Winamp Logo
Ljósmyndaraspjallið Cover
Ljósmyndaraspjallið Profile

Ljósmyndaraspjallið

Icelandic, Arts, 1 season, 19 episodes, 15 hours, 47 minutes
About
Áhugaljósmyndarar spjalla um ljósmyndum við hvorn annan og við aðra ljósmyndara, atvinnu og áhugafólk.
Episode Artwork

Gunnar Freyr Jónsson #19

Jæja það gerðist, Óli Jóns og Gunnar Freyr gáfu sér loks tíma til að setjast niður og taka upp nýjan þátt af Ljósmyndaraspjallinu. Við leituðum ekki mjög langt af viðmælanda í þetta skiptið, Óli tók viðtal við Gunnar.Gunnar ákvað að demba sér í djúpu laugina og gerast atvinnuljósmyndari. Hann er kominn með ljómandi fínt stúdíó í Grafarvoginum og rekur sitt fyrirtæki undir nafninu Thule Photo.Í þessum þætti er farið aðeins yfir ferlið að fara frá áhugamanni í atvinnumann, hvað hefði mátt gera betur, hvað gekk vel og svo fram vegis.Græjuhornið er á sínum stað ásamt allskonar vitleysu og almennri umræðu um ljósmyndun í sínu víðasta samhengi.Af gefnu tilefni biðjumst við velvirðingar á hljóðgæðum en eitthvað hefur tæknistjórinn ryðgað í þessari pásu.
1/14/202350 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

Laufey Ósk #18

Laufey Ósk Magnúsdóttir er ljósmyndari og eigandi Stúdíó Stund sem er ljósmyndastofa á Selfossi. Laufey hefur starfað sem ljósmyndari frá 2011. "Við leggjum áherslu á að taka fjölskyldumyndir í öllum sínum fjölbreytileika og þá bæði við einhver tilefni eins og fermingar, stúdent og brúðkaup en líka án tilefnis. 
10/5/202152 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Rán Bjargar #17

9/15/202146 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Díana Júlíusdóttir #16

8/11/202158 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

Páll Jökull Pétursson #15

7/24/202157 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

Fjórtándi þáttur Elín Björg

Elín Björg kom í spjall til Gunnars og Óla í síðast liðnum mánuði. Elín Björg segir okkur meðal annars frá Boudoir ljósmyndun. Á elinbjorg.om segir um Elínu;"I am a photographer based in Reykavik, Iceland. I specialize in event photography and boudoir. My goal with photography is empowering women by showing them how beautiful they are. I focus on photographing non-models.I studied at the technological school in Reykjavík, born in Iceland, raised in Sweden and returned to Iceland for an Icelandic education." Hér má sjá Instagram síður Elínar Boudoir_by_elin og elinbjorgphoto
3/16/202141 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

Þrettándi þáttur Ásta Kristjáns

Í þessu þætti spjalla Óli og Gunni við Ástu Kristjáns ljósmyndara.Hún hefur margra ára reynslu bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Ásta stundaði nám við Parsons í New York um tíma og lauk námskeiði hjá MASTERED í London undir leiðsögn Nick Knight.Ljósmyndir eftir Ástu hafa birst víða, bæði í tímaritum eins og Vogue Italia, Vogue India og Surface Magazine en líka sem auglýsingar fyrir fyrirtæki eins og LinkedIN, WOW Air, Dove og Amnesty. Hægt er að skoða þau verkefni á vefsíðu hennar www.astakristjans.com
2/18/202135 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

Tólfti þáttur Sigurður Ólafur Sigurðsson

Sigurður Ólafur Sigurðsson er ljósmyndari með bakgrunn í leit og björgun og menntun björgunarfólks.  Hann útskrifaðist með hæstu einkun úr ljósmyndun frá Tækniskólanum vorið 2012 og hefur starfað við fagið síðan.Hann myndar mikið fyrir aðila í neyðargeiranum, ásamt fjölbreyttri flóru fyrirtækja og stofnana. Með ljósmyndun fyrir neyðargeirann sameinar hann tvö af sínum helstu hjartans málum, björgunarstörfum og ljósmyndun og reynslan úr þeirri vinnu nýtist vel í verkefnum fyrir aðra aðila.Siguður Ólafur gaf nýverið út bókina Shooting Rescue. Í þessu spjalli ræðum við tilkomu þessarar bókar, björgunarstörfin og ljósmyndun almennt.
1/22/202159 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

Ellefti þáttur Pétur Þór Ragnarsson

Ellefti þáttur Ljósmyndaraspallsins lítur dagsins ljós, hressilegt og gott spjall við Pétur Þór Ragnarsson ljósmyndara. 
1/11/20211 hour, 1 minute, 7 seconds
Episode Artwork

Tíundi þáttur Gígja Einarsdóttir

Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir hefur síðustu ár fangað einstök augnablik af íslenska hestinum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndir hennar hafa meðal annars birst á veggjum lúxushótela og fatnaði og vörum frá þekktum tískuvörumerkjum eins og H&M og Urban Outfitters.Hesturinn er einstaklega falleg og kraftmikil skepna og hefur heillað listamenn frá örófi alda. Hann er viðfang meðal annars í fornum hellaristum, teikningum frá miðöldum og óteljandi ljósmyndum, eftir að sú tækni kom til. Gígja er fjölhæfur ljósmyndari, en hefur einstaka hæfileika til að sjá hestinn í allri sinni fegurð. Hún er uppalin í sveit og hefur frá blautu barnsbeini rýnt í atferli í hrossastóði, á því mjög auðvelt með að ná trausti hestanna og nálgast þá.Instagramgigjae.com
12/2/202043 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

Níundi þáttur Eiríkur Ingi

Eiríkur Ingi er tveggja barna faðir og ljósmyndari.Á eirikuringi.is segir um hann"Eins og sennilega allir í mínu fagi þá hef ég alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun frá því ég man eftir mér. Ég byrjaði þó ekki að mynda af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist son minn. Þá sá ég að þetta var eitthvað sem ég myndi vilja gera miklu meira af.Eftir átta ár í þessu starfi tel ég mig vera kominn góða reynslu og þekkingu af flestu sem við kemur ljósmyndun.Fjöldi ánægðra viðskiptavina tala sínu máli"
11/6/202059 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Áttundi þáttur Heida HB

Heida HB er íslenskur ljósmyndari, staðsett á höfuðborgarsvæðinu, en mjög færanleg :-) Hún lærði ljósmyndun í Tækniskólanum og útskrifaðist þaðan 2013. Hún tekur að sér alls kyns verkefni, en mest þó af brúðkaupum, fermingum, barnamyndatökum og öðrum portrait tökum.
10/29/202050 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Sjöundi þáttur Haraldur Guðjónsson Thors

Haraldur Guðjónsson Thors blaðaljósmyndari og kennar í ljósmyndum hjá Tækniskólanum
10/6/202058 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

Sjötti þáttur Sævar Helgi Bragason, allt um stjörnuljósmyndun

Sævar Helga Bragason til að spjalla við okkur um stjörnumyndatöku. Þetta var mjög fræðandi og kveikti vel upp í nördinum og græjufíklinum í manni. Til að stikla á stóru, fræddi hann okkur um hvaða búnað maður þarf fyrir mismunandi myndatöku, hvaða þekkingu maður þarf að tileinka sér til að ná árangri í þessu og kom með góð ráð um hvernig maður kemst af stað í  að mynda himininn. Auk þess fengum við vænan skammt af eðlis- og stjörnufræðikennslu á mettíma.
9/17/202042 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

Fimmti þáttur Styrmir Kári og Heiðdís

Styrmir Kári og Heiðdísi sem sérhæfa sig í brúðkaupum. Þau eru ólík flestum að því leyti að þau vinna eingöngu "on location" , nota bara náttúrulegt ljós, með sinn sérstaka stíl og eru hjón sjálf. Mjög áhugavert spjall. Kíkið á þau á https://www.styrmir-heiddis.com
9/11/202045 minutes, 56 seconds
Episode Artwork

Fjórði þáttur Birta Rán

Birta Rán Björgvinsdóttir í spjalli með Óla Jóns og Gunnari Freyhttps://www.birtaran.com/https://www.instagram.com/birtarnbhttps://www.youtube.com/user/birtarnb
9/2/202056 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

Fyrsti þáttur Kynning á stjórnendum

Í þessum fyrsta þætti af  Ljósmyndarapsjallinum fáum við að kynnast stjórnendum þeim Óla Jóns og Gunnari Frey
7/18/202042 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

Þriðji þáttur Marínó Flóvent

Í þessum þætti kíkti Marínó Flóvent í spjall hjá Óla og Gunna. Marínó er atvinnuljósmyndari og má sjá hans verk hér https://www.mflovent.com/
7/18/202049 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

Annar þáttur Ljósmyndun í Covid

Í þessum þætti ræða Gunni og Óli ljósmyndum í Covid þar sem Gunni var nýbúinn í sóttkví
7/18/202034 minutes, 20 seconds