar Frostadóttur? (með Kristrúnu Frostadóttur)
Kristrún Frostadóttir kemur í heimsókn í hlaðvarpið til þess að ræða sínar áherslur ef hún verður kjörin formaður Samfylkginarinnar en hún bauð sig nýlega fram til þess að sinna því hlutverki.
9/24/2022 • 41 minutes, 22 seconds
#173 Hver er staða Íslands í loftslags- og orkumálum? (með Guðlaugi Þór Þórðarsyni)
Guðlaugur Þór er Umhverfis, orku- og loftslagsráðherra og situr á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Guðlaug um áhrif stríðsins á orkumál, hvort að Íslands sé í stöðu til þess að selja orku erlendis, loftslagsmarkmið og fleira.
9/22/2022 • 58 minutes, 28 seconds
#172 Will British Banter save Free Speech? (with Konstantin Kisin)
Tóti speaks with Konstantin Kisin about his new book; An Immigrants Love Letter to the West. Konstantin is a comedian and a host of the increasingly popular podcast Triggernometry.The conversation covers a wide range of topics, including fatherlessness and the breakdown of the family structure, gratitude, Western culture, free speech, the mainstream media, and Konstantin's experience growing up in the Soviet Union.To support this work visit: www.patreon.com/einpaelingFor audio version: https://www.spreaker.com/user/1169418...Contact: einpaeling@gmail.com
9/18/2022 • 1 hour, 9 minutes, 47 seconds
#171 Sósíalismi og kapítalismi (með Tjörva Schiöth)
Þórarinn ræðir við Tjörva Schiöth um hvort sé betra efnahagskerfi fyrir Ísland, sósíalismi eða kapítalismi.
9/13/2022 • 33 minutes, 11 seconds
#170 Ef markmiðið er að komast að sannleikanum þá hlýtur að vera í lagi að ræða hlutina (með Sigurði Má Sigurðssyni)
Sigurður Már er meðstofnandi Arcade.is en hann og Þórarinn störfuðu áður saman við dyragæslu sem meðal annars er rætt um í hlaðvarpinu. Farið er um víðan völl. Rætt er um sjálfsímynd ungs fólks og samfélagsmiðla, neikvæðni, hvort það sé hægt að skíta upp á bak og koma til baka, djammmenning og hnífaárásir, tjáningafrelsi og fleira.
9/2/2022 • 34 minutes, 37 seconds
#169 Það er auðveldara að banna frelsi heldur en að leyfa það (með Hildi Sverrisdóttur)
Hildur Sverrisdóttir situr á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Hildi um frelsi. Sérstaklega er beint sjónum að stöðu valdhafa, hvað það þýðir að vera hægri manneskja, íhald, faraldurinn, notkun nikotínpúða og áfengi í verslanir.
8/26/2022 • 41 minutes, 10 seconds
#168 Stjórnvöld skapa starfsumhverfi, ekki verðmæti (með Heiðari Guðjónssyni)
www.patreon.com/einpaelingHeiðar Guðjónsson er fráfarandi forstjóri fjölmiðlasamsteypunnar Sýnar, sem rekur meðal annars Vodafone, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Hann hefur verið umsvifamikill á ýmsum sviðum atvinnulífsins, bæði á Íslandi og víða annars staðar. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Heiðar um fyrirtækjarekstur á Íslandi, hvatastýringu, hvernig það er að reka fjölmiðil, aðkomu stjórnvalda að verðmætasköpun, erfitt umhverfi til sérhæfingar á Íslandi, ábyrgð og skyldur ungs fólks, samfélagsmiðla, lýðræði og hvort það sé rétt að útskúfa Rússum.
8/20/2022 • 56 minutes, 28 seconds
#167 Hvaða flokk kýs peltor gröfukarlinn? (með Árna Helgasyni)
Er Brynjar Níels hinn nýji almannatengill? Hafa Hjörvar Hafliða og FM95Blö meiri áhrif á íslenska menningu heldur en fólkið á Twitter? Brugðust stjórnvöld rétt við í veirufaraldrinum? Hvaða flokk kýs hinn þögli meirihluti? Árni Helgason, fyrrum hlaðvarpsstjórnandi Hismisins, lögmaður og fleira, reynir ásamt Þórarni Hjartarsyni að svara þessum spurningum og fjölmörgum öðrum.
8/16/2022 • 51 minutes, 47 seconds
#166 Ekki ólíklegt að húsnæðisverð taki dýfu (með Má Wolfgang Mixa)
Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskóla Íslands, komst nýlega í fréttirnar þegar hann tjáði fjölmiðlum að það myndi ekki koma honum á óvart ef að húsnæðisverð myndi koma til með að taka dýfu á næstunni.Í þessu hlaðvarpi er rætt um hvað hafi áhrif á fasteignaverð, ástæður þess afhverju Már telur að það muni koma til með að taka dýfu, leigumarkaðinn, kjaraviðræður, hrunið og fleira.
8/13/2022 • 43 minutes, 37 seconds
#165 Samfélagsmiðlar eru tvíeggja sverð (með Kristínu Sif)
www.patreon.com/einpaelingKristín Sif er útvarpskona, áhrifavaldur, afrekskona í hnefaleikum og margt fleira. Í þessu hlaðvarpi er rætt um áhrif samfélagsmiðla á sálarlíf ungs fólks og áhrifavalda. Farið er yfir hvort að þetta sé óumflýjanlegur veruleiki barnanna okkar, hvernig maður getur komist hjá því að vera stanslaust tengdur, breytt samskiptamynstur og margt fleira.
8/10/2022 • 53 minutes, 53 seconds
#164 Ósættið er þessi íslenska öfund - Sjávarútvegskerfið, Samherjamálið og eignarhald (með Vilhjálmi Árnasyni)
Vilhjálmur Árnason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur sjávarútvegskerfið vera mikilvæga stoð í íslensku samfélagi og að gagnrýni á það byggist helst á öfund þeirra sem að keyptu ekki kvóta eða seldu hann snemma.Í þessum þætti er rætt um réttlæti, Samherjamálið, milliverðlagningu, uppbyggingu kerfisins, hugmyndafræði og margt fleira.
8/7/2022 • 39 minutes, 9 seconds
#163 Er þess virði að niðurgreiða landbúnað? (með Þórarni Inga Péturssyni)
Þórarinn Ingi þingmaður Framsóknarflokksins mætir í annað skipti í hlaðvarpið. Að þessu sinni er rætt um niðurgreiðslu í landbúnaði, stöðu fæðuöryggis í heiminum vegna innrásarinnar, samráð, hugmyndafræði og margt fleira.
8/4/2022 • 37 minutes, 35 seconds
#162 Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar á ungt fólk? (með Bjarna Kristni Gunnarssyni)
Bjarni Kristinn Gunnarsson er sálfræðingur sem að hefur tjáð sig um áhrif samfélagsmiðla á ungt fólk. Í þessu hlaðvarpi spyr Þórarinn Bjarna úr spjörunum um framtíðarhorfur í þessum efnum, hvað sé hægt að gera til þess að sporna við vanlíðan og kvíða ungs fólks og hvers vegna þessir geðheilsukvillar hafa aukist undanfarin ár.
7/31/2022 • 36 minutes, 58 seconds
#161 Afhverju líður okkur illa? (með Þorsteini Guðmundssyni)
Þorsteinn Guðmundsson er klínískur sálfræðingur en margir muna eflaust eftir honum úr sjónvarpsþáttunum sívinsælu Fóstbræðrum. Þórarinn ræðir við Þorstein um vanlíðan, áföll, kvíða, samskipti foreldra, reiða foreldra og margt fleira. Að lokum spyr Þórarinn Þorstein hver sé hans uppáhalds stikla í Fósbræðrum.
7/29/2022 • 40 minutes, 43 seconds
#160 Takmarkaðar auðlindir og afleiddar afleiðingar (með Bergþóri Ólasyni)
Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins. Rætt er um stöðu Miðflokksins, innflytjendamál, orkumál og menningu.
7/23/2022 • 52 minutes, 57 seconds
#159 Leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi - Rauði múrinn, ESB og hugmyndafræði (með Hirti J. Guðmundssyni
Hjörtur J. Guðmundsson er alþjóðastjórnmálafræðingur sem hefur undanfarið skrifað pistla um leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi á ýmsum vettvöngum.Í þættinum er rætt um þessar snörpu en mikilvægu kosningar en kjörinn leiðtogi verður sjálfkrafa forsætisráðherra Bretlands. Farið er stuttlega yfir sögu leiðtogavals Íhaldsflokksins, rætt um Brexit, ESB, "Rauða Múrinn" í norðri og fleira.
7/19/2022 • 53 minutes, 50 seconds
#158 Er að koma kreppa? Húsnæði, hrávörur og aðföng (með Ólafi Margeirssyni)
Ólafur Margeirsson snýr aftur í þáttinn. Ólafur er með doktorsgráðu í hagfræði og fjallar mikið um húsnæðismál á Íslandi á Patreon reikningi sínum.Að þessu sinni er rætt stöðu efnahagsmála í víðu samhengi. Rætt er um áform ríkisstjórnarinnar að byggja 35.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum sem nú virðist vera möguleiki þrátt fyrir að það hafi talist ómögulegt þegar að Sósíalistaflokkurinn lagði það fram fyrir síðustu kosningar. Auk þess er rætt um vaxandi verðbólgu, mögulega kreppu bæði á Íslandi og í Evrópu og margt fleira.
7/17/2022 • 46 minutes, 50 seconds
#157 Skortur á aðhaldi gegn spillingu á Íslandi - Getuleysi eða viljaleysi? (með Atla Thor Fanndal)
Atli Thor Fanndal er framkvæmdarstjóri samtakanna Transparency International sem að berjast gegn spillingu. Í hlaðvarpinu er meðal annars rætt um spillingu á Íslandi, Samherjamálið, Íslandsbankasöluna, hvort spilling sé öðruvísi á Íslandi en annarsstaðar, stöðu stjórnmálaflokkanna í þeim efnum, og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokksins.
7/14/2022 • 1 hour, 1 minute, 47 seconds
#156 Tyranny, social division and woke culture (with Zuby)
Recorded in December of 2021:Zuby is an entrepreneur, rapper, coach, podcast host, and the list goes on. Zuby has made an impact on cultures around the world with his unique voice conveying a message of personal resilience and responsibility. He is not afraid to challenge the popular narrative in every sphere of society. In this conversation, Tóti and Zuby discuss the challenges to free speech, woke-ism, and culture.
7/10/2022 • 1 hour, 2 minutes, 32 seconds
#155 What is the greatest threat to scientific inquiry? (with Lawrence Krauss)
Lawrence M. Krauss is an American theoretical physicist who runs the Origins Project Foundation. He served on the science-policy committee for Barack Obama in 2008 and has taught at some of the most elite institutions in America.In this conversation Tóti probes Lawrence about what are the greatest threats to science today. They speak about university culture, the impacts of woke thinking, the influence of politics, the dangers of speaking out, and much more. The second half of the conversation leads to the late, and dearly missed, Christopher Hitchens and what he might have thought about the current moment.
7/9/2022 • 38 minutes, 40 seconds
#154 Áfengi - Netverslun, lýðheilsa og frelsi (með Arnari Sigurðssyni)
Þórarinn ræðir við Arnar Sigurðsson sem er frumkvöðull á sviði netverslunar áfengis. Rætt er um lýðheilsu, frelsi, samfélagslegt umburðarlyndi, drykkju ungmenna og margt fleira.
7/6/2022 • 39 minutes, 58 seconds
#153 „Ég er pólitískur aðstoðarmaður“ – Transmál, þungunarrof og #MeToo (með Brynjari Níelssyni)
www.patreon.com/einpaelingBrynjar Níelsson mætir í tólfta skiptið. Að þessu sinni er rætt um transmál, þungunarrof, #MeToo, þversagnarkennda rökhugsun rétttrúnaðarins, mál Vítalíu og Arnars Grant og margt fleira.
7/1/2022 • 1 hour, 12 minutes, 36 seconds
#152 Hefur Sjálfstæðisflokkurinn útilokað sjálfan sig? (viðtal við Arnar Þór Ingólfsson)
Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður Kjarnans, skrifaði nýlega leiðara um síðastliðnar borgarstjórnarkosningarnar. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau skrif.Titill leiðarans er "Flokkurinn sem útilokaði sjálfan sig" og fjallar um að Sjálfstæðisflokknum hafi tekist að útiloka sjálfan sig fyrir síðustu kosningar. Arnar gefur lítið fyrir hugmyndir flokksmanna Sjálfstæðisflokksins um að aðrir séu að beina spjótum sínum að flokknum og telur að áherslur og framboðslistinn sé meginorsök þess að margir flokkar forðist samstarf með þeim.
6/29/2022 • 34 minutes, 11 seconds
#151 Að vera í minnihluta á Alþingi er keimlíkt því að vera blaðamaður (Viðtal við Jóhann Pál Jóhannsson)
www.patreon.com/einpaelingJóhann Páll er fyrrum blaðamaður á Stundinni en hann situr nú á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar. Í þættinum er drepið á ýmsu. Rætt er um stöðu minnihlutaflokka á Alþingi, hvernig megi betur búa um hnútanna þegar það kreppir að í efnahagsmálum, sérstöðu og formannsmál Samfylkingarinnar og margt fleira.
6/24/2022 • 43 minutes, 21 seconds
#150 Húsnæðismál - Ungt fólk, slæmar ákvarðanir og Seðlabankinn (Viðtal við Halldór Kára Sigurðarson)
Halldór Kári er hagfræðingur fasteignasölunnar Húsaskjól. Í þessum þætti er rætt um áhrif ákvarðanna Seðlabankans, skuldsetningu ungs fólks á fasteignamarkaði, framtíðarhorfur, stöðu sveitarfélaga og fleira.
6/18/2022 • 34 minutes, 25 seconds
#149 Hugleiðingar Jordan Peterson - Frelsi, ábyrgð og hamingja (með Gunnlaugi Jónssyni)
Dr. Jordan Peterson mætir til Íslands í annað skipti þann 25. júní næstkomandi. Gunnlaugur Jónsson sér um að láta þessi kvöld verða að veruleika en í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við hann um hugmyndir og áherslur Peterson ásamt öðru. Rætt erum frjálshyggju, frelsi, ábyrgð, síbreytilegum áherslum vinstri- og hægrimennsku í vestrænum samfélögum, hamingju, velferð og fleira.
6/10/2022 • 46 minutes, 48 seconds
#148 Hver mun sigra stríðið í Úkraínu? (með Alberti Jónssyni)
Albert Jónsson er einn helsti sérfræðingur Íslendinga á sviði alþjóðasamskipta. Þetta er í annað skiptið sem að Albert kemur í hlaðvarpið og umræðuefnið að sjálfsögðu stríðið í Úkraínu. Rætt er um hver sé að vinna stríðið, herþreyta beggja fylkinga, vanmat Rússa á samstöðu Vesturveldanna, áhrif refsiaðgerða, breytt staða í málefnum flóttamanna, stöðu Íslands og NATO aðild Finna og Svía.
6/4/2022 • 36 minutes, 12 seconds
#147 Hópbrottvísun hælisleitenda - Pólitík, menning og aðlögun (með Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttir)
www.patreon.com/einpaelingArndís Anna hefur verið áberandi í umræðum undanfarna daga um hælisleitendur og hópbrottvísun sem á að framfylgja á næstu dögum. Í þessu hlaðvarpi er rætt um pólitískan áhuga fyrir auknum stuðningi við hælisleitendur, hversu mörgum Ísland eigi að taka á móti, menningarárekstra, aðlögun, reynslu Norðurlandanna og fleira.
6/2/2022 • 44 minutes, 36 seconds
#146 Vændi - Valdaójafnvægi, frelsi og ábyrgð (með Ívu Adrichem)
Þórarinn ræðir við góðvin þáttarins, hana Ívu Adrichem. Umræðuefnið að þessu sinni er vændi. Rætt er um hvort að heimspekileg sjónarmið sem snúa að því hvort að ófrítt fólk eigi að hafa aðgengi að vændi, valdaójafnvægi, ábyrgð kúnna og kynlífsverkafólks, rétttrúnað og margt fleira.
5/26/2022 • 58 minutes, 24 seconds
#145 Ísland er samfélag sem tryggir jöfn tækifæri, ekki jafna útkomu (Viðtal við fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson)
Þórarinn ræðir við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, um ýmis mál. Meðal annars persónulegar pólitískar áherslur og hugmyndafr æði Bjarna, stjórnmál á Íslandi, kulnun og atvinnulífið, Íslandsbankasöluna og margt fleira.
5/22/2022 • 1 hour, 6 minutes, 49 seconds
#144 Hrakval pólitískrar efnahagsstefnu (með Jónasi Atla Gunnarssyni)
www.patreon.com/einpaelingJónas Atli er hagfræðingur og fyrrum blaðamaður Kjarnans. Í þessu hlaðvarpi er rætt um peningamagnskenningar, fjármálalæsi, orsakir og afleiðingar mismunandi efnahagsstefna og fleira.Sérstaklega er rætt um pólitísk loforð sem ekki taka tillit til raunveruleikans.
5/20/2022 • 41 minutes, 20 seconds
#143 "Erum við Trump eða? Hverjum datt í hug að láta ríka fólkið ráða?" (með Gunnari Smára Egilssyni)
www.patreon.com/einpaeling Gunnar Smári Egilsson er flestum hlustendum kunnur. Að þessu sinni ræðum við sveitastjórnakosningarnar á laugardaginn kemur, 14. maí. Um hvað snúast kosningarnar? Einnig yfirvofandi kreppu á húsnæðismarkaði, kjör hinna verst settu, frjálshyggju og fleira. Í síðari hluta þáttarins eru landsmálin og Íslandsbankasalan í brennidepli. Rætt er um stöðu ríkisstjórnarflokkanna, formann Sjálfstæðisflokksins og pólitískar afleiðingar bankasölunnar.
5/13/2022 • 1 hour, 11 seconds
#142 Stjórnmál, skák og #MeToo (Viðtal við Helga Áss Grétarsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Helga Áss Grétarsson um ýmis málefni. Helgi býður sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum en margir þekkja til hans í umræðunni um #MeToo sem hann skipti sér af þegar sú umræða stóð sem hæst. Helgi er hvergi banginn við að snerta á erfiðum málefnum og standa við sínar skoðanir.Rætt er um leikjafræði og stjórnmál, hvernig ferill hans sem stórmeistari í skák hefur haft áhrif á þankagang hans um samfélagsmál og hans ímynd af siðuðu samfélag.
5/11/2022 • 45 minutes, 12 seconds
#142 Elon Musk ætlar að kaupa Twitter (Viðtal við Grétar Theodórsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Grétar Theodórsson um kaup Elon Musk á Twitter. Grétar er almannatengill, stundakennari við HÍ og annar stjórnenda hlaðvarpsins Hismið.Í þættinum er rætt um áhrif s ölunnar á lýðræðislega umræðu, áhrif samfélagsmiðla á stjórnmál víðsvegar um heiminn, reynt að greina fyriráætlanir Musk með nýja samfélagsmiðlinn sinn og hvort að vestræn lýðræðissamfélög séu komin með leið á sínum stjórnmálamönnum.
5/8/2022 • 43 minutes, 23 seconds
Borgarstjórnarkosningar - Framsókn (Viðtal við Einar Þorsteinsson)
Síðasti borgarstjórnarkosningaþátturinn. Þórarinn ræðir við Einar Þorsteinsson um áherslur Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar 14. maí. Rætt er um húsnæðismál, skotárás á bíl borgarstjóra, samgöngumál, velferðarmál og kjaramál.
5/6/2022 • 1 hour, 21 minutes, 20 seconds
#141 Netöryggi, upplýsingastríð og gervigreind (viðtal við Guðmund Arnar Sigmundsson)
Guðmundur Arnar er sviðsstjóri CERT-IS, netöryggissveitar Fjarskiptastofu sem vinnur náið með almannavörnum við að verja Ísland fyrir netárásum. Hér ræðir Þórarinn við Guðmund um álitamál sem að snúa að netöryggi. Hvaða áhrif hefur stríðið í Úkraínu á varnir Íslands? Er Ísland í verri eða betri stöðu en önnur ríki? Er líklegt að netárásir muni færast í aukana vegna ástandsins? Hvað með upplýsingaöryggi einstaklinga? Hvernig er hægt að nota upplýsingar gegn okkur, hvernig nýta hakkarar sér vankunnáttu almennings og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að verða fyrir netárás? Að lokum er rætt um áhrif gervigreindar og heimspekileg álitamál sem snúa að því hvort það sé jákvætt eða neikvætt að öfl á borð við Anonymous ryðji sér til rúms. Öfl sem lúta ekki ríkisvaldi.
5/4/2022 • 38 minutes, 11 seconds
#140 Iðnaður í breyttum heimi (viðtal við Sigurð Hannesson)
Sigurður Hannesson er framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins. Þórarinn ræðir við Sigurð um hvað stríðið í Úkraínu og eftirmálar Covid-19 þýði fyrir iðnaðargeirann á Íslandi. Rætt er um hrávöruskort, húsnæðismál, kjaramál og fleira. Að lokum er rætt í nokkuð löngu máli um orkumál og sérstöðu Íslands í þeim efnum.
5/1/2022 • 56 minutes, 49 seconds
#139 Sala Íslandabanka (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur)
Hlaðvarpið í heild sinni: www.patreon.com/einpaelingNýleg sala á stórum hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarna daga. Kristrún Frostadóttir er þingmaður Samfylkingarinnar og hefur hún verið sérstaklega áberandi í þeirri umræðu. Í þessu hlaðvarpi er rætt um ábyrgð fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, ábyrgð bankasýslunnar, hlutverk og ábyrgð söluaðilana, sérstaka rannsóknarnefnd Alþingis og hvernig Kristrún hefði hagað málunum ef hún hefði verið fjármálaráðherra.
4/29/2022 • 41 minutes, 1 second
#138 Afstaða og aðgengi stjórnmálafólks gagnvart fjölmiðlum (Viðtal við Kristján Kristjánsson)
Kristján Kristjánsson er sjóaður blaðamaður sem að hefur komið víða við. Hann stjórnar útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni og er þetta í annað skiptið sem að hann mætir í hlaðvarpið Ein Pæling.Að þessu sinni ræðir Þórarinn við Kristján um aðgengi fjölmiðla að stjórnmálafólki, bæði hvernig það var áður og hvernig það er í dag. Í síðari hluta hlaðvarpsins er síðan farið yfir afstöðu stjórnmálafólks gagnvart fjölmiðlum og hvernig mismunandi stjórnmálamenn koma fram við fjölmiðla.Umræðuefnin í hnotskurn eru viðtal Kristjáns við Bjarna Benediktsson um bankasöluna, muninn á því hvenær fjölmiðlamenn höggva eftir svörum og hvenær þeir verða dónalegir, fjölmiðlar sem gera mistök, áhrif alþjóðamála og fleira.
4/27/2022 • 41 minutes, 17 seconds
#137 Bónusþáttur - Hvað varð um svartan húmor?
Þórarinn, Eyþór og Ívar ræða um hvort að svartur húmor eigi undir högg að sækja. Rætt er um áhrif twitter, hvort að grínistar veigri sér við að prófa nýtt efni á uppistöndum, dósahlátur, hvort það megi gera grín að öllum ásamt ýmsum hliðarsporum.
4/23/2022 • 10 minutes, 8 seconds
#136 Er fæðuöryggi Íslendinga í hættu vegna vanrækslu? (Viðtal við Þórarinn Inga Pétursson)
www.patreon.com/einpaelingNafnarnir Þórarinn Hjartarson og Þórarinn Ingi Pétursson ræða um fæðuöryggi Íslendinga. Þórarinn Ingi er þingmaður Framsóknar og telur hann að fæðuöryggi á Íslandi sé verulega ábótavant, sérstaklega nú í breyttum heimi.Rætt er um ESB, hækkun hrávöruverðs, stöðu Íslands, þróunarlönd og fleira.
4/16/2022 • 41 minutes, 30 seconds
#135 Vestræn gildi - Sala Íslandsbanka, twittermanneskjan og kynferðisafbrot (Viðtal við Brynjar Níelsson)
www.patreon.com/einpaelingBrynjar Níelsson ræðir málefni líðandi stundar yfir einum köldum með Þórarni Hjartarsyni. Vestræn gildi eru rauði þráðurinn að þessu sinni en farið er yfir kynferðisafbrotamál á Íslandi og hvað það þýðir fyrir þolendur að verða aðilar máls, sölu Íslandsbanka, innflytjendamál, ummæli Sigurðar Inga gagnvart Vigdísi Häsler, twittermanneskjuna og margt fleira.www.patreon.com/einpaeling
4/13/2022 • 40 minutes, 17 seconds
#134 Innrásin í Úkraínu - Eru Vesturlönd tilbúin að berjast fyrir eigin gildum? (Viðtal við Friðrik Jónsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Friðrik Jónsson um innrásina í Úkraínu. Friðrik er sérfræðingur í utanríkismálum og hefur margt um innrásina að segja. Umræðuefnin snúa að því hvort að vestrænar þjóðir séu tilbúnar að berjast fyrir eigin gildum, getu rússneska heraflans, ágæti efnahagsaðgerða og fleira.
4/10/2022 • 42 minutes, 18 seconds
#133 Á að leggja niður heiðurslaun listamanna? (Viðtal við Vilhjálm Árnason)
www.patreon.com/einpaelingNýverið báru þrír þingmenn fram tillögu um að leggja niður heiðurslaun listamanna. Vilhjálmur Árnason er einn þeirra. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Árna um álitaefni sem snúa að þessu máli og fleira.
4/8/2022 • 31 minutes, 40 seconds
#132 Hatursorðræða og fjórða valdið (Viðtal við Jódísi Skúladóttur)
wwww.patreon.com/einpaelingJódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, skrifaði nýverið pistil sem bar heitir "Hatursorðræða og fjórða valdið." Pistillinn var andsvar og gagnrýni við öðrum pistli sem skrifaður var af Írisi Erlingsdóttur en Íris skrifaði grein í morgunblaðið sem nefndist "Siðræna transgátan."Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau heimspekilegu ágreiningsefni sem snýr að því hvort að þingmenn eigi að vera að skipta sér af rekstri fjölmiðla og hvað eigi að heyra undir hatursorðræðu annars vegar og hvað heyrir undir tjáningarfrelsi hins vegar.
4/7/2022 • 39 minutes, 51 seconds
#131 Er leiguþak svarið við húsnæðisvandanum? (Viðtal við Guðmund Hrafn Arngrímsson)
www.patreon.com/einpaelingGuðmundur Hrafn er formaður Samtaka leigjenda á Íslandi. í þessu hlaðvarpi rökræða Þórarinn og Guðmundur um ágæti leiguþaks til þess að takast á við vandann sem hefur skapast á húsnæðismarkaði.
4/2/2022 • 42 minutes, 32 seconds
#130 The War in Ukraine - Is realism making a comeback? (With Page Wilson)
Page Wilson is a senior lecturer at the University of Iceland who specializes in international relations and security studies. In this interview, Page explains what impact the invasion of Ukraine has on security and politics globally. The questions raised relate to whether realism is making a comeback, nuclear deterrence and vulnerability, balance of power, buffer states and sphere of influence, game-theoretical analysis from Putin's perspective and how the conflict might end.
3/31/2022 • 58 minutes, 40 seconds
#129 Afglæpavæðing vímuefna (Viðtal við Halldóru Mogensen)
www.patreon.com/einpaelingKristín og Þórarinn ræða við Halldóru Mogensen um afglæpavæðingu fíkniefna. Umræðan snýr að því að reyna að greina kosti og galla afglæpavæðingar, hvort að mismunandi reglur eigi að gilda um ákveðin fíkniefni, hvort að hið opinbera eigi að standa í því að gæðavotta, muninn á lögleiðingu og afglæpavæðingu og fleira.
3/26/2022 • 41 minutes, 47 seconds
#128 Orka, matur og hrávörur í breyttum heimi (Vi ðtal við Eld Ólafsson)
www.patreon.com/einpaelingEldur Ólafsson er jarðfræðingur og einn stofnenda AEXGold, sem meðal annars starfar í námugreftri á Grænlandi. Nýverið skrifaði Eldur pistla á visir.is þar sem hann ræðir áhrif stríðsins í Úkraínu á hrávöru og orkumál á Íslandi. Ein pæling spurði Eld nánar út í þessi mál í samhengi við pólitík, aðföng, loftslagsmál og fleira.
3/23/2022 • 43 minutes, 56 seconds
Borgarstjórnarkosningar - Píratar (Dóra Björt Guðjónsdóttir)
Dóra Björt mun leiða Pírata í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Dóru um Braggamálið, fjármál borgarinnar, rafræna stjórnsýslu og fleira.
3/23/2022 • 1 hour, 36 seconds
Borgarstjórnarkosningar - Sósíalistaflokkurinn (Sanna Magdalena Mörtudóttir)
Sanna Magdalena mun leggja áherslur á sósíalískar breytingar og kjör hinna lægst settu. Í þessu hlaðvarpi er rætt um stefnu Sósíalistaflokksins, kjaramál, húsnæðismál hinna lægst settu, mögulegt samstarf og fleira.
3/20/2022 • 1 hour, 5 minutes, 35 seconds
Borgarstjórnarkosningar - Vinstri Græn (Líf Magneudóttir)
Líf Magneudóttir hlaut oddvitasæti Vinstri Grænna í Reykjavík. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir þær áherslur sem Líf ætlar að leggja fyrir kjósendur og þær ræddar í ljósi nýrra aðstæðna þar sem stríðsástand í Úkraínu og hækkandi verðbólga mun koma til með að hafa áhrif á efnahag Reykjavíkurborgar.
3/19/2022 • 1 hour, 9 seconds
Borgarstjórnarkosningar - Viðreisn (Pawel Bartoszek)
Pawel Bartoszek býður sig fram fyrir Viðreisnar í næstu borgarstjórnarkosningum. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir áherslur Viðreisnar ásamt því að rætt er um hvernig hugmyndir Pawels sem hægri manni rúmast inn í meirihlutasamstarfi með þremur flokkum til vinstri.
3/18/2022 • 49 minutes, 3 seconds
Borgarstjórnarkosningar 2022 - Viðbótarþáttur með Vigdísi Hauksdóttur
Vigdís Hauksdóttir hefur ákveðið að draga framboð sitt til baka og mun því ekki koma til með að leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Vigdísi um hvernig fjármálum borgarinnar er háttað en hún hefur margt út á það að setja.Umræðuefnin snúa að bensínstöðvamálinu svokallaða, borgarlínunni, skipulagsmálum og afhverju Vigdís talaði inn á auglýsingar þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er harðlega gagnrýndur.
3/17/2022 • 58 minutes, 1 second
Borgarstjórnarkosningar 2022 - Flokkur fólksins (Kolbrún Baldursdóttir)
Kolbrún Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins og ætlar sér að leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Kolbrúnu um húsnæðismál, fjármál borgarinnar, velferðarmál og fleira.
3/16/2022 • 50 minutes, 11 seconds
Prófkjörsþáttur - Sjálfstæðisflokkurinn (Hildur Björnsdóttir)
Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí.Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Hildi um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningum.
3/15/2022 • 58 minutes, 38 seconds
Prófkjörsþáttur - Sjálfstæðisflokkurinn (Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir)
Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir og Hildur Björnsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí.Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Öldu um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningum.
3/15/2022 • 59 minutes, 20 seconds
Borgarstjórnarkosningar 2022 - Samfylkingin (Dagur B. Eggertsson)
Þórarinn ræðir við Dag. B. Eggertsson Borgarstjóra. Dagur skrifaði nýverið bók sem nefnist Nýja Reykjavík. Rætt er um bókina og komandi borgarstjórnakosningar þar sem að Dagur ætlar að bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna. Farið er yfir skipulags- og húsnæðismál, hvort Samfylkingin ætlar að breyta sínum áherslum vegna útkomu í síðustu alþingiskosningum, velferðarmál og fleira.Að lokum spyr Þórarinn um drykkjufélagana sem að Dagur myndi kjósa að fara með á djammið.
3/14/2022 • 51 minutes, 33 seconds
#127 Innrásin í Úkraínu - Menning og saga (Viðtal við Jón Ólafsson)
Jón Ólafsson er prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau menningarlegu og sögulegu áhrif sem stríðið mun koma til með að hafa í alþjóðakerfinu. Rætt er um stöðu Rússa frá falli múrsins, appelsínugulu byltinguna í Úkraínu og hvort að til sé sú lausn sem að allir sem í hlut eiga geti sætt sig við.
3/10/2022 • 42 minutes, 15 seconds
#126 Hvað ætlar Pútín sér í Úkraínu? (Viðtal við Sigurð Má Jónsson)
Www.Patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Sigurð Má Jónsson á áttunda degi innrásar Rússa í Úkraínu. Sigurður hefur skrifað pistla um málefni Rússa og Pútín undanfarin og að Pútín sé hættulegasti maður í heimi. Umræðuefnin snúa að stöðu Rússa í alþjóðakerfinu, leikjafræðilega möguleika Rússa, viðbrögð Vestrænna þjóða og áhrif efnahagsþvinanna, falsfréttir og fleira.
3/5/2022 • 25 minutes, 30 seconds
#125 Excellent sheep - Is the education system failing the young? (with Bill Deresiewicz)
Bill Deresiewicz is a former Yale professor who wrote a book about the failures of the elite education institutions in the West called Excellent Sheep: The Miseducation of the American elite and the way to a meaningful life.In this podcast, Þórarinn speaks with Bill about how he perceives the problem today, who are these excellent sheep, the grade-inflation, wokeism and its implications on free speech and censorship, classism, and more.
3/3/2022 • 49 minutes, 46 seconds
#124 Hvaða upplýsingar eiga erindi við almenning? (Viðtal við Jakob Bjarnar)
Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar um hvers konar upplýsingar eiga erindi við almenning. Fjórir blaðamenn eru sakborningar í stórfurðulegu máli sem snýr að byrlun, símastuldi og kynferðisbroti. Umræðurnar snúa að þessu máli, vi ðbrögðunum við því, mikilvægi fjölmiðla, dagskrárvaldi, femínisma og fyrirvarapólitík.Þetta viðtal var tekið upp þann dag sem Rússar ákváðu að gera innrás í Úkraínu. Upphaf viðtalsins hefst því á stuttum umræðum um það.
2/27/2022 • 1 hour, 4 minutes, 22 seconds
#123 Innrás í Úkraínu - Leikjafræði, hagsmunir og saga (Viðtal við Brynju Huld Óskarsdóttur)
www.patreon.com/einpaelingBrynja Huld er öryggis- og varnamálfræðingur sem hefur meðal annars starfað fyrir NATO í Afghanistan. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Brynju Huld um innrásina í Úkraínu út frá leikjafræðilegri strategíu. Annars vegar frá sjónarhorni Rússa og hins vegar NATO. Rætt er um fölsk loforð og rauðar línur, breytta heimsmynd, lýðræðisvæðingu og einræði.
2/25/2022 • 25 minutes, 25 seconds
#122 Kynferðisafbrot, ásakanir og #MeToo (Viðtal við Unnar Karl Halldórsson)
Þórarinn ræðir við Unnar Karl Halldórsson um pistla sem hann hefur skrifað til stuðnings við þolendur kynferðisafbrota. Pistlarnir hafa náð mikilli athygli en Unnar talar hispurslaust um þessi mál. Rætt er um ásakanir, #metoo hreyfinguna, pólitík, hagsmunabaráttu og fleira.
2/20/2022 • 1 hour, 9 minutes, 23 seconds
#121 Samgöngur, borgarlína og Samherji (Viðtal við Arnar Þór Ingólfsson)
www.patreon.com/einpaelingArnar Þór Ingólfsson er rísandi stjarna í blaðaheiminum. Nýlega var honum tilkynnt að hann væri sakborningur í máli sem tengist starfsmanni Samherja. Hér er tæpt á því og jafnframt spurt hvort hlaðvörp séu fjölmiðlar. Samtalið snýst þó aðallega um samgöngumál, borgarlínu og borgarstjórnarpólitík. Rætt er um bílamenningu, kostnað við borgarlínu, rask vegna þéttingar byggðar og fleira.
2/17/2022 • 22 minutes, 42 seconds
#120 Hagfræðisnilldin fæddist ekki í fundarherbergi í Valhöll (Viðtal við Sigmar Guðmundsson)
Sigmar Guðmundsson hefur gagnrýnt stjórnvöld undanfarið vegna ýmissa ákvarðanna sem teknar hafa verið í efnahagsmálum. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Sigmar um húsnæðismál, velferðarmál og heimspekina bakvið jöfnuð og skiptingu auðs.
2/13/2022 • 58 minutes, 43 seconds
#119 Kjaraviðræður og hagsmunabarátta (Viðtal við Halldór Benjamín Þorbergsson)
Þórarinn ræðir við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann Samtaka Atvinnulífsins. Rætt er um stöðu SA í atvinnulífi og hagsmunabaráttu launþega, næstkomandi kjarabaráttu, kaupmátt, krónutöluhækkanir, húsnæðismál og fleira. Að lokum er snert á þeim áherslum sem að Halldór telur að Íslandi þurfi að leggja í þróun atvinnulífsins og tengsl þess við akademíuna.
2/9/2022 • 24 minutes, 9 seconds
#118 Kóvid, velferðarsamfélag og PC-menning (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur)
Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um hvernig sé að starfa á Alþingi, efnahagshorfur fyrir og eftir kóvid, kostnaðinn sem fylgir því að reka gott velferðarsamfélag og fleira. Undir lok samtalsins ræðir Þórarinn við Kristrúnu um rétttrúnaðarvæng Samfylkingarinnar og hvort að flokkurinn þurfi að móta áherslurnar til þess að breiða út faðminn til ólíkarri hópa.
2/6/2022 • 1 hour, 3 minutes, 42 seconds
#117 Jafnréttisiðnaðurinn, #MeToo, kynjafræði og öfgar (Viðtal við Evu Hauksdóttur)
Þórarinn ræðir við Evu Hauksdóttur um ærumeiðingar og ásakanir um kynferðisbrot, brotaþola sem aðila máls, jafnréttisiðnaðinn, femíniskar rannsóknir, samhengi brota, pottormamálið og torskiljanleg hugtök.
2/4/2022 • 24 minutes, 17 seconds
#116 Ríkisfjármál - Aðföng, framboð og peningaprentun (Viðtal við Ólaf Margeirsson)
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um ríkisfjármál og stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Rætt er um hvort Landspítalinn geti ráðið til sín það starfsfólk sem að hann þarf, peningarprentun og hvernig ríkið kveikir í peningum, hvort skuldir ríkissjóðs séu áhyggjuefni, vermætasköpun þegar kaupmáttur verður of mikill og pólitískan hvata ríka fólksins til þess að halda húsnæðisverði háu.
1/27/2022 • 21 minutes, 44 seconds
#115 Omicron breytti öllu og Ísland þarf nýja nálgun í baráttunni við Covid-19 (Viðtal við Ragnar Frey Ingvarsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson um Covid-19. Ragnar hefur farið mikinn undanfarið en hann telur Omicron breyta faraldrinum og að meta þurfi stöðuna upp á nýtt. Þórarinn ræðir þessi mál við hann. Rætt er um hvernig Covid-deildin var stofnuð. Hvort að við myndum koma til með að bregðast við veiru á borð við Omicron með jafn hörðum aðgerðum í framtíðinni, ógreind krabbamein á tímum Covid-19, opinber fjármál, spurt hvort að læknavísindin séu orðin pólitískari, tjáningarfrelsi læknastéttarinnar, stjórnmálaumræðan og kjaramál.
1/23/2022 • 52 minutes, 26 seconds
#114 Lýsir Verbúðin raunveruleikanum? (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)
www.patreon.com/einpaelingVerbúðin eru þættir sem sýndir eru á RÚV um þessar mundir. Þættirnir sýna íslenskt samfélag um það leyti sem núverandi kvótakerfi í fiskveiðum var tekið upp. Þórður Snær skrifaði beinskeyttan pistil um þættina. Í pistlinum lýsir hann hvernig íslenskt sjávarútvegskerfi hefur þróast frá þessum árum og hvernig málunum er háttað í dag.Þórarinn ræðir við Þórð um bæði þættina og pistilinn. Rætt er um kvótakerfið, orkumál, hagsmunaöfl, lobbíisma, stjórnmál og reynt að komast til botns í því afhverju Þórður Snær er svona öfundsjúkur út í útgerðarmenn.
1/22/2022 • 55 minutes, 43 seconds
#113 Pottormar, #MeToo og uppbyggileg réttvísi (Viðtal við Margréti Valdimarsdóttur)
Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Kristín og Þórarinn ræða við Margréti um pottormana sem komust með nýjum hætti í sviðsljósið þegar að ung kona, Vítalía Lazareva, steig fram og lýsti atburðarrás í heitapotti með þeim við sumarbústað.Umræðurnar snúa að stöðu fjölmiðla í kynferðisafbrotamálum, valdaójafnvægi, persónufrelsi, fórnarkostnaði #MeToo baráttunnar, sáttamiðlun og uppbyggilegri réttvísi, aktívisma, réttarkerfinu, rasisma, frjálsum vilja og barnagirnd.
1/15/2022 • 1 hour, 9 minutes, 36 seconds
#112 Elítur og valdakerfi á Íslandi (Viðtal við Gunnar Helga Kristinsson)
Gunnar Helgi Kristinsson er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í nýrri bók Gunnars fjallar hann um elítur á Íslandi, hvernig mismunandi elítuhópar tengjast og um áhrif þeirra á samfélagið.Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Gunnar um hvað sé elíta, hverjir á Íslandi tilheyri þeim hópi, um muninn á lokuðum og opnum elítukerfum, hvort hægt sé að verja pólitískar stöðuveitingar, um fjölmiðlaelítuna og áhrif fjölmiðla á elítur. Að lokum er spurt hvort nýtilkomið mál Vítalíu Lazarevu hafi breytt hugmyndum okkar um valdatengsl elíta og hins almenna borgara.
1/13/2022 • 31 minutes, 20 seconds
#111 Að upplifa stríð (Viðtal við Jasmínu Vajzovic Crnac)
www.patreon.com/einpaelingÁ árunum 1992 til ársins 1995 geysuðu hryllileg átök í Bosníu. Þetta voru umbreytingatímar þar sem mikil spenna í Júgóslavíu leiddi til stríðs, þjóðarmorðs, nauðgunarbúða og annarskonar hroðaverka. Jasmina Vajzovic Crnac kom ung að aldri til Íslands sem flóttamaður eftir að hafa þurft að flýja Bosníu. Í þessu viðtali lýsir Jasmína upplifuninni af því að búa við stríðsástand, menningu og pólitík Bosníu, alþjóðleg áhrif, þá varhugaverðu leið sem að landið virðist vera að stefna á í dag og hvað Jasmína telur að muni koma til með að gerast á næstu árum.www.patreon.com/einpaeling
1/8/2022 • 22 minutes, 9 seconds
#110 Nýársþáttur 2022
Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða ýmis mál sem áttu upp á pallborðið árið 2021. Rætt er um KSÍ, #MeToo, samfélagsmiðla, stöðu landspítalans, hvort að hægt sé að taka viðtal við Sölva Tryggva og fleira.
1/1/2022 • 41 minutes, 6 seconds
#109 Hentifræði og rétttrúnaður (Viðtal við Ivu Marín Adrichem)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Ivu Marín Adrichem um hentifræði og rétttrúnað. Rætt er um öflun upplýsinga, kynjafræði, það að framboð slæmra einstaklinga svarar ekki eftirspurn rétttrúnaðarriddara, get-in-lineisma, narratív stjórnun og transmál.www.patreon.com/einpaeling
12/26/2021 • 24 minutes, 17 seconds
#108 KSÍ og #MeToo (Viðtal við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur)
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um KSÍ málið og hvernig það er að vera ungur fótboltamaður, #MeToo, rangar sakagiftir,vændi, hvort að það megi misstíga sig, fylgni föðurleysis og þess að gerandi sé sjálfur fórnarlamb kynferðisofbeldis og menningu.
12/22/2021 • 1 hour, 22 minutes, 2 seconds
#107 Útþynning orða (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar. Að þessu sinni snýr umræðuefnið að útþynningu orða en Jakob telur rétttrúnaðariðnaðinn fremja hryðjuverk gegn tungumálinu í sínum aðgerðum. Rætt er um Megas, nauðgunarmenningu, femínisma og framtíð grínista.www.patreon.com/einpaeling
12/19/2021 • 1 hour, 1 minute, 9 seconds
#106 Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi (Viðtal við Mána Pétursson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Mána Pétursson en Máni er þekktur fyrir að hafa haldið úti útvarpsþættinum Harmageddon ásamt Frosta Logassyni um margra ára skeið. Máni hefur ákveðið að gefa út bók sem ber heitið "Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi". Bókin er sjálfshjálparbók fyrir karlmenn sem telja sjálfshjálparbækur vera fyrir aumingja. Tvímenningarnir ræða skilaboð bókarinnar ásamt ýmsum hliðarskrefum í þeim efnum. Rætt er um lífið, vanþakklæti, að móðgast, að takast á við vandamál, kvíða, samfélagsmiðla, #MeToo og eitraða karlmennsku.www.patreon.com/einpaeling
12/16/2021 • 49 minutes, 13 seconds
#105 Er Ísland í stöðu til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda? (Viðtal við Albert Jónsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðastjórnmál og loftslagsbreytingar. Tvímenningarnir ræða landfræðilega stöðu Íslands, Norðurslóðir og mögulegar nýjar siglingaleiðir, harðnandi deilur Kína og Bandaríkjanna, kjarnorkuvopn, flóttafólk og fleira. Um miðbik samtalsins færast umræðurnar í átt að loftslagsbreytingum. Albert telur að staða Íslands bjóði ekki upp á margar lausnir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda sökum þess að við notum nú þegar hlutfallslega meira af hreinni orku en önnur ríki. Hann telur umræðuna vera yfirborðskennda og að fólk geri sér ekki grein fyrir því hver raunverulegur kostnaður loftslagsaðgerða er.www.patreon.com/einpaeling
12/10/2021 • 22 minutes, 7 seconds
#104 Alþingiskosningar kærðar til Mannréttindadómstóls Evrópu (Viðtal við Magnús Davíð Norðdahl)
Þessi þáttur er birtur í heild sinni. Til þess að fá aðgang að öllum þáttum hlaðvarpsins er hægt að fara inn á www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Magnús Davíð Norðdahl, en Magnús hefur ákveðið að kæra alþingiskosningar 25. september til MDE. Hann vill fá úr því skorið hvort ákvörðun um að láta kosningar í NV-kjördæmi standa samræmist lögum.
12/8/2021 • 38 minutes, 51 seconds
#103 Sóttvarnalæknir svarar spurningum í þriðja sinn (Viðtal við Þórólf Guðnason)
www.patreon.com/einpaelingÞórólfur Guðnason sóttvarnalæknir svarar hugleiðingum Þórarins um framvindu faraldursins. Rætt er um hvernig honum lýst á nýjan heilbrigðisráðherra, hvað myndi gerast ef að allt yrði opnað, hvort að hægt sé að endurskoða sænsku leiðina núna þegar stærsti hluti Íslendinga er bólusettur, Omicron og hvort von sé á fleiri afbrigðum, af hverju bylgjur eiga sér ekki stað á Indlandi, í Svíþjóð eða Brasilíu og fleiri stöðum sem hafa þurft að þola útbreidd smit og hvort hægt sé að smitast aftur af veirunni eftir að hafa fengið mótefni.www.patreon.com/einpaeling
12/3/2021 • 26 minutes, 1 second
#102 Bólusetning, mismunun og frelsi (Viðtal við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson)
www.patreon.com/einpaelingÞórarinn ræðir við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson um Covid-19. Þau hafa bæði lýst áhyggjum af framvindu mála í aðgerðum stjórnvalda gegn veirunni og um það hvort að bóluefni eigi að vera valkvæð. Rætt er um mikilvægi efans, frelsi, bólusetningar barna, trúarbrögð, tíma sem gjaldmiðil og fleira.https://www.patreon.com/einpaeling
12/1/2021 • 23 minutes, 26 seconds
#101 Að takast á við áföll (Viðtal við Kristínu Sif)
Áskriftarleið fyrir viðtalið í heild sinni: https://www.patreon.com/einpaelingKristín Sif er útvarpskona á K100, hnefaleikakona, Crossfit þjálfari og margt fleira. Kristín hefur gengið í gegnum margt á sinni lífsleið og í þessu hlaðvarpi fjallar hún um það hvernig best sé að takast á við áföll og hvernig hægt sé að nýta þau í að vera þakklátur með það sem maður hefur. Þórarinn og Kristín ræða sjálfsvorkunn, hvort að kurteisi sé verðmætari en hreinskilni, míkrónarratív, uppeldi, mistök og #MeToo og hvort að hægt sé að gera kröfur á einstaklinga til þess að takast á við eigin vandamál.Áskriftarleið fyrir viðtalið í heild sinni: https://www.patreon.com/einpaeling
11/28/2021 • 20 minutes, 37 seconds
#100 Hefði sjálfstæðismaður stofnað Stígamót? (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Þórarinn og Brynjar Níelsson ræða áhrif tæknibreytinga á stjórnmál, #MeToo hreyfinguna, frelsi einstaklingsins, hvort að Sjálfstæðismaður myndi stofna samtök á borð við Stígamót, heilbrigðiskerfið og dagskrárvald.
11/21/2021 • 1 hour, 26 minutes, 1 second
#99 Hræðsluáróður eða nauðsynleg tilmæli? (Viðtal við Hildi Björnsdóttur)
Þórarinn ræðir við Hildi Björnsdóttur borgarfulltrúa um ummæli hennar þar sem hún sagði tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis vera orðin líkari tilhæfulausum hræðsluáróðri en nauðsynlegum tilmælum. Rætt er um frelsi og sóttvarnaraðgerðir, bólusetningar, afleiddar afleiðingar, heilbrigðiskerfið og komandi borgarstjórnarkosningar.
11/18/2021 • 1 hour, 3 minutes, 3 seconds
#98 Lýðræði og skoðanafrelsi (Viðtal við Helga Hrafn Gunnarsson)
Helgi Hrafn ræðir við Þórarinn um skoðanarelsi, tjáningarfrelsi, nýfasisma, hatursorðræðu, póstmódernisma, hetjur á twitter, leiðtoga og fleira.
11/13/2021 • 1 hour, 23 minutes, 32 seconds
#97 Að móðgast fyrir hönd annarra (Viðtal við Dr. Gunna)
Þórarinn ræðir við Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, um pistil sem hann skrifaði fyrir um 13 árum og ber heitið "Að móðgast fyrir hönd annarra". Tvímenningarnir ræða allskyns hluti í samhengi við efni pistilsins, meðal annars rétttrúnað, kynjamál, Covid-19, tónlistarmanninn Auður og Gylfa Ægis.
11/9/2021 • 55 minutes, 55 seconds
#96 Hvað er hatursorðræða? (Viðtal við Þorbjörgu Þorvaldsdóttur)
Þorbjörg Þorvaldsdóttir er formaður Samtakanna '78. Þórarinn rökræðir við Þorbjörgu um það hvort að hatursorðræða sé yfir höfuð til og, ef svo er, hvort að hana eigi að banna. Umræðuefnin snúa að lagalegum og siðferðislegum álitamálum, forréttindum, Dave Chapelle, slaufunarmenningu og fleira.
11/4/2021 • 53 minutes, 10 seconds
#95 RÚV, hatursorðræða, femínismi og rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar Grétarsson. Að þessu sinni ræða þeir stöðu RÚV, hatursorðræðu, femínisma, ofstæki og rétttrúnað.
10/24/2021 • 1 hour, 16 seconds
#94 Ísland ætti að skoða að taka upp kínverska efnahagsstjórn (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson)
Gunnar Smári Egilsson er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að Sósíalistaflokkurinn hafi beðið ósigur í kosningunum. Þórarinn ræðir við Gunnar um kosningarnar, nýfrjálshyggjuna, hvort að vinstrið þurfi nýjar áherslur, kínverska efnahagsstjórn og ummæli Gunnars um að stokka upp í dómskerfinu telji almenningur þörf á því.
10/22/2021 • 1 hour, 18 minutes, 35 seconds
#93 Aðgerðir eða aðgerðarleysi - Loftslagsmál og Covid-19 (Viðtal við Sigríði Á Andersen)
Sigríður Á Andersen hefur verið þekkt fyrir að bíta ekki í tunguna á sér þegar erfið málefni dúkka upp. Í þessu viðtali ræðir Þórarinn við Sigríði um aðgerðir vegna covid-19 og loftslagsbreytinga.
10/20/2021 • 56 minutes, 43 seconds
#92 Mannréttindi eða aðgerðir (Viðtal við Jón Ívar Einarsson)
Jón Ívar er prófessor við læknadeild Harvard Háskóla í Boston. Þórarinn ræðir við hann um hvaða afleiðingar harðar aðgerðir hafa haft í faraldrinum, vísindalegan sannleika, skuggabann samfélagsmiðla, sænsku leiðina, umfjöllun kveiks um bólusetningar, hræðsluáróður og tjáningarfrelsi.
10/15/2021 • 48 minutes, 53 seconds
#91 Twitter herinn, skólamál og alkahólismi (Viðtal við Björn Steinbekk)
Björn Steinbekk er frumkvöðull sem að horfir á heiminn öðruvísi en flestir aðrir. Þórarinn ræðir við hann um kosningarnar, Samherja, twitter herinn, ásakanir á hendur tónlistar- og fótboltamanna, skóla- og uppeldismál, einelti og alkahólisma.
10/12/2021 • 1 hour, 1 minute, 30 seconds
#90 Hvers virði eru fjölmiðlar? (Viðtal við Kristján Kristjánsson)
Þórarinn ræðir við Kristján Kristjánsson, stjórnanda þáttarins Sprengisandur á Bylgjunni. Tvímenningarnir fara um víðan völl, ræða úrslit kosninganna, sérhagsmunaöfl, kjarabaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Rauði þráðurinn í samtali þeirra snýr að hlutverki fjölmiðla og því umhverfi sem fjölmiðlum er búið á Íslandi.
10/10/2021 • 1 hour, 1 minute, 11 seconds
#89 Brynjar Níelsson kveður Alþingi (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Brynjar Níelsson mun kveðja Alþingi eftir að hafa sinnt þingmennsku frá árinu 2013. Þórarinn ræðir við Brynjar um hvað hann hann telur sig ætla að taka sér fyrir hendur og hvort hann muni koma til með að snúa aftur í stjórnmál. Auk þess ræða þeir aðgerðir vegna Covid-19, frelsi, akademíu og ofstæki, kynjafræði, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn of "woke" og að lokum hvort að Brynjar ætti að sækja um sem formaður KSÍ eða stofna fjölmiðil með Þórarni.
10/6/2021 • 1 hour, 48 minutes, 54 seconds
#88 Frelsi og ábyrgð (Viðtal við Arnar Þór Jónsson)
Arnar Þór Jónsson hefur ákveðið að leggja niður dómarastörf og kveðst vilja leita á ný mið þar sem ekki er þrengt að hugsun hans og tjáningarfrelsi. Arnar spreytti sig nýlega á hinum pólitíska vettvangi og munaði litlu að hann kæmist inn á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Hlaðvarpið snýr að ábyrgð og frelsi. Arnar og Þórarinn ræða klaustursmálið, karlmennsku og Jordan Peterson, fórnarkostnað, tjáningarfrelsi, covid-19 og fleira.
10/1/2021 • 1 hour, 7 minutes, 11 seconds
#87 Hvað er að gerast á húsnæðismarkaðnum? (Viðtal við Ólaf Margeirsson)
Ólafur Margeirsson fer með Þórarni Hjartarsyni yfir húnæðismál á Íslandi. Rætt er um tengsl fasteignaverðs við leiguverð, áhrif kjarasamninga og krónutöluhækkanna, áhrif krónunnar, hvort að aðkoma lífeyrissjóðanna geti bjargað málunum og hvort að fasteignaverð muni koma til með að halda áfram að hækka.
9/28/2021 • 49 minutes, 5 seconds
#86 Kosningaspjall - Framsókn (Viðtal við Sigurð Inga Jóhannsson)
Þórarinn ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson um stefnu og áherslur Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar. Þeir ræða samgöngumál, atvinnumál og fjórðu iðnbyltinguna, orkumál og húsnæðismál. Þórarinn spyr einnig Sigurð hvort að hann myndi kjósa að fara með Gunnari Smára eða Sigmundi Davíð í hestaferð.
9/22/2021 • 44 minutes
#85 Kosningaspjall - Viðreisn (Viðtal við Guðbrand Einarsson)
Þórarinn ræðir við Guðbrand Einarsson um stefnu og áherslur Viðreisnar fyrir Alþingiskosningar 2021. Þeir ræða heilbrigðismál, húsnæðismál, niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, Evrópumál og fleira.
9/21/2021 • 55 minutes, 24 seconds
#84 Kosningaspjall - Sósíalistaflokkurinn (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson)
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um stefnu og áherslur Sósíalistafloksins fyrir komandi kosningar. Rætt er um efnahagsmál, heilbrigðismál, kvótamál og fleira.
9/19/2021 • 1 hour, 53 minutes, 10 seconds
#83 Kosningaspjall - Samfylkingin (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur)
Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um stefnumál og áherslur Samfylkingarinnar. Rætt er um reynslu Kristrúnar úr fjármálageiranum og hvernig það orsakaðist að hún endaði í framboði fyrir Samfylkinguna, húsnæðismál, peningastefnumál, hvatastýringu, velferð og fleira.
9/18/2021 • 1 hour, 7 minutes
#82 Kosningaspjall - Sjálfstæðisflokkurinn (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um áherslur og stefnu Sjálfstæðisflokksins. Rætt er um fleiri mál en umræðurnar snúa að einstaklingshyggju, hvað það sé að vera hetja, spillingu, kvótakerfinu, húsnæðismálum, heilbrigðismálum, ofbeldi, KSÍ og femínisma.
9/16/2021 • 1 hour, 31 minutes, 40 seconds
#81 Kosningaspjall - Píratar (Viðtal við Björn Leví Gunnarsson)
Þórarinn ræðir kosningamál við Björn Leví Gunnarsson. Rætt er um Nýju stjórnarskránna, heilbrigðismál, atvinnumál og fleira.
9/12/2021 • 1 hour, 2 minutes, 44 seconds
#80 KSÍ - Klefamenning, þöggun og öfgar
Þórarinn, Kristín, Eyþór og Iva Marín ræða um KSÍ málið.
9/9/2021 • 1 hour, 22 minutes, 59 seconds
#79 Hvað er að gerast í Afghanistan? (Viðtal við Magnús Þorkel Bernharðsson)
Magnús Þorkell er prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts. Þórarinn ræðir við Magnús um ástandið í Afghanistan sem Magnús segir í grunninn vera sorgarsögu. Umræðuefnin snúa að hugmyndafræði talíbana, stjórnmál, bæði í Bandaríkjunum og á alþjóðavísu, hvort að yfirtökunni fylgi aukin hryðjuverkaógn, áhrif internetsins, flóttamannamál og fleira.Efnisyfirlit: 00:00:00 Miðausturlönd Fortíð, nútið og framtíð00:02:00 Hvað er að gerast í Afghanistan?00:06:45 Hversu mikilvægt er samband Vestrænna ríkja við Afghanistan?00:12:30 Valdatómarúm00:17:30 Miðstöð hryðjuverka?00:20:00 Áhrif á Bandarísk stjórnmál00:27:00 Hvar voru allir þessir hermenn?00:30:00 Hvernig er að lifa í samfélagi þar sem Sharia er framfylgt?00:34:00 Ofríki og áhrif internetsins00:37:30 Flóttamenn00:43:00 Er Afghanistan á leið í myrku aldirnar?00:47:30 Hafa Bandaríkjamenn lært af reynslu afskiptastefnunnar?
9/1/2021 • 54 minutes, 43 seconds
#78 Þræðir valdsins - Tíu árum síðar (Viðtal við Jóhann Hauksson)
Fyrir um 10 árum skrifaði Jóhann Hauksson blaðamaður bókina Þræðir valdsins. Bókin vakti mikla athygli og fjallar um tengsl viðskipta og stjórnmála á Íslandi; aðstöðubrask, klíkuskap og frændhygli. Þórarinn ræðir við höfundinn um Þræði valdsins í sögulegu samhengi. Telur Jóhann að hlutirnir hafi breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá útgáfu bókarinnar?
8/21/2021 • 58 minutes, 59 seconds
#77 Að leggja niður Útlendingastofnun - Flóttamenn, jaðarsetning og menningarárekstrar (Viðtal við Semu Erlu Serdar)
Þórarinn ræðir við Semu Erlu um mál hælisleitenda og flóttamanna. Farið er yfir hvað Ísland getur gert betur í málefnum hælisleitenda, afhverju Sema vill leggja niður Útlendingastofnun, U-beygju nágrannaríkja í þessum efnum, jaðarsetningu, menningarárekstra og tjáningarfrelsi.
8/1/2021 • 57 minutes, 38 seconds
#76 Tónlist, stjórnmál og tilgangur lífsins (Viðtal við Bigga Veiru)
Þórarinn ræðir við Birgi Þórarinsson, sem er betur þekktur sem Biggi Veira í GusGus. Umræðuefnið er samspil tónlistar við stjórnmál. Ýmsar hugmyndir eru reifaðar, meðal annars hver tilgangur lífsins er.Efnisyfirlit:00:00:00 Hver er Biggi Veira?00:05:00 Nýfrjálshyggjan00:09:50 Hefur þú alltaf verið tónlistamaður? En pólitískur?00:15:30 Tónlist sem tól gegn ofríki ríkisstjórna00:21:30 Er GusGus pólitísk hljómsveit?00:24:00 Hvað er Techno?00:28:00 Eru hægri menn lélegri í tónlist?00:41:00 #MeToo00:57:00 Víetnam og réttindabaráttur00:01:05 Tilgangur lífsins00:01:08 Tónlist og hinn frjálsi markaður
7/28/2021 • 1 hour, 34 minutes, 29 seconds
#75 Covid-19 - Frelsi og aðgerðir (Viðtal við Arnar Þór Jónsson)
Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson, héraðsdómara og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í SV-Kjördæmi, um aðgerðir baráttunni við Covid-19. Umræðurnar snúast um hugmyndir okkar um dauðann, heimspeki, hóphyggju, frelsi og margt fleira.
7/24/2021 • 1 hour, 20 minutes, 59 seconds
#74 Leikjafræði íslenskra stjórnmálaflokka í Alþingiskosningum 2021 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson)
Þórarinn ræðir við Bjarna Halldór og Ólaf Harðarson um Alþingiskosningar 2021. Farið er yfir sögulegar samlíkingar og stjórnmálalega leikjafræði flokkanna fyrir kosningar.
7/22/2021 • 1 hour, 34 minutes, 6 seconds
#73 Stríðið við auðvaldið - Engin laun hærri en þreföld lágmarkslaun (Viðtal við Katrínu Baldursdóttur)
Þórarinn ræðir við Katrínu Baldursdóttur. Katrín er sósíalisti sem að vill breyta samfélaginu til hins betra með auknum jöfnuði og valdeflingu þeirra sem eru lægra settir í samfélaginu. Þau ræða laun og kjör, húsnæðismál, hugmyndafræði og heimspeki.
7/17/2021 • 1 hour, 47 seconds
#72 ASÍ - Stéttabarátta og pólitík (Viðtal við Drífu Snædal)
Þórarinn ræðir við Drífu Snædal, Forseta ASÍ, um stéttabaráttu, pólitík, húsnæðismál og hugmyndafræði.00:00:00 Hvað eru stéttarfélög?00:03:30 PlayAir00:10:50 Húsnæðismál00:20:30 Pólitík00:30:00 Mun ASÍ taka afstöðu í kosningunum?00:36:45 Næsta kjarabarátta00:44:00 Á einkarekstur eitthvað erindi í heilbrigðisþjónustu?
7/15/2021 • 48 minutes, 55 seconds
#71 Félags- og barnamálaráðherra fer úr sveit í borg (Viðtal við Ásmund Einar Daðason)
Þórarinn ræðir við Ásmund Einar Daðason um komandi kosningar, málefni barna, sálfræðiþjónustu, húsnæðismál, landbúnaðarmál og margt fleira.
7/11/2021 • 59 minutes, 35 seconds
#70 Er #MeToo að ganga of langt? (Viðtal við Ivu Adrichem)
Þórarinn, Kristín og Iva Adrichem ræða hvort að #MeToo hreyfingin hafi gengið of langt.
7/7/2021 • 1 hour, 22 minutes, 56 seconds
#69 Á frjálshyggja upp á pallborðið í komandi kosningum? (Viðtal við Andrés Magnússon)
Þórarinn ræðir við Andrés Magnússon um það hvort að frjálshyggja eigi erindi við íslensk stjórnmál og hvort að sú hugsjón muni koma til með að eiga upp á pallborðið í næstkomandi kosningum.Efnisyfirlit:00:00:00 Er einhver flokkur sem að frjálshyggjumenn geta sætt sig við í næstu kosningum?00:11:00 Fjölmiðlastyrkur00:21:00 Sjálfstæðislfokkurinn og kerfið00:28:00 Samfylkingin00:41:00 Hagsmunir, útgerðirnar og hrunið00:52:30 Miðflokkurinn og sóttvarnir01:05:50 Píratar01:10:30 Framsókn01:13:30 Flokkur fólksins eða Sósíalistaflokkurinn
7/4/2021 • 1 hour, 25 minutes, 13 seconds
#68 Norrænt málþing um fjölmiðlafrelsi og aðför Samherja að Helga Seljan (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)
Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðför Samherja gegn Helga Seljan og öðrum fjölmiðlum vegna umfjöllun um Namibíumálið svokallaða. Málið litaði umræður á Norrænu málþingi sem fór fram nýlega.Linkur á málþingið: https://www.press.is/is/um-felagid/felagarnir/streymi-a-norraent-malthing-um-fjolmidlafrelsi-a-islandiEfnisyfirlit:00:00:00 Fjölmiðlar og lýðræði00:05:15 Aðför Samherja að Helga Seljan00:12:00 Verður reynsla Samherja öðrum fyrirtækjum víti til varnaðar?00:18:20 Afhverju var ekki fjallað um þetta í kvöldfréttum RÚV?00:21:00 Gaslýsing og lobbýismi00:25:30 Smæð Íslands00:31:40 Er þess virði að starfa í fjölmiðlum?00:35:40 Spilling á Íslandi00:47:40 Fjölmiðlafrelsi
6/30/2021 • 56 minutes, 10 seconds
#67 Er samfélagið safnhaugur einstaklinga? (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson)
*Upptaka frá 12.06.21Þórarinn og Gunnar Smári Egilsson ræða um dauða nýfrjálshyggjunnar, húsnæðismarkaðinn, stjórnmál, félagslegan Darwinisma og margt fleira.•00:06:20 Dauði nýfrjálshyggjunnar•00:20:00 Afrek sósíalískrar hugsunar á 20. öldinni•00:26:00 Aporophobia og húsnæðismarkaðurinn•00:31:00 Að hata vandamálin •00:34:00 Magnús Scheving og innantómar tilfinningar og væl stjórnmálamanna•00:43:00 Talaru Elitísku?•00:52:00 Sala Íslandsbanka•00:57:15 Ég ætla ekki að pakka málflutningnum þannig að elítan geti kyngt þessu•01:01:40 Engar byltingar enda með því að stjórnvöld fengu meiri völd.•01:12:30 Félagslegur Darwinismi og hvatastjórnun•01:32:30 Erum við bara homo economicus?•01:34:30 Kosningar og stefnumál sósíalista
6/26/2021 • 1 hour, 47 minutes, 31 seconds
#66 Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi (Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason)
Þórarinn ræðir við Jóhannes Þór, framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar, um framtíð ferðaþjónustu á Íslandi.•00:00 - Tilgangur SAF •04:50 - Simmi Vill er að tala út um rassgatið á sér•14:50 - Þegar ferðaþjónustan breyttist úr frjálshyggjumönnum í sósíalista vegna Covid-19•21:40 - Hlutverk stjórnvalda eftir Covid•27:30 - Ferðaþjónustan var á niðurleið fyrir Covid-19. Hversu langt mun viðspyrnan að ná?•33:10 - Munu innviðirnir geta gripið þá eftirspurn álíka þeirri sem við sáum áður? •37:50 - Lífskjarasamningarnir og fjármálastefna•52:50 - Pólitíkin
6/24/2021 • 57 minutes, 11 seconds
#65 Á að niðurgreiða sálfræðiþjónustu? (Viðtal við Tryggva Guðjón Ingason)
Tryggvi Guðjón Ingason er formaður Sálfræðingafélag Íslands. Þórarinn ræðir við Tryggva um pólitísk og praktísk álitaefni sem snúa að niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu.
6/17/2021 • 57 minutes, 40 seconds
#64 Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar stefnir á þing (Viðtal við Hildu Jönu Gísladóttur)
Þórarinn ræðir við Hildu Jönu Gísladóttur. Hilda er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Akureyrarbæ og stefnir nú á þing. Hún tók þátt í hinu nýstárlega þverpólitíska tilraunarverkefni þar sem pólitíkin byggðist á samstöðu og allir flokkar mynduðu meirihluta í sameiningu. Þau ræða meðal annars hvort að Hilda sjái fyrir sér hvort slíkt fyrirkomulag myndi virka á Alþingi ásamt öðrum álitaefnum.
6/15/2021 • 1 hour, 35 seconds
#63 Brynjar snýr aftur í stjórnmál (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Brynjar er ekki hættur í stjórnmálum. Þórarinn ræðir við hann um prófkjörið, framtíðina, verðmætasköpun, #metoo, markþjálfun og spillingu.
6/11/2021 • 1 hour, 19 minutes, 22 seconds
#62 Í stjórnmál eftir þrjátíu ár í fjölmiðlum (Viðtal við Sigmar Guðmundsson)
Sigmar Guðmundsson stefnir á þing eftir um þrjátíu ár starf í fjölmiðlum. Hann býður sig fram í Suðvesturkjördæmi fyrir flokk Viðreisnar. Þórarinn ræðir við Sigmar um stefnumál flokksins, krónuna, geðheilbrigðismál, frelsi og margt fleira.
6/6/2021 • 59 minutes, 39 seconds
#61 Afglæpavæðing fíkniefna - Eiturlyf eða vímuefni (Viðtal við Ólaf Ísleifsson)
Þórarinn og Kristín ræða við Ólaf Ísleifsson, þingmann Miðflokksins, um afglæpavæðingu fíkniefna.
6/4/2021 • 1 hour, 1 minute
#60 Kveður eftir fjörutíu ára þingmennsku - Kosningar, umhverfið og Samherji (Viðtal við Steingrím J. Sigfússon)
Þórarinn ræðir við Steingrím J. Sigfússon um ferilinn, pólitík, kosningar og umhverfisvernd. Í síðari hluta viðtalsins ræða þeir um stjórnmálamenningu á Íslandi og hvort að Kristján Þór Júlíusson hefði átt að segja af sér embættinu í kjölfar Samherjamálsins. Að lokum er rætt um hverja Steingrímur myndi helst vilja fá með sér í sumarbústaðarferð.
6/2/2021 • 1 hour, 9 minutes, 50 seconds
#59 Eru hlaðvörp fjölmiðlar? (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
Þórarinn og Jakob Bjarnar leggja fyrir sig rannsóknarspurningu: Eru hlaðvörp fjölmiðlar? Auk þess að svara henni ræða þeir um blaðamennsku og ritstjórnir, ríkisspenann, góða fólkið, traust til fjölmiðla og margt fleira.
5/30/2021 • 1 hour, 10 minutes, 33 seconds
#58 Héraðsdómari á leið í stjórnmál (Viðtal við Arnar Þór Jónsson)
Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson héraðsdómara um fyrirhugaða þátttöku hans í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Auk álitaefna um að dómari bjóði sig fram til setu á Alþingi ræða þeir ýmis hugmyndafræðileg og samfélagsleg álitamál.
5/23/2021 • 1 hour, 5 minutes, 57 seconds
#57 Hugleiðingar með Ivu Adrichem
Þórarinn og Kristín ræða við Ivu Adrichem um allskyns samfélagsleg álitaefni. Rætt er um Onlyfans, stjórnmál, fasisma, feminísma og margt fleira.
5/21/2021 • 1 hour, 38 minutes, 3 seconds
#56 Formaður Samfylkingarinnar - Stefnumál, forræðishyggja og gervigreind (Viðtal við Loga Einarsson)
Þórarinn ræðir við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar. Umræðurnar snúa að stefnumálum Samfylkingarinnar, forræðishyggju, , tjáningarfrelsi, skatta og gervigreind.
5/13/2021 • 57 minutes, 15 seconds
#55 Formaður VR - Lífskjarasamningar og húsnæðismál (Viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson)
Þórarinn ræðir verkalýðsmál við Ragnar Þór Ingólfsson. Rætt er um hina títtnefndu lífskjarasamninga, krónutöluhækkanir og húsnæðismál.
5/9/2021 • 1 hour, 14 seconds
#54 Tjáningarfrelsi - Only Fans, stjórnmál og samsæriskenningar
Kristín og Þórarinn ræða við Helga Hrafn Gunnarsson um tjáningarfrelsi. Þrátt fyrir stutt viðtal er farið um víðan völl. Rætt erum um takmarkanir á tjáningarfrelsi, klám, Only Fans vefsíðuna, stjórnmál, vísindi og samsæriskenningar.
4/20/2021 • 57 minutes, 16 seconds
#53 Sóttvarnarlæknir svarar gagnrýni öðru sinni (Viðtal við Þórólf Guðnason)
Þórarinn ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni öðru sinni. Þeir ræða niðurstöðu dómstóla um sóttkvíarhótel, pólitíska samstöðu í aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19, umræðuna og fleira.
4/12/2021 • 54 minutes, 32 seconds
#52 Varnaðarorð Orwells - Siðanefndir og blaðamenn (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
Jakob Bjarnar er þungavigtarmaður í íslenskri blaðamennsku. Þórarinn og Jakob ræða um úrskurð siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan og umfjöllun hans um Samherja, viðtal Frosta Logasonar við Katrínu Jakobsdóttur um aðgerðir stjórnvalda við Covid-19, hatursorðræðu og margt fleira. Rauður þráður í samtalinu eru varnaðarorð Orwells um málfrelsi og fleira.
3/30/2021 • 1 hour, 16 minutes, 29 seconds
#51 Ofríki samráðsins - Ungt fólk og stjórnmál (Viðtal við Hrafn Haraldsson Dungal)
Þórarinn og Eyþór ræða við Hrafn Haraldsson Dungal um stjórnmál, ungt fólk og áhrif tækninnar. Umræðan hrærist í kringum hugtakið ofríki samráðsins, vísindi og sannleikann. Rætt er um líffræðilegar ástæður slaufunarmenningar, Orwell og stöðnun sögunnar, ábyrgð einstaklingsins, skjótfengna hamingju, andstæðuheitin jöfnuð og frelsi og fleira.
3/28/2021 • 1 hour, 20 minutes, 38 seconds
#50 Better Left Unsaid (With Curt Jaimungal)
Better Left Unsaid: https://bit.ly/blu_preorderTóti interviews Curt Jaimungal about Better Left Unsaid, a film written and directed by Curt. The film incorporates interviews with intellectuals such as Coleman Hughes, Steven Pinker, Michael Shermer, Noam Chomsky, Janice Fiamengo, and more. It addresses the issue of political extremism in the West, the implications of identity politics, and the new woke-culture promulgated by, and broadcasted from, Western universities.
3/24/2021 • 1 hour, 9 minutes, 30 seconds
#49 In the aftermath of Trump (With Philip Gourevitch)
Þórarinn discusses American politics with Philip Gourevitch. Philip is a staff writer at the New Yorker and an author of several books. The discussion is focused on how American politics will look like in the post-Trump era and Trump’s impact on the Republican party.
3/20/2021 • 56 minutes, 11 seconds
#48 Slaufunarmenning, ofstæki og ábyrgð (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um slaufunarmenningu (cancel culture). Rætt er um fitufordóma, ábyrgð, femínisma, ofstæki innan akademískra stofnanna og margt fleira. Einnig er reynt að finna svar við spurningunni afhverju fólk gefur eftir í stað þess að standa í lappirnar gagnvart fasískum öflum.
3/13/2021 • 58 minutes, 19 seconds
#47 Nýfrjálshyggja og frelsi (Viðtal við Hannes Hólmstein Gissurarson)
Þórarinn ræðir við Hannes Hólmstein um nýfrjálshyggju.Bók: https://newdirection.online/2018-publications-pdf/ND-ThinkersVol2-2020f.pdf
2/25/2021 • 1 hour, 25 minutes, 32 seconds
#46 Formaður Viðreisnar (Viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur)
Þórarinn og Eyþór ræða við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um áform og hugsjónir Viðreisnarflokksins. Farið er yfir skattamál, frjálslyndi, veiðigjöld, nýju stjórnarskránna og heilbrigðismál.
2/21/2021 • 53 minutes, 58 seconds
#45 Atvinnuframboðstrygging, húsnæði og peningar (Viðtal við Ólaf Margeirsson)
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um atvinnuframboðstryggingu. Auk þess er rætt um borgaralaun, áhrif atvinnuframboðstryggingar á verkalýðsbaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Húsnæðismál (mínúta 25) eru einnig sérstaklega rædd. Ólafur er doktor í hagfræði með sérþekkingu á þróun og eðli peninga og tengslum þeirra við húsnæðisverð.
2/17/2021 • 47 minutes, 1 second
#44 Íslenskur sósíalismi (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson)
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um sósíalíska baráttu á Íslandi.Tímalína:•00:01:00 – Samstöðin og elítu miðlar•00:03:00 – Kurteisi umræðunnar•00:17:20 – Hverjar yrðu áherslur sósíalistaflokksins með hreinan alþingismeirihluta?•00:25:00 – Frelsi og hinn frjálsi markaður•00:39:00 – Krónutöluhækkanir og lífskjör•00:47:00 – Lýðræðisfyrirtæki•00:57:00 – Sjálfstæðisflokkurinn og velferðarkerfið•01:02:30 – Fjölmiðlar•01:10:40 – Afhverju gefa ungir rapparar sig á vald elítunnar•01:18:00 – Lausnamiðuð stjórnmál
2/11/2021 • 1 hour, 36 minutes, 40 seconds
#43 Alþingiskosningar 2021 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson)
Langloka þar sem Þórarinn ræðir við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson um næstkomandi alþingiskosningar. Drepið er á ýmsu og farið um víðan völl. Rætt er um hindranir, kosti, galla, sögulegan- og alþjóðlegan samanburð. Hér að neðan má sjá tímalínu umræðunnar:0:01:00 – Kosningabaráttan0:19:00 – Staða Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum0:27:30 – Hvað þýðir að vera til vinstri eða hægri í alþjóðlegum samanburði0:33:50 – Vandamál VG vegna ríkisstjórnarsambandsins0:39:50 – Afhverju voru vinstri menn reiðari Katrínu heldur en Bjarna við ríkisstjórnarsambandið?0:53:00 – Bjarni Ben í kryddsíld0:58:00 – Pólitík hinna sterku manna og popúlismi1:15:05 – Hvaða hindranir verða í vegi fyrir Íslenskum stjórnmálaflokkum í næstu kosningum.1:31:50 – Hvaða áhrif hefur kosningakerfið, hegðun kjósenda og breytingar.1:40:00 – Eiga íþróttir að vera pólitískar?1:45:00 – Helstu hindranir Samfylkingarinnar, áhrif hrunsins og fleira.1:53:30 – Helstu hindranir VG2:00:00 – Framsókn2:05:30 – Dauð atkvæði og nýjir flokkar flokkar
2/7/2021 • 2 hours, 13 minutes, 24 seconds
#42 Húsnæði í Reykjavík - Þétting, krónutöluhækkanir, framboð og eftirspurn (Viðtal við Pawel Bartoszek)
Þórarinn og Eyþór ræða við Pawel Bartoszek um húsnæðismál í Reykjavík. Farið er yfir stefnu borgarstjórnar og áform hennar um að þétta byggð, hugmyndafræðileg álitaefni, krónutöluhækkanir, framboð og eftirspurn.
1/30/2021 • 54 minutes, 47 seconds
#41 Kjötneysla og loftslagsaðgerðir í Reykjavík (Viðtal við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson)
Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson borgarfulltrúa um ágreining þeirra varðandi áætlanir meirihluta borgarstjórnar um að minnka kjötneyslu til muna á ýmsum sviðum Reykjavíkurborgar. Samræðurnar fara um víðan völl, auk kjötneyslu ræða þau loftslagsmál, lífstílssjúkdóma, þéttingu byggðar og húsnæðisskort.
1/26/2021 • 1 hour, 1 minute, 50 seconds
#40 Mun Bitcoin ná heimsyfirráðum? (Viðtal við Ívar Ketilsson)
Kristín, Þórarinn og Eyþór koma öll saman til þess að ræða við Ívar Ketilsson um Bitcoin. Fólk sér ýmist Bitcoin fyrir sér sem fjárfestingu, gjaldmiðil eða jafnvel eitthvað sem mun koma til með að gjörbreyta núverandi efnahagskerfi. Umræðurnar snúa að því að fara betur í saumana á þessu máli. Þau ræða peninga í sögulegu samhengi, hvernig Bitcoin virkar og hvaða eiginleika það hefur ásamt því að rökræða með hvaða hætti Bitcoin geti betrumbætt samfélög.
1/20/2021 • 1 hour, 21 minutes, 15 seconds
#39 Árás á þinghúsið í Washington D.C. (Viðtal við Friðjón R. Friðjónsson)
Þórarinn ræðir við Friðjón R. Friðjónsson um árásina á þinghúsið í Washington þann 6. janúar. Rætt er um hvaða orsakasambönd leiddu til þess að árásin var gerð, hugtakið "Moral Marshall Plan" ásamt því að íhuga og ígrunda hvaða skref séu nauðsynleg fyrir Bandaríkjamenn að taka til þess að takast á við þau vandamál sem bandarísk stjórnmálamenning stendur frammi fyrir.
1/13/2021 • 1 hour, 36 seconds
#38 Skattar, neysla og landsbyggðin
Þórarinn og Eyþór ræða við Ívar Elí um skatta, neyslu og vægi landsbyggðarinnar. Auk þess ræða þeir hvort fyrirgefa eigi Samherja, atvinnuleysisbætur og álitamál sem snúa að niðurgreiddri sálfræðiþjónustu.
1/8/2021 • 1 hour, 13 minutes, 58 seconds
#37 Ekki-party í Ásmundarsal (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)
Eyþór og Þórarinn ræða við Þórð Snæ Júlíusson um grein Þórðar sem ber heitið 'Bjarni Sigurvegari'. Greinin fjallar um athæfi Bjarna Benediktssonar á Þorláksmessu þegar honum var boðið í samkvæmi sem lögreglan stöðvaði vegna brots á sóttvarnarreglum. Þremenningarnir ræða kosningagengi Sjálfstæðisflokksins í sögulegu samhengi og hvaða áhrif Þorláksmessuævintýrið muni koma til með að hafa í komandi kosningum.
12/29/2020 • 53 minutes, 7 seconds
#36 Sjálfstæðisflokkurinn í borginni (viðtal við Hildi Björnsdóttur)
Þórarinn og Eyþór ræða við Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þríeykið ræðir hugmyndafræði sjálfstæðisflokksins, einkavæðingu skóla, skatta, kynjakvóta, ungt fólk og byggingariðnaðinn í Reykjavík.
12/19/2020 • 1 hour, 8 minutes, 26 seconds
#35 Landsréttarmálið, hrossakaup og fleira (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson)
Bjarni Halldór Janusson komst í fréttirnar vegna atkvæðagreiðslu árið 2017 í Landsréttarmálinu svokallaða. Þórarinn ræðir við Bjarna Halldór um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu, hrossakaup og hræsni í íslenskum stjórnmálum, ítök Sjálfstæðisflokksins, Bandarísk stjórnmál, Covid-19 og fleira.MDE00:02:00Hrossakaup í íslenskum stjórnmálum og aðhaldsskylda stjórnmálamanna00:14:30Ítök sjálfstæðisflokksins00:17:00Door to door politics og Ásmundur friðriks00:20:30Hafa vinstri flokkar yfirgefið vinstri men?00:25:30Eiga ungir tónlistamenn að vera fremst í baráttunni um stjórnmál?00:33:10Bandarísk stjórnmál og Fake news Trump00:49:30Hvernig breytum við skoðunum fólks?1:02:00Bóluefni og samsæriskenningar1:06:30Vinnustaðalýðræði og stéttabarátta1:40:00Evrópusambandið og myntkerfi1:48:00Afhverju eru stjórnmál svona „petty“1:55:00
12/13/2020 • 2 hours, 21 minutes, 58 seconds
#34 The Future of Capitalism (A conversation with Sir Paul Collier)
On this podcast, Þórarinn speaks to Sir Paul Collier, professor of economics at the Blavatnik School of Government at Oxford University. They speak about Paul's book, The Future of Capitalism: Facing the New Anxieties, which was published in 2018. They discuss what implications Covid-19 has had on his prior projections and how societies can fix the economic problems following the great divergence of the past few decades.
12/6/2020 • 40 minutes, 41 seconds
#33 Iceland and the Great Barrington Declaration (An interview with Martin Kulldorff)
Martin is a professor of medicine at Harvard University and does research in statistical and epidemiological methods for disease surveillance. Martin answers Þórarinn's inquiries about the proposals laid out in the infamous Great Barrington Declaration within the context of Iceland, the political implications of the virus, and much more.
11/28/2020 • 49 minutes, 27 seconds
#32 Fyrirtæki og hagsmunir (Viðtal við Simma Vill)
Þórarinn og Eyþór ræða við Simma Vill um rekstur fyrirtækja á Íslandi. Þeir ræða veitingarekstur og muninn á því að vera í slíkum rekstri á Íslandi í samanburði við önnur lönd og sögu Simma í rekstrinum. Í kjölfarið á því er skipt um gír. Þremenningarnir ræða pólitískan rétttrúnað og stjórnmál. Mun langtímahugsjóna Kína í samanburði við skammtímalausnir vestrænna landa. Orkumál og hvaða þýðingu loftslagsbreytingar munu koma til með að hafa á þau, kjaraviðræður og muninn á litlum og meðalstórum fyrirtækjum í samanburði við stærstu fyrirtækin, veganisma og fleira.
11/25/2020 • 1 hour, 40 minutes, 22 seconds
#31 Sóttvarnalæknir svarar gagnrýni vegna Covid-19 aðgerða (Viðtal við Þórólf Guðnason)
Þórarinn ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um aðgerðir vegna Covid-19 á Íslandi. Þórólfur svarar gagnrýni Barrington-yfirlýsingarinnar, hvað bóluefni þýðir fyrir næstu mánuði, hvernig tímanum hefur tekist að gera veiruna pólitískt íþyngjandi og fleiru.
11/20/2020 • 55 minutes, 9 seconds
#30 Aðgerðir vegna Covid-19 - Ofríki og frelsi (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Brynjar Níelsson sest niður með Þórarni til þess að ræða álitamál sem snúa að aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19. Þeir ræða sænsku leiðina, tjáningarfrelsi og umræðuna í kringum veiruna, hvort að auka eigi útgjöld til heilbrigðiskerfisins og fleira.
11/14/2020 • 1 hour, 17 minutes, 54 seconds
#29 Hlaðvarpið eins árs - Uppgjör og fleira
Hlaðvarpið Ein pæling hefur nú verið starfandi í heilt ár. Stofnendur fagna því með því að fara yfir fyrri hlaðvörp og margt, margt fleira.
11/8/2020 • 1 hour, 27 minutes, 5 seconds
#28 Að snúa baki við róttækni - Einsleitni skoðana, hóphyggja og öfgar (Viðtal við Ivu Adrichem)
Þórarinn ræðir við Ivu Adrichem um einkennapólitík, fræðasamfélagið, hóphyggju, LGB teymið, tjáningarfrelsi, dygðaskreytingu og margt fleira.
10/29/2020 • 1 hour, 18 minutes, 42 seconds
#27 Sósíalískur Femínismi (Viðtal við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur)
Þórarinn ræðir við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur um sósíaliskan femínisma, hóphyggju, hatursorðræðu, rasisma og fleira.
10/24/2020 • 1 hour, 7 minutes, 21 seconds
#26 Þróun stjórnmála í hinum vestræna heimi - Kosningar, lýðræði og Covid 19 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson)
Þverpólitískt hlaðvarp þar sem Þórarinn sest niður með Ólafi Þ. Harðarsyni háskólaprófessor við Háskóla Íslands. Þeir ræða þróun flokkakerfisins á Íslandi síðastliðin 20 ár, óstöðuleika í stjórnmálum, áhrif covid 19 á íslensk og erlend stjórnmál, uppgang popúlisma, hvort að vinstri stjórnmálaflokkar hafi svikið verkamenn, bergmálshella og nýju stjórnarskrána.
10/20/2020 • 1 hour, 5 minutes, 43 seconds
#25 Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Þórhildur Sunna (Viðtal við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur)
Eyþór og Þórarinn ræða við Þórhildi Sunnu þingmann Pírata. Þau ræða aðgerðir stjórnvalda vegna Covid 19, stéttabaráttu Icelandair, málefni hælisleitenda, mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu og fleira.
10/18/2020 • 1 hour, 12 minutes, 43 seconds
#24 Hvað er framtíðin? (Viðtal við Berg Ebba)
Í þessu hlaðvarpi ræða Kristín og Þórarinn við Berg Ebba um framtíðina. Umgjörð spjallsins byggist á bók Bergs Ebba, Skjáskot, og fara þremenningarnir vítt og breytt í sínum hugleiðingum um tækniframfarir, samfélagsmiðla og gervigreind.
10/11/2020 • 1 hour, 35 minutes, 15 seconds
#23 Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir (Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur)
Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir sest niður með Þórarni og Eyþóri til þess að ræða ýmis pólitísk álitaefni. Þau ræða núverandi stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, kosningarnar 2021, aðgerðir stjórnvalda í kringum heimsfaraldurinn, nýju stjórnarskrána og fleira.
9/11/2020 • 31 minutes, 8 seconds
#22 Skoðanapakkar, háskólar og stjórnmálamenning (Viðtal við Einar Steingrímsson)
Farið er um víðan völl. Einar Steingrímsson er stærðfræðingur sem bítur sjaldan í tunguna. Eyþór og Þórarinn ræða við hann um háskólamenningu og rannsóknarstarf, liðahugsun og skoðanapakka, einkennapólitík (identity politics), hlutafjárútboð Icelandair, trickle down economics og stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Að lokum tala þremenningarnir um tjáningarfrelsi og spá í framtíð akademísks frelsis.
9/9/2020 • 1 hour, 7 minutes, 59 seconds
#21 Trans - Samfélagsleg álitamál (Viðtal við Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur)
Þórarinn og Kristín ræða við Uglu Stefaníu um samfélagslegu spurningar sem brenna á mörgum í sambandi við trans mál. Þau ræða tjáningarfrelsi og siðareglur fjölmiðla, mismunandi kyn og fornöfn, hvenær trans manneskja verður trans, blæðingar, íþróttir, fangelsi vald og fleira.
8/15/2020 • 2 hours, 8 minutes, 47 seconds
#20 Afleiðingar lögregluafskipta í Bandaríkjunum
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur um lögregluafskipti og afleiðingar þess í Bandaríkjunum. Rasismi er rauði þráður hlaðvarpsins en Margrét skrifaði doktorsritgerð um afleiðingar lögregluafskipta á ungt fólk og hvernig það hefur áhrif á framtíð þess. Ásamt ritgerðinni ræða þau morðið á George Floyd, ákvörðun Trump um að beita alríkislögreglunni til þess að takast á við mótmælin, aðrar ritgerðir um álíka efni og fleira.Ritgerð Margrétar má finna hér: https://opencuny.org/margretv/2013/10/27/cv/
8/9/2020 • 52 minutes, 26 seconds
#19 Cultural appropriation og rasismi á Íslandi (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere)
Kristín, Sunna og Þórarinn ræða um menningarnám (cultural appropriation) og fara yfir þau ýmsu álitamál sem að málinu snúa. Þau ræða íþróttir, hrekkjavökubúninga, fastar fléttur og fleira. Hefði Dagbjört Rúriks átt að biðjast fyrirgefningar fyrir að fá sér fastar fléttur? Hefði Pétur Jóhann átt að biðjast fyrirgefningar fyrir það að gera grín að asískum vændiskonum? Þríeykið reynir að svara þessum spurningum.
7/11/2020 • 1 hour, 15 minutes, 26 seconds
#18 Rasismi, óeirðir og mótmæli (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere)
Sunna Sasha Larosiliere er blönduð stelpa sem ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Hún er stjórnmálafræðingur og með mastersgráðu í krísustjórnun. Kristín og Þórarinn ræða við hana um rasisma í Bandaríkjunum, óeirðirnar og mótmælin í kringum morðið á George Floyd og fleira. Viðtalið er nokkurskonar framhald af þarsíðasta viðtali þar sem aðrir vinklar eru skoðaðir.
6/30/2020 • 1 hour, 45 minutes, 2 seconds
#17 Forsetaframbjóðandinn Guðmundur Franklín (Viðtal við Guðmund Franklín)
Þórarinn ræðir við Guðmund Franklín forsetaframbjóðanda. Viðtalið er stutt og fer þorri þess í að rýna í pólitískar skoðanir Guðmundar á hinum ýmsu málefnum. Stefna hans er að efla forsetaembættið með því að nýta málskotsréttinn í meira mæli en fyrrum forsetar. Þeir ræða innflytjendamál, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og hvaða alþingismann Guðmundur myndi kjósa sér til þess að prófa ayahuasca í sumarbústað.
6/24/2020 • 23 minutes, 30 seconds
#16 Lögregluofbeldi og morðið á George Floyd
Í þessum þætti ræða Kristín, Þórarinn og Eyþór lögregluofbeldi og morðið á George Floyd. Þau velta fyrir sér hugmyndafræði Black Lives Matter, dyggðarskreytingu fjölmiðla og black out tuesday, hvort rasismi sé meiri á Íslandi eða í Bandaríkjunum og hvaða áhrif mótmælin og óeirðirnar munu koma til með að hafa á framtíðina.
6/14/2020 • 1 hour, 58 minutes, 13 seconds
#15 Fitufordómar (Viðtal við Töru Margréti og Ernu Kristínu)
Kristín og Þórarinn ræða við Töru Margréti og Ernu Kristínu um fitufordóma. Fyrst fara Tara og Erna yfir skilgreiningu fitufordóma og hvaða áhrif þeir hafa á samfélagið í heild. Rætt er um álitamál heilbrigðisvísindanna, holdarfar og hamingju, offitu barna, hvort það megi gera grín að feitum og ummæli Kára Stefánssonar um greindarvísitölu fólks í offitu.
6/8/2020 • 1 hour, 22 minutes, 9 seconds
#14 Hver er Brynjar Níels? (Viðtal við Brynjar Níelsson)
Í þessum þætti kynnast Þórarinn og Eyþór Brynjari Níelssyni. Í fyrstu er rætt um upphaf Brynjars í stjórnmálum og álit hans á ýmsum efnum. Þaðan er lagt í umræður um fíknivanda, hugsunastjórnun, akademíuna, fóstureyðingar og aðgerðir stjórnvalda á tímum Covid-19. Að lokum er Brynjar spurður hverjum hann myndi bjóða í eftirparty og hverjum hann myndi síst vilja fara með í sumarbústaðarferð.
5/30/2020 • 1 hour, 3 minutes, 56 seconds
#13 Covid 19 - Kreppan og aðgerðir stjórnvalda (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)
Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðgerðir stjórnvalda og þá kreppu sem Covid-19 krísunni fylgir. Þeir ræða hlutabótaleiðina, mismunandi styrki og lán sem stjórnvöld hafa lofað, ójöfnuð, skiptingu auðlinda, fjórðu iðnbyltinguna og fleira.
5/27/2020 • 1 hour, 8 minutes, 27 seconds
Podcastumræður #1 - Yuval Noah Harari og Sam Harris
Kristín og Þórarinn prófa örlítið nýtt í þessum þætti. Þau ræða mismunandi hugmyndir sem komu fram í hlaðvarpi Sam Harris þar sem hann ræðir við Yuval Noah Harari. Hlaðvarpið nefnist Making Sense Podcast og er þátturinn númer 201. Umræðuefnin eru breyttar hugmyndir um dauðann, vald og ný gildi á tímum covid, stöðu alþjóðasamskipta, samfélagslegan klofning og jákvæðar hliðar þjóðernishyggju, og að lokum framtíð menntunar.
5/17/2020 • 37 minutes, 24 seconds
#12 Covid 19 - Efnahagur, heimspeki og fleira
Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða Covid 19 og áhrif þess. Tekist er á um hvort að "sænska leiðin" sé rétta svarið og hvaða afleiddu afleiðingar það mun koma til að hafa á efnahag þróunarlanda. Þeir ræða hlutabótaleiðina, hegðun fyrirtækja á opinberum markaði og hvaða áhrif það muni hafa á stjórnmál á Íslandi í náinni framtíð. Að lokum er heimspeki rædd og reynt að finna svar við hvers virði mannslíf eru.heimspekiefnahagur þróunarlandaefnahagur íslandsstjórnmálsænska leiðinvald
5/10/2020 • 1 hour, 25 minutes, 23 seconds
#11 Fjölmiðlar og pólitískur rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)
Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, akademískar stofnanir og tjáningarfrelsi. Að lokum lýsir Jakob skoðunum sínum á vanköntum fjölmiðlafrumvarpsins sem Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra lagði fram nýverið og á sérstöðu Ríkisútvarpsins, RÚV.Þríeykinu tekst að koma höggi á nánast alla og ættu allir hlustendur að geta móðgast yfir einhverju.
2/13/2020 • 1 hour, 35 minutes, 31 seconds
#10 Samfélagsmiðlar
Að þessu sinni ræða Eyþór, Kristín og Þórarinn samfélagsmiðla. Þau ræða menningarleg, heilsufarsleg og pólitísk áhrif þeirra og spá fyrir um hvernig þetta muni breyta samfélögum um allan heim í náinni framtíð. Rýnt er í gögn um þau geðrænu vandamál sem samfélagsmiðlar virðast auka og hvort rétt sé að, og jafnframt hvort hægt sé að, sporna við síauknum yfirráðum tæknirisanna.
2/6/2020 • 1 hour, 17 minutes, 43 seconds
#9 Saving Democracy (A conversation with Lawrence Lessig)
In this episode Þórarinn talks to Lawrence Lessig. Lawrence is a professor at the Harvard School of Law and an adamant fighter for democracy around the world. They discuss how technology is corrupting our minds to benefit financially while simultaneously undermining our democratic institutions. Lawrence gives a brief description of the Icelandic referendum in 2012 for a new constitution, what it meant for Icelandic democracy and Iceland’s unique position in fighting for democracy due to its small population. Finally, they discuss the impeachment of Donald Trump, the Democratic primaries, and the 2020 presidential elections in the United States. Enjoy!
1/26/2020 • 1 hour, 2 minutes, 7 seconds
#8 Innflytjendur (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac)
Kristín og Þórarinn fá Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac með sér í hlaðvarpið til þess að ræða innflytjendur. Þórður er ritstjóri Kjarnans og Jasmína er verkefnastjóri fjölmenningar hjá Mennigarhúsum í Kópavogi og varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Farið er yfir efnahagslegar, menningarlegar og samfélagslegar afleiðingar þess að taka á móti innflytjendum. Munurinn milli innflytjenda, flóttamanna og hælisleitanda er skilgreindur og skoðað hvernig sveitarfélög Höfuðborgarsvæðisins taka mismunandi á þessum málum. Rætt er um hvað það sé að vera Íslendingur, rasisma og útlendingahatur, hvernig skuli haga blöndun og aðlögun, og menningarlega árekstra í V-Evrópu undanfarna áratugi.
1/3/2020 • 1 hour, 26 minutes, 42 seconds
#7 Breskar þingkosningar 2019 (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson)
Eitt þverpólitískt. Þórarinn er einn að þessu sinni en fær til sín góðan gest. Bjarni Halldór Janusson var á sínum tíma yngsti þingmaðurinn til þess að gegna Alþingisembætti og stundar nú framhaldsnám í stjórnmálafræði í Bretlandi. Þórarinn og Bjarni ræða Breskar þingkosningar og hvernig popúlismi hefur haft áhrif á landslag stjórnmálanna í Evrópu. Þeir varpa fram eftirfarandi spurningum: Hafa vinstri flokkar glatað tengslum sínum við verkafólk? Er hugmyndin um upplýstan kjósanda úrelt á tímum tæknibyltingarinnar og falsfrétta? Hvaða áhrif höfðu vandamál Verkamannaflokksins um gyðingahatur á kosningarnar? Í síðari hluta hlaðvarpsins fara Bjarni og Þórarinn út í akademískt frelsi, Ísland, Miðflokkinn og velta því fyrir sér hvort að tengsl akademískra stofnana við fjármagn grafi undan gæðum þeirra.
12/31/2019 • 1 hour, 38 minutes, 46 seconds
#6 Viðbótarhlaðvarp
Sökum veikinda og prófatíðar hefur meðlimum hlaðvarpsins ekki tekist að setjast niður í nokkurn tíma. Eyþór og Þórarinn ákveða því að fá Ívar Elí aftur í heimsókn. Hlaðvarpið er að mestu óundirbúið og tekur á eftirfarandi málefnum:NeysluhyggjuLoftslagsmálumKapítalismaAfhverju vinstri-flokkar gáfust upp á verkafólkiKynþáttahatri (Deeyah Khan og Daryl Davis)Hillary ClintonSameiningu pólitískra hópa.Góða skemmtun.
12/6/2019 • 1 hour, 15 minutes, 15 seconds
#5 Karlmennskan (Viðtal við Þorstein V. Einarsson)
Í þessu hlaðvarpi setjast Kristín og Þórarinn niður með Þorsteini V. Einarssyni og ræða um karlmennsku. Þorsteinn er forsprakki hugverksins #Karlmennskan sem leitast eftir að brjóta niður kynjaðar staðalímyndir sem samfélagið setur okkur. Kristín og Þórarinn hafa spurningar og leiðir það til áhugaverðrar samræðu um femínisma, karlmennsku, samfélagið, pólitík, aðferðarfræði „vondra/góðra“ femínista og fleira.
11/21/2019 • 2 hours, 10 minutes, 27 seconds
#4 Kynjakvóti, Íslandsbanki og Samfylkingin
Kristín, Þórarinn og Eyþór rökræða bæði kynjakvóta og kvennakvóta. Til þess eru notuð tvö tilvik sem nýverið leituðu í fréttirnar. Annarsvegar er rætt um þegar Íslandsbanki tilkynnti að bankinn myndi koma til með að hætta að auglýsa hjá þeim fjölmiðlum sem ekki hefðu jafnrétti kynjanna á sinni stefnuskrá. Og hinsvegar er rætt um nýja stefnu Samfylkingarinnar um kvennakvóta. Flokkurinn vildi rótfesta þau feminísku markmið sem hann gefur sig út fyrir og töldu flokksmenn að sú hugmynd væri fýsilegri heldur en kynjakvóti.
11/5/2019 • 34 minutes, 29 seconds
#3 Reykjavíkurdætur
Hvenær gengur grín of langt?Í þessu hlaðvarpi fjalla Eyþór, Þórarinn og Ívar Elí um siðferði uppistandara og nota dæmi þess þegar Anna Svava gerði grin að Reykjavíkurdætrum í uppistandi sínu með Birni Braga.
11/3/2019 • 1 hour, 10 minutes, 39 seconds
#2 Norðurvígi
Í þessu hlaðvarpi fjalla Þórarinn, Kristín og Eyþór um Norðurvígi, innflytjandamál og hvað það þýðir að vera Íslendingur.
11/3/2019 • 55 minutes, 9 seconds
#1 Tjáningarfrelsi
Stunda Samtökin 78' hatursorðræðu? Í þessu hlaðvarpi ræða Eyþór, Þórarinn og Kristín um tjáningafrelsi. Farið er yfir siðferðislegar spurningar þessa hvar línan eigi að liggja og hvar tjáningafrelsi verður of rúmt. Einnig er talað um andstæðinga Donald Trump, Trigger Warnings, Safe spaces, Kína og sjálfstæðar hugsanir.
11/3/2019 • 1 hour, 22 minutes, 31 seconds