Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.
Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams
Hvað er að gerast hjá Bruce Willis? Á hann mögulega lítið eftir?Hvað kom fyrir Robin Williams?Bruce Willis og heilabilunin, Frontotemporal dementiaRobin Williams og þunglyndi og Lewy body dementia
8/9/2023 • 25 minutes, 13 seconds
OCD - Kynferðislegar þráhyggjuhugsanir og fjögurra daga meðferðin
Í þessum þætti verður fjallað almennt um þráhyggju og áráttu eða OCD. Sérstök undirtegund þráhyggju verður skoðuð eða kynferðislegar þráhyggjuhugsanir eins og gagnvart fjölskyldumeðlimum eða öðrum. Rætt verður við Ásmund Gunnarsson frá Kvíðameðferðarstöð um fjögurra daga meðferð við OCD og árangur þeirrar meðferðar.
7/31/2023 • 50 minutes, 1 second
Andrew Tate, Loverboy aðferðin og narsisismi
TWRætt er um mansal, narsisisma, kynferðislegt ofbeldi og Andrew TateStuttlega farið í mál Andrew Tate, Loverboy mansals aðferðina og við fáum að heyra hljóðbrot af umræðu um narsisisma.
7/21/2023 • 41 minutes, 20 seconds
Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð
TWSjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráðÍ þessum þætti er fjallað um sjálfsskaða. Fjallað er um hvernig sjálfskaði birtist, mögulegar orsakir, tengsl við aðrar raskanir eins og ADHD og jaðarpersónuleikaröskun. Í þættinum fáum við að heyra reynslusögur og hjálplegar leiðir til að takast á við sjálfsskaða. Þessi þáttur getur verið erfiður fyrir einstaklinga sem eru að glíma við sjálfsskaða og hvet ég alla til að hafa samband við t.d. Hjálarsíma Rauða Krossins 1770, Píeta samtökin 552 2218 eða einhvern sem þú treystir.
7/13/2023 • 51 minutes, 25 seconds
Sértrúarsöfnuðurinn Peoples Temple og fjöldamorðið í Jonestown
TW - sjálfsvíg, fjöldamorð og ofbeldiÍ þessum þætti er fjallað um sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og hræðilega atburðinn sem átti sér stað í Jonestown. Málið verður skoðað frá sálfræðilegu sjónarhorni
7/5/2023 • 48 minutes, 43 seconds
Geta börn fæðst vond? Saga Beth Thomas og fleiri "vondra" barna
Geta börn fæðst "vond"?Er illskan meðfædd eða getum við alið upp "vond" börn?Vanræksla, heilastarfsemi, munaðarlaus börn og "vonda" stelpan Beth Thomas
6/29/2023 • 28 minutes, 16 seconds
Fyrra líf, endurholdgun og Déjá vu
Í þessum þætti er fjallað um fyrirbærið Déjá vu sem við mörg upplifum og tengsl þess við sögur barna af fyrra lífi eða endurholdgun.
6/21/2023 • 37 minutes, 27 seconds
Djöflafárið í leikskólum Bandaríkjanna
Í þessum þætti er talað um mjög viðkvæmt efni, kynferðislegt ofbeldi, bældar minningar og falskar minningar. Fjallað er um djöfladýrkenda faraldurinn eða satanic panic í Bandaríkjunum í kringum 1980 og 1990. Sagt er frá kynferðisafbrotamálum á leikskólum sem urðu að djöflatrúamálum.
6/14/2023 • 44 minutes, 32 seconds
Falskar játningar - Guðmundar- og Geirfinnsmálið
Í þessum þætti verður farið stuttlega fyrir eitt af þekktustu sakamálum Íslands, Guðmundar og Geirfinnsmálið. Fjallað verður um falskar játningar og sálfræðina bak við slíkar játningar.
2/7/2023 • 52 minutes, 58 seconds
Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun
Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa, fanga og fangaverði. Markmiðið var að kanna áhrif aðstæðna á hegðun fólks.