Winamp Logo
Hnotskurn Cover
Hnotskurn Profile

Hnotskurn

Icelandic, Social, 1 season, 9 episodes
About
Örugga kynslóðin er þáttur þar sem fjallað er sérstaklega um málefni unga fólksins. Umsjónarmenn: Ingvar Þór Björnsson og Laufey María Jóhannsdóttir.
Episode Artwork

Staða loftslagsmála á Íslandi og Taylor Swift

Í áttunda þætti Hnotskurn verður farið yfir stöðu loftslagsmálanna á Íslandi í tilefni af borgarafundi Kastljóss um loftslagsmál sem fram fer í kvöld. Þá skoðum við hvers vegna bandarískir nýnasistar og hvítir þjóðernissinnar sjá poppstjörnunaTaylor Swift í dýrðarljóma.
11/19/20190
Episode Artwork

Menntasjóður námsmanna og boxbardagi Logan Paul og KSI

Á Alþingi er nú til umfjöllunar frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem ætlað er að koma í stað LÍN, við skoðum frumvarpið nánar og ræðum við Sigrúnu Jónsdóttur, forseta Landsamtaka íslenskra stúdenta. Svo skoðum við einar stærstu YouTube erjur sögunnar milli Logan Paul og KSI sem börðust í hnefaleikahringnum í annað sinn um helgina.
11/12/20190
Episode Artwork

CrossFit-kaos og frelsaður Kanye West

Í Hnotskurn vikunnar skoðum við CrossFit og lyfjanotkunarumræðu síðustu daga og rýnum í nýjustu plötu tónlistarmannsins Kanye West.
11/5/20190
Episode Artwork

Nauðungarhjónabönd og saga hrekkjavökunnar.

Í Hnotskurn í dag er fjallað annars vegar um sögu Hrekkjavökunnar, tengsl hennar við Ísland og gamlar hefðir. Í seinni hluta þáttarins er fjallað um barnahjónabönd á heimsvísu en þó sérstaklega í Malaví. Tilefni umfjöllunarinnar er Landssöfnun UN Women sem fer fram á RÚV 1. nóvember.
10/29/20190
Episode Artwork

Áróðurssíður á Facebook og fíaskóið í höllinni

Í þessum fjórða þætti Hnotskurnar fjöllum við um vandræðin í bresku konungshöllinni en breskir fjölmiðlar hafa verið sérstaklega óvægnir í garð nýju hertogaynjunnar Meghan Markle. Þá segjum við einnig frá íslenskum nafnlausum áróðurssíðum á samfélagsmiðlinum Facebook og veltum upp áleitnum spurningum um hvort þeim takist ætlunarverk sitt.
10/22/20190
Episode Artwork

Vandræði GAMMA og fimleikadrottningin Simone Biles

Í þessum þriðja þætti af Hnotskurn förum við yfir feril fimleikakonunnar stórkostlegu, Simone Biles, sem varð um helgina sú fimleikakona (og maður) sem hefur hlotið flesti verðlaun á heimsmeistaramóti frá upphafi. Við rýnum líka í vandræði fjárfestingafyrirtækisins GAMMA sem hafa verið áberandi í fréttum undanfarið.
10/15/20190
Episode Artwork

Bótakröfur í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og Law & Order SVU

í þessum öðrum þætti af Hnotskurn rýnum við í langlífustu leiknu sjónvarpseríu Bandaríkjanna, Law & Order: Special Victims Unit. Við förum líka yfir bótakröfurnar sýknaðra og aðstandenda í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
10/8/20190
Episode Artwork

Loftslagsmál og deilur innan embættis ríkislögreglustjóra

Í þessum fyrsta þætti verður farið yfir allar staðreyndirnar í málefnum loftslagsbreytinga, sögu þeirra, vísindalegar skýringar og mögulegar framtíðir. Þá verða deilur innan embættis ríkislögreglustjóra krufið til mergjar.
10/1/20190
Episode Artwork

Kynning

Kynning á Hnotskurn, umsjónarmenn eru Helga Margrét Höskuldsdóttir og Snærós Sindradóttir.
9/24/20190