Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is
Þáttur 168 - Human Design 101 með Erlu Sól - "Þetta umturnaði lífi mínu"
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Erla Sól er grasagyðja og Human Design Analyst og sérstaklega töfrandi persóna. Hún ólst upp á bóndabæ í Massachusets í Bandaríkjunum en býr nú hér á landi með manninum sínum.
Það hugsa eflaust margir, hvað er Human Design? Þessi þáttur hefur lengi verið í pípunum að gera, og ég skil núna afhverju, því Erla Sól átti að vera viðmælandinn minn en hún er lærður Human Design Analyst. Ég býð ykkur inní þennan heim, þar sem Erla kynnir okkur fyrir þessu stórkostlega fyrirbæri og ef ég tala af reynslu, þá hefur Human Design verið ein áhrifaríkasta leiðsögn til að skilja sjálfan mig og þekkja mig betur. Svo ég er handviss um að þetta gæti verið kröftugt tól fyrir ykkur hlustendur líka.
Áður en þið hefjið hlustun þá mæli ég með að finna ykkar "chart" á www.myhumandesign.com og prófið ykkur áfram. Njótið vel!
Instagram Erlu Sólar: www.instagram.com/erla___sol
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
1/29/2024 • 1 hour, 19 minutes, 25 seconds
Þáttur 167 - Birna Ósk opnar sig í fyrsta skipti - "Ekki tala við hana, viltu deyja eða?"
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Birna Ósk Ólafsdóttir hefur átt vægast sagt krefjandi ár. Hún fann sig í sambandi með manni sem vakti mikla athygli í miðlum, og ekki af góðum ástæðum. Hann er þekktur fyrir glæpi sína og ógnanir og Birna segir okkur frá því hvernig ferlið var eftir að því sambandi lauk. Hún segir okkur frá því hvernig bataferlið hefur ekki náð sér á skrið vegna ítrekaðar truflarnir, útskúfun, sögusagnir og réttara sagt, að fólk forðist hana eins og heitan eldinn í þeim ótta að þeirra líf stæði í hættu ef þau mundu like-a mynd, tala við hana útí sjoppu eða sjást með henni almennt. Frásögn hennar er átakanleg, en í fyrra gafst líkaminn hennar og sál algjörlega upp. Taugakerfið hrunið og hennar lífskraftur með því. Birna er klár og einlæg, hún segir frá því hvernig hún skilur tilfinningar og ótta fólks ásamt því að hún beri fulla ábyrgð á því að hafa farið í þetta samband sjálf, en ekki óraði henni að þetta yrði útkoman.
Þáttastjórnandi hafði samband við aðilann sem Birna var í sambandi með og gaf hann blessun sína á þetta viðtal í von um að þetta gæti aðstoðað hennar bata og er sjálfur nú í bata vegna áfengis og fíkniefnavanda.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
1/22/2024 • 1 hour, 36 minutes, 27 seconds
Þáttur 166 - Helgi & Pétur - Uppgjör og lærdómur ársins 2023
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Árið 2023 er nú formlega liðið, og ég veit engan betri en minn betri helming að fara yfir árið. Lærdómurinn sem við tökum ásamt hvað árið skildi eftir sig.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
1/2/2024 • 1 hour, 31 minutes, 28 seconds
Þáttur 165 - Noorina Khalikyar læknir um ótrúlega flóttasögu sína frá Talíbönum
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Noor Khalikyar er frá Afganistan, hún er læknir og fékk nýverið ríkisborgararétt á Íslandi. Hún lifði góðu og ljúfu lífi með fjölskyldunni sinni þangað til að einn daginn hún fékk skilaboð þar sem einfaldlega stóð að hún þyrfti að yfirgefa landið sem fyrst þar sem Talíbanar höfðu tekið yfir ríkisstjórn Afganistan, og hún væri á lista yfir þá einstaklinga sem Talíbanar vildu ráða af dögum. Við tók ótrúleg og vægast sagt skuggaleg flóttasaga Noor og við förum yfir hana í þessum þætti.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/31/2023 • 1 hour, 17 minutes, 49 seconds
Þáttur 164 - Hera Gísla um lífsleiðina og köllun hennar sem stjörnuspekingur
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Hera Gísladóttir settist hjá mér að spjalla um lífið og veginn og köllun hennar sem stjörnuspekingur. Hera sameinaðist stjörnuspekingnum Gunnlaugi Guðmundssyni nýlega í þætti á Bylgjunni og eru þau með heimasíðuna www.orkugreining.is þar sem þau bjóða uppá stjörnukort fyrir einstaklinga. Hera er ekkert eðlilega opin og lífleg og ekkert smá gaman að hlusta á hana.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/29/2023 • 1 hour, 26 minutes, 9 seconds
Þáttur 163 - Jara Giantara stjörnuspekingur fer yfir öll merkin, Gaza, Ísrael, þjóðarmorðin og 2024
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Okkar uppáhalds kona, Jara Giantara kom til mín til að fara yfir árið sem er að líða, kynnir til leiks öll stjörnumerkin og fer yfir þjóðarmorðin sem eru að eiga sér stað í Palestínu af hálfu Ísrael. Hún skoðar stjörnukortin og gefur okkur bæði persónulega og stjarnfræðilega nálgun. Jara er að öllu leyti hafsjór af visku og það er eitthvað svo heilandi og fallegt að bara hlusta á hana.
Hægt er að panta stjörnulestur og Tungl dagbókina á www.giantara.com
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/20/2023 • 1 hour, 45 minutes, 36 seconds
Þáttur 162 - Berglind Guðmunds (Lífsgleðin, GRGS) um umbreytingartímabil, ein um jólin og innsæið
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Berglind Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur, áhrifavaldur, markþjálfi og konan á bakvið Gulur Rauður Grænn og Salt, og er ein einlægasta og besta kona sem hefur sest í stólinn hjá mér. Við förum yfir söguna hennar Berglindar, allt frá frama, bloggið sem sló svo ótrúlega mikið í gegn, skilnaðinn, að læra að elska að vera í eigin félagsskap og nýtt upphaf.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/18/2023 • 1 hour, 38 minutes, 47 seconds
Þáttur 161 - Helgi & Pétur um útúr hugvíkkandi skápnum, sambandið & Bali
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Við Pétur setjumst niður og ræðum meðal annars grein sem kom út á Mbl.is sem var skrifuð uppúr hlaðvarps þættinum Tölum um, með Gumma Kíró og Línu, þar sem ég segi frá þeirri staðreynd að ég hafi sótt í sálfræðiþjónustu með hugvíkkandi efnum, en við Pétur gerðum þetta saman, en á sitthvorum deginum. Við ræðum sambandið okkar og hvað við höfum verið að læra innan sambandsins, Bali og margt fleira.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
11/30/2023 • 1 hour, 4 minutes
Þáttur 160 - Sema Erla um Palestínu og sannleikann og stöðu flóttafólks
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Sema Erla er okkar fremsta kona í baráttu flóttafólks á Íslandi. Sema er ekkert eðlilega klár og með réttlætiskenndina að leiðarljósi. Hún stofnaði samtökin Solaris sem er hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk. Að gera þátt um Palestínu og þjóðarmorðið sem er að eiga sér stað á Gaza fannst mér nauðsynlegt á Helgaspjallinu, og einn meira nauðsynlegt fyrir alla að vita hvað raunverulega er að eiga sér stað. Fréttamiðlar Íslands hafa skrifað um ástandið á fáranlegan hátt og þótti mér Sema vera hin fullkomna manneskja til að koma. Eins og hún deildi með mér, þá er mikilvægt að fá raddir Palestínumanna, sem er einmitt markmiðið fyrir komandi þætti, en ég er gríðarlega þakklátur Semu fyrir að koma og fræða. Hvet alla til að hlusta á þessa stórkostlegu konu.
11/27/2023 • 1 hour, 33 minutes, 20 seconds
Þáttur 159 - Ragna Sigurðardóttir um jómfrúarræðuna sína á Alþingi, pólitík, lífið og vonina
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Þið hafið mjööög líklega séð þessa stórmögnuðu mannveru á Instagram reel-i sem hópur af geggjuðu fólki deildi út og brútt, vegna þess eins að hún talaði tungumálið sem svo mörg okkar höfum verið að berjast fyrir að einhver stjórnmálamaður gerir. Ragna Sigurðardóttir er algjörlega stórkostleg en hún situr sem varaþingmaður fyrir Samfylkinguna og við ræðum rosalega rosalega mikið um allt mikilvægt sem tengist pólitík á mannamáli, lífið, vonina, Gaza og svo margt fleira. Mæli með að hlusta -
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
11/25/2023 • 1 hour, 39 minutes, 44 seconds
Þáttur 158 - Arna Engilberts um örlagaríka æsku og heilun á innra barninu okkar
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Arna Engilberts er stílisti, vegan kokkur og eigandi Rokyo.is en hún hefur stundað mikla sjálfsvinnu og í hvert skipti sem ég hitti hana, þá líður mér eins og hún hafi blásið mig uppí loft með innblæstri og sálarfæðu. Ég er svo þakklátur að fá hana í þáttinn, við ræðum örlagarík veikindi sem hún fór í gegnum og endaði lömuð, ásamt hversu mikilvægt það er að skoða að hefja sjálfsvinnuna að heila barnið sitt og hvernig við gerum það. Arna tekur okkur í ferðalagið sitt og ég gæti ekki mælt meira með að hlusta á þessa stórkostlegu mannveru og vona að þið getið tekið fallegt með ykkur frá þessu spjalli.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
11/19/2023 • 1 hour, 15 minutes, 42 seconds
Þáttur 157 - Ásdís Grasa um grasalækningar og hvað við getum gert fyrir bætta heilsu
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Það er fátt skemmtilegra að tala við einhvern sem kennir þér eitthvað nýtt. Grasalækningar er eitthvað, sem að mínu mati er það sem koma skal þegar kemur að langvarandi heilsu. Ásdís hefur okkur innsýn inní hvað grasalækningar eru og hvað við getum gert í okkar daglega lífi til að bæta heilsu okkar og hvað matur getur raunverulega verið heilandi fyrir okkur, andlega og líkamlega. Ásdís er ekkert eðlilega klár og ekki síður skemmtileg og það er mér svo mikil ánægja að fá hana til mín, og hlakka til að fá hana aftur ef við stöndum við plön okkar um annað Helgaspjallsdeit!
Þið getið fylgt Ásdísi á samfélagsmiðlum undir notendanafninu @asdisgrasa -
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/31/2023 • 1 hour, 33 minutes, 30 seconds
Þáttur 156 - Helgi & Ragga Nagli um mörkin sem við þurfum að setja á okkar sjálf og aðra
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Við Ragga Nagli sameinum krafta okkar enn á ný og í þetta skipti með námsskeiðinu okkar "Sjálfsefling - Allur pakkinn" sem verður haldið í fyrsta skipti núna í október, fullt er á námsskeiðið en við komum til með að halda fleiri. Í þessum þætti förum við yfir ýmislegt sem fram kemur á námsskeiðinu, meðal annars mörk, vináttur, sjálfstal og hvernig við getum stillt okkur inn og sett okkar eigin mörk á þessum sturluðu tímum í heiminum.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/20/2023 • 1 hour, 11 seconds
Þáttur 155 - Karin Kristjana hjá Nola um adhd, að vera bugleg og lífið fyrir og eftir greiningu
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Drottning snyrtivara, Karin Kristjana er eins og kannski áður hafi verið kallað "ofurkona" eða "ofurmamma" með blússandi business, þrjá stráka, heimili, mann og lífið almennt að jöggla. En bakvið tjöldin var hún ósofin með kaotískan haus og ógreint adhd. Karin er viskubrunnur og sérstaklega góð að miðla eigin reynslun til þeirra sem henni þykir vænt um, hún hefur reynst mér persónulega sérstaklega vel, og er ég henni svo þakklátur að hún var tilbúin að setjast niður með mér og opna sig um hennar krefjandi vegferð með adhd, en hún greindist fyrst 39 ára og það var fyrst þá sem henni tókst að koma ró á eigin lífi og taugakerfi. Mæli mikið með hlustun, og sérstaklega þegar hún brýtur niður þýðinguna á bakvið orðið "bugleg" - hold your socks.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/30/2023 • 1 hour, 37 minutes, 34 seconds
Þáttur 154 - Helga Magga um macro's og andlega og líkamlega heilsu
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Það er óhætt að segja að Helga Magga sé minn uppáhalds influencer, frá prótein pizzum yfirí kotasæluís yfir í einlæga nálgun um lífið, þá er hún eins alvöru og fólk gerist. Helga Magga hefur safnað að sér ýmsum starfstitlum, eins og lögreglukona, kennari, næringarþjálfari og áhrifavaldur svo eitthvað sé nefnt. Það var dásamlegt að setjast niður með henni í spjall og fá að kynnast henni betur og hlusta á hvernig hún nálgast lífið, vinnu og tilveruna almennt.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/25/2023 • 1 hour, 10 minutes, 29 seconds
Þáttur 153 - Harpa Kára um hugsjón, tvíburamömmu hlutverkið og velja fyrir sig
Þátturinn er í boði:
Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Harpa Kára er eins og maður mundi segja á góðri ensku ' powerhouse ' en hún ákvað ung að taka örlítið aðra leið í lífinu en vinahópurinn en hún dýfði sér ofaní sminkuheiminn og varð fljótt okkar eftirsóttasta sminka, hún er algjör jarðýta í starfi og lífi en hún hefur skrifað bók, opnað eitt fallegasta stúdíó landsins og í haust sjáiði hana á Stöð2 sem dómari í glænýrri þáttaröð sem heitir Útlit.
Við Harpa förum um víðan völl, skrautlegt verkefni þegar hún fékk að vita að hún ætti von á tvíburum og hvernig það er að jöggla lífi og starfi. Við förum einnig yfir námsskeiðin sem við höfum verið með uppí Make Up Studio og ásamt svo mörgu öðru.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/20/2023 • 1 hour, 48 minutes, 39 seconds
Þáttur 152 - Ósk Gunnars um föðurmissinn, adhd og breyttar lífsvenjur til bættrar heilsu
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Þið heyrið röddina hennar reglulega á vinsælustu útvarpsstöð landsins, FM957, Ósk Gunnarsdóttir. Hún er ekkert nema gleðin að vera kringum og maður mundi ekki gruna hversu mikið hún hefur gengið í gegnum miðað við hversu mikil gleðipilla hún er. Ósk deilir með okkur í þessum krefjandi verkefnum sem hún hefur fengið í hendurnar og hvernig henni tókst það. Hún er þrautsegjumaskína og setti sig í fyrsta sæti eftir föðurmissinn þar sem hún þurfti að spurja sig stóru spurningana. Ósk fékk hlaupapödduna og segir hún okkur nánar frá ávinningum og hvernig henni tókst að koma jafnvægi á adhd-ið sitt með breyttum lífsstíl, en í dag er hún lyfjalaus. Ósk er ekkert nema peppið og innblásturinn og var það mín mesta ánægja að fá hana til mín í stólinn.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/15/2023 • 1 hour, 30 minutes, 59 seconds
Þáttur 151 - Helgi & Áki hjá Maikai ræða ástandið í landinu & pólitík
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Það er eitt skemmtilegasta sem ég veit er að hitta góðan vin í stúdíó-inu og detta í gott flæði. Ágúst Freyr, betur þekktur sem Áki hjá Maikai er einn af þeim sem er fátt skemmtilegra að setjast niður með honum, spjalla, hlusta, rökræða, skoða og spá. Áki hefur alltaf haft sterkar skoðanir og hann er ekkert eðlilega klár, og erum við yfirleitt sammála en skemmtilegt nok þá náðum við að vera nokkuð ósammála sem var auðvitað stórskemmtilegt. Við ræðum ástandið í landinu, pólitík og annað krassandi sem kann að vera á vörum fólks um þessar mundir.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
8/30/2023 • 1 hour, 30 minutes, 15 seconds
Þáttur 150 - Jóhanna Guðrún um móðurhlutverkið og fjölmiðlafárið
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Þjóðargersemin og góðvinkona mín Jóhanna Guðrún settist niður með mér í einlægt spjall þar sem hún svarar fyrir sig og deilir hjartnæmt um sína hlið um síðustu tvö ár. Hún lenti í þeirri svo óskemmtilegu reynslu að fjölmiðlar tilkynntu óléttu sína á viðkvæmum tíma gegn hennar vilja og samþykki á meðan hún var að fikra sig áfram eftir krefjandi skilnað. Hún nýtir nú þá krefjandi reynslu, snýr vörn í sókn og hefur sett á lagnirnar spennandi nýtt verkefni sem fagnar mömmum og hversu magnað og krefjandi móðurhlutverkið er.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
8/17/2023 • 1 hour, 26 minutes, 23 seconds
Þáttur 149 - Ágústa Kolbrún um mikilvægi sjálfstals, sjálfsmildi og foreldra okkur sjálf
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Ágústa Kolbrún Roberts er mikill brauðryðjandi í andlegum málum á Íslandi, en hún sprakk fyrst á samfélagsmiðlum þegar hún deildi myndböndum árið 2011 með andlegum hugleiðingum og hefur síðan þá tileinkað lífinu sínu í að aðstoða fólk með að tengjast sjálfum sér betur. Ágústa er jóga kennari og heilari og byrjaði vegferð hennar snemma eftir erfiða æsku þegar hún ferðaðist til Ítalíu og naut sína með indjánum í Ameríku aðeins tvítug. Við förum yfir allskonar viðfangsefni, meðal annars hvernig við þurfum að læra og skoða að sitja með okkur, foreldra okkur, tala fallega til okkar og þannig ná tökum á hver við erum innra með okkur. Við tölum um innsæið og andleg ferðalög ásamt svo mörgu öðru.
Þið finnið Ágústu á samfélagsmiðlum, Instagram og Tiktok undir nafninu: @agustajoga -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
7/31/2023 • 1 hour, 25 minutes, 13 seconds
Þáttur 148 - Valgerður Árnadóttir varaþingkona Pírata og formaður samtaka grænkera leggur línurnar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Valgerður Árnadóttir er varaþingkona Pírata, formaður samtaka grænkera sem hefur lifað tímana tvenna, en hún fór ung í fyrirsætustörf á heimsvísu þar sem skuggalegur raunveruleiki fékk hana aftur heim þar sem hún fór að ryðja sér til rúms í þjóðfélaginu. Í dag má segja að hún sé hágæða aktivisti með hjartað á réttum stað og brennir fyrir siðferðislegar breytingar fyrir bæði dýr og mannfólk og skafar ekkert af hlutunum. Ég kynntist Valgerði fyrst á Klambratúni, en við erum nágrannar og hundaeigendur, og í hvert skipti sem ég sé hana á túninu, þá hlakka ég til að heyra hvað hún hefur að segja og hvað við munum koma til með að tala um. Ég er ótrúlega þakklátur að hafa fengið hana í þáttinn og við förum útum allt.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
7/25/2023 • 1 hour, 25 minutes, 32 seconds
Þáttur 147 - Birta Björnsdóttir varafréttastjóri RÚV um Úkraínustríðið og fleira á mannamáli
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Birta Björnsdóttir á nokkra mjög flotta titla innan RÚV, hún er varafréttastjóri, yfirmaður erlendra frétta og þið þekkið hana eflaust mörg frá hlaðvarpinu Heimskviður. Hún er fyrst og fremst klár en einnig með þæginlegustu rödd til að hlusta á. Við ákváðum að fara yfir mál sem við þekkjum öll og teygjum okkur í ýmsar trjágreinar tengdar Úkraínustríðinu. Það er erfitt að gera sér hugarlund að þetta sé í gangi en Birta brýtur málið örlítið niður ásamt nýjum tíðindum í tengslum við Wagner hópinn. Við förum einnig yfir starf hennar sem fréttakona og gefur okkur innsýn inní ábyrgðarfullt hlutverk hennar. Við tölum líka örlítið um hvað Josh Harnett var sætur, en til að ná því samhengi þá býð ég ykkur bara að njóta þáttarins.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
7/3/2023 • 1 hour, 19 minutes, 15 seconds
Þáttur 146 - Unnusti minn Pétur Björgvin um sjálfsábyrgð og andlega vinnan innan sambandsins
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Það var sérstaklega góð tilfinning að fá unnusta minn Pétur Björgvin Sveinsson í stúdíó-ið. Ég er ótrúlega heppinn að eiga maka, sem er ekkert nema stuðningsríkur, sérstaklega klár og gefur bestu ráðin. Hann segir svo margt sem ég hugsa oft hvað ég væri til í að deila með hlustendum. Við höfum unnið rosalega mikið í sambandinu okkar, en við kynnumst báðir með allskonar bagga á bakinu, og í staðinn fyrir að láta það hafa samband á sambandið þá höfum við unnið daglega í því að nýta það í að styrkja sambandið okkar, með samskiptum, stuðning og hvatningu. Hljómar allt mjög krúttlega, en hefur klárlega verið krefjandi. Í þessum þætti förum við yfir mikið af því, en við hefðum þurft nokkra klukkutíma til að dekka allt. Pétur er algjörlega einstakur, og ég vona að þið getið tekið eitthvað með úr þessum þætti til að fyrst og fremst rækta eigið samband við ykkur sjálf, og svo sambandið ykkar við ykkar maka, ef þið eigið svoleiðis.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
6/30/2023 • 1 hour, 11 minutes, 13 seconds
Þáttur 145 - Dr. Matthew Croasmun & Dr. Ryan McAnnally-Linz höfundar bókarinnar Life Worth Living
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Dr. Matthew Croasmun og Ryan McAnnally-Linz eru kennarar við Yale háskólann og eru tveir af þremur rithöfundum bókarinnar Life Worth Living sem hefur sitið á metsölulista New York Times frá því hún kom út í mars. Þeir skrifuðu hana útfrá áfanga í Yale sem heitir sama nafni og bókin. Hugmyndin þeirra spratt þegar kennarar við skólann höfðu áhyggjur af því að námið í skólanum undirbyggi nemendur ekki nægilega vel fyrir lífið. Þessi Life Worth Living nálgun hefur reynst vel útí heimi og einnig hjá hópum eins og föngum og fyrrverandi hermönnum. Þeir eru hér á landi að kynna bókina og munu þeir vera í verslun Pennans Eymundsson á Austurstræti þann 27 júní kl 17:30. Það var einstaklega gaman að tala við þá og grafa frekar ofan í bókina, námsskeiðið, þá sjálfa og þeirra umhverfi. Matthew er meðal annars prestur og Ryan vinnur við kristin fræði svo var gaman að spurja þá spjörunum út og í kringum það margþætta starf sem þeir starfa við. Njótið vel!
6/27/2023 • 1 hour, 44 minutes, 17 seconds
Þáttur 144 - Kristrún M. Frosta formaður Samfylkingar um stöðuna á Íslandi í dag á mannamáli -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
*Þessi þáttur kom seinna út en áætlað var, í byrjun þáttar vitna ég í þátt 142.
Kristrún Mjöll Frostadóttir er fædd árið 1988 og á þeim tíma hefur hún lokið BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum, með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla í Bandaríkjunum. Takk og bless.
En hún hefur einnig unnið sem sem sérfræðingur í greiningardeild bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley, aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og Kviku banka, takk og bless aftur! Núna er hún rísandi kona fólksins í starfi sínu sem formaður Samfylkingarinnar og var þetta hin besta kona að fara yfir sturlaða stöðu landsins og tala um spillinguna og í raun og veru sem á sér stað innan Alþingis. Kristrún var fullkominn viðmælandi og skafar ekki af hlutunum og segir eins og er.
Eins og hún segir sjálf, þetta snýst ekki um að við hin þurfum að vera hápólitísk til að taka þátt í umræðunni, heldur láta í okkur heyra og kjósa.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
6/26/2023 • 1 hour, 37 minutes, 4 seconds
Þáttur 143 - Jara Giantara um stjörnuspeki og pólitík og nýtt podcast!
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
Á góðri íslensku, by popular demands, þá er Jara Giantara mætt aftur og nú til að gefa sín fimm cent inní pólitíkarumræðuna, ásamt því að gefa okkur innsýn inní hvernig pólitík og stjörnuspeki helst þokkalega í hendur. Jara er einnig búin að gefa út eigið hlaðvarp, Stjörnuspjallið þar sem hún mun gefa hlustendum atburði og stöðu pláneta og áhrif þeirra beint í æð. Við förum um víðan völl, eins og svo oft áður. Njótið vel!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
6/18/2023 • 1 hour, 12 minutes, 12 seconds
Þáttur 142 - María Rut & Pælum í Pólitík um allt sem er í gangi á Íslandi í dag á mannamáli
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
María Rut, okkar besta kona, mannamálspólitíkusarsjení og almennur viskubrunnur og flest öll jákvæð lýsingarorð í bókinni er að mínu mati, ein mikilvægasta röddin okkar þegar um er að ræða réttlætismál í íslensku samfélagi. Með stuttum fyrirvara var hún tilbúin að koma og við förum mögulega yfir alla þætti þess sem er að valda svo miklum óþægindum fyrir landsmenn. Ásetningur þáttarins var að fræða hlustendur í kringum þessi mál, skoða alvöru möguleika lausna og í rauninni allt í kringum þetta. Látum í okkur heyra og tökum afstöður og fylgjum hjartanu.
María heldur úti fræðandi umræðu á Instagram-i síðu sinni - @mariarut á Instagram
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
5/25/2023 • 1 hour, 50 minutes, 58 seconds
Þáttur 141 - Erna Hrund um adhd máttinn og verða stærsti stuðningsaðili makans þíns
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Það er þæginlegast að fá Ernu Hrund í podcast, hún er ekkert eðlilega klár, hefur alltaf rúmlega mikið gáfulegt að segja og auðvitað mjög skemmtileg. Ég forvitnast um adhd-ið hennar Ernu og hvernig henni tekst að navigate-a hausinn sinn í stóru starfi, fullt af börnum og hraða nútímans. Við ræðum einnig heilbrigð sambönd og hvernig við getum beitt okkur með makanum sínum til að frelsa okkar kvíða og áhyggjur innan sambandsins. Auðvitað tókum við smá Harry og Meghan. Njótið vel!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
5/24/2023 • 1 hour, 14 minutes, 42 seconds
Þáttur 140 - Unnur Eggerts leikkona um fæðingarþunglyndi, flugslysið og Ameríku
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Unnur Eggerts leikkona þekkjum við flest, hún skemmti útum allar trissur fyrir börn og fullorðna sem Solla Stirða, ásamt því að hafa komið með sumarsmelli og eftirminninga í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Unnur er sérstaklega sjarmerandi og einlæg en hún opnar sig um upplifun sína um fæðingarþunglyndi, áfallastreyturöskunina sem hún greindist með eftir að hún lenti í þeirri óraunverulegu reynslu að lenda í flugslysi þegar hún ferðaðist milli skemmtana sem Solla Stirða. Við fáum einnig innblik inní lífið hennar og starf sem leikkona í Ameríku ásamt því að fá smá "te" um bransann eins og hann leggur sig.
Hægt er að fylgjast með Unni á samfélagsmiðlum undir notendanafninu unnureggerts -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Njótið vel -
5/13/2023 • 1 hour, 29 minutes, 36 seconds
Þáttur 139 - Ída Páls um að flytja og búa í Kyoto Japan með manni og barni
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Þegar Ída Páls flutti til Japan með manninum sínum, hönnuðinum Sigmundi Pál með dóttur þeirra. Ég er ótrúlega upptekinn af Japan og um leið og Ída lenti aftur heim eftir búsetu sína úti vissi ég að ég vildi setjast niður með henni og forvitnast um Japan. Hún leyfði fylgjendum sínum á Instagram og Tiktok að fylgjast með og ég persónulega skemmti mér konunglega að horfa á bæði skemmtilegt og fræðandi efni. Ef þið eruð í skapi fyrir kósí þátt, þá er þessi fyrir ykkur. Njótið vel -
Hægt er að fylgjast með Ídu á samfélagsmiðlum undir idapals -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
5/9/2023 • 1 hour, 12 minutes, 39 seconds
Þáttur 138 - Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir fyrrv. saksóknari & þingkona um ofbeldi & réttarkerfið
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingiskona og fyrrum saksóknari hefur lengi barist fyrir réttlæti er kemur að málum ofbeldis, en hún hefur til dæmis verið aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri ofbeldisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra og saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Í dag situr hún á þingi og ástríða hennar liggur enn í réttlæti þar á bæ. Það var mikill heiður að fá hana til mín og það kom á óvart hvað hún er fáranlega skemmtileg, með geggjaðan húmor og svo hafsjór af visku. Það er ákveðin von sem maður fær í hjartað vitandi að kona eins og Þorbjörg siti á Alþingi og fær forvitni mín algjöra útrás. Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
4/28/2023 • 1 hour, 12 minutes, 21 seconds
Þáttur 137 - Ragnhildur Steinunn um móðurmissi, móðurhlutverkið og ferilinn
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Ragnhildi Steinunni þarf varla að kynna en hún hefur prýtt skjáinn okkar síðustu ár og hefur vakið sérstaklega mikla athygli þessa dagana fyrir nýja þáttaröð á Rúv sem heitir Tvíburar. Hún er sjálf tvíbura-mamma og hefur Ragnhildur yfirleitt haldið einkalífinu sínu í lágmarki fyrir almenning svo ég var sérstaklega þakklátur að hafa fengið hana til mín í einlægt spjall þar sem við förum yfir ferilinn hennar, við ræðum móðurhlutverkið, móðurmissinn sem hún upplifði aðeins sjö ára að aldri. Það var mesta ánægja að hlusta á hana og lífsgildin hennar, reynslu og starfsferil og fjölskyldulífið. Njótið vel -
Hægt er að horfa á Tvíburar á mánudagskvöldum kl 20:05 á Rúv -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
4/24/2023 • 1 hour, 40 minutes, 34 seconds
Þáttur 136 - María Ólafs söngkona - "Mér leið eins og þetta væri martröð og langaði að vakna"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Söngkonan María Ólafs keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision 2015 með lagið Unbroken. María hefur ekki mikið látið fyrir sér fara síðan hún kom heim eftir keppni og talar hún einlægt um sína upplifun eftir keppnina og opnar sig um áfallið sem hún varð fyrir eftir að Eurovision búbblan sprakk og hún sat ein með það áreiti og ljót ummæli af hálfu fjölmiðla og netverja sem hún þurfti að þola eftir að hafa sigrað einn ástsælasta söngvara landsins í einvíginu og alveg eftir stóra sviðið. Eins gleðilegt og Eurovision tímabilið er fyrir okkur áhorfendur þá leitar söngkonan okkar sem við kusum út og stóð sig með prýði reglulega til sálfræðings. María er eins einlæg og hún er hæfileikarík og er þakklátur fyrir að hafa fengið hana í þáttinn og gefið okkur sína hlið.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
4/18/2023 • 1 hour, 25 minutes, 1 second
Þáttur 135 - Bjarni Snæbjörnsson leikari um dagbókarskrifin sem umturnuðu lífinu hans -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Fyrir nokkrum mánuðum gerðum við Ragga Nagli okkur glaðan dag og fórum út að borða og á leiksýninguna "Góðan daginn faggi" í Þjóðleikhúsinu, aldrei hefði mig grunað að ég mundi labba út yfir mig hamingjusamur, sorgmæddur, séður og heyrður allt í sama pottinum. Að hafa skemmt mér svona stórkostlega en á sama tíma fara í gegnum alla tilfinningaflóruna. Bjarni Snæbjörnsson er maðurinn á bakvið þessa sýningu ásamt teyminu sínu. Síðan þá hef ég viljað fá hann í þáttinn og er ekkert eðlilega þakklátur fyrir spjallið okkar, við förum inní okkar eigin reynslu og speglum okkur í hver öðrum. Lokasýning "Góðan daginn faggi" verður þann 28 apríl næstkomandi, og er þessi sýning nauðsyn fyrir alla að sjá. Svo ég hvet ykkur til að næla ykkur miða á meðan þeir eru til á tix.is -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
4/12/2023 • 1 hour, 19 minutes, 52 seconds
Þáttur 134 - Eva Dögg & Helgi ræða samskipti og samskipti í samböndum
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Mín besta kona og uppáhald meðal hlustenda, Eva Dögg Rúnars settist með mér að ræða samskipti og samskipti í samböndum.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
3/31/2023 • 52 minutes, 50 seconds
Þáttur 133 - Nína Hundaþjálfari um hvað hvernig við lærum á okkur í gegnum hunda -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Ég var að versla fyrir Noel í versluninni Móra á Nýbýlavegi þegar það labbar inn kona, hún er nett klædd, með tattoo á hökunni, smitandi bros og ekkert eðlilega kröftuga nærveru. Það er Nína hundaþjálfari og er gestur minn að þessu sinni, en ég spurði hana þá og þarna hvort hún hefði áhuga á að koma í hlaðvarpið. Hún að engu leyti valdi vonbrigðum því dældi útúr sér visku og innblæstri bæði í lífinu og í tengslum við hundana, sem við erum sammála um að eru mögnuðustu verur sem við eigum á þessari jörð. Við förum mikið yfir hvað við getum hreinlega lært af hundunum og hversu mikil gjöf þeir eru. Að því leyti hvernig við upplifum þá þegar við eigum þá en einnig bara hvað þeir standa fyrir sem verur. Við förum yfir það og svo margt meira.
Njótið vel.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
3/30/2023 • 1 hour, 30 minutes, 25 seconds
Þáttur 132 - Haukur Skúlason annar stofnandi og framkvæmdastjóri Indó - "Ekkert kjaftæði"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Haukur Skúlason ef framkvæmdastjóri og annar stofnandi sparisjóðsins Indó sem hefur vakið mikla athygli hér á landi en Indó er fyrsti sparisjóðurinn sem hefur verið stofnaður hér á landi frá grunni síðan 1991. Sem er gríðarlega gott ár ef útí það væri farið. En ég var áhugasamur um manninn á bakvið þessa nýjung og ég varð allt annað en fyrir vonbrigðum. Haukur er skýr, heiðarlegur og eins og hann orðar sjálfur, ekki með neitt kjaftæði. Ég spyr hann einnig útí hans hætti og nálgun á lífið sem einnig kom ótrúlega skemmtilega á óvart. Hann talar um Indó og hvað það snýst um á mannamáli og það sem ég kunni held ég mest að meta: Hann vill alveg hrista upp í hlutunum. Það og fullt af öðrum stórum spurningum í þessum þætti. Njótið vel!
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
3/15/2023 • 1 hour, 22 minutes, 56 seconds
Þáttur 131 - Bylgja Borgþórs um Eurovision, Morðcastið og ættleiðingu -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Snilldarkona lífs míns Bylgja Borgþórs snýr aftur í Helgaspjallinu. Það er fátt skemmtilegra en að tala við hana, enda skýrasta, fyndnasta og no-bullshit manneskja sem ég þekki. Við erum báðar háklassa Eurovision hommsur og þátturinn er tekinn upp á úrslitakvöldsdegi Söngvakeppnarinnar svo við erum eðlilega sjúklega peppuð, köstum á milli skoðanna okkar, spáum, spegúlerum og skoðum. Við förum örlítið yfir lögin sem komin eru áfram og við hverju við getum búist við í maí. Eurovision er ekki okkar eina viðfangsefni, en við förum útum víðan völl, Morðcastið, ættleiðingin og almennt gröfum ofan í Bylgju og hvernig hún er eins og hún er. Svo ég lofa gleði og góðu kósí partý með þessum þætti.
Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
3/4/2023 • 1 hour, 13 minutes, 25 seconds
Þáttur 130 - Alexsandra Bernharð um trauma sem mótaði hana og lærdóm síðasta árið
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Við Alexsandra Bernharð setjumst niður í fyrsta skipti eftir að stormurinn í fjölmiðlum stóð yfir fyrir tæplega ári. Við förum yfir allt milli himins og jarðar, meðal annars að við kynntumst henni á dýpra leveli, förum yfir andlegt ferðalag hennar og hún deilir með okkur traumanu sem mótaði hana hvað mest sem manneskju. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið hana til mín í Helgaspjallið og um er að ræða einstaklega hógværa og góða manneskju sem hefur verið mikil ánægja að kynnast síðustu mánuði, og hér erum við loksins, að hittast í fyrsta skipti að fara yfir málin með ykkur hlustendum.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
2/28/2023 • 1 hour, 22 minutes, 41 seconds
Þáttur 129 - Saga Sig um ferillinn og hvernig andleg heilsa og stór frami helst í hendur
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Saga Sig er ljósmyndari, listakona og leikstjóri og er með nokkra af stærstu kúnnum heimsins í töskunni á borð við Apple, Nike, Vogue og Topshop. Þrátt fyrir stóran feril, þá er Saga með fæturna læsta í jörðina og er hógværðin og góðmennskan uppmáluð. Hún er einnig einstaklega mysteríus og þess vegna þótti mér einstaklega skemmtilegt að fá hana til mín í, það sem ég var farinn að upplifa sem yfirheyrsla. En forvitnin var þokkalega til staðar og svörin voru allt nema vonbrigði. Saga er eins stórkostleg og listin hennar, og er ég svo glaður og þakklátur að hafa fengið hana til mín fyrir aðra að kynnast henni aðeins undir glamúrus og smá dularfullu skelinni.
www.instagram.com/sagasig
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
2/23/2023 • 1 hour, 14 minutes, 45 seconds
Þáttur 128 - Kristín Sam um ofbeldi í vináttu, eftirköstin og nýr raunveruleiki eftir skilnað
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Kristín Sam er húðperri, meyja, markaðsdrottning og heilsu & ræktarfanatíkus. Hún gaf út bókina Húðin í fyrra og hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum. Nýlega opnaði hún sig á Instagram reikning sínum um ofbeldi sem hún upplifði í skóla af hálfu vinkonu, sem tók hana fyrir og endaði hún í ofbeldishringiðunni. Ofbeldið gekk á frá grunnskóla og uppí menntaskóla, þar sem eins og hún segir frá, hún heyrði innsæið og hlustaði. Hún þurfti að koma sér út, í kjölfarið sagði hún skilið við vinahópinn sinn. Hún deilir með okkur ferlinu, afhverju hún kom fram með sannleikan sinn og hvað því fylgdi. Kristín talar einnig um hversu mikilvægt það er að opna á þessa tegund af ofbeldi, fyrir kynslóðirnar okkar og mikilvægi þess að skila skömminni og sérstaklega núverandi og komandi kynslóðir. Kristín hefur einnig horft á nýjan raunveruleika í augun, eftir skilnað og með tvö börn. Kristín er eins skýr og þær gerast og öll ánægja í heimi að fá að hafa hana hjá mér í stólnum og tala um það sem skiptir máli.
www.instagram.com/kristin_sam
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
2/17/2023 • 1 hour, 6 minutes, 10 seconds
Þáttur 127 - Kristín Sesselja um ástarsorg, Söngvakeppnina og sjálfshvatningu
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
Söngkonan Kristín Sesselja er stórkostleg í sínu fagi og í þessum þætti fáum við að kynnast henni betur og gröfum meðal annars í hvernig textinn af laginu 'Óbyggðir' varð til, en hún mun flytja það í Söngvakeppninni í ár. Hún talar opið og heiðarlega um ástarsorgina sem var innblástur af laginu, hvernig hún vann sig úr þeim og hvar hún stendur í dag. Við ræðum einnig sjálfshvatningu sem er orðinn stór partur af lífinu hennar eftir að ummæli útfrá keppninni hafa risið á yfirborðið og hvernig henni tekst að halda hausnum frjálsum og skýrum. Kristín er að öllu leyti stórkostleg persóna, og magnað að hlusta á hana. Hún er aðeins 22 ára, en hljómar eins og sjóuð gömul sál í ungum líkama. Mæli með -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
2/12/2023 • 1 hour, 19 minutes, 34 seconds
Þáttur 126 - Ragga Nagli og Helgi fara í flæði -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Það er fátt betra en að setjast niður á móti heimsins bestu og klárustu Röggu Nagla, ýta á rec og fljóta með straumnum, það er mesta gæfa að hlusta á hana, tala við hana og í þessum þætti gerum við nákvæmlega það. Við ræðum mikið útfrá sálfræðilegum sjónarmiðum en eins og margir vita er hún sálfræðingur að mennt. Njótið vel - þjóðargersemin, Ragga Nagli.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
1/31/2023 • 1 hour, 21 minutes, 31 seconds
Þáttur 125 - Dagbjört Jóns, konan á bakvið bókina Fundið Fé um auðveldari fjármál og markmið
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Fylgjendur og unnendur bókarinnar Fundið Fé hafa kannski tekið eftir að höfundur hennar heldur sér nokkuð mikið útúr sviðsljósinu. En í dag mætti hún á móti mér í stólnum og var mesta ánægja að spjalla við hana um fjármál á algjöru mannamáli og markmið þegar kemur að peningum. Dagbjört kann að meta "fokkjú money" og er langt frá því að vera excel týpan og í kjölfarið hannaði hún og gerði bók sem hún þurfti sjálf. Við tölum um allt í kringum hvernig við getum lært um fjármál og hvernig við erum að eyða peningunum okkar, hvernig við getum auðveldað markmið okkar og að framkvæma draumana okkar, sem krefjast peninga. Tölum um sparnaðarráð í lífi og til dæmis ferðalögum ásamt svo mörgu öðru. Það var svo ótrúlega gaman að kynnast henni á meðan við tókum upp og hvernig þessi þáttur okkar á milli varð til.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
1/26/2023 • 1 hour, 27 minutes, 9 seconds
Þáttur 124 - Sigga Dögg kynfræðingur um samskipti í lífi & samböndum
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Sigga Dögg er augnablikið. Ég er get ekki sagt ykkur hvað það mikil ÁNÆGJA að tala og hlusta á Siggu tala. Ég er svo glaður að gefa þennan þátt út. Sigga talar um samskipti í lífinu og samböndum. Við ræðum einnig hvernig við beitum okkur í hugsnum á okkur í lífi og leik. En almennt kemur Sigga með hverja sleggju á eftir annarri. Njótið vel!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
1/19/2023 • 1 hour, 1 minute, 45 seconds
Þáttur 123 - Ásta Guðrún markþjálfi - Hvernig við öðlumst meiri sjálfsþekkingu á nýju ári
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Masters markþjálfarinn og dásemdarkona Ásta Guðrún kom til mín til að ræða hvaða tól og tæki við getum nýtt okkur til að læra að þekkja okkur örlítið betur á nýju ári. Ásta er með nærveru sem manni langar helst að baða sig í og hvernig hún nálgast orðin sín og visku til annarra er útaf fyrir sig dásamlegt að hlusta á. Ásta stóð á tímamótum árið 2014 þar sem markþjálfaranámið fann hana og hefur hún síðan tileinkað sér að aðstoða aðra til betri sjálfsþekkingar og ég spyr hana spjörunum úr í þessum þætti. Tala sjálfur að vissu kannski of mikið, svo biðst afsökunar á því! Ásta er viskubrunnur og er vissum að þið hlustendur munu geta tekið eitthvað með ykkur inní nýja árið frá þessari mögnuðu konu.
www.instagram.com/astamcccoach
www.hverereg.is
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
1/6/2023 • 1 hour, 29 minutes, 21 seconds
Þáttur 122 - Spjall, jóla & áramóta kveðja frá mér til ykkar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Mín orð til ykkar inní nýja árið. Takk fyrir samfylgdina, takk fyrir hlustanirnar og skilaboðin. Hlakka til að gera fleiri og fræðandi þætti fyrir ykkur á nýju ári. Endalaust ást og þakklæti -
Ykkar
Helgi
12/31/2022 • 25 minutes, 1 second
Þáttur 121 - Erna Hrund - Við förum yfir árið sem er að líða & royal, Meghan og Harry drama
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Vörumerkjastjórinn, Instagram stjarnan og fyrst og fremst, vinkona mín settist niður með mér til að skoða árið sem er að líða, hvað við lærðum og hvað við tökum mest frá árinu. Erna er alltaf ekkert nema einlægnin og heiðarleiki og við fáum innsýn hennar hennar líf. Ásamt því það sem hefur verið heitt á könnunni hjá okkur, Royal dramað og þá sérstaklega Harry og Meghan. Við erum bæði skoðunargjörn og förum eins varlega í þá sálma og við getum og köstum á milli hinna ýmsu póla varðandi þau umtöluðu Meghan og Harry og þeirra nýju nálgun á þeirra hugmynd um prívasí. Við Erna erum bæði þekkt fyrir að vera málglöð svo gerið ykkur ready.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
12/30/2022 • 1 hour, 50 minutes, 17 seconds
Þáttur 120 - Fjármál 101 með Anítu Rut og Kristínu Hildi hjá Fortuna Invest
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Ég get byrjað á að segja, ég ELSKA Fortuna Invest instagramið. Ég er alveg legit fan og ég og stelpurnar höfum lengi reynt að láta það passa að allar þrjár gætu komist á sama tíma, og eins og alheimurinn vinnur þá var tíminn núna. Rósa komst því miður ekki, en Aníta Rut og Kristín Hildur mættu byssur blasíng og við fórum yfir fjármál á mannamáli. Ásetningurinn var að gera þátt þar sem hver sem er getur hlustað og skilið hvað um er verið að ræða, og auðvitað hvetja sem flesta til að dýfa tánum í fjárfestingarleikinn og hvernig við gerum hann skemmtilegan.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/27/2022 • 1 hour, 33 minutes, 38 seconds
Þáttur 119 - Elenóra Rós bakari um nýtt líf eftir burnout og frelsið útúr skápnum
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Elenóra Rós skaust uppá stjörnuhimininn hér á landi þegar hún aðeins 19 ára gömul gaf út sína fyrstu uppskriftarbók sem seldist upp á mettíma. Í ár gaf hún svo út glænýja bók, Bakað meira sem hefur verið að tæmast hratt úr búðum nú fyrir jólin. Hún fangaði athygli fjölmiðla og fylgjenda sinna með geislandi karísma og óaðfinnanlegum hæfileika í sínu fagi. Við Elenóra blómstruðum einstakalega vel í hversu mikið við getum talað, og hversu mikið af mismunandi viðfangsefnum við getum komið inní einn þátt af Helgaspjallinu. Við ræðum burnout og hvernig hún reis uppúr því og hvað hún öðlaðist andlega í kjölfarið. Sjálfsvinnuna og sjálfsástina. Ásamt hvernig hún komst á þann stað sem hún er í dag, í ferlinum sínum og andlega. Elenóra er að öllu leyti eins og sól í mannsmynd, hún nálgast allt með svo miklum kærleika og kemur hlutum svo vel frá sér að ég get eiginlega ekki útskýrt aðdáun mína á henni. Njótið vel -
12/18/2022 • 1 hour, 27 minutes, 59 seconds
Þáttur 118 - Jón Jónsson um mikilvægi og ávinninga góðmennskunnar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Söngvarinn og þjóðargersemin Jón Jónsson settist niður með mér korter í jól og ég fékk aðeins að forvitnast um manninn sem við þekkjum öll sem ljósbera í íslensku samfélagi. Það sem mér fannst magnaðast hvernig hann deilir því hvernig ásetningur hans að vera góður við náungann hefur í raun og veru gefið honum aukin lífsgæði ásamt því að hann gleðji fólkið sem hann mætir og skemmtir. Ég forvitnast inní hver lykillinn er að 20 ára sambandi og hjónabandi ásamt því hvernig þau hjón takast á við að eiga fjögur börn með tilheyrandi vinnum og verkefnum. Jón er eins stórkostlegur einstaklingur og við sjáum á skjánum og hlustendur fá eflaust að kynnast honum á örlítið dýpri hátt í þessum þætti.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/15/2022 • 1 hour, 15 minutes, 44 seconds
Þáttur 117 - Margrét Jónasar heilsuþjálfari og Tiktok stjarna um að lifa samkvæmt sjálfum sér
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Margrét Jónasar þykir mér svo fassinerandi kona, ég fylgi henni grimmt á Tiktok og var svo innilega spenntur að setjast niður með henni og vá hvað ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég dáist sérstaklega að henni því hún þorir og tekur afskarið og prófar og miðlar til annarra. Margrét er hokin af reynslu í bransanum og í persónulegri vinnu og þróun og það var svo ótrúlega skemmtilegt að hlusta á hana. Margrét kemur einnig inná atriði sem vert er að skoða sem við kannski höfum ekki heyrt áður, og ef ég tala við sjálfan mig, þá finnst mér ekkert eðlilega skemmtilegt að hlusta á.
Þátturinn var tekinn í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
12/8/2022 • 1 hour, 22 minutes, 45 seconds
Þáttur 116 - Alda Sigmunds um að alast upp með narsissistískri móður
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Þegar ég var í Tælandi las ég bókina endurminningabókina Daughter eftir Öldu Sigmundsdóttur og ég gat ekki látið hana frá mér. Bókin er skrifuð af svo einskærri snilld, berskjöldun og krafti og það lýsir einnig persónunni sem Alda hefur að geyma þegar hún settist niður í stólinn á móti mér. Ég var dáleiddur að hlusta á hana tala um reynslu sína og visku um hvað það er að alast upp með narsissistískri móður og andlegu ofbeldi sem með því fylgdi. Alda hjálpar okkur að skilja þennan flókna og eyðinleggjandi persónuleika og við berum saman reynslu okkar í gegnum þáttinn. Þátturinn er í lengri kantinum, en ég hefði getað haldið áfram að tala við hana langt fram á kvöld. Ég er þakklátur og auðmjúkur að hafa fengið hana til mín og vona að þið njótið þáttarins.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Sírís Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Alda Sigmundsdóttir skrifaði endurminningabókina Daughter sem fjallar um baráttu hennar við að losna úr viðjum narsissísks ofbeldis sem hún bjó við í æsku.
12/1/2022 • 1 hour, 43 minutes, 23 seconds
Þáttur 115 - Björgvin Páll um tilfinningar og uppskeru frá sársauka
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Handboltamaðurinn og rithöfundurinn Björgvin Páll kom í settið og var mikill heiður að fá að hlusta á hann. Við skrif bókarinnar ' Án filters ' þurfti Björgvin að skoða gömul trauma frá æsku og hvernig þau höfðu áhrif á hann á fullorðnisárum sem hann deilir með okkur ásamt því hvernig sá andlegi sársauki bæði manifestaðist ásamt hvernig uppskeran var og hvernig hægt er að nýtt hann sér til krafts og góðs. Björgvin hefur einnig gefið úr bókina 'Barn verður forseti' sem hann skrifaði á mettíma, en hugmyndin af bókinni var einfaldlega, bókin sem hann hefði þurft þegar hann var yngri. Við ræðum svo margt annað og ástríða Björgvins er ekkert eðlilega aðdáunarverð, og vona ég að þessi þáttur geti verið öðrum til góðs.
Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
11/27/2022 • 1 hour, 23 minutes, 36 seconds
114 - Jensína Edda skólastýra - "Lífið streymir til okkar og við þurfum að læra að bregðast við"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Þeir sem þekkja þessa drottningu, þeir vita afhverju hún er sest í sætið hér á Helgaspjallinu. Jensína Edda Hermannsdóttir er ein magnaðasta manneskja sem ég þekki og það var mér mín mesta ánægja og heiður að fá að sitja á móti henni og hlusta á hana. Hún er skólastýra á Laufásborg og hefur unnið með Hjallastefnunni síðan hún hóf starf sitt. Það er varla hægt að telja niður allar sleggjurnar sem Jensína talar um en ég skal reyna. Við ræðum um hvernig við nálgumst börn í uppeldi, okkar eigin berskjöldun og styrkurinn í henni, taka eignarhald á sjálfum sér, bera ábyrgð á sjálfum sér, að lána ekki það sem við eigum ekki og ég gæti haldið endalaust áfram. Fyrir foreldra og ekki foreldra, njótið vel. Jensína er gjörsamlega stórkostleg.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
11/25/2022 • 1 hour, 25 minutes, 26 seconds
Þáttur 113 - Beggi Ólafs um sambandsslitin og fjölmiðlafárið
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Beggi Ólafs er kominn í þriðja sinn í Helgaspjallið. Beggi gaf á dögunum út bókina Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu og kom heim til Íslands frá Los Angeles þar sem hann stundar doktorsnám, til að kynna bókina og ég náði honum í stúdíó-ið. Við ræðum að sjálfssögðu hvernig bókin varð til en förum einnig í eitt stærsta verkefni sem Beggi hefur tekið að sér, sem voru krefjandi sambandsslit. Við rýnum aðeins í ferlið og Beggi opnar sig mjög einlægt og fallega. Við ræðum einnig fjölmiðlafárið sem Beggi fann sig í og hvernig það fékk á hann og svaraði einnig spurningum í kringum það. Við förum um víðan völl og alltaf jafn mikil ánægja að tala við þennan einstaka mann.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
11/20/2022 • 1 hour, 39 minutes, 38 seconds
Þáttur 112 - Sylvia Briem um hormóna og að lifa samkvæmt okkar þörfum okkar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Sylvía Briem mætti í comeback þátt og ég gæti haft hana í þætti í hverjum mánuði, enda er hún eitt magnað afl af kærleika, þrautseigju og metnaði. Hún setti nýlega á markað merkið El Taco Truck sem hefur verið á margra manna vörum og seldist nánast upp á einu augabragði. Við förum aðeins yfir frumkvöðlavinnu hennar og bakrunn. Við förum einnig yfir hvernig við lærum að lifa samkvæmt okkar eigin þörfum, sjálfsmildi og hormóna ásamt svo mörgu öðru. Njótið vel!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/30/2022 • 1 hour, 1 minute, 15 seconds
Þáttur 111 - Eva Dögg Rúnars um frestun, sambönd og skrefin að núvitund
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Jógadrottningin, grasaguddan og olíujukkan Eva Dögg Rúnars snýr aftur, einu barni ríkari og reynslunni einnig. Við förum yfir frestunaráttuna sem við glímum svo mörg við og persónuleg svik okkar í eigin garð. Við förum einnig yfir fjögur skref Rvk Ritual í átt að núvitund og sjálfsrækt og nálgun á náin samskipti í samböndum.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Siríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/23/2022 • 56 minutes, 23 seconds
Þáttur 110 - Jara Giantara um öld vatnsberans og taka stjórn á hugsunum okkar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Stjörnuspekingurinn og jógakennarinn Jara Giantara er einn vinsælasti viðmælandinn að mati hlustenda svo við splæstum í glænýjan þátt, sem þykir einnig viðeigandi miðað við ástandið í heiminum í dag. Jara fer í gegnum stjörnukortin og gefur okkur smá útskýringar á öllu því sem gengur á í heiminum okkar í dag, eins og ástandið í Úkraínu og Íran. Við ræðum einnig um system og skoðum það smá og skorum á allskonar hugmyndir, ásamt því hugsanirnar okkar og hvernig við erum ekki hugsanirnar okkar, heldur aðeins sálin sem skoðar þær og veljum og höfnum. Njótið vel.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/16/2022 • 1 hour, 3 minutes, 51 seconds
Þáttur 109 - Camilla Rut um skilnaðinn, taugaáfallið og uppgjörið
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Eftir mikla eftirvæntingu mætti perluspengjan, áhrifavaldurinn og söngkkonan Camilla Rut. Ef eitthvað einkennir þessa gleðibombu þá er það einlægni og það vantar ekkert uppá einlægnina í þessu viðtali. Við förum yfir baksögu skilnaðarins sem hún er að ganga í gegnum núna, hvernig hún hefur beitt sér andlega í kjölfarið, ásamt því að við gröfum aðeins inní fortíðina og framtíðina ásamt því að kynnast Camillu enn dýpra en við fáum að gera á samfélagsmiðlum. Camilla kemur með svo stórkostlega punkta og setur allt í svo skemmtilegt og fallegt myndrænt form sem var ekkert eðlilega mikið ánægja að fá að hlusta á og efa ekki að þið, kæru hlustendur geti tekið ýmislegt fallegt í sálina útfrá þessu spjalli. Njótið vel x
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/9/2022 • 1 hour, 18 minutes, 24 seconds
Þáttur 108 - María Thelma leikkona - "Við hlaupum með hausnum"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Gestur minn í þessum þætti er María Thelma, leikkona og hlaupari. María er fyrsta leikkonan hér á landi sem útskrifast úr Leiklistarskóla Íslands með tælenskan bakrunn sem við ræðum um í þessum þætti, ásamt því að taka stjórn á huganum og þjálfa hann, hvernig hún fann sig í hlaupinu og hvernig við skoðum tengingu líkama og hugsans þegar kemur að hlaupi ásamt svo mörgu öðru. María er með hausinn svo fallega og vel skrúfaðan á, og var það mér brjáluð ánægja að sitja á móti henni og eiga nærandi og spennandi spjall.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/30/2022 • 1 hour, 8 minutes, 33 seconds
Þáttur 107 - Heiðrún María um innsæið og samhljóm
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
Eftir að hafa farið í mest töfrandi kakóserimóníu lífs míns með Heiðrúnu Maríu þá vissi ég að hún væri fullkomin í gestalæti Helgaspjallsins. Við fáum að kynnast Heiðrúnu betur og ferðalaginu hennar ásamt því að læra inná innsæið okkar sem er að hennar mati okkar mikilvægasta tól. Hugtakið samhljómur fær einnig brjálaðslega fallega meiningu, en Heiðrún talar um að við erum hérna á þessari jörð til að finna samhljóm með tilverunni og umhverfi. Ég lofa að þetta var eins og næring að hlusta á hana tala um þetta.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/27/2022 • 1 hour, 30 minutes, 30 seconds
Þáttur 106 - Jenný Valberg ráðgjafi hjá Bjarkarhlíð - "Samfélaginu fer ekki batnandi"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy - www.sleepy.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Það var mér mikill heiður að fá Jenný Kristínu Valberg ráðgjafa hjá Bjarkarhlíð. Hún er menntaður mann og kynjafræðingur sem hefur tileinkað sinni vinnu að hjálpa og aðstoða þolendur ofbeldis. Hún þáttastýrði meðal annars þættina Heimilisofbeldi á Stöð 2 sem vöktu mikla athygli. Hún hefur vægast sagt mikla reynslu af þessum málum en hún var sjálf í ofbeldissambandi til margra ára. Ásetningur þáttarins var að gefa hlustendum smá innblik inní hvað það er að vera í ofbeldissambandi frá hlið þolenda. Jenný er að öllu leyti stórkostleg og vel að máli komin og útskýrir allt svo vel. Þessi þáttur er mikilvægur fyrir bæði einstaklinga sem hafa upplifað slík sambönd sem og alla þeirra sem eiga í hættu á að lenda í slíku sambandi eða skilja betur ef einhver nákominn skyldi vera svo óheppinn. Jenný deilir einnig með okkur að þolendur sem sækja til Bjarkarhlíðar eru að verða yngri og yngri og aðsókn 18 ára einstaklinga hefur aldrei verið meiri. Sem segir okkur það að samfélaginu fer ekki batnandi hvað gerendur varða og þess vegna hefur öll fræðsla og skilningur á ofbeldi aldrei verið mikilvægari.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/21/2022 • 2 hours, 2 minutes, 49 seconds
Þáttur 105 - Ragga Nagli um núvitund og sjálfstal í heilsu og líkamsrækt
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Sleepy Heilsudýnur - sleepy.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Hún er kannski kölluð Ragga Nagli en hún talar í sleggjum. Ef einhver þarna úti tengir við kvíðahugsanir þegar kemur að heilsu og líkamsrækt þá er þessi þáttur tilvalinn. Það er enginn sem setur hluti á eins skemmtilegan og myndrænan hátt og Ragga en hún fer skref fyrir skref hvernig við getum beitt hausnum okkar og sjálfstali þegar kemur að því að stunda líkamsrækt. Ragga Nagli er náttúrulega þjóðargersemi og kemur með hverja sleggju á eftir annarri í þessum þætti. Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar
9/13/2022 • 1 hour, 2 minutes, 24 seconds
Þáttur 104 - Hin hliðin á Línu Birgittu!
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Lína Birgitta og allir hennar hattar. Businesskona, áhrifavaldur, einkaþjálfari, hlaðvarpsstjórnandi og einkaþjálfari. Hún elskar lúxus og er mikill fagurkeri, en ég held að fæst okkar gruni hvaða hlið hún hefur geymt sem hún leyfir okkur að kynnast í þessum nýja þætti Helgaspjallsins. Hún hefur lent í ófáum áföllum og ásamt því að hafa glímt við erfiðan sjúkdóm í mörg ár. Hún hefur nýtt hvert einasta mótlæti og erfiðleika og nýtt sem drifkraft í manneskjuna sem hún er í dag. Það var vægast sagt magnað að eiga þetta kröftuga spjall við hana og veit að hlustendur geta tekið lært mikið af henni. Ég kynni magnaða hlið af Línu Birgittu.
Þátturinn var tekinn í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
8/31/2022 • 1 hour, 26 minutes
Þáttur 103 - Stefanía Svavars um tilgang krefjandi verkefna lífsins og æðri máttinn -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Stefanía Svavars er ein magnaðasta söngkona sem við eigum, en það sem fólk kannski ekki veit er að hún hefur stóran skilning á lífinu og hvernig maður getur beitt sér gegn krefjandi tímum. Þegar covid skall á stóð Stefanía ein, með lítið barn og ólétt í þokkabót og tekjulyndirnar af skornum skammti. En æðruleysi og hugrekki einkennir Stefaníu og er gjörsamlega magnað að hlusta á hana og hvernig hugarfarið hennar og andlegur styrkur og þroski kom henni á þangað sem hún er í dag! Skylduhlustun - njótið vel!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Guðni Gunnarsson er án efa ein magnaðasta manneskja sem ég hef hitt. Hugsjón hans er svo skýr og skilaboðin einföld, það sem þú veitir athygli vex og dafnar, hvort svosem þú vilt það eða ekki. Að við sjálf erum alltaf svarið. Að skrifa uppúr spjallinu okkar hefði getað verið masters ritgerð, en hann hittir naglann svo fast á höfuðið með annarri hverri setningu. Það er eitthvað svo guðdómlega fallegt við tilhugsunina að ljósið innra með okkur er allt valdið okkar og við ráðum hvernig við ætlum að hafa lífið okkar. Að mátturinn er einfaldlega okkar. Þessi þáttur er algjört must-hlustun og ef þið eruð eitthvað eins og ég, þá mundi ég hafa blað og penna við hönd, því Guðni veit hvað hann syngur. Það er mér mikill heiður að hafa sitið á móti honum og fengið að hlusta á hann og vona að þið hlustendur getið tekið allskonar fallegt og gefandi úr þessum þætti.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar
8/24/2022 • 1 hour, 26 minutes, 27 seconds
Þáttur 101 - Manifesting 101 með Dagnýju Berglind
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Manifesting er eitthvað sem við heyrum talað og meira og meira og það hefur sýnt sig að manifesting eða ' að kalla til sín ' er eitthvað sem virkar. En hvað er það? Hvernig skiljum við það betur? Hver er fyrirvinnan? Dagný Berglind, Rvk Ritual drolla, jógakennari, hugleiðslu og djúpöndunarkennari er með svörin, eins og alltaf hér á Helgaspjallinu. Manifestum okkur í gang!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
8/5/2022 • 1 hour, 9 minutes, 27 seconds
Þáttur 100 - Sylvía Haukdal um tímamót, bróðurmissi og að fylgja sannfæringunni sinni
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Fyrir landsmenn sem fylgja henni á Instagram þá er hún með silkimjúka rödd og bakar geggjaðar kökur. Í þessu spjalli fáum við að kynnast Sylvíu Haukdal örlítið betur og kemur í ljós að þessi dúnmjúka og viðkunnulega týpa er líka messí í eldhúsinu og með aðra hlið sem er örlítið meiri uppreisnaseggur en við fáum að sjá á samfélagsmiðlum og skemmti ég mér konunglega að spjalla við hana. Við ræðum tímamót í hennar lífi, sorgina vegna bróðurmissirs og magaermina sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum. Eins auðvelt og það er að elska hana í gegnum samfélagsmiðla, þá gerir þetta spjall það enn auðveldara, enda geggjuð kona að öllu leyti. Njótið vel -
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
7/28/2022 • 1 hour, 9 minutes, 17 seconds
Þáttur 99 - Apríl / Rvk Gypsea um mindful co-parenting og endurprógram trauma
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Helgaspjalls uppáhald Apríl Harpa snýr aftur í sínum þriðja þætti hér en í hvert skipti sem hún kemur þá fær plantar hún alltaf fallegum fræjum í mig og hlustendur. Apríl er stödd á Íslandi með dóttir sína Lúnu, en hún deilir með okkur skilnaði við barnsföður og deilir með okkur hvernig hún þurfti að beita sér rétt innan þess að ala dóttir þeirra upp í samlyndi þrátt fyrir krefjandi verkefni sem skilnaður er. Hvert var sjálfstalið og hvernig tókst henni að gera það með fallegum og heilandi hætti. Talandi um heilandi, þá förum við einnig um það, en hugtakið að heila sig heyrir maður meira og meira en Apríl vill meina að það sé kannski endilega ekkert heilun sem þarf að eiga sér stað hjá okkur, heldur að endurprógramma trauma og gömul mynstur og prógrömm í heilanum okkar. Apríl kemur með endalausar áhugaverðar neglur sem vert er að skoða til að stækka og blómstra sem manneskjur.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar
7/16/2022 • 1 hour, 3 minutes, 59 seconds
Þáttur 98 - Metta á Maikai um rekstur, frumkvöðlastarf og andlega mótun
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Elísabet Metta, betur þekkt sem Metta kom í spjall þar sem við ræðum meðal annars um andlega mótun eftir skilnað foreldra, skilning á andlegri líðan ásamt því að þróa hugmynd í rekstur. Metta og Áki eiga saman Maikai og opnuðu nýlega sinn þriðja stað á Keflavíkurflugvelli. Sagan þeirra er ekkert smá áhugaverð en hefur ekki verið alltaf verið dans á rósum.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals
Kristín Tómas er sambandsráðgjafi á vörum magra og af góðri ástæðu. Hún heldur einnig sjálfsstyrkingarnámsskeið og er rithöfundur einnig. Ég hef heyrt nafnið hennar svo oft nefnt hér og þar sem gerði mig svo forvitinn um þessa konu. Hún er með einu sterkustu nærveru sem ég hef upplifað og næstum því intimiderandi en fljótt algjört svona öryggi. Það var upplifun útaf fyrir sig. Finnst ógeðslega gaman að finnast Kristín geggjuð. Ég gusaði yfir hana spurningum. Heilbrigð sambönd, ráðleggingar, efasemdir og förum einnig undir yfirborðið, hvar liggja vandamálin í samböndum? Hvað getum við gert? Hafa hugmyndir okkar um hvernig við beitum okkur í samböndum? Mæli með þessari kjarnakonu.
6/30/2022 • 1 hour, 8 minutes, 25 seconds
Þáttur 96 - Ari Ólafs - "Fagnaður á kvöldin sem Oliver Twist en lagður í einelti á daginn"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Ari Ólafs, óskadrengur þjóðarinnar vann hug okkar allra þegar hann sigraði Söngvakeppnina árið 2018. Hann birtist á skjánum sem indæll, einlægur og bullandi hæfileikaríkur. Eftir að hafa hitt hann nokkrum sinnum og nú tekið viðtal er hægt að rúmlega staðfesta að hann er brjálaðslega indæll, fáranlega einlægur, bullandi hæfileikaríkur og ekkert eðlilega klár. Við ræðum æskuna þar sem hann þurfti að berjast gegn einelti á daginn, en fagnaður á kvöldin sem Oliver Twist og hvernig hann ungur að aldri tókst við það verkefni. Við tölum um tilfinningagreind, Eurovision, framtíðina og nútíðina. En hann hefur nú útskrifast úr hinum virta skóla The Royal Academy of Music í London og tekst hann nú við ný verkefni í London. Ég dýrka þennan dreng og tel ég hann fyrirmynd fyrir alla. Mæli með fyrir alla til að hlusta.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
6/24/2022 • 1 hour, 16 minutes, 52 seconds
Þáttur 95 - Sigga Dögg kynfræðingur um sálina, innsæið og mörk
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - fæst í Hagkaup & Lyfju
Ég ætla að vera alveg heiðarlegur, ég vissi að Sigga Dögg væri drulluklár og augljóslega algjör fagmaður í sínu fagi. Aldrei grunaði mig að hún mundi skilja mig eftir orðlausan þegar kemur að andlegum málefnum. Þátturinn byrjar á því að hún niðurnjörfar hvernig skal beita sér gegn imposter syndrome, sem var stórt fyrir imposter djöful eins og mig. Hún hætti ekki þarna, hún talar um sálina eins og Jesús sjálfur hafi skrifað það niður á blað, innsæið okkar, egó-ið og hvernig við eigum til að skapa sjálfskapavíti í lífinu. En hvernig breytum við því? Án djóks hlustið og leyfið ykkur að vera mindblown eins og ég var. Sat öllu gríni sleppt orðlaus.
Þátturinn er tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar
6/14/2022 • 1 hour, 20 minutes, 13 seconds
Þáttur 94 - Katrín Amni um peninga núvitund, frestunarlausnir og heilatregðu
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - fæst í Hagkaup & Lyfju
Oh getum við ekki verið sammála um að Katrín Amni ætti að vera oftar í Helgaspjallinu? Við förum yfir peninga sem er hægt og rólega að verða uppáhalds viðfangsefnið mitt þessa dagana. Hvernig við þróum okkur heilbrigt samband við peninga, hvernig við hugsum um peninga og hvernig við manifestum peninga. Við förum einnig yfir frestunaráráttuna góðu, sem persónulega er að gleypa lífið mitt en Katrín eins og svo oft áður kemur með hverja sleggjuna á eftir annarri og í leiðinni býr til nýtt hugtak. Heilatregða. Skylduhlustun. Takk Katrín!
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
5/30/2022 • 57 minutes, 31 seconds
Þáttur 93 - Thelma Guðmundssen um áföllin, úrvinnsluna og sjálfsvinnuna
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - fæst í Hagkaup & Lyfju
Förðunargúruinn og áhrifavaldurinn Thelma Guðmundssen settist niður með mér í ótrúlega powerful og einlægt spjall þar sem við fáum að kynnast henni ennþá betur. Við förum yfir æskuna og unglingsárin, ásamt þess að hún deilir með okkur þeim áföllum sem hún þurfti að safna í pokann til að fá harkalega andlega vakningu. Kynferisofbeldi af hálfu yfirmanns, ofbeldi, erfið samskipti við foreldra eru eitt af þeim dæmum sem hún deilir með mér af miklu hugrekki. Andlega vinna Thelmu er aðdáunarferð og kemur hún inná ótrúlega marga fræðandi og mikilvæga punkta til að læra af fyrir okkur hin að bæta á okkur í okkar ferðalagi.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
5/27/2022 • 1 hour, 20 minutes, 31 seconds
Þáttur 92 - Sanna Magdalena um eigin upplifun af fátækt, örlögum og rasisma
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Dr. Teals - fæst í Hagkaup & Lyfju
Sanna Magdalena Mörtudóttir droppaði mörgum bombum í kappræðum fyrir borgarstjórnarkosningar en hún er oddviti Sosíalistaflokksins í Reykjavík. Við skoðum hliðina sem er ekki mikið rædd, fátækt á Íslandi, rasisma og hvítan feminisma. Hún talar um hvernig hún datt inní pólitík og hvert örlögin hafa tekið hana ásamt því að fara í bakrunn sinn.
Sanna er gjörsamlega mögnuð og mikill heiður að eiga við hana spjall í þessu hlaðvarpi og hvet ykkur til að hlusta.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar
5/20/2022 • 1 hour, 12 minutes, 33 seconds
Þáttur 91 - Hera Björk og Þórdís Lóa um bjartari framtíð á Íslandi
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Hressustu pólitíkur landsins Þórdís Lóa og Hera Björk, sem er líka Eurovision og söngdrottning landsins, eru systur. Kannski ekki allir sem vita það. Þær sitja einnig á lista Viðreisnar og þar sem ég vissi lítið um þessar borgarstjórnarkosningar ákvað ég að forvitnast bak og fyrir og út kom frekar ópólitískt og ekkert eðlilega skemmtilegt spjall við þessar tvær. Ég ræddi fyrir mína hönd og hundsins míns en þetta spjall gaf ekkert smá skemmtilega og spennandi mynd á hvernig við þróum landið okkar og borgina til hins betra.
5/10/2022 • 1 hour, 14 minutes, 53 seconds
Þáttur 90 - Eurovision farar Sigga Ey, Beta Ey & Elín Ey
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Eurovision fararnir okkar fallegu mættu til mín korter í brottför til Turin. Stelpurnar ræddu ævintýrið í Söngvakeppninni og hvernig það kom til. Við ræðum æskuárin og hvað mótaði þær. Ásamt því að grafa örlítið dýpra sem segir okkur meira um dæturnar sem við elskum, en þær eiga það allar sameiginlegt að hafa unnið mikið í sjálfri sér og skoðað hina ýmsu heima andlegrar heilsu.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
4/30/2022 • 1 hour, 16 minutes, 29 seconds
Þáttur 89 - Sara Odds: "Frelsaðu þig frá eitruðum samskiptum"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Við Sara Odds sameinuðumst í annað skipti hér á Helgaspjallinu og í þetta skipti fórum við yfir samskipti. Í þessum þætti tölum við um ábyrgðina okkar innan samskipta sem við mætum í lífinu. Sara setur einnig mjög myndrænt hvernig heilinn á okkur þróast sem var ekkert eðlilega áhugavert. Hún er kemur með allskonar sleggjur sem setur hlutina í brjálaðslega skemmtilegt samhengi. Við förum einnig yfir hvernig við getum skilið okkar hlutverk innan samskipta, hvort svosem það sé í ástarsamböndum eða öðrum samböndum og hvað elsku sjálfsábyrgðin er okkar mikilvægasta og dýrmætasta tól. Njótið vel kæru hlustendur x
Þátturinn var tekinn þátt í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
4/17/2022 • 1 hour, 21 minutes, 27 seconds
Þáttur 88 - Kolbrún Pálína um úrvinnslu áfalla og að rísa upp aftur
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Kolbrún Pálína, eins geggjuð og hún er fögur. Við fáum að kynnast henni á dýpra leveli í þessum þætti. Frá hlutverkum hennar í æsku, Ungfrú Ísland ævintýrið, hvernig það var og hvaða lærdóm hún tók með sér inní lífið. Við förum yfir fjölskyldulífið og skilnaðinn sem kveikti á hugmynd Kolbrúnu Pálínu til að gera sjónvarpsþættina ÁST sem sýndir voru á Sjónvarpi Símans. Við förum yfir hvað hún lærði í markþjálfun og hvað fékk hana til að fara læra markþjálfann sjálf. Ásamt því að koma með sleggjur varðandi lífið eins og það leggur sig. Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
4/15/2022 • 1 hour, 12 minutes, 17 seconds
Þáttur 87 - Már Gunnarsson um blinduna, lífið og Söngvakeppnina
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Hjartaknúsarinn Már Gunnarsson mætti í stúdíó-ið korter eftir að hann fékk símtalið um að hljómsveitin Amarosis hafi fengið gyllta miðann inní úrslit Söngvakeppninnar 2022 þar sem þau enduðu í þriðja sæti. Már hefur lengi vel átt auðvelt með að heilla þjóðina uppúr skónum og er þetta viðtal engin undantekning. Við ræðum æskuna, blinduna, ástina, sönginn og svo margt annað. Njótið vel!
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
3/22/2022 • 1 hour, 11 minutes, 12 seconds
Þáttur 86 - Solla Eiríks um breytingarnar og andlegt heilbrigði
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Hún er smá eins og vinkona okkar allra landsmanna en Solla Eiríks, betur þekkt sem Solla græna tekur okkur á smá ferðalag þar sem hún segir okkur frá ferli sínum og lífi. Frá hippalífinu í Danmörku yfir í vinnuna í gegnum árin. Solla talar einlægt um breytingarnar í lífinu sínu og hvernig örlögin og hið fyrirfram ákveðna hefur spilað fallega með henni. Við ræðum hluti eins og sálfræðimeðferð, lærdóminn, burn-outin, aldurinn, skilnaðinn, náttúruna og heilbrigði eins og það leggur sig. Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
3/22/2022 • 1 hour, 19 minutes, 56 seconds
Þáttur 85 - Stefán Óli og Birgir Steinn - Frá einelti og kvíða í Söngvakeppni Sjónvarpsins
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Stefán Óli er glænýr í íslenskri tónlistarsenu og sjáum við hann "frumsýndan" á stóra sviðinu í Söngvakeppninni þann 26 febrúar. Mennirnir á bakvið lagið Ljósið sem Stefán Óli mun flytja eru þeir Birgir Steinn og Andri Þór tónlistarmenn. Við fáum örlítið að kynnast mönnunum á bakvið þetta fallega lag en við ræðum meðal annars einelti sem Stefán Óli varð fyrir á yngri árum og hvernig hann komst í gegnum það og hvað hann tók með sér frá þeirri erfiðu reynslu og hvernig hann nýtti hana sér til góðs. Birgir Steinn er mörgum kunnugum en hann er meðal annars með litlar 29 milljón streymi á lagið sitt Can you feel it á Spotify. Við tölum um kvíða, tónlistargeirann, bölvun góðmennskunar, hvernig var að eiga Stefán Hilmars sem pabba, kvíða og þeirra tól til að sigrast á honum ásamt öðru. Um er að ræða tvo stórkostlega menn sem eru að gera geggjaða hluti og yndislegt að tala við þá og kynnast þeim betur. Mæli með!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
2/20/2022 • 1 hour, 28 minutes, 7 seconds
Þáttur 84 - Gummi Kíró - "Ég er eins og ég er því ég er alltaf ég sjálfur"
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Gummi Kíró hefur vakið allskonar athygli uppá síðkastið, en þá aðallega fyrir að vera nákvæmlega hann sjálfur. Gummi hefur ótrúlega magnaðan einstakling að geyma og við förum yfir hin ýmsu mál. Allt frá hinu persónulega yfir í vinnulífið. Hvað felst í starfinu? Hvað er kírópraktík? Hvað snýst þetta um? Hvernig navigate-ar hann umtal? Í þessum þætti fáum að kynnast þessum yndislega manni betur og virkilega góð hlustun að setjast á móti honum.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
1/31/2022 • 1 hour, 9 minutes, 1 second
Þáttur 83 - Stella Bára dáleiðari um undirmeðvitundina og dáleiðslu -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Vá vá vá. Ég vissi ekki hvað ég væri að fara útí þegar ég bauð Stellu Báru Eggertsdóttir dáleiðara í spjall til mín. Ég hef ávallt verið ótrúlega forvitinn um dáleiðslu. Hvað er þetta? Hvernig virkar þetta? Er þetta bara eitthvað mambo jambo? Ég var gjörsamlega orðlaus eftir spjallið okkar. Að hlusta á Stellu var eitt magnaðasta spjall sem ég átti. Hún segir okkur frá hvað dáleiðsla er og hvernig hún virkar. Við tölum einnig um undirmeðvitundina. Hvað er þessi undirmeðvitund? Hvað gerir hún og hvernig getum við unnið með henni? Hvað með meðvitundina? Hvaða áhrif hefur hún? Þessu og svo mörgu öðru fái þið svör við í þessum þætti. Ég get enganvegin mælt meira með þessum þætti og
1/26/2022 • 1 hour, 34 minutes, 32 seconds
Þáttur 82 - Dagný Bergling hjá Rvk Ritual um fyrstu skref sjálfsvinnu, manifest, mörk og samskipti
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Einn af mínum persónulegu mentorum Dagný Berglind er ein af tveimur eigendum Rvk Ritual, hugleiðslu og djúpöndunarkennari og lífs strategy coach. Við ákváðum að setjast niður og taka upp hinn fullkomna þátt til að kickstata þessu glænýja ári. Við tökum ótrúlega margt fyrir eins og hvernig hennar andlega vegferð byrjaði og hvað hún lærði og hvernig hlustendur geta tekið sín fyrstu skref að líta inná við. Við tölum um hvað það er að setja mörk og hvernig hægt er að beyta sér í þeim málum ásamt því að við brjótum niður námsskeið Rvk Ritual sem er fjórþætt, hvernig við lærum inná okkur, purify, markmið og manifest og hvernig við sköpum okkar nýjar og heilbrigðar venjur sem gera það að verkum að við getum haldið áfram að byggja eins heilbrigt líf fyrir okkur og sálina okkar.
Hægt er að finna upplýsingar á www.rvkritual.is
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
1/16/2022 • 1 hour, 33 minutes, 14 seconds
Þáttur 81 - Stjörnuspekingurinn Jara Giantara um 2022
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Mér fannst svo ótrúlega viðeigandi að enda árið á smá völuspá frá Jöru Giantöru sem vakti mikla athygli í fyrsta þættinum sem við tókum saman. Jara er stjörnuspekingur og mér persónulega mikill leiðbeinandi. Hún er með silkimjúka rödd og ótrúlega næm. Mér finnst skemmtilegast í heimi áður en ég dett inní nýtt ár að lesa um hvað koma skal. Hvað segja spekingar. Jara fer yfir 2022, við hverju má búast og afhverju. Hvernig eigum við að stilla okkur inní nýja árið og hafa í huga. Jara segir okkur einnig frá foreldrahlutverkinu, en hún á dóttir sem er trans og við fengum smá innblik inní þann part af lífi hennar.
Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur, ég er þakklátur fyrir hverja einustu hlustun og þakka ykkur kærlega fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.
Sjáumst í janúar!
Kram
Helgi
12/31/2021 • 1 hour, 31 minutes, 26 seconds
Þáttur 80 - Andri Hrafn sálfræðingur um m.a andlega heilsu í íþróttum
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Stundum gleymi ég að Andri félagi minn sé sálfræðingur því hann er svo brjálaðslega sætur. Ég sá viðtal við hann í sjónvarpinu þar sem hann er að tala um andlegu heilsuna í íþróttum og hann sagði margt svo áhugavert að ég varð að plata hann í þáttinn. Að setjast niður með honum var svo geggjað og spjalla um andlega heilsu meðal annars í íþróttum kveikti á allskonar spurningum. Hvenær verða íþróttir toxískar fyrir andlegu hliðina okkar? Hvernig hefur toxísk masculinity áhrif á andlegu hliðina? Afhverju höldum við oft að aðeins líkamleg heilsa sé svarið? Er hægt að gleyma sér í að verða betri líkamlega og gleyma andlegu hliðinni? Við förum um víðan völl í umræðunni og Andri er með svo marga geggjaða punkta og ég hlakka eiginlega til að plata hann aftur til mín. Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
12/29/2021 • 1 hour, 25 minutes, 9 seconds
Þáttur 79 - Katrín Tanja um að vera komin heim, andleg heilsa og tengingu líkamans -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Það er mikil gleði að fá að tilkynna það að dóttirin er snúin heim. Katrín Tanja segir okkur frá stórri ákvörðun um að koma heim til Íslands og skipta um þjálfara. Við ræðum einnig tenginu okkar við líkamans og sérstaklega kviðfinningar (gut feelings). Við tölum um eiginleika ömmu Katrínar um að vera séður og heyrður og hversu einstakt það er ásamt svo mörgu öðru.
Þessi þáttur var tekinn upp í Podcaststúdíó-i Nóa Síríus
12/16/2021 • 31 minutes, 13 seconds
Þáttur 78 - Foreldrafræðsla.is um sjálfsuppbyggingu og sjálfsmildi innan foreldrahlutverksins -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Þrjár magnaðar konur standa á bakvið Foreldrafræðsla.is sem er byggð á nýrri nálgun í fræðslu fyrir foreldra, komandi foreldra, ömmur og afa, starfsmenn. Það eru þær Elsa Borg Sveinsdóttir, Rakel Guðbjörnsdóttir og Helena Rut Sigurðardóttir og við fórum yfir mögulega alla póla foreldra hlutverksins. Hvað er mikilvægast? Er okkar eigin ótti að hafa áhrif á uppeldið? Eða okkar eigin trauma? Samskiptin við börnin, undirbúningur fyrir barneignir, hverjar eru "réttu" eða réttu aðferðirnar? Hversu mikilvægt er að hlúa að sjálfum sér sem foreldri? Spurningarnar eru endalausar og svörin ekki bara geggjuð, heldur falleg líka. Ég eeeelskaði að taka þennan þátt upp og vona svo innilega að einhver gæti nýtt sér hann til góðs. Hægt er að skoða Foreldrafræðsluna á Instagram undir @foreldrafraedsla - njótið vel!
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar.
11/30/2021 • 1 hour, 36 minutes, 18 seconds
Þáttur 77 - Katrín Edda um heilsu, andlegt ofbeldi og bróðurmissi -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Verkfræðingurinn, samfélagsmiðladrollan og einlægnissnilldarbomban Katrín Edda er mætt til landsins að kynna glænýju dagbókina sína. En ég var svo heppinn að fá hana til mín í stúdíó-ið beint af flugvellinum frá Þýskalandi. En ég fékk að kynnast bakrunninum hennar og er hún alveg jafn mögnuð og ég hafði ímyndað mér og rúmlega það. Við fórum yfir æskuna sem var allskonar og rebelísk unglingsárin. Hún deilir einnig með okkur frá ofbeldissambandinu sem hún lenti í ásamt sorginni eftir að hún missti bróðir sinn nýlega. Katrín er að öllu leyti geggjuð, einlæg, heiðarleg og að sjálfssögðu gjörsamlega guðdómleg. Mjög þakklátur að hafa fengið að eiga þetta spjall með henni og vona að þið njótið vel -
11/26/2021 • 1 hour, 50 minutes, 46 seconds
Þáttur 76 - Steinunn Þórðar um andlegt ofbeldi og tengingu sálræna áfalla og líkamans -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
IceHerbs - www.iceherbs.is
Jógaþjálfarinn og sminkan Steinunn Þórðar eða Namasteina er nýjasti gesturinn minn. Steinunn er einnig að klára sjúkraþjálfaran og á það hug hennar allan um þessar mundir. Steinunn lendi í grófu heimilisofbeldi sem hún deilir með okkur í þessum þætti. Við köstum milli upplifunum okkar um ofbeldi og opnum okkur uppá gátt. Við förum einnig yfir hvernig sálræn áföll hefur áhrif á líkamann okkar ásamt vangaveltur um kerfið ásamt svo margt annað. Virkilega mögnuð frásögn af hálfu Steinunnar og ótrúlega fræðandi. Hvet ykkur til að hlusta - njótið vel.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Sírús stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
11/20/2021 • 1 hour, 27 minutes, 56 seconds
Þáttur 75 - Katrín Amni um fjárhagslega núvitund (mindful money) og innihaldsríkt líf
Þátturinn er í boði:
Finn Crisps
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Katrín Amni er ein magnaðasta manneskja sem ég hef hitt. Þessi þáttur varð hálfpartinn til yfir matcha latte þar sem við sátum og töluðum saman þegar ég opnaði mig um að ég ætti við óhollt samband við peninga. Katrín droppaði einni bombu á eftir annarri og í kjölfarið varð ég að deila þessu með ykkur. Ég held að við áttum okkur ekki alveg á því hvaða samband við eigum við peninga og oft eru peningar ekkert sem er endilega rætt. Svo að tala við Katrínu var eins og ferskt loft og eiginlega bara smá masterclass. Katrín er eigandi og framkvæmdastjóri IceHerbs og er að öllu leyti yndisleg og heilsteypt manneskja og galaxía af visku. Ég elska þennan þátt og vona að þið gerið það líka - njótið vel!
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar -
10/31/2021 • 1 hour, 26 minutes, 26 seconds
Þáttur 74 - Sara Odds markþjálfi og shaman um hugrekki, heiðarleika og sjálfsþekkingu
Þátturinn er í boði:
Finn Crisps
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Sara Odds er markþjálfi, ráðgjafi og shaman og veit vel hvað hún syngur. Við förum yfir söguna hennar ásamt því að hún kynnir okkur fyrir hugrekki, heiðarleika og sjálfsþekkingu en hún segir að það sé eitt af megin atriðum þess að öðlast allt hið fallega í lífinu. Ég votta að þessi nálgun er brjálaðslega áhugaverð og var gjörsamlega geggjað að sitja á móti henni að hlusta á hana. Hún hefur okkur einnig skýrari sýn á hvað "fight or flight" þýðir í raun og veru og hvaðan það kemur og hvernig við getum brotið sirkúlinn. Mæli innilega með þessari mögnuðu konu og njótið vel!
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar -
10/29/2021 • 1 hour, 19 minutes, 24 seconds
Þáttur 73 - Ragga Nagli um streytu, meðvirkni og að setja mörk
Þátturinn er í boði:
Finn Crisps
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Heimsins besta Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli er loksins komin á klakann eftir alltof langa Covid pásu svo ég að sjálfssögðu dróg hana inn í stúdíó. Viðfangsefnið er einfalt, streyta, meðvirkni og að setja mörk. Svo hreinlega - must hlustun! Ragga er án efa en klárasta manneskja sem ég þekki svo njótið vel!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
10/24/2021 • 1 hour, 28 minutes, 57 seconds
Þáttur 71 - Gerða Jóns íþróttafræðingur um líkamlega og andlega heilsu og tenginguna þar á milli
Þátturinn er í boði:
Finn Crisps
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Vá, Gerða Jóns, íþróttafræðingur og þjálfari með meiru ræðir um líkamlega og andlega heilsu. Gerða er m.a með hina vinsælu In Shape tíma. Við hefðum getað tekið þriggja tíma þátt og hún kemur vonandi tilbaka sem fyrst enda nóg að tala um. Við fáum að kynnast Gerðu og deilir hún með okkur hvernig það var að alast uppí alkóhólísku umhverfi og hvernig það hefur mótað hana í dag. Einnig hvernig agi fimleika hefur áhrif á hana í dag. Gerða hefur fengið ófá verkefni tilfinningalega og er magnað að hlusta á hvernig viðhorfið hennar er hvað það varðar. Einnig ræðum við allt tengt tenginunni minni hinu andlega og líkamlega og viðhorf hennar gagnvart hreyfingu er svo fersk, létt og eins og að anda að sér hreinu lofti. Ræktarkvíði, æfa í streytukerfinu, að líða vel, að taka tíma fyrir sig og allt þar í kring. Gerða er gjörsamlega stórkostleg í allar æðar og finnur maður það bæði að hlusta á hana og tala við hana. Vá hvað ég mæli með -
Þið finnið hana t.d. á Instagram www.instagram.com/gerdajons & www.gerda.is -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
10/15/2021 • 1 hour, 30 minutes, 5 seconds
Þáttur 70 - Hólmfríður Rut um andlegt ofbeldi og afhverju við eigum ekki að taka NEINU persónulega -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Hólmfríður Rut kom til mín í spjall en við sátum á Fjallkonunni að narta í salat þegar hún sagði mér frá einu besta ráði sem ég hef fengið og ég vissi að ég þyrfti að deila því með ykkur hér á Helgaspjallinu. Við Hófí eigum það einnig sameiginlegt að hafa verið í ofbeldissamböndum en höfðum hvorug hugmynd um það þrátt fyrir að hafa verið saman uppá dag þegar við vorum í þessum tilteknu samböndum. Við förum yfir hvernig og afhverju. Hvernig virkar ofbeldi? Hvernig fattar maður þetta? Og mikilvægast, hvað er til ráða? Eftir síðasta þátt og pistil minn á Trendnet.is hugsaði ég þennan þátt fyrir þá sem tengdu við þennan tiltekna pistil.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
9/26/2021 • 54 minutes, 32 seconds
Þáttur 69 - Elísabet Gunnars um flutningana heim, breytingarnar og drifkraftinn -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Elísabet Gunnars kom loksins í podcast! Þessi brjálaðslega hæfileikaríka og frábæra kona er eigandi og konan á bakvið Trendnet.is og hefur farið útum allt, en hún flutti út með manninum sínum Gunnari þegar hann fór að spila í atvinnumennsku í handbolta. Elísabet hefur stórkostlega vinnu-ethík og við fáum að kynnast henni betur. Við ræðum meðal annars mikilvægi hreyfingar, breytingarnar að vera flutt heim eftir 12 ár, hjónabandið hennar og hvernig það var að eiga mann í Þýskalandi, eitt barn á Íslandi og með annað barnið í Danmörku. Elísabet er ekkert nema innblásturinn og bensíngjöfin og var yndislegt að sitja á móti henni og fá að hlusta á hana.
Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
9/20/2021 • 1 hour, 15 minutes, 21 seconds
Þáttur 68 - Sara María Forynja um sjálfsábyrgð, innra barnið og hugvíkkandi efni -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Fitness Sport - www.fitnesssport.is
IceHerbs - www.iceherbs.is
Vá vá vá - það þarf varla að kynna inn Söru Maríu Forynju. Hún er gúru, listakona, hönnuður, markþjálfi og allt hið fallega þar á milli. Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið hana til mín aftur og hún gjörsamlega umturnaði lífi mínu í þessu spjalli. Hún er galaxía af visku og en hún tildæmis segir okkur á mannamáli hvar sveppir og hugavíkkandi efni standa í nútíma geðfræði, hvað það þýðir og hvað það gerir. Ég spyr hana stórra spurninga, meðal annars varðandi minn bata og hún kom með hverja sleggju á eftir annarri sem mögulega breytti öllu hjá mér. Við ræðum meðvirkni, innra barnið okkar þar sem ég hreinlega fór að skæla og sjálfsábyrgð ásamt svo mörgu öðru. Ég get ekki mælt meira með að hlusta á hana Söru með silkimjúku röddina. Njótið vel -
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdio-i Podcaststöðvarinnar -
9/12/2021 • 1 hour, 21 minutes, 26 seconds
Þáttur 67 - Þorgerður Katrín og María Rut um sannleikann á bakvið pólitíkina -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Þorgerður Katrín, þingmaður og formaður Viðreisnar og aðstoðarkonan hennar og frábæra klára vinkona mín María Rut mættu í stólinn og förum við yfir alla liti pólitíkarregnbogans. Við fáum að kynnast Þorgerði betur og heyra söguna hennar. Áskorarnir, sjálfsskoðunin, skrefið að fara aftur í pólitík ásamt skemmtilegum sögum. María sem er að bjóða sig fram til þings segir einnig frá ferðalaginu sínu hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Til dæmis kómíska sagan hvernig hún fékk stöðuna sem aðstoðarkona Þorgerðar. Það er nóg af fræðslu, hlátri og gleði í þessum þætti og mæli með að hlusta á þessar stórkostlegu konur.
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
8/31/2021 • 1 hour, 30 minutes, 1 second
Þáttur 66 - Linda Sæberg part ll um krabbameinið, örlögin og hækkun tíðnar -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Linda Sæberg mætti aftur í stúdíó-ið enda nóg um að ræða. Í síðasta þætti vorum við komin að veikindum Lindu, en hún fór í gegnum þá erfiðu reynslu að greinast með brjóstakrabbamein og hún deilir með okkur hvað hún tók með sér í kjölfarið og hvernig lífið hennar breyttist. Við ræðum um örlögin, alheiminn, tíðni, taka hluti í sátt og flæðið í lífinu. Það var yndislegt að hlusta á Lindu og gleður mig að deila þessum seinni þætti með ykkur -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
8/30/2021 • 1 hour, 17 minutes, 13 seconds
Þáttur 65 - Linda Sæberg um að fylgja tilganginum okkar og Bali flutningar með fjölskyldunni
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Þessi þáttur er fyrsti partur af tveimur þáttum með Lindu Sæberg.
Linda er fögur tilfinningasprengja sem vakti athygli á samfélagsmiðlum þegar hún gaf innsýn inní baráttu sína við krabbamein. Fyrir veikindin fæddi hún soninn sinn Esjar og til að forðast skammdegisþunglyndið í fæðingarorlofinu sínu þá tók hún þá ákvörðun að flytja til Bali með fjölskylduna. Þáverandi manninn sinn, dóttir sína og þriggja mánaða son, hún segir okkur frá ferðalaginu og það sem tók við þegar hún tók við. Það sem tók við þegar komið var heim var hið hefðbundna líf sem hún hélt og hún vildi en svo var ekki. Frásögnin hennar er ótrúlega einlæg og áhugaverð og það sem tók við í kjölfarið var eitt hennar stærsta verkefni lífinu, sem var baráttan við bjóstakrabbamein sem við förum betur yfir í næsta þætti -
Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
8/25/2021 • 1 hour, 14 minutes, 2 seconds
Þáttur 64 - Guðrún Sørtveit opnar sig um fósturmissi, að vera ný mamma í covid og sorgina -
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Ljúfa Íslands, Guðrún Sørtveit förðunarfræðingur og bloggari á Trendnet kom til mín í annað skipti og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. Guðrún opnar sig um upplifun sína af utanlegsfóstri og hvernig ferlið var og hvernig það tók á andlegu hliðina. Í kjölfarið varð Guðrún aftur ólétt af Áslaugu Rún sem fæddist í kickstarti Covid. Guðrún opnar sig um hvernig það var að vera nýbökuð móðir með fyrsta barn í heimsfaraldri ásamt því að hafa lent í áfalli á meðan Covid stóð sem hæðst. Guðrún er ein einlægnissprengja og fátt yndislegra en að sitja með henni og spjalla um daginn og veginn. Njótið vel kæru hlustendur -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
8/15/2021 • 1 hour, 28 minutes, 31 seconds
Þáttur 63 - Andrea Magnús um lífið, draumana og lærdóminn -
Þátturinn er í boði:
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Losti.is - www.losti.is
Hönnuðurinn og Trendnet bloggarinn Andrea Magnús kom loksins til mín í stúdíó-ið! Andrea er án efa ein yndislegasta manneskja sem ég þekki, hún hefur alltaf ráð og segir einhvernvegin alltaf það rétta og hef ég tekið mér margt til fyrirmyndar á þeim tíma sem ég hef þekkt hana. Við fáum að kynnast henni enn betur og grafa aðeins ofan í lífið hennar. Allt frá fjölskyldulífi, fyrirtækjareksturinn hennar og tilfinningalíf. Við ræðum meðal annars um manifest draumana okkar og hvernig við látum verða að þeim. Hún hefur svo magnaða manneskju að geyma og var yndislegt að fá að hlusta á hana og sýn hennar á lífið eins og það leggur sig. Andrea rekur búðina www.andrea.is á Norðurbakka í Hafnarfirði ásamt því að vera bloggari á www.trendnet.is og er aktív á Instagram með rúmlega tólf þúsund fylgjendur.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-inu í Podcaststöðinni -
7/31/2021 • 1 hour, 20 minutes, 18 seconds
Þáttur 62 - Ragna hjá Bjarkarhlíð um andlegt ofbeldi, rauðu flöggin og trauma-bond
Þátturinn er í boði:
Brynju Ís -
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Losti.is - www.losti.is
Ragna Björg Guðbrandsdóttir er teymisstjóri Bjarkarhlíðar sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Hún tók mér opnum örmum þegar ég gekk þar inn bugaður á sál og líkama og tókum við þennan þátt með því markmiði að hjálpa hlustendum að læra að þekkja rauðu flöggin og andlegt ofbeldi. Ragna er heil galaxía af reynslu og þekkingu í þessum málum og fáum við að heyra söguna hennar. Það var mér mikill heiður að fá hana til mín. Þessi þáttur var gerður með því markmiði að fræða og vonandi hjálpa einhverjum þarna úti.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar
7/23/2021 • 1 hour, 6 minutes, 10 seconds
Þáttur 61 - Gunnar L Friðriks Tíbetskur Búddisti um andlega iðkun, góðvild og samkennd
Þátturinn er í boði:
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Losti.is - www.losti.is
Gunnar L Friðriksson eða Gunnar DAO eins og ég vil kalla hann er Tíbetskur Búddisti sem hefur iðkað Búddisma í yfir 30 ár situr fyrir svörum og sturtar yfir okkur heilandi og falleg heilræði frá þekkingu sinni. Hann deilir einnig persónulegum reynslum varðandi fíkn og hvernig honum tókst að reyna fá jafnvægi milli Búddisma iðkun sína og fíknina. Hann lendir einnig í því krefjandi verkefni að fá ristilskrabbamein sem tók á og hvernig honum tókst að nýta heilandi aðferðir í því verkefni. Hann einnig gerir stutta og yndislega sjálfssamkenndar hugleiðslu með okkur sem ég hvet ykkur öll til að taka þátt í. Ég er þakklátur fyrir þennan þátt og Gunnar skildi mikið eftir hjá mér og vona að þessi þáttur gerir slíkt hið sama fyrir ykkur.
Heimasíða Gunnars er www.dao.is fyrir áhugasama -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i podcast stöðvarinnar
7/14/2021 • 1 hour, 26 minutes, 42 seconds
Þáttur 60 - Kynnumst Narsisissma með Sigríði Þormar, doktor í sálfræði
Þátturinn er í boði:
Brynju Ís -
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Losti.is - www.losti.is
Sigríður Þormar er doktor í sálfræði. Hún skrifaði grein á Stundin.is sem heitir "Í neti narsissistans" sem vakti gríðarlega mikla athygli. Þessi þáttur er einn sá stærsti fyrir mína parta. Narsissistar og fólk með narsissistíska hegðun er ótrúlega hætturlegt fólk og þess vegna er mikilvægt að kynnast hegðunarmynstri þeirra. Eins og Sigríður skrifar, í neti narsissistans er svo ótrúlega rétt. Hægt væri að gera 100 þætti um viðfangsefnið en við förum yfir eins mikið og við gátum í fyrsta þætti. Þessi þáttur á að vera fræðandi og mæli ég með að hlusta á Sigríði fyrir alla. Eina leiðin til að geta farið sig við Narsissista er að þekkja formúluna og hætti þeirra. Afhverju gera þeir það sem þeir gera? Hvað er gaslýsing og hversu stór þáttur er hún í andlegu ofbeldi narsissistans? Hvernig getum við séð rauðu flöggin? Hver er úrræðin ef við erum í kringum einhvern sem beitir svona ofbeldi?
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i podcast stöðvarinnar
7/2/2021 • 1 hour, 26 minutes, 27 seconds
Þáttur 59 - Eva Matta frá Norminu um valdið innra með okkur og alkóhólismann
Þátturinn er í boði:
Brynju Ís -
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Losti.is - www.losti.is
Hin stórkostlega Eva Mattadóttir mætti loksins til mín í stúdíóið þar sem við fáum að kynnast henni betur. Hún deilir meðal annars með okkur hvaða hlutverk alkóhól hefur haft á lífið hennar og við förum útum allar tryssur með fókus á valdið sem við höfum innra með okkur. Það var svo magnað þegar þú sagðir "Þetta er í boði fyrir okkur" og það sem er í boði fyrir hvert og eitt okkar, er stórmagnað. Mæli með að hlusta á þessa stórkostlegur konu -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíóinu í Podcaststöðinni -
7/1/2021 • 1 hour, 23 minutes, 16 seconds
Þáttur 58 - Eva Dögg Rúnars um #metoo, ráð, nálgun framhaldsins og okkar sannleikur -
Þátturinn er í boði:
Brynju Ís -
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Við Eva setjumst niður eftir stormasamar vikur varðandi seinni og kröftuga #MeToo bylgju. Ég vissi að Eva væri fullkomin í stólinn varðandi nálgunina sem ég vildi í umræðuna. Að vera séður og taka heilandi vinkil á málefnið. Hvernig getum við gert betur? Hvert er framhaldið og hvert viljum við fara með þetta? Hver er framtíð #MeToo -
Við erum mjög magnað samfélag hér á Íslandi og veit að við getum haft stór áhrif. Ég vona að það þið hafið eins gott af þessum þætti og ég þegar ég sat á móti Evu. Að fá að hlusta á hana er alltaf eins og að fara á fyrirlestur með hafsjó af visku og upplýsingum.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i podcast stöðvarinnar
5/31/2021 • 1 hour, 17 minutes, 15 seconds
Þáttur 57 - Lestur í stjörnukort og andlegar bombur með Jöru Giantara VOL 2
Þátturinn er í boði:
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Stjörnuspekisdrollan Jara Giantara er mætt aftur í VOL 2 þar sem við förum meðal annars yfir stjörnukortalestur. Það var ótrúleg upplifun að fara til hennar og hinir ótrúlegustu hlutir koma uppá yfirborðið í slíkum lestri. Jara er án efa ein andlega klárasta manneskja sem ég hef fengið að hitta og eftir stjörnulesturinn ræðum við allt frá lífinu, tímanum, ofbeldi, andleg tól og hendir hún út hverri sannleiksbombuna á eftir annarri sem gerði mig alveg kjaftstop. Gæti ekki mælt meira með að hlusta og fyrir stjörnuspekisunnendur er bæði Jara og þátturinn algjört yndi í eyrun. Njótið vel x
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni -
5/28/2021 • 1 hour, 2 minutes, 30 seconds
Þáttur 56 - EUROVISION ÞÁTTUR með Eurovision expert Kristján Eldjárn
Þátturinn er í boði:
Brynju Ís -
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Það er ekki hægt að vera með hlaðvarp í maí mánuði og ekki gera þátt um Eurovision. Ég fékk til mín Eurovision expert Kristján Eldjárn sem heldur úti síðunni Kristján og Eurovision á Facebook ásamt því að vera aktívur á Instagram þar sem hann sýnir frá skemmtilegu Eurovision efni. Við gefum stigin okkar fyrir keppnina í ár og förum yfir gömul ár ásamt því að fara yfir vanmetin lög, ofmetin lög og allt þar á milli -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i podcast stöðvarinnar
5/19/2021 • 1 hour, 19 seconds
Þáttur 55 - Stjörnuspeki 101 með Jöru Giantara VOL 1
Þátturinn er í boði:
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Í þessum þætti af Helgaspjallinu fæ ég til mín stjörnuspeking, heilara og jógakennara Jöru Giantara þar sem ég forvitnast hvað er stjörnuspeki? Hvernig byrjaði þetta?Hver er sagan? Erum við bara eitt stjörnumerki? Hvaða áhrif hefur rísandi? Stjörnumerkin og stjörnurnar hafa áhrif á hver við erum og hvernig geta þau hjálpað okkur að uppfylla tilgang lífs okkar? Ásamt því að við fáum að kynnast þessari mögnuðu konu og heyra hvernig hún endaði í því sem hún gerir í dag. Þetta er aðeins fyrri þáttur og er næsti enn kröftugari þar sem við förum í veraldlegri og gröfum enn dýpra. Njótið vel -
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni -
5/8/2021 • 51 minutes, 13 seconds
Þáttur 54 - Davíð Oddgeris VOL 2 um tattoo therapy, heilun og breytingarnar framundan í heiminum
Þátturinn er í boði:
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Eftir fyrsta þáttinn sem við Davíð tókum saman sem vakti mikla athygli ákváðum við að bomba í annan þátt enda nóg að ræða. Ég var forvitinn að vita meira en tenging Davíðs til æðra mátts og vildi vita meira. Við ræðum heilun, og tattoo therapy sem Davíð framkvæmir sem ég hef aldrei heyrt áður. Hvað er heilun? Hvað er tattoo therapy? Forvitnin hélt áfram. Hlutir eins og geimverur koma til sögu og er ótrúlega gaman, eins og fyrst, að hlusta á Davíð með opnum huga -
Njótið vel
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni -
4/30/2021 • 1 hour, 11 minutes, 18 seconds
Þáttur 53 - Linda Ósk stjörnudansari um lífið sem Vottur Jehóva
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Linda Ósk var áberandi í dansbransanum hér á Íslandi fyrir nokkrum árum. Hún stjórnaði danshópnum Rebel og átti einnig dansstúdíó undir sama nafni. Linda var sú sem kynnti mér fyrir andlega heiminum og gaf mér góð ráð. Þegar hún bjó í Kaupmannahöfn bönkuðu uppá hjá henni Vottar Jehóvar sem leiddi til þess að hún í dag er einnig Vottur Jehóva. Ég var eðlilega forvitinn, hvað má? Hvað má ekki? Hver er Jehóva? Ég fékk að spurja eins og bavíani og fékk helling af áhugaverðum svörum.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni -
4/27/2021 • 1 hour, 34 minutes, 40 seconds
Þáttur 52 - Davíð Oddgeirs um innra barnið. kynferislegt ofbeldi og Covid
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Davíð Arnar Oddgeirsson er einn magnaður maður. Í þessum þætti ræðum við innra barnið okkar og Davíð eiginlega tekur okkur á ferðalag inní sinn heim og sinn sannleika og það var vægast sagt magnað að fá að sitja fyrir framan hann og hlusta. Við ræðum einnig kynferislegt ofbeldi sem Davíð varð fyrir, hvernig hann vann úr því og hvernig honum tókst að fyrirgefa. Hann fræðir mig um kantalista, hvað það er að lifa í skömm og hvernig við navigate-um það. Hvernig við getum horft í augun á sjálfum okkur, vinna í skuggunum okkar og öðlast meiri vakningu. Davíð deilir einnig með okkur öðruvísi pælingar með nýjum vinkil og Covid 19 og segir meðal annars að Covid 19 sé ein stærsta gjöf sem mannkynið hefur fengið. Ég gæti skrifað endalausan texta enda förum við í alla heimana í þessu spjalli og ég gæti eiginlega ekki mælt meira með því að hlusta á þennan gjörsamlega magnaða einstakling. Þessi þáttur er einn af tveimur og hlakka til að deila honum með ykkur. Ég segi bara njótið ferðalagsins og þangað til næst!
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni -
4/8/2021 • 1 hour, 23 minutes, 6 seconds
Þáttur 51 - Masterclass og öld vatnsberans með Rvk Ritual
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Rvk Ritual drottningarnar Eva Dögg Rúnarsdóttir og Dagný Berglind eru hafsjór af þekkingu og visku. Þær eru meðal annars með Self-Mastery class sem við brjótum niður fyrir ykkur skref fyrir skref. Ég hef sjálfur tekið þátt tvisvar og hefur reynst mér gríðarlega vel og er ég ótrúlega ánægður að þær voru til í að vera með smá Masterclass hér á Helgaspjallinu. Sjálfsþekking, hreinsun, markmið og manifesting eru þættir námskeiðsins. Þær eru stórkostlegar báðar tvær og þetta spjall fékk mig til að hugsa marga daga eftir. Njótið vel!
3/29/2021 • 1 hour, 26 minutes, 2 seconds
Þáttur 50 - Ástrós Trausta um dansinn, átröskun, gildi & lífsreglur
Þátturinn er í boði:
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Dr.Teals -
Losti.is - www.losti.is
Dansdrottningin og samfélagsmiðla mega beib-ið Ástrós Trausta settist niður hjá mér og við fáum innsýn inní dansheiminn ásamt því að kynnast henni. Við töluðum um gildi, slúður, mörk og lífsreglurnar fjórar sem eru svo ótrúlega máttugar. Ástrós stoppaði mig af á dögunum og sagði "Ég vil ekki tala illa um fólk" sem sló mig en það kveikti á perunni hjá mér og ég kunni svo ótrúlega að meta það. Sem tölum meðal annars um það ásamt svoooo mörgu öðru. Það gæti komið fólki á óvart hversu andleg Ástrós er og hún hefur kennt mér mikið og veit að þið eruð mörg þarna úti sem gætu tekið margt gott frá þessu spjalli.
Þátturinn er í boði -
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Losti.is - www.losti.is
Dr.Teals - fæst í Hagkaup, Lyfju, Lyf og Heilsu og Apótekum
Dominos - www.dominos.is
Maðurinn á bakvið Granda 101 Númi Katrínarson ræðir allt frá Crossfit ferilinn og skrefið að koma heim frá Svíþjóð og opna heilsuræktarstöðina Grandi 101 ásamt því að keyra sig í burnout í kjölfarið. Það sem tók við er mögnuð vegferð og er Númi einstaklega opinn og einlægur í varðandi síðustu tvö þrjú ár. Meðal annars reynsla hans á sveppum, hvernig það hefur hjálpað honum og öðlast innhaldsríkara líf í kjölfarið, andleg og líkamleg heilsa og hvernig hún spilar saman, kúltúrinn okkar og slökun, Covid og hvað það er að kenna okkur eða vekja okkur. Númi er magnaður og einstaklega skemmtilegt að hlusta á hann.
3/16/2021 • 1 hour, 20 minutes, 52 seconds
Þáttur 48 - Áki hjá Maika'i - dreyma, framkvæma og sigra
Þessi þáttur er í boði Chitocare, Dr Teals og Losti.is -
Hugsjónarmaðurinn Ágúst Freyr eða Áki settist niður með mér og við tölum um að framkvæma draumana sína en hann var lagerstarfsmaður í skuld, með barn á leiðinni og segir frá mögnuðu ferðalagi hvernig honum ásamt konunni sinni opnaði eina vinsælustu hollustubúllu landsins Maika'i. Það er fáranlega gaman að hlusta á hann og mæli með þættinum. Hann er hvergi hættur og er gott dæmi um að láta ekkert stoppa sig og fylgja draumunum sínum og framkvæma hugmyndir.
www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
www.losti.is
Dr Teals í Lyf og Heilsu, Hagkaup, Lyfja
3/6/2021 • 1 hour, 36 minutes, 48 seconds
Þáttur 47 - Anna Lára Orlowska um mikilvægi góðmennsku, lífið og andlegu vinnuna eftir sambandsslit
Þessi þáttur er í boði Chitocare -
Afsláttarkóði: Helgaspjallið á Chitocare.is
Anna Lára Orlowska segir frá magnaðari sögu sinni frá æsku. Ungfrú Ísland ævintýrið og svo förum við yfir margar hliðar af mikilvægi góðmennskunar, en Anna er ein af þessum einstaklingum sem skín af þegar kemur að því að lifa í gildum sínum. Við ræðum einnig andlega ferlið eftir sambandsslit, hvað það kennir okkur og hvernig við getum lært af því ásamt svo mörgu öðru. Það var yndislegt að fá hana til mín og mæli með að hlusta á þessa mögnuðu konu,
2/23/2021 • 1 hour, 13 minutes, 42 seconds
Þáttur 46 - Sandra Ólafs um mátt hugans, sjálfsábyrgð og magnað andlegt ferðalag hennar
Þátturinn er í boði Chitocare -
Afsláttarkóði á Chitocare.is: Helgaspjallid
Listakonan Sandra Ólafs kom til mín í spjall því hún hefur farið í gegnum magnað andlegt ferðalag. Hún hefur glímt við þunglyndi, kvíða, átröskun, vefjagigt og hryggjagigt og en deilir með okkur að með hvernig hún náði með mætti hugans að yfirstíga þessar áskornarnir. Hún talar einnig um nauðgunina sem hún varð fyrir, reiðina í kjölfarið og hvernig hún vann úr því. Við förum yfir allar deildir spiritúalismans og vonandi að þið njótið vel.
2/10/2021 • 1 hour, 3 minutes, 57 seconds
Þáttur 45 - Sylvía Briem frá Norminu um að þora vera inní sér, taugabrautirnar, Dale og allt annað -
Þessi þáttur er í boði Chitocare Beauty og Dominos -
Að setjast með Sylvíu var eins og að drekka stóran bolla af hamingju, visku og vellíðan. Það er svolítið Sylvía eins og hún leggur sig. Ekki bara guðdómlega fögur heldur alveg galið klár. Hún splæsti á mig einum masterclass um hugmyndafræði Dale Carnegie þar sem hún fékk þann heiður að vera efst kvenna á lista fyrir bestu Dale þjálfara í heiminum, svo hún er eeekkert að grínast. Við ræðum taugabrautir, að þora að vera inní okkur og svo ræðum við besta ráð í heiminum - clear is kind. Mæli svo innilega með og annað okkar fer meira segja að skæla í þættinum.
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/sylviafridjons
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_iceland
12/23/2020 • 1 hour, 13 minutes, 38 seconds
Þáttur 43 - Feel good fæða fyrir sálina með Apríl Hörpu / Rvk Gypsea
Apríl Harpa kom til mín í annað skiptið og margt hefur runnið til sjávar síðan. Dóttir hennar Lúna kom í heiminn og talar Apríl og krefjandi fæðingu og hvernig var að fæða barn á Bali. Hún talar einnig um tímann eftir barnsburð og hversu mikilvægur hann er fyrir bæði barn og foreldra. Við ræðum tilfinningar á bakvið ástarsorg og öfundsýki ásamt svo mörgu öðru. Ef það er eitthvað sem við Apríl getum þá er það að tala um allt milli himins og jarðar. Ég vill meina að þátturinn er smá svona soulfood og vona að þið verðið ánægð með hann -
12/9/2020 • 1 hour, 35 minutes, 22 seconds
Þáttur 42 - Lífið mitt eftir sambandsslit og Ragga Nagli mætt!
Þessi þáttur er í boði Chitocare og Dominos -
Þessi þáttur er handa öllum þeim sem annaðhvort eru að ganga í gegnum skilnað, sambandsslit eða sitja föst í sambandi sem ekki lengur veita hamingju og vita ekki alveg í hvern fótinn á að stíga í. Þegar ég fór í gegnum mitt ferli þá gerði ég dauðaleit af einhverju hlaðvarpi sem gat gefið mér smá von og ró, en án árangurs. Svo ég ákvað að gera þáttinn sem ég leitaði af með klárustu skvísu sem ég þekki, Röggu Nagla. Þetta er þokkalega ekki í fyrsta skipti sem hún situr á móti einstakling sem er að ganga í gegnum það sama og ég.
Hver er ég? Hvernig kemst ég í gegnum þetta? Hvernig kem ég mér í gegnum þetta eins vel og heilbrigt og ég get? Hvað nú? Þetta eru allt spurningar sem við svörum í þættinum - gjörið svo vel
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/ragganagli
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_iceland
Stef eftir Arnar Boga/Boji
11/20/2020 • 48 minutes, 37 seconds
Þáttur 41 - Beggi Ólafs - Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi
Þessi þáttur er í boði Chitocare og Dominos -
www.chitocare.is
www.dominos.is
Ég náði hinum stórkostlega Begga Ólafs til mín í Helgaspjallið korteri áður en hann fékk að tilkynna að hann skrifaði eitt stykki bók sem vakið mikla athygli og fór um samfélagsmiðla eins og eldur í sinu. Við ræðum að sjálfssögðu bókina og innihald hennar, þar á meðal munurinn á hamingjusamu lífi og innihaldsríku lífi sem var ótrúlega sjarmerandi hugmyndafræði. Við dettum auðvitað í hið andlega og ræðum innsæið, að leiða með hjartanu og allskonar pælingar sem kalla fram smá "mindblow" -
Leikkonan og smekksbomban Kristín Péturs kom loksins til mín í Helgaspjallið eftir mikla eftirspurn. Við fengum að kynnast henni, hvaðan hún kom og hvert hún er að fara. Kristín tjáir sig um skilnaðinn sem fljótt var kominn í fjölmiðla og opinber fyrir almenning að tjá sig og sögurnar sem komu í kjölfarið. Kristín er svo einlæg í þessu viðtali og við ræðum allt í kringum samfélagsmiðlana, hvers konar áhrif skilnaður hefur á sálarlífið og að sjálfssögðu hið bjarta og fallega í lífinu.
Þessi þáttur er í boði Chitocare Beauty - chitocare.is
Þátturinn er einnig í boði Dominos á Íslandi -
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/kristinpeturs
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_iceland
Stef er eftir Arnar Boga/Boji
Logo eftir Andreu Jóns á 29linur
10/23/2020 • 1 hour, 26 minutes, 58 seconds
Þáttur 40 - Pælum í pólitík, pólitík á mannamáli og pólitík 101 með Maríu Rut
Þessi þáttur er í boði Chitocare og Dominos -
Afsláttarkóði á Chitocare.is: Helgaspjallið
Ég fékk til mín Maríu Rut sem vinnur á alþingi og gegnir öðrum skemmtilegum verkefnum, eins og Pælum í Pólitík á Instagram, meðeigandi og stjórnandi Hinseginleikans og svo margt annað. María er hafsjór af visku og sérstaklega þegar kemur að pólitík. Við settumst niður og fórum yfir allskonar málefni og ég drita yfir hana hinum ýmsu spurningum um alþingi, framtíðina í pólitík, nýju stjórnarskránna og allt þar á milli. Markmiðið með þessum þætti er að allir, fólk sem hefur áhuga á póltík og ekki gæti hlustað og verið aðeins klárari í kringum hvað er að gerast hér á Íslandi. Er spilling? Er gott vibe á Alþingi? Name it. Við förum yfir það - mæli með þessum þætti og þakka Maríu svo mikið að hafa komið og gert mig vitrari.
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/mariarut
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_iceland
10/6/2020 • 1 hour, 33 minutes, 22 seconds
Þáttur 38 - Ester Ingvars sálfræðingur um Gaslighting, algengt og sláandi!
Þessi þáttur er í boði Chitocare Beauty og Dominos -
Fyrir ekki svo löngu heyrði ég þetta hugtak, gaslighting eða gaslýsing eins og hægt er að kalla á íslensku. Ég varð forvitinn og kynnti mér þetta örlítið og vissi að ég þyrfti að vita allt, enda var þetta eitthvað sem ég sjálfur en ekki haft hugmynd um það. Ég fékk til liðs með mér Esteri Ingvars sem er sálfræðingur og snillingur með meiru. Hún fræðir okkur um gaslighting, tilfinningalega kúgun, ráð, afleiðingar og allt þar á milli. Mér fannst sláandi að heyra allt þetta og finnst magnað að þetta sé ekki meira rætt og hvað við vitum lítið um þessa aðferð af andlegu ofbeldi. Vona að þessi þáttur nýtist einhverjum til góðs.
Afsláttakóði á chitocare.is: Helgaspjallið / Helgaspjallid
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_iceland
9/29/2020 • 1 hour, 8 minutes, 27 seconds
Þáttur 37 - Hættu að vera besta útgáfan að sjálfum þér?
Þessi þáttur er í boði ChitoCare Beauty og Dominos -
Í þessum þætti setjumst Ragga Nagli niður og ræðum hugmynd sem Dagný systir smellti á borðið. Afhverju þurfum við að verða besta útgáfan á sjálfum okkur og ekki bara vera nóg eins og við erum á degi hverjum. Við grófum svolítið í þessi mál ásamt öðru.
Afsláttarkóði á chitocare.is er Helgaspjallid -
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/ragganagli
www.instagram.com/chitocarebeauty
www.instagram.com/dominos_iceland
Stef eftir Arnar Boga/Boji
Logo eftir Andreu Jóns hjá 29 línum -
Njótið vel!
9/20/2020 • 51 minutes, 55 seconds
Þáttur 36 - Eva Dögg Rúnars með hugleiðsluráð, hvað er fight or flight & ráð við people pleasing
Eins og í hin skiptin sem fastagesturinn Eva Dögg Rúnars hjá RvkRitual þá förum við yfir hin ýmsu viðfangsefni. Meðal annars hvernig hún gerði íbúðina sína græna frá grunni, korkgólf. Hvað er fight or flight og hvernig skiljum við það betur í daglegu lífi, við ræðum people pleasing og hvernig hægt er að vinna úr því, áhrif Aquarius aldarinnar, hugleiðsluráð og uppbyggingu Self Mastery Class hjá RvkRitual.
Þessi þáttur er í boði Dominos og Chitocare -
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/evadoggrunars
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_island
9/13/2020 • 1 hour, 27 minutes, 41 seconds
Þáttur 35 - 12 skref að sjálfsrækt með komandi hausti með Röggu Nagla
Helgaspjallið er komið aftur eftir sumarfrí. Við Ragga Nagli setjumst niður og förum yfir 12 skref sem eru góð að hafa íhuga með komandi hausti og vetri. Sálfræðiheilinn á Röggu og heilinn á mér er ágætt kombó og náum við að dekka ansi mikið á þessum rétt rúmlega klukkutíma. Hlusta á innsæið, setja mörk, læra að segja hið hreinskilna nei, við förum enn og aftur yfir ráðið sem breytti mínu lífi persónulega og ráð við afbrýðissemi.
Þátturinn er í boði Dominos og Chitocare -
www.instagram.com/helgiomarsson
www.instagram.com/chitocare
www.instagram.com/dominos_iceland
9/6/2020 • 1 hour, 1 minute, 53 seconds
Þáttur 34 - Bylga Borgþórs úr Morðcastinu - Ættleiðing, réttlæti, líkamsímynd & Eurovision
Bylgja Borgþórsdóttir sló rækilega í gegn á hinu vinsæla Morðcasti með geggjuðum persónuleika, einlægni og réttlætiskennd. Í þessum þætti fáum við að kynnast henni betur og förum við yfir hin ýmsu mál eins og ættleiðingaferli son hennar, gröfum djúpar í réttlætiskennd hennar og svo yfir það sem tengjum mig og hana nokkuð vel: Eurovision -
Bylgja er svo sannarlega magnaður karakter og persónuleg skoðun mín er að hún ætti að skella sér á þing eða skora á Guðna Th í næstu forsetakosningum. Það var mikil ánægja að fá að spjalla við hana og veit að þessi þáttur á eftir að kalla fram bros á vör.
Þátturinn er í boði Smáralindar -
Stefið er eftir Arnar Boga/Boji
Logo eftir Andreu Jóns hjá 29Línum
Instagram: @helgiomarsson
trendnet.is/helgiomars
6/25/2020 • 2 hours, 5 minutes, 37 seconds
Þáttur 33 - Helgaspjallið 3.0 - Að bera sig saman við aðra & impostor syndrome með Röggu Nagla -
Innblásturinn af þessum þætti kemur frá upplifun minni. Ég skríðandi leitaði til Röggu Nagla og bað hana um sálfræðiaðstoð. Hausinn á mér var á ótrúlega sérstökum stað og hjálpaði hún mér aftur á beinu brautina. Eftir allt saman þá áttaði ég mig á því að ég var ekki einn á þessum skrýtna stað innra með mér. Við brjótum niður viðfangsefnið sem aðallega tengist að vera sig saman við aðra, og þetta nýja hugtak - impostor syndrome/experience. Það var magnað að kynnast því og sérstaklega að hugsa til þess hvað við mörg höfum lent í þessari upplifun. Hugsanir sem koma hjá öllum, en hvernig dílum við það? Hvaða verkfæri notum við? Og hvað er þetta? Ragga Nagli er með mér að fara í gegnum þetta allt saman. Hún er jú sálfræðingur og er sólkerfi af visku, svo óbeinn sálfræðitími handa öllum!
Þessi þáttur er handa okkur. Njótið vel og vona að þetta gefi ykkur eitthvað gott í hjartað og hausinn.
Instagram:
@helgiomarsson
@ragganagli
Þessi þáttur er í boði Smáralindar
@smaralind
Tónlist eftir Arnar Boga/Boji
Logo eftir Andreu Jóns hjá 29Línur
5/26/2020 • 1 hour, 3 minutes, 17 seconds
Þáttur 32 - Helgaspjallið 3.0 - Sótthvíld, ráð og hjálpartæki á kórónutímum með Naglanum
Við Naglinn settumst niður og ræddum þessa ótrúlega skrýtnu tíma. Þar á meðal hvernig hægt er nýta tímann á uppbyggjandi hátt, hvernig við getum lært að þekkja og tækla heilsukvíðann og kvíðann almennt sem þessir tímar geta kallað fram. Ragga Nagli með síma þekkingu kemur með frábær ráð fyrir hlustendur.
ATH Þessi þáttur var tekinn upp í 15 mars -
.. og Söndru Bullock myndin sem við tölum um heitir Birdbox
Þessi þáttur er í boði Smáralind
Instagram:
@helgiomarsson
@ragganagli
@smaralind
Lag eftir Arnar Boga Ómarsson / BOJI
Logo eftir Andreu Jóns hjá 29Línur
3/25/2020 • 1 hour, 1 minute, 4 seconds
Þáttur 31 - Helgaspjallið 3.0 - Meðvirkni masterclass og hróspungar með Röggu Nagla
Master Ragga Nagli, með nokkrar sálfræðigráður í vasanum og mögulega gáfaðasta manneskja sem ég þekki. Ég var spenntur að heyra frá henni varðandi meðvirkni, en það er hægt að grafa endalaust í það hugtak og hún kemur í öllum stærðum, gerðum, litum og tegundum.
Þátturinn endaði með að vera hinn stórkostlegasti masterclass með Röggu, enda alveg frábært að fá upplýsingar frá sálfræðilegum sjónarhornum.
Ásamt meðvirkni ræddum við að setja mörk, hvernig og afhverju. Hreinskilnu nei og já-in ásamt smá Eurovision, hróspungalífið og smá af allskonar.
Njótið vel!
Þessi þáttur er í boði Smáralindar -
Instagram:
@helgiomarsson
@ragganagli
@smaralind
Heilsuvarp Röggu Nagla á Apple Podcast og Spotify
Tónlist eftir Boji
Logo eftir Andreu Jóns frá 29linur.com
Eva Dögg er frumkvöðull af bestu gerð og er ein af stofnendum RvkRitual. Alfróð grasagudda, jóga gúru, og markaðskona. Við náum að fara yfir ótrúlega yfir alveg ótrúlega margt í þessum fræðandi þætti. Hvert er raunverulegt mikilvægi öndunar? En Eva segir meðal annars að ef við stjórnum önduninni þá stjórnum við lífi okkar. Stór orð en í þessum þætti segir hún okkur frá afhverju og hvernig. Tengingin okkar við boðefnin og líkamann okkar. Við ræðum samansem merki milli sjálfsaga og sjálfsástar ásamt því að fá mjög skemmtilega fræðslu um ilmkjarnaolíur og áhrif þeirra.
Eva sprengdi Ísland um jólin með heimagerða sleipiefninu sínu og þar segir hún frá því ævintýri. Snar uppselt sleipiefni og biðlistar. Þið þurfið að heyra meira!
Þessi þáttur er gríðarlega fræðslumikill og hollur fyrir alla á öllum aldri.
Þessi þáttur er í boði Smáralindar -
Instagram:
@helgiomarsson
@evadoggrunars
@smaralind
2/24/2020 • 1 hour, 32 minutes, 37 seconds
Þáttur 29 - Helgaspjallið 3.0 - Birgitta Haukdal
Hin eina sanna Birgitta Haukdal. Hana þarf ekki að kynna en hún hefur verið idolið mitt frá því ég var lítill og forvitni mín fær svo sannarlega að njóta sín í þessum þætti. Við ræðum fyrst og fremst tímalínuna, hvaðan ferillinn byrjaði og keyrslan sem fylgdi lífinu á Írafár tímanum. Að sjálfssögðu spyr ég hana um Eurovision. Hvað tók við eftir Írafár? Hvernig var að búa í Barcelóna og hvernig fótaði hún sig þar eftir 10 ára keyrslu í bransanum. Við tölum um þakklætið, erfiðu og lærdómsríku tímana ásamt íkonísku tónleikana í Hörpunni og allt bæði fyrir og eftir. Við fórum út um víðan völl í þessum þætti og með einlægni að leiðarljósi kemur hún einnig með ótrúlega fræðandi mola og veitir innblástur með orðum sínum í gegnum spjallið.
Instagram:
@birgittahaukdal
@helgiomarsson
trendnet.is/helgiomarsson
Þessi þáttur er í boði Smáralindar -
Tónlist er eftir Arnar Boga Ómarsson / Boji á Spotify
Logo-ið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur -
2/11/2020 • 1 hour, 26 minutes, 23 seconds
Þáttur 28 - Helgaspjallið 3.0 - Sara Forynja um jóga, kakó og valdið innra með okkur
Ég greip Söru Maríu Forynju eldsnöggt podcast á ferð minni til Íslands. En við ræðum hreint kakó sem ég smakkaði í fyrsta skipti og áhrif þess, hvað jóga er í raun og veru, markþjálfun og ræðum í raun og veru valdið sem hver og einn býr með innra með sér. Mæli með að hlusta í snöggum göngutúr eða bara smá innblástur inní daginn.
Instagram:
@helgiomarsson
@forynja
Í þessum þætti förum við Ragga Nagli yfir sjálfsvinnuna, hvar hægt er að byrja, hver eru skrefin, hvenær er maður tilbúinn, og svo framvegis. Á mannamáli förum við yfir bæði persónuleg og eigin skref og einnig frá augum fagaðila, en eins og við vitum er Ragga Nagli sálfræðingur með fleiri en eina gráðu í þeim sálmum.
Þessi þáttur er í boði Smáralindar -
Instagram:
@helgiomarsson
@ragganagli
trendnet.is/helgiomars
1/27/2020 • 49 minutes, 57 seconds
Þáttur 26 - Helgaspjallið 3.0 - Sara María Forynja snýr aftur
Í þessum magnaða þætti kemur Sara María Forynja aftur, mörgum til mikillar ánægju en hún vakti ótrúlega mikla athygli í fyrri þætti hér á Helgaspjallinu. Við förum útí meðvirkni og hvernig hún leggur sig og hvernig hún kemur í ýmsum stærðum og gerðum. Við ræðum yoga, núvitund og hún blastar mindblowing hugmyndum um tálsýn. Þessi þáttur ætti að gagnast öllum og er algjört konfekt fyrir eyrun fyrir alla sem hafa áhuga á sælgætismolum fyrir sálina. Ef þú vilt hágæða næringu fyrir sjálfið þitt, þá skaltu stilla þennan þátt í botn. Gjörið svo vel!
Instagram: helgiomarsson
Instagram: forynja
trendnet.is/helgiomars
Þennan þátt af Helgaspjallinu mætti kalla “Kryddsíld Helga Ómars með Röggu Nagla.
Hér gera Helgi og Ragga árið 2019 upp með að horfa til baka á hvaða erfiðleika þau hafa yfirstigið, hverjir voru sigrarnir á árinu, hvaða lærdóm drógu þau af bæði áskorunum og velgengni.
Helgi talar um missi, sorg, sambandserfiðleika, samskipti við vinnufélaga og margt fleira.
Ragga talar um samskiptavanda í fjölskyldunni, ferðalög, umtal annarra og margt fleira
Einnig talar Helgi um þá sjálfsvinnu sem hann og kærasti hans þurftu að tileinka sér, og hvaða verkfæri þeir hafa notað til að bæta samband sitt.
Hvað sjá Helgi og Ragga fyrir sér á nýju ári og nýjum áratug?
Hvað ber 2020 í skauti sér.
Hvert ætlar Helgi að beina orkunni að á nýju ári, og halda áfram að bæta sjálfan sig sem manneskju.
Hvað ætlar Ragga að taka sér fyrir hendur á nýju ári, og koma verkefnum á koppinn.
Þessi þáttur er frábær hlustun fyrir alla sem vilja breyta sínu innra samtali og viðhorfi, verða betri manneskjur og byrja að horfa með öðrum augum á hindranir og vandamál.
12/31/2019 • 1 hour, 24 minutes, 47 seconds
Þáttur 24 - Helgaspjallið 3.0 - Eva Laufey Kjaran
Eva Laufey er landsmönnum vel kunnug og ég var svo heppinn að fá hana til mín í spjall sem veitti mér ótrúlega mikinn innblástur. Okkur tókst að ræða hin endalausu mál. Við ræðum meðal annars um unglingsárin, föðurmissi sem hún gekk í gegnum, ásamt fósturmissi, hvað það kenndi henni og sorgarferlið. Við ræðum einnig hugmyndina um orðið 'Ofurkona', hennar upplifun um kulnun ásamt því að hún deilir með okkur hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag með öllu tilheyrandi. Ef ykkur vantar smá innblástur inn í daginn, þá mæli ég með að hlusta á þessa, njótið vel!
Tónlistarkonan og gæðasprengjan GDRN kemur til mín og eigum við okkar fyrsta spjall saman. Við ræðum allt frá reynslum unglingsáranna, kvíða og hvernig maður vinnur með honum. Tölum einnig um galdra á bakvið að ganga yfir gangbraut og hvaða skref Guðrún tók til að komast á þann stað sem hún er í dag. Besta ráð sem hún hefur fengið kom hjá Bubba Morthens, hvar hún fann blissið sitt og upplifun hennar að standa við hlið kærasta síns, Bödda sem lenti í þeirri reynslu að fá heilaæxli.
10/27/2019 • 1 hour, 8 minutes, 10 seconds
Þáttur 23 - Helgaspjallið 3.0 - Erna Hrund
Við kynnumst Ernu Hrund Hermannsdóttir, förðunarmúngúl og vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar betur. Hún hefur oftar en einu sinni í gegnum tíðina talað um mál sem hafa skapað mjög miklar eftirtektir, bæði þegar hún bloggaði á Trendnet.is og svo sannarlega í þessu spjalli sem við áttum saman. Við ræðum góð en einnig erfið menntaskóla ár og hvernig tímarnir hafa breyst. Hún opnar sig um nauðgun sem hún lenti í, fósturmissi og fæðingarþunglyndi og hvernig hún vann úr þeim málum. Einnig opnar hún sig alveg ótrúlega einlægt um skilnaðarferlið sem hún fór í gegnum og að sjálfssögðu hið jákvæða og hvernig hún vann úr þeim áföllum og ákvörðunum í lífinu og hvernig hún komst á þann stað sem hún er í dag.
10/20/2019 • 1 hour, 14 minutes, 22 seconds
Þáttur 22 - Helgaspjallið 3.0 - Jóhanna Guðrún
Það þarf ekki að kynna Jóhönnu Guðrúnu en við ræðum allt frá barnastjörnu tímabilinu og upp að deginum í dag. Móðurhlutverkið ásamt því að fara yfir í feminisman, pressu nútímasamfélagsins, lífsstílinn og spirtúal hliðina.
10/13/2019 • 1 hour, 10 minutes, 39 seconds
Þáttur 21 - Helgaspjallið 2.0 - Sölvi Tryggva
Í þessum þætti ræðum við reynslu Sölva af niðurbroti, kvíða og kulnun sem hann einnig skrifar í nýrri bók sinni Á Eigin Skinni. Niðurbrot Sölva var árið 2007 og við förum yfir hvernig eftirköstin er og hvernig maður rís upp frá slíku. Einnig ræðum við almenna heilsu, að framkvæma og ná í tilfinningu og hvernig þekkingin kemur með reynslu. Við ræðum almennt um heilsu, líkamlega og andlega, hreyfingu og hinu ýmsu hvatningu.
6/16/2019 • 1 hour, 14 minutes, 22 seconds
Þáttur 20 - Helgaspjallið 2.0 - Hildur Sif Hauks
Hildur Sif Hauksdóttir er gestur þáttarins, en hún er bloggari á Trendnet ásamt því að vera mikill heilsugúru en hún borðar aðeins plöntufæði og ég forvitnast örlítið á bakvið hvernig það er að vera á plöntufæði og hvernig maður getur fært sig nær því að borða meiri plöntufæði. Hildur talar einnig hreinskilið um hvernig grunnskólaárin hafa áhrif á hver hún er í dag og hvernig maður lærir af mistökum. Við ræðum einnig hvernig andlega heilsu, hver tók fyrsta skrefið milli hennar og Begga, hvað það er dæma aðra og hver áhrifin eru á mann sjálfan ásamt að tala um allt milli himins og jarðar.
3/31/2019 • 1 hour, 13 minutes, 20 seconds
Þáttur 19 - Helgaspjallið 2.0 - Guðrún Sørtveit
Hin yndislega og ljúfa Guðrún Sørtveit er gestur þáttarins. Við ræðum meðal annars body positivity, hvernig hún fór frá því að vera fangi sjálfsniðurbrots yfir í að læra að elska sjálfa sig, ásamt því að við spjöllum um hvernig hún fór á því að vera feimin og labbandi meðfram veggjum yfir í að vera ein vinsælasta á Íslandi á samfélagsmiðlunum. Við ræðum tólin og leiðirnar til að sigrast á púkanum í hausnum á okkur og hið uppbyggilega í lífinu.
2/18/2019 • 1 hour, 15 minutes, 59 seconds
Þáttur 18 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part ll
Í þessum seinni hluta af spjallinu við Apríl Hörpu, einnig þekkt sem Rvk Gypsy ræðum við meðal annars hvað jóga er í raun og veru og hvernig hún byrjaði, einnig förum við útí átakanlega reynslu hennar varðandi kynferislega misnotkun og áhrif hennar. Við tölum um hvernig við finnum blissið okkar og hvað það er, ástarsorg og hverju henni fylgir. Einnig segir Apríl frá óvæntri tveggja og hálfs vikna göngu með munkum frá Indlandi til Tælands í 16.000 feta hæð, hver hennar stærsti lærdómur hefur verið í öllum þessum ævintýrum og hver hennar ráð eru til hlustenda. Njótið vel!
2/10/2019 • 1 hour, 16 minutes, 4 seconds
Þáttur 17 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part l
Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir betur þekkt sem Rvk Gypsy. Hún segir frá magnaðari sögu sinni og fer yfir æskuna, tenginguna og tilfinningarnar. Baksagan á bakvið þann stað sem hún er á í dag ásamt því hvernig hún endaði á Bali í mörg ár og hvernig það ferðalag átti sér stað. Þetta er þáttur af tveimur, en í seinna þætti förum við enn dýpra í sögu Aprílar.
2/2/2019 • 1 hour, 13 minutes, 15 seconds
Þáttur 16 - Helgaspjallið 2.0 - Helgi Ómars
Í þessum þætti snúum við hlutunum örlítið við, en Ragga Nagli tekur viðtal við mig. Ég fer t.d yfir æskuna, byrjunina á sjálfsvinnunni, ofbeldisatvik sem setti strik í reikninginn, hvernig ég komst í gegnum afbrýðissemi og það sem ég hef lært í gegnum tíðina ásamt mörgu öðru.
1/21/2019 • 1 hour, 14 minutes, 49 seconds
Þáttur 15 - Helgaspjallið 2.0 - Arnhildur Anna
Arnhildur Anna Árnadóttir er einstaklega einlæg fyrirmynd. Við setjumst niður og ræðum kraftlyftingarsportið, hvað liggur á baki og hvað hún fór í gegnum til að komast á þann stað sem hún er í dag. Einnig ræðum við meðal annars meðvirkni og hvernig hún heldur andlegu hliðinni sinni í jafnvægi og hvaða verkfærum hún beitir til þess ásamt svo mörgu öðru.
12/26/2018 • 1 hour, 18 minutes, 44 seconds
Þáttur 14 - Helgaspjallid 2.0 - Björt Sigfinns
Björt hefur áður komið til sögu í Helgaspjallinu, en hún er minn umtalaði Life Coach sem tók mig að sér á sínum tíma og lét mig hefja ferðalagið mitt í sjálfsvinnu. Hún er einnig einn af mastermindum á bak við LungA Festival ásamt því að hafa afrekað svo margt meira. Við kynnumst Björt og ræðum ýmislegt, meðal annars tungumál ástarinnar sem er einstaklega áhugavert
12/16/2018 • 1 hour, 17 minutes, 37 seconds
Þáttur 13 - Helgaspjallið 2.0 - Edda Falak
Gestur þátturins er hin sterka og magnaða Edda Falak. Við förum yfir móðurmissi Eddu og að vera alin upp af Líbönskum föður á Íslandi. Við förum einnig yfir Crossfittið, sjálfsagan og mataræði þar sem pizza með döðlum og rjómaosti kemur við sögu.
12/8/2018 • 58 minutes, 34 seconds
Þáttur 12 - Helgaspjallið 2.0 - Ragga Nagli snýr aftur
Við Ragga förum meira útí sálfræði hliðina á hinu daglega hamsi. Hvernig höldum við okkur í jafnvægi og hvaða hugrænu verkfærum eigum við að beita. Ásamt því að tala um allt frá kláða á skrýtnum stöðum og að missa tvisvar.
12/1/2018 • 1 hour, 22 minutes, 8 seconds
Þáttur 11 - Helgaspjallið: Eva Dögg Rúnarsdóttir
Gestur þáttarins er yoga og hollustu drollan Eva Dögg Rúnarsdóttir. Við spjöllum um hið andlega og hið slæma og góða sem býr innra með okkur ásamt líf og tilveru Evu. Við tölum um sjúkdóma sem hafa sett strik í lífið og um allt hið andlega og líkamlega sem hægt er að græða á við að stunda jóga og hugleiðslu, ásamt svo mörgu öðru milli himins og jarðar.
9/24/2018 • 1 hour, 4 minutes, 32 seconds
Þáttur 10 - Helgaspjallið: Brynja Dan
Hin heilsteypta og gullfallega Brynja Dan er gestur þáttarins. Við ræðum um æskuárin, foreldrahlutverkið, tilfinningalífið, erfiðan foreldramissi og hið ótrúlega ættleiðingar ævintýri og tenging við blóðfjölskyldu sína. Ásamt því ræðum við um allt milli himins og jarðar.
9/5/2018 • 1 hour, 16 minutes, 12 seconds
Þáttur 9 - Helgaspjallið: Fanney Ingvars
Gestur þáttarins er hin ljúfa og yndislega Fanney Ingvars. Hún ræður Ungfrú Ísland ævintýrið og áhrif keppninnar á lífið hennar. Móðurhlutverkið, andlegu hliðina og lífið eins og það leggur sig.
8/19/2018 • 1 hour, 19 minutes, 1 second
Þáttur 8 - Helgaspjallið: Svala Björgvins
Gestur þáttarins er hin eina sanna Svala Björgvins. Við ræðum æskuna, unglingsárin, poppstjörnu ævintýrið í LA, bílslysið sem breytti lífi hennar ásamt því að við ræðum hvernig hún dílar við kvíða og almennt andlegu hliðina, tilfinningalífið þá og í dag.
8/5/2018 • 1 hour, 24 minutes, 13 seconds
Þáttur 7 - Helgaspjallið: Binni Löve
Gestur þáttarins er snapkóngurinn Binni Löve. Við ræðum allt milli himins og jarðar. Þyngdartapið, andlegu hliðina, snaplífið og snapævintýrið, æskuna og unglingsárin ásamt allt annað þar á milli.
8/1/2018 • 1 hour, 26 minutes, 27 seconds
Þáttur 6 - Helgaspjallið: Sara María Forynja
Sara María Forynja er gestur þáttarins. Hún er þekkt fyrir að hafa startað Nakta Apanum ásamt því hafa startað öðrum merkjum með prenti í aðalhlutverki. Við kíkjum inná við í hinn gullfallega andlega hugarheim Söru og ræðum hvernig henni hún komst í gegnum fósturmissi, hvernig hún fyrirgaf árásamanni sínum, hvernig hún lærði að elska sjálfa sig ásamt því að fara í gegnum sögu þessarar mögnuðu náttúrukonu.
7/29/2018 • 1 hour, 11 minutes, 16 seconds
Þáttur 5 - Helgaspjallið: Sólrún Diego
Ein áhrifaríkasta manneskja Íslands Sólrún Diego er gestur þáttarins. Hún ræður upphaf Snapchat ævintýrsins, Frans, slúðursögurnar, sjálfsþekkingu, tilfinningalífið, fjölskyldulífið og opinberar mjög áhrifaríka staðreynd sem gæti komið hlustendum á óvart. Þátturinn er í lengri kantinum enda nóg af viðfangsefnum að ræða.
7/22/2018 • 1 hour, 30 minutes, 52 seconds
Þáttur 4 - Helgaspjallið: Elín Kristjáns
Elín Kristjáns er gestur þáttarins. Hún er eignandi Gekkó.is og mikill ferðalangur og hugsuður. Við tölum um föðurmissi, tælenska menningu, ferðalög, bílferð til Mosó með glæpamanni, slagsmál á Seyðisfirði og hvernig við lærum að elska sjálf okkur.
7/1/2018 • 1 hour, 17 minutes, 38 seconds
Þáttur 3 - Helgaspjallið: Beggi Ólafs
Þriðji viðmælandi í Helgaspjallinu er Beggi Ólafs. Þeir ræða vegan lífsstílinn, innblástur, karlmenn og tilfinningar, Eurovision, blogglífið og andlega heilsu.
6/24/2018 • 1 hour, 8 minutes, 1 second
Þáttur 2 - Helgaspjallið: Ragga Nagli
Íþróttasálfræðingurinn og athafnarkonan Ragga Nagli er gestur Helga að þessu sinni og þau ræða mindful eating, þeirra samband, Þýska bóndabæi, almennar vangaveltur og mátt sálfræðinnar.
6/17/2018 • 1 hour, 7 minutes, 5 seconds
Þáttur 1 - Helgaspjallið: Birgitta Líf
Fyrsti viðmælandi í fyrsta þætti Helgaspjallsins er Birgitta Líf. Þau ræða lífið og tilveruna, samfélagsmiðlana, Ungfrú Ísland, rappara, framtíðina og fortíðina.