Winamp Logo
Móðurlíf Cover
Móðurlíf Profile

Móðurlíf

Islandés, Parenting, 1 temporada, 24 episodios, 1 día, 0 horas
Acerca de
Hlaðvarpsþáttur þar sem vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín skyggnast inn í líf mæðra á Íslandi.
Episode Artwork

24. Fæðingarsaga & fyrstu dagarnir

Lítil Jóhannesdóttir fæddist þann 14.nóvember síðastliðinn, en hún hefur verið með okkur alveg frá fyrsta þætti í móðurkviði. Í þættinum segir Jóna okkur frá vægast sagt magnaðri fæðingarsögu sinni & fyrstu dögunum eftir að sú litla kom í heiminn. Þátturinn er í boði : Einn, tveir & elda www.einntveir.is 
13/12/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

23. Fæðingarreynsla & ófyrirséð veikindi

Gestur þáttarins er Jóna Kristín Friðriksdóttir 33 ára móðir og viðskiptafræðingur. Við fengum að heyra um erfiða fæðingarreynslu hennar, ófyrirséð veikindi dóttur hennar & af tímanum á vökudeild. *TW* Við viljum benda á að efni þáttarins getur verið truflandi. Einnig ræddum við um andlegu hliðina og mikilvægi heimaþjónustu eftir fæðingu. Þátturinn er í boði Einn tveir & elda www.einntveir.is 
2/12/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

22. Linnea Ahle - Saga Petit & burnout

Linnea Ahle er þriggja barna móðir, tvíburamamma & brautryðjandi í innflutningi á lífrænum barnafatnaði á Íslandi en hún og maðurinn hennar eiga og reka fyrirtækið Petit ehf sem er ein fremsta barnavöruverslun á Íslandi í dag. Við spjöllum um bakrunn hennar, uppbyggingu Petit samhliða barneignum, fórnarkostnaðinn og þrotlausu vinnunna í kringum það. Linnea opnar sig um burnout og ADHD greiningu og er ófeimin við að tala um hlutina eins og þeir eru. Einlægt og lærdómsríkt viðtal við þessa flottu fyrirmynd. Þátturinn er í boði : Einn, tveir & elda www.einntveir.is
24/11/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

21. Leikskólaaðlögun

Það er mikil breyting í lífi barns (og foreldra) að byrja í daggæslu, hvort sem það er hjá dagforeldri eða á leikskóla. Í þætti dagsins förum við yfir hvernig þetta gekk hjá okkur og hvað við hefðum viljað heyra áður en barnið byrjaði í aðlögun. Þátturinn er í boði : Einn tveir & elda www.einntveir.is 
15/11/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

20. Undirbúningur fyrir komu barns

Þegar von er á barni er vægast sagt margt sem breytist í lífi okkar. Dínamíkin á heimilinu breytist með hverju nýju barni og er mikilvægt að undirbúa alla vel fyrir þær breytingar sem eru í vændum. Við vinkonurnar eigum báðar von á barni svo eðlilega eru þessir hlutir okkur ofarlega í huga þessa dagana. Í þessum þætti förum við yfir okkar persónulegu reynslu af undirbúningi fyrir komu barns og hvernig við höfum undirbúið okkar eldri börn fyrir komu systkinis.  Þátturinn er í boði : Einn, tveir & elda www.einntveir.is 
6/11/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

19. Hildur Björns - Krabbamein eftir meðgöngu

Hildur Björnsdóttir, þriggja barna móðir og borgarfulltrúi er viðmælandi þáttarins. Í þættinum segir Hildur okkur frá því þegar hún greinist með krabbamein þegar yngsta barnið hennar er aðeins viku gamalt. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig hún nálgaðist veikindin gagnvart sínu elsta barni og aðstandendum. Við ræddum einnig daggæslu- og húsnæðismál í Reykjavík.  Hildur er sönn fyrirmynd en hugarfrið og krafturinn sem hún býr yfir er vægast sagt aðdáunarverður.  Þátturinn er í boði  : Einn tveir & elda www.einntveir.is 
2/11/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

18. Sólveig - Heimakennsla & hæglæti

Sólveig María er kennaramenntuð fjögurra barna móðir sem heldur úti instagram reikningnum Útivera og börnin. Þau hjónin fara heldur óhefðbundnar leiðir í uppeldi barna sinna en hún leggur áherslu á hæglæti og útiveru og þar að auki kennir hún 7 ára syni sínum heima.  Við ræðum um heimakennsluna, meðvirkni og hvernig hún snéri lífi sínu við eftir burnout og áfall sem hún varð fyrir. Þátturinn er í boði : Einn, tveir & elda www.einntveir.is Kóðinn “LÍF10” veitir hlustendum 10% afslátt af matarpökkum í október. Húsgagnaheimiliðwww.husgogn.is
24/10/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

17. Björkin - heimafæðingar

Björkin fæðingarþjónusta veitir samfellda þjónustu ljósmæðra frá 34.viku meðgöngu og þar til barn er 7-10 daga gamalt. Við áttum skemmtilegt spjall við Arneyju Þórarinsdóttir ljósmóður og annan eiganda Bjarkarinnar um starfsemi Bjarkarinnar & heimafæðingar. Þátturinn er í boði : Einn, tveir & elda www.einntveir.is Kóðinn “LÍF10” veitir hlustendum 10% afslátt af matarpökkum í október. Húsgagnaheimilið www.husgogn.is
17/10/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

16. Sigríður Björnsdóttir - Sálfræðingur

*TW*  Í viðtali þáttarins fjallar Sigríður um kynferðisofbeldi í æsku og efnið getur ýtt undir kveikjur hjá hlustendum. Fyrir þá sem hlusta, er því mikilvægt að hlúa vel að sér ef efnið veldur þeim hugarangri og geri ráðstafanir í samræmi við það. Efninu er ætlað að vera upplýsandi fyrir foreldra barna sem vilja auka þekkingu sína á forvörnum gegn kynferðisofbeldi og hvaða leiðir er hægt að fara til að vernda börn. Viljum minna á að það er aldrei of seint að leita sér hjálpar og hvetjum hlustendur til að leita leiða sem hentar þeim best. Hægt er að hafa samband við 1717, Drekaslóð, Stígamót, Aflið Akureyri og hjá sérfræðingum sem vinna með þolendum ofbeldis. Þátturinn er í boði Húsgagnaheimilið : www.husgogn.is Einn, tveir & elda : www.einntveir.is
10/10/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

15. Ebba Guðný - næring barna

Mataræði barnanna okkar skiptir okkur miklu máli og viljum við standa okkur vel á því sviði. Oft mikla foreldrar það fyrir sér að byrja að gefa barninu sínu fasta fæðu, en staðreyndin er sú að það þarf ekki að vera flókið. Í þessum þætti áttum við áhugavert og persónulegt spjall við Ebbu Guðný Guðmundsdóttur, matgæðing og höfund bókarinnar ''Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?'' Þátturinn er í boði : Húsgagnaheimilið : www.husgogn.is Einn, tveir & elda : www.einntveir.is
2/10/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

14. Uppeldi - okkar áherslur

Það má segja að það sé ákveðin list að ala upp einstakling og það er ekki meðfæddur hæfileiki. Því þurfa foreldrar að íhuga það vel hvað þeir vilja tileinka sér í uppeldi barna sinna. Í nýjasta þættinum ræðum við um hvað við leggjum áherslu á í okkar uppeldishlutverki.   Þátturinn er í boði Einn, tveir & elda: https://www.einntveir.is
26/9/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

13. Þórdís Björk - sambandsslit á meðgöngu

Við fengum til okkar Dísu, móðir og leikkonu í einlægt og skemmtilegt spjall. Dísa var að ganga í gegnum sambandsslit þegar hún komst að því að hún var ólétt. Við fáum að heyra hennar upplifun af meðgöngunni og ræðum líka fæðinguna og lífið sem einstætt foreldri. Þátturinn er í boði Einn, tveir & elda: https://www.einntveir.is/
17/9/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

12. Tinna Rún - hreyfing fyrir og eftir meðgöngu

Í þættinum heyrum við í Tinnu Rún Svansdóttur, sérhæfðum einkaþjálfara í heilsu á meðgöngu og eftir fæðingu. Við tölum m.a um líkamsímynd, samfélagsmiðla pressu og mikilvægi þess að hreyfa sig á sínum eigin hraða.
6/9/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

11. Yrja - Foreldrakulnun

Í þessum þætti fengum við til okkar Yrju Kristinsdóttur, markþjálfa og stofnanda Dafna.is. Upplýsandi spjall þar sem við ræðum m.a. jákvæða sálfræði & foreldrakulnun. Einnig fáum við mörg hagnýt ráð og æfingar til að gera heima.  Persónuleikapróf : www.viacharacter.org
22/8/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

10. Létt spjall eftir sumarfrí

Tókum smá spjall um sumarfríið, stöðuna á meðgöngunum og svöruðum svo nokkrum random spurningum í lokin.
15/8/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

9. Ingileif & María - barneignarferlið & móðurhlutverkið

Innihaldsríkt spjall við hjónin Ingileif og Maríu, tveggja barna mæður sem eru duglegar að rugga bátnum í jafnréttismálum. Í þættinum heyrum við reynslu þeirra af barneignaferlinu og móðurhlutverkinu.
27/6/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

8. Lífið eftir fæðingu

Framhald af síðasta þætti þar sem við ræðum reynslu okkar af sængurlegunni og fyrstu vikunum eftir að barn kemur í heiminn.
20/6/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

7. Meðganga & fæðing - okkar reynsla

Í þættinum förum við yfir okkar persónulegu reynslu af meðgöngu og fæðingu og hvað kom okkur á óvart í ferlinu. 
13/6/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

6. Fitby Sigrún - hreyfing á og eftir meðgöngu

Sigrún María, eigandi Kvennastyrks mætti til okkar í spjall um hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu. Einnig töluðum við um mátt hugans og hvernig hún tileinkaði sér sitt einstaka hugarfar.
6/6/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

5. Helga Reynis - ljósmóðir

Í þessum þætti ræðum við m.a sængurlegu, hlutverk maka og kynlíf eftir fæðingu við Helgu Reynisdóttur ljósmóður. 
30/5/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

4. Camilla Rut - fæðingarþunglyndi

Camillu Rut kom til okkar í persónulegt spjall þar sem hún ræðir meðal annars fæðingarþunglyndi og burnout.
23/5/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

3. Sunneva - meðgöngueitrun & fyrirbura fæðing

Sunneva Ómarsdóttir kemur til okkar og ræðir meðgöngueitrun sem hún fékk skyndilega á 29. viku og í kjölfarið fæddist dóttir hennar 11 vikum fyrir tímann. 
16/5/20210 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

2. Sandra Ýr - barnsmissir

Í þessum þætti deilir Sandra Ýr Grétarsdóttir átakanlegri sögu sinni af skyndilegu fráfalli sonar síns, hvernig hún leiddist út í neyslu í kjölfarið og leiðina aftur á beinu brautina. 
3/5/20211 hora, 0 minutos, 0 segundos
Episode Artwork

1. Kynning

Í þessum fyrsta þætti kynna vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín hugmyndina á bakvið Móðurlíf.
3/5/20210 minutos, 0 segundos