Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum. Samsetning: Adelina Antal
Hvarf Valgeirs Víðissonar
Í sumar eru 30 ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi. Hvarfið er eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál okkar tíma og rannsóknin stóð yfir árum saman. Ótal flökkusögur urðu til og lögeglu bárust fjöldi ábendinga og samsæriskenninga í gegnum árin en allt kom fyrir ekki, hvarf Valgeirs er enn óupplýst. Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður rifjar upp rannsóknina í Eftirmálum og fer yfir hvað verður um mál sem lögreglu tekst ekki að upplýsa. Þátturinn er í boði:Nettó World Class Sjöstrand Einn, tveir og elda
1/22/2024 • 50 minutes, 33 seconds
Lekamálið
Hanna Birna Kristjánsdóttir sætti líflátshótunum og þurfti lögregluvernd þegar hún var innanríkisráðherra fyrir áratug. Ástæðan er Lekamálið svokallaða, þegar minnisblaði með persónuupplýsingum um hælisleitendur var lekið úr ráðuneyti hennar til fjölmiðla. Í framhaldinu fór af stað fordæmalaus atburðarás og úr varð eitt stærsta fréttamál áratugarins. Lekamálið varð til þess að Hanna Birna hætti alfarið í pólitík en í Eftirmálum gerir hún atburðarásina upp í fyrsta sinn.Þátturinn er í boði:Nettó World Class Sjöstrand Einn, tveir og elda
1/9/2024 • 1 hour, 32 minutes, 25 seconds
Catalinumálið
Catalina Ncogo var umtalaðasta kona landsins árið 2009 og hristi rækilega upp í íslensku samfélagi. Saga Catalinu er lyginni líkust en hún fór frá því að vera húsmóðir í Vestmannaeyjum í að vefja karlmönnum um fingur sér og halda úti umfangsmestu vændisstarfsemi Íslandssögunnar í næsta húsi við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Fallið var hátt þegar hún hlaut þungan fangelsisdóm fyrir milligöngu um vændi. Catalina fer yfir atburðarásina og sína hlið málsins í Eftirmálum auk þess að segja frá lífi sínu í dag.
9/12/2023 • 49 minutes, 30 seconds
Dularfullt andlát á Litla–Hrauni
Þegar fangi lést með dularfullum hætti og án sýnilegra áverka á Litla-Hrauni árið 2012 fór af stað löng og afdrífarík atburðarás. Tveir alræmdustu handrukkarar landsins voru ákærðir í málinu, en ekki er allt sem sýnist. Annar þeirra, Annþór Karlson, fer yfir þetta óvenjuega mál í þættinum en rannsóknin er ein sú ítarlegasta sem lögregla hefur ráðist í á síðari árum og tók fimm ár fyrir d ómstólum. Annþór, sem segist nú hafa snúið blaðinu við, fer einnig yfir uppvöxtinn, undirheimana og margt fleira í Eftirmálum.
9/3/2023 • 1 hour, 10 minutes, 7 seconds
L úkasarmálið
Umtalaðasti hundur Íslandssögunnar er án efa kínverski smáhundurinn Lúkas sem hvarf á Akureyri sumarið 2007. Út breiddist sú lygasaga að hópur drengja hefði leikið sér að því að drepa varnarlausan hundinn með hrottafengnum hætti. Þjóðin sameinaðist í sorg, haldnar voru minningarathafnir og kommentakerfi netheima loguðu. Þegar Lúkas fannst á lífi nokkrum vikum síðar tók málið aðra stefnu og varð kennslustund í hvernig á ekki að haga sér á internetinu.
2/22/2023 • 48 minutes, 20 seconds
Flugslys við Þingvallavatn
Ein erfiðasta og umfangsmesta leit sem lögregla og björgunarsveitir hafa farið í hér á landi var þegar lítil flugvél hvarf í byrjun febrúar 2022. Fjórir voru um borð í vélinni, vanur íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn og áhrifavaldar. Dagana fyrir slysið höfðu þeir ferðast um landið íslenskum vini sínum, Jóni Ragnari Jónssyni. Í Eftirmálum lýsir Jón Ragnar frá fyrstu hendi þeirri óhugnanlegu atburðarás sem fór af stað eftir að hann gerði yfirvöldum viðvart um að vélin hefði ekki skilað sér á tilsettum tíma.Samsetning: Arnar Jónmundsson
1/24/2023 • 1 hour, 15 minutes, 45 seconds
Ísafjarðarmálið
Eitt umtalaðasta fréttamál síðari tíma er Ísafjarðarmálið svokallaða sem setti íslenskt samfélag á hliðina í tvígang. Málið kom upp árið 2006 þegar DV birti forsíðu með fyrirsögn um einhentan kennara sem olli gríðarlegu fjaðrafoki. Málið skaut svo aftur upp kollinum sjö árum síðar en þá komu í ljós aðrar hliðar á því. Andri Ólafsson, blaðamaðurinn sem skrifaði upphaflega um málið, fer yfir atburðarásina í Eftirmálum.Samsetning: Arnar Jónmundsson
1/11/2023 • 51 minutes, 12 seconds
37 ára fangelsisdómur Söndru Sigrúnar
Sandra Sigrún Fenton var árið 2013 dæmd í 37 ára fangelsi fyrir tvö vopnuð rán í Bandaríkjunum. Þetta er þyngsti fangelsisdómur sem Íslendingur hefur hlotið fyrr og síðar. Margrét Fenton, móðir Söndru, segir sögu dóttur sinnar í þættinum og lýsir aðstæðum og atburðarás sem er lyginni líkust en Sandra hefur nú afplánað níu ár af dómnum í illræmdu öryggisfangelsi í Virginíu.Samsetning: Arnar Jónmundsson
12/18/2022 • 59 minutes, 55 seconds
Flugslys við Múlakot
Ida Björg Wessman flugmaður missti foreldra sína og yngri bróður í hræðilegu flugslysi við Múlakot í júní 2019. Slysið vakti mikinn óhug, ekki síst í flugsamfélaginu, þar sem faðir Idu var reyndur flugstjóri og bróðir hennar nýútskrifaður flugmaður. Ida hefur ekki tjáð sig um þessa atburði hingað til en segir sögu sína í Eftirmálum.Samsetning: Adelina Antal
5/4/2022 • 1 hour, 13 minutes, 32 seconds
Flótti Matthíasar Mána
Einn best skipulagði flótti úr fangelsi hér á landi var þegar Matthíasi Mána Erlingssyni tókst að flýja úr fangelsinu á Litla-Hrauni í desember 2012. Hann var á flótta í tæpa viku og á þeim tíma hafðist hann við í sumarbústöðum í uppsveitum Árnessýslu útbúin eins og Rambó, stal fjórhjóli sem hann ferðaðist á um að næturlagi, nýtti tunglsljós til að sjá í myrkri og hugðist veiða sér til matar með haglabyssu. Margrét Frímannsdóttir, fyrrum forstöðumaður á Litla-Hrauni, fer yfir málið í þættinum.Samsetning: Adelina Antal
4/27/2022 • 42 minutes, 58 seconds
Eiginkona myrt í Sandgerði
Í mars 2020 lést kona að nafni Björg á heimili sínu í Sandgerði. Hún var móðir þeirra Braga og Ástu sem héldu fyrstu dagana eftir andlátið að Björg hefði verið bráðkvödd og syrgðu hana ásamt föður sínum Ragnari. Jörðin hrundi aftur, fjórum dögum eftir andlátið, þegar lögreglan handtók Ragnar föður systkinanna vegna gruns um að hann hafi myrt eiginkonu sína. Það hafði komið í ljós við krufningu á líkinu. Bragi og Ásta opna sig einlæglega um þessa skelfilegu atburði í lífi sínu í Eftirmálum.Samsetning: Adelina Antal
4/11/2022 • 43 minutes, 54 seconds
Ásdís Rán og rafmyntadrottningin sem hvarf
Sími Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur var hleraður í aðdraganda þess að besta vinkona hennar, Ruja Ignatova, hvarf sporlaust frá Búlgaríu í október 2017. Ruja var ein ríkasta kona heims og hafði hagnast gríðarlega á One Coin, rafmynt sem síðar kom í ljós að var byggð á píramídasvindli. Ásdís opnar sig um hvarf vinkonu sinnar í þættinum og lýsir atburðarásinni frá fyrstu hendi. Samsetning: Adelina Antal
4/4/2022 • 1 hour, 5 minutes, 15 seconds
Fjárkúgunarmálið
Í júní 2015 gerðu systurnar og fjölmiðlakonurnar Hlín Einarsdóttir og Malín Brand tilraun til að kúga milljónir út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi forsætisráðherra. Lögreglan tók fjárkúguninni mjög alvarlega og sérsveitarmenn fóru í dulargervi og umfangsmiklar aðgerðir þegar peningarnir voru afhentir. Málið átti svo eftir að snúast upp í ákveðinn farsa og fjölmiðlasprengju. Sigmundur Davíð tjáir sig um atburðarásina í fyrsta sinn í þættinum.